Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 28
föstudagur 13. júní 200828 Helgarblað DV
Tvær vikur eru síðan öflugur jarð-
skjálfti, með upptök undir Ingólfs-
fjalli, reið yfir Suðvesturlandið. Tölu-
verð skelfing greip um sig í fyrstu,
enda ljóst að jafnvel þótt ekkert
manntjón hefði orðið væri eignatjón
mikið og tugir fólks væru húsnæðis-
lausir.
Starfsfólk Rauða krossins er enn
að störfum í Hveragerði og á Selfossi
þar sem fólki er veitt aðstoð eftir því
sem þurfa þykir. Bryndís Friðgeirs-
dóttir, svæðisfulltrúi hjá Rauða kross-
inum, sagði í samtali við DV að flestir
væru búnir að átta sig á því tjóni sem
varð í jarðskjálftanum 29. maí. Hins
vegar væri enn nokkur fjöldi fólks
sem leitaði sér aðstoðar vegna áfalla
í tengslum við skjálftana.
Í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjar-
klaustri óttuðust íbúar fyrsta kastið að
Kötlugos væri í uppsiglingu. Bændur
í grennd við Þjórsá sögðust einnig
hafa fundið mun sterkar fyrir þess-
um síðasta stóra skjálfta en skjálft-
unum sem urðu árið 2000. Máli sínu
til staðfestingar benti Ólafur Sigur-
jónsson, bóndi á Forsæti, á að nýjar
sprungur hefðu myndast í hrauninu
við Dælarétt í grennd við Þjórsárbrú.
Brýr stóðu flestar af sér hamfarirnar.
Aðeins ein brú við Arnarbæli í Ölfusi
var úrskurðuð ónýt. Umferð hefur nú
verið hleypt á brúna með þungatak-
mörkunum.
Eftir stendur að fjölmargir íbúar á
Suðurlandinu eru í þrotlausri vinnu
við að koma heimilum og vinnustöð-
um í samt lag. Eignatjónið nemur að
líkindum milljörðum króna.
Eftir skjálftann
Tvær vikur liðnar frá því að
öflugur jarðskjálfti reið yfir
Suðavesturlandið:
Tiltekt Mikið starf blasir við
íbúum á skjálftasvæðunum.
Í Gljúfurárholti Miklar
skemmdir urðu á útihúsum
í gljúfurárholti.
Sýnilegar skemmdir
Mikið var um að útihús á
sveitabæjum skemmdust í
jarðskjálftanum.
Talsvert áfall fjöldi fólks
situr uppi með ónýtar
eignir og innbú.
Nýir hverir nýir hverir
mynduðust í grennd
við Hveragerði.
Í Þórustaðanámu umtalsvert
grjóthrun varð í Ingólfsfjalli, enda
upptök skjálftans undir fjallinu.
Vinna hélt þó fljótlega áfram í
Þórustaðanámu í Ingólfsfjalli.
Rannsóknir Vísindamenn virða
fyrir sér nýjan leirhver í Hveragerði.
dV-mynd María dV-mynd Ásgeir
dV-mynd sigtryggur
dV-mynd sigtryggur
dV-mynd sigtryggur
dV-mynd María