Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 40
föstudagur 13. júní 200840 Helgarblað DV
Margrét R. Jónasar, 38 ára fram-
kvæmdastjóri og eigandi Make up
Store, fékk snemma áhuga á tísku,
förðun og glamúr. „Sem barn setti
ég upp tískusýningar fyrir alla gesti
sem komu heim og þegar ég var tíu
ára var ég orðin áskrifandi að Mad-
emoiselle og að auki notaði ég viku-
peningana mína til að kaupa tísku-
blöð sem ég klippti gjarnan hitt
og þetta út úr.“ Á unglingsaldri var
Margrét svo farin að mála og klippa
vinkonur, frænkur sínar og ömmur.
Það skal því engan undra að örlög
þessarar ungu konu hafi leitt hana á
þann stað þar sem hún er í dag.
Margrét á fjórtán ár að baki í
snyrtivörubransanum og hefur
unnið fyrir ótal snyrtivörumerki
hér á landi. „Á seinni árum vann ég
freelance fyrir hin ýmsu fyrirtæki og
aðila en auk þess farðaði ég mikið
fyrir tískusýningar, tónlistarmynd-
bönd, sjónvarps- og blaðaauglýs-
ingar. Einnig starfaði ég í nokkur
ár sem förðunarmeistari á Stöð 2
og síðar hjá RÚV.“ Það er auðheyrt
að Margrét hefur mikla reynslu og
hefur komið víða við á ferlinum.
„Skemmtilegast fannst mér þó að
farða fyrir Fashion Week erlendis og
að halda námskeið fyrir konur,“ seg-
ir Margrét.
Í dag rekur Margrét tvær versl-
anir undir merkjum Make Up Store,
annars vegar í Kringlunni og hins
vegar í Smáralindinni. Margrét seg-
ist hafa skoðað mörg merki áður en
hún ákvað að velja Make Up Store.
„Ég skoðaði mörg merki og fundaði
með aðilum frá nokkrum stórum
merkjum í Evrópu og Bandaríkjun-
um. Ákvað svo að velja Make Up
Store – professional sem er sænskt
merki en eins og margir vita eru Sví-
ar þekktir fyrir að framleiða gæða-
vörur eins og Volvo, Ericsson, Ikea
og fleiri. Ég varð strax svo hrifin af
vörunni enda er hún náttúruleg og
verðið sanngjarnt. Mér fannst skipta
miklu máli að verðið væri hagstætt
svo að almenningur hefði ráð á að
kaupa vörurnar,“ segir Margrét.
Merkið var tiltölulega lítið þekkt
hér heima en hefur fengið frábærar
viðtökur að sögn Margrétar. „Fólk
kemur aftur og aftur eftir að hafa
prófað vörurnar og ekki skemm-
ir fyrir að ég er með frábæra förð-
unarfræðinga sem hafa svo gaman
af því að kenna viðskiptavinunum
allt um vöruna og segja frá hvað sé
nýtt í snyrtibransanum. Sjálf heill-
aðist Margrét af heimspekinni hjá
merkinu. „Það að vera með gæða-
vöru og kenna fólki að nota hana er
æðislegt. Mýktin, litirnir, pakkning-
arnar og allt í kringum vörurnar er
svo skemmtilegt og heillandi. Svo er
einstakt að fá nýjar litalínur og vör-
ur í hverjum mánuði.“
Talið berst að íslenskum kon-
um og tískuvitund þeirra. „Íslensk-
ar konur eru margar hverjar mjög
smart en stundum get ég orðið leið
eftir að ég kem heim frá útlönd-
um. Þá sé ég hvað í raun fáar konur
punta sig, þá er ég að tala um allan
pakkann, hár, förðun og skart. Það
er svo gaman að gera sig fína þá líð-
ur manni svo vel.“
Margrét segir íslenskar konur
ekki hræddar við að prófa nýja hluti
þegar kemur að förðun. „Ef konum
er kennt hvernig hægt er að nota
vöruna og þeim sýnt hvað fer þeim
vel eru þær ofboðslega ánægðar og
til í nýjungar.“
Auk þess að vera framkvæmda-
stjóri og eigandi tveggja verslana
sem mun jafnvel fara fjölgandi á
næstunni á Margrét tvær dætur og
liggur því beint við að spyrja hana
hvernig gangi að sameina rekst-
ur verslananna og heimilisins.
