Tíminn - 08.10.1946, Blaðsíða 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er
Edduhúsinu v/ð Lindargötu.
4
l
Sími 6066
REYKJAVÍK
FRAMS'ÖKNARMBNN!
Komið
8. OKT. 1946
skrifstofu Framsóknarftokksins
182. blað
Óverjandi framkoma
utanríkismála-
ráðherra.
(Framhald af 3. tiOu)
hver niðurstaðan hefði getað
orðið, ef öðru vísi hefði verið á
því haldið og sjónarmið þeirra,
sem vilja góða sambúð við
Bandaríkin og eðlileg samskipti,
en ekki voru til samninganna
kvaddir, hefðu komið til, áður
en málið var komið of langt.
Breytingartillögur þær, sem
fyrir liggja frá meirihlutanum,
eru til verulegra bóta frá mínu
sjónarmiði, en ég vil leggja á-
herzlu á það, að mér sýnist sú
leið eðlilegust og tryggilegust,
sem fulltrúar Pramsóknar-
manna í utanríkismálanefnd
hafa lagt fram í -flokksins nafni
og háttvirtur þingmaður Sranda
manna hefir rökstutt.
Þar er gert ráð fyrir því, að
Bandarikjamenn fái afnotarétt
þann, sem þeim er nauðsynleg-
ur, að íslendingar reki völlinn
sjálfir þannig, að þessi umferð
geti átt sér stað, en Bandaríkja-
menn borgi kostnað þann, sem
af þessum ráðstöfunum þeirra
vegna leiðir.
Því er borið við af háttvirtum
framsögum. meirihlutans að það
þýði ekki að samþykkja þetta
af því að það sé vitað, að inn
á þetta verði ekki gengið af
gagnaðila.
Málið hefir legið þannig fyrir
að upp á þetta hefir boðið af
Alþingi og því ekki fullprófað,
hvort samningur ekki gæti tek-
ist á þessum grundvelli, ef meiri
hluti þingsins væri á þessari
skoðun.
En það tel ég alveg víst, og
byggi þar á þeim undirtektum,
sem þessar tillögur okkar hafa
fengið, að samningur á þeim
grundvelli, væri fleiri íslending-
um að skapi, en sá sem hér ligg-
ur fyrir og eins þótt breytingar
yrðu á uppkastinu gerðar svo
sem til stendur.
Ég vil því beina því til hátt-
virtra þingmanna að endur-
skoða hug sinn og samþykkja
breytingartillögur Framsóknar-
manna. Ég fæ ekki betur séð,
en að það hlyti að leiða til fram-
haldssamninga við Bandaríkja-
menn á grundvelli, sem væri ís-
lendingum betur að skapi, en
annað, sem fyrir liggur, og full-
nægði Bandaríkjamönnum.
Ég vil benda mönnum á, að
verði hin leiðin tekin, að láta
málið koma til fullnaðarúrslita
nú melð því að felia tillögu
Framsóknarmanna, sem þýðir
framhaldssamninga, og úrslita-
atkvæðagreiðsla látin fara fram
um samninginn, þá getur það
leitt til þess, að úrslit málsins
gefi villandi mynd af viðhorfi
Alþingis í utanríkismálum og
hjá slíku væri gott að geta kom-
ist.
En hvernig, sem þessu máli
lyktar nú, þá skulum við vona,
að meðferð þess af hendi utan-
ríkismálastjórnarinnar verði
mönnum svo til varnaðar, að
þannig verði aldrei framar hald-
ið á viðkvæmu utanríkismáli af
hendi íslenzkra stjórnarvalda.
Að lokum vil ég minnast ör-
fáum orðum á hið pólitíska á-
stand. Mikið hefir verið spurt
um það undanfarna daga, hvaða
pólitiskar afleiðingar afgreiðsla
þessa máls mundu hafa. Nú
hafa menn fengið svarið. Út af
þessu máli segjast Sósialistar
ætla úr ríkisstjórninni. Það er
nú svo. Þeir segja nú, að það sé
af þessu. En því er ekki að leyna,
að mafgir eru þeirrar skoðunar,
að leysist stjórnin upp, þá sé
hin raunverulega ástæða það
uppiausnarástand í fjárhags- og
atvinnumálum, sem nú er búið
að stofna til og verður ekki
lengur með nokkru móti dulið,
en sem minna hefir verið rætt
undanfarnar vikur, vegna þess,
hve það mál, sem við nú ræðum,
hefir gripið hugi manna. Telja
margir.að ef stjórnin hefði ekki
séð sig að þrotum komna, og
engin sköpuð ráð séð út úr öng-
þeitinu, verið gætilegar farið
með sprengiefnið í stjórnarhús-
inu og minna borið í mannlýs-
ingar stjórnarblaðanna síðustu
dagana og nú við umræðurnar.
En hver sem hin raunverulega
ástæða er, þá sýnist svo, sem
stjórnin muni nú leysast upp,
og mér þykir ólíklegt, að það
verði þjóðarsorg út af því.
Dulnrfullur flutn-
ingur.
(Framhald af 1. síOu)
brott af staðnum, tilvísaði hann,
hvar hann ætlaðist til að Jónas
yrði grafinn í kirkjugarðinum.
Kostaði Sigurjón á Álafossi
heimflutning beinanna?
