Morgunblaðið - 13.02.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.02.2015, Blaðsíða 1
4 ár Sigurður Einarsson 4 1/2 ár Magnús Guðmundsson 4 1/2 ár Ólafur Ólafsson 5 1/2 ár Hreiðar Már Sigurðsson Hallur Már Hallsson Jón Pétur Jónsson Kristján H. Johannessen „Þessi brot voru stórum alvarlegri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dómaframkvæmd varðandi efnahagsbrot. … (Brotin) voru þaul- skipulögð, drýgð af einbeittum ásetningi og eindæma ófyrirleitni og skeytingarleysi. Öll voru brotin framin í samverknaði og beindust að mikilvægum hagsmunum,“ segir í dómi Hæstaréttar í Al Thani-málinu svonefnda sem féll í gær. Allir sakborningarnir fjórir í Al Thani-málinu voru sakfelldir fyrir Hæstarétti. Var Hreiðar Már Sig- urðsson, fyrrverandi forstjóri Kaup- þings, dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi, Sigurður Einarsson, fyrr- verandi stjórnarformaður bankans, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi, Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi og Magnús Guð- mundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, sömuleiðis í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Tveir dómanna voru þyngdir Hæstiréttur staðfesti með dómi sínum refsingu sem Héraðsdómur Reykjavíkur gerði Hreiðari Má. Fangelsisrefsing Ólafs var þyngd um eitt ár og refsing Magnúsar um eitt og hálft ár. Refsing Sigurðar var hins vegar milduð um eitt ár. Málið dæmdu Markús Sigurbjörnsson, Helgi I. Jónsson, Þorgeir Örlygsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen. Björn Þorvaldsson saksóknari segir þyngingar á dómum Magnúsar og Ólafs sýna að dómstólar hafi fall- ist á það sem lagt var upp með við sókn málsins. „Ég verð að fá að lesa dóminn áður en ég tjái mig um for- sendur hans. Refsingarnar benda til þess að þetta sé í samræmi við það sem lagt var upp með,“ sagði Björn að lokinni dómsuppkvaðningu í Hæstarétti. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir Hæstarétt að meg- instefnunni til hafa fallist á þau sjón- armið sem ákæruvaldið byggði mála- tilbúnað sinn á. „Þessir dómar sem falla eru gríðarlega þýðingarmiklir fyrir þau mál sem eiga eftir að klár- ast. Þannig að fordæmisgildið er mjög verulegt,“ segir hann og bætir við að ljóst sé að Hæstiréttur sé að leggja ákveðnar línur varðandi það hvernig dæmt skuli í efnahagsbrota- málum. Sakborningarnir fjórir, sem ekki voru viðstaddir dómsuppkvaðn- ingu, voru auk fangelsisvistar dæmdir til að greiða sakarkostnað. „Eindæma ófyrirleitni“  Allir fjórir sakborningar í Al Thani-málinu voru í gær fundnir sekir fyrir Hæstarétti  Þyngsti dómurinn hljóðar upp á fimm og hálfs árs fangelsi en sá vægasti fjögurra ára fangelsi  Sérstakur saksóknari segir dóma Hæstaréttar vera „gríðarlega þýðingarmikla“ MTjónið ekki metið til fjár » 4 Morgunblaðið/Kristinn Hæstiréttur Íslands Markús Sigurbjörnsson (t.v.) og Þorgeir Örlygsson (t.h.) fá sér sæti í dómsal skömmu áður en dómur Hæstaréttar var kveðinn upp. F Ö S T U D A G U R 1 3. F E B R Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  37. tölublað  103. árgangur  FÖRÐUN, FATNAÐUR, ILMVÖTN OG GÆÐI KUGGUR, MOSI, MÁLFRÍÐUR OG MAMMA HENNAR 24 SÍÐNA AUKABLAÐ UM TÍSKU OG FÖRÐUN NÝTT BARNALEIKRIT 47 Ljósmynd/Skaginn 3X Lausfrystir Samið hefur verið um sölu á átta lausfrystum undanfarið. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Skaginn 3X hefur samið um sölu á fjórum lausfrystum til Brasilíu. Söluverðið er um 600 milljónir króna og er þetta stærsti einstaki samningurinn sem fyrirtækið hefur gert um lausfrysta. Frystarnir verða settir upp í tveimur kjúklingavinnslum bras- ilísku fyrirtækjasamsteypunnar BRF. Hún er sjöunda stærsta mat- vælafyrirtæki heimsins með 58 verksmiðjur víða um heim sem flestar eru í kjúklingaiðnaði. Hjá samsteypunni vinna um 100.000 manns. Fyrirtækið á fyrir einn ís- lenskan lausfrysti og góð reynsla af honum var meginástæða viðskipt- anna nú. Tæknifyrirtækin og systurfélög- in Skaginn og Þorgeir & Ellert á Akranesi og 3X Technology á Ísa- firði eru í sameiningu að stofna nýtt fyrirtæki. Það mun annast mark- aðs-, sölu- og þjónustustarf félag- anna hér og erlendis. Gert er ráð fyrir að starfsmenn verði um 20 talsins. »4 Skaginn 3X seldi fjóra lausfrysta til Brasilíu  Samningurinn er upp á um 600 milljónir króna  Góð ávöxtun ís- lenskra lífeyr- issjóða 2014 veldur því að þeir sjóðir sem ekki njóta ábyrgðar launa- greiðenda hafa náð jafnvægi milli eigna sinna og skuldbindinga gagn- vart sjóðfélögum. Það er töluverð breyting frá 2012 þegar heildarstaða þeirra var nei- kvæð um 4%. Eignir lífeyrissjóð- anna í árslok 2014 námu 2.920 millj- örðum en það jafngildir einni og hálfri landsframleiðslu Íslands á heilu ári. Hlutfall erlendra eigna hækkaði á árinu vegna verðhækk- ana og lágrar verðbólgu. »22 Lífeyrissjóðir ná jafnvægi gagnvart skuldbindingum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.