„Það gengur prýðilega.
Ég get ekki verið alveg
eins mikið í verslun-
unum og ég vildi þar
sem mikill tími fer
í reksturinn, mark-
aðsmálin og sam-
skiptin við Sví-
ana. Eldri dóttir
mín starfar nú í
versluninni með
skóla og er orð-
in mjög efnileg
að farða. Sú
yngri er mjög
sátt við starf
móður sinn-
ar enda mik-
il áhuga-
manneskja,“
segir Mar-
grét að lok-
um.
Konan
Spakmæli
Á hverjum degi á ferð þinni um veg lífsins verða litlir og stórir dem-
antar á vegi þínum, lærðu að njóta allra þessara demanta hvern dag.
stoppaðu og horfðu í kringum þig og horfðu bara á hvað náttúran er
falleg, stráðu demöntum og færðu öðrum gleði. njóttu demantanna
með maka, börnum, fjölskyldu og vinum. demantarnir eru tákn um
allt það fallega og góða í lífinu. Þessi fallegu orð má finna á www.vel-
gengni.is ásamt mörgum öðrum. skráðu þig á síðuna og fáðu send
falleg og hvetjandi spakmæli dag hvern.
umsjón: kOLBrún pÁLína hELgadóttIr kolbrun@dv.is
Frá unga aldri hefur hún skipulagt tískuviðburði, farðað og legið
yfir tískublöðum. Í dag rekur hún verslanir Make Up Store og
kennir íslenskum konum að farða sig. kolbrún pálína Helga-
dóttir hitti margréti R. Jónasar og spjallaði um förðun, rekst-
urinn, tískuvitund íslenskra kvenna og fleira skemmtilegt.
Við fengum Margréti til að gefa okkur hugmynd um það hvað koma
skal í förðun í sumar og gefa okkur nokkur góð ráð.
andlit:
n frískleg og ljómandi húð án púðurs er falleg, sérstaklega á sumrin, en fyrir
suma getur það verið vandamál að nota ekki púður. Eins og fyrir blandaða og
feita húð. Þá er upplagt að nota „Blotting paper“ í stað púðurs til að halda við
frískleikanum. Blotting paper er pappír sem dregur í sig húðfitu þannig að
húðin er frískleg og falleg án þess að vera of mikið glansandi eða feit. fyrir
normal þurra húð er fallegt að bera á Blend & fix-krem sem er glært. kremið
gefur eðlilega áferð á staði eins og kinnbein, nef og enni. hægt er að blanda
örlitlu litadufti út í til að fá aukinn ljóma, til dæmis í gylltum blæ.
augu:
n augun eru ekki dökk í sumar. sanseringin er að lauma sér inn aftur og þá í
kringum augun en ekki undir augabrún sem highlight. Lítið er um skyggingar í
sumar en heldur meira um að bera augnblýant í mjórri línu kringum allt augað
og setja síðan litað duft „eyedust“ létt yfir blýantinn. Litir sem eru vinsælir núna
eru mildir grábláir tónar og út í fjólublátt og silfur.
kinnar:
n Bleikar kinnar eru algert „must“ í sumar. Þegar sólarpúðri hefur verið rennt
með stórum bursta létt í kringum andlit og undir kinnbein er fallegt að setja
baby-bleikan lit fremst í kinnarnar, jafnvel er gaman að blanda saman „Blend
& fix“-kreminu við litaduft til að útbúa sinn eigin kremkinnalit.
Breyttar áherslur í förðun í sumar
Góðar móttökur Eigandi make up
store á íslandi, margrét r. jónasar, setur
markið hátt og stefnir á að opna fleiri
búðir hér á landi. hún segir móttökurnar
hafa verið framar vonum.
Heillaðist
af Heimspeki
make Up store