Lét Sigurjón svo ummælt við
bændur nyrðra, að hann hefði
kostað uppgröft og heimflutn-
ing beinanna og hefði yfir þeim
full umráð. Hlýtur mönnum að
koma þaö einkennilega fyrir,
þar sem hingað til hefir verið
látið í veðri vaka, að þetta hafi
verið gert á ríkiskostnað, sem og
var eðlilegt og sjálfsagt. Enda
mun sendiráðið í Kaupmanna-
höfn hafa útvegað leyfi da^nskra
yfirvalda fyrir uppgreftinum.
Ennfremur lét Sigurjón þau orð
falla nyrðra, að hann hefði
flutt beinin norður að vilja
Jónasar sjálfs, er hann taldi sig
hafa daglegt samband við.
Loks skýrði Sigurjón frá því,
að hann hefði tekið á móti bein-
unum á hafnarbakkanum í
Reykjavík, ásamt þjóðminja-
verði, og, að þvi er virðist, verið
viðstaddur þegar þau voru kistu-
lögð.
Hvaðan er silfurskjöldurinn?
Kistan stendur nú á kirkju-
gólfi á Bakka. Er hún smekkfceg
en látlaus. Á gafli hennar er
silfurskjöldur, sem á er letrað:
„Jónas Hallgrímsson skáld,
fluttur heim 4. 10. 1946. Kveðja
frá vinum.“
Ekki veit blaðið, hverjir þess-
ir „vinir“ þjóðskáldsins eru, en
fróðlegt væri að fá upplýst,
eins og raunar fleýra i þessu
sambandi, hvort þessi skjöldur
er kominn á kistuna fyrir til-
stilli opinberra aðila.
Hverjir hafa umráðaréttinn?
Nú þegar bein Jónasar eru
komin norður á æskustöðvar
hahs með svo kynlegum hætti,
hafa komið fram eindregnar
óskir um það, að þau verði ekki
flutt suður aftur, heldur jarð-
sett nyrðra. Mun í gær hafa
verið safnað í Öxnadal undir-
skriftum að áskorun þess efnis:
Jafnframt hefir skotið upp
þeirri spurningu, hverjir hafi
raunverulegan og lagalegan um-
ráðarétt yfir beinum — hvort
það sé ríkisvaldið eða nánustu
ættingjar. Nánasti ættingi Jón-
asar mun vera búsettur á Akur-
eyri, aldraður maður, og var
Jónas afabróðir hans. Bændur
í Öxnadal hafa haft við orð að
afhenda kistuna ekki, nema áð-
ur falli úrskurður um þetta.
Umsögn þjóðminjavarðar.
í gærkvöldi átti Tíminn tal
við Matthías Þórðarson þjóð-
minjavörð um þetta mál. Sagð-
ist honum svo frá:
„Það var svo, að í upphafi
þótti álitamál, hvar grafa skyldi
beinin. En með það hafði Þing-
vallanefnd að gera. Einn maður,
sem var mikill áhugamaður um
heimflutninginn og hafði
stuðlað að því, að úr honum
yrði, var því mjög fylgjandi, að
beinin yrðu grafin norður í
Bakkakirkjugarði, þar sem for-
eldrar skáldsins hvíla. Þessi
maður var Sigurjón Pétursson
Fyrrv. alþingism. og skólastjóri,
Jósef J. Bjurnssoii,
andaðist að heimili sínu, Þingholtsstræti 31, Reykja-
vík, að morgni 7. þ. m.
Eíginkona, börn og tengdabörn.
SLÁTRUN
ER Nt I FELLEM GANGI.
Daglega fáum vér
nýtt dilkakjöt
úr Borgarfirði, Döluin, af Ströndum, úr
Húnavatnssýsluin og' viðar.
mör — lifur — hjörtu
— heil slátur —
— hausa —
SPADSÖLTt M ef koniið er ineð tunnur.
Pantið sem fyrst.
Aðeins 10 dagar eftir af sláturtíð.
Frystihúsub Herhubreib
Fríkirkjuveg 7.
Sími 2678.
(jatnla Bíó
SIÍADM/FBIA
(Bathing Beauty)
Amerísk músík- og gamanmynd,
tekin í eðlilegum litum.
Esther Williams
Red Skelton
Harry James
& hljómsveit
Xavier Cugat
& hljómsveit
Sýnd kl. 5 og 9.
TÍMINN
kemur á hvert sveitaheimlli og
þúsundir kaupstaðaheimila.enda
gefinn út í mjög stóru upplagi.
Hann er þvi GOTT AUGLÝS-
INGABLAÐ. Þeir, sem ekki
hafa reynt það, œttu að spyrja
hína, er reynt hafa.
IÍMINN
Lindargötu 9A, síml 2323 og 2353
< n-.n,-r- ■ - ■ r ■
Vtjja Síc
(vsiif Skúlagötu)
Sönghallarundrin
(“Phantom of the Opera")
Hin stórfenglega „óperu“-söng-
mynd I eðlilegum litum — sýnd
aftur eftir ósk margra.
Nelson Eddy.
Susanna Foster
Claude Rains
Bönnuð bömum yngri en
14 ara.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
“Tjatwatbíc
IJiiaðsómar
(A Song to Remember)
Paul Muni
Merle Oberon
Cornel Wilde
Sýnd ki. 7 og 9.
Draugurinn glottir
(The Smiling Ghost)
Spennandi og gamansöm lög-
reglusaga.
Brenda Marshall
Wayne Morris
Alexis Smith
Sýnd kl. 5.
Bönnuð innan 12 óra.
Sala hefst kl. 11.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR:
„1 ondeleyo"
Leikrit í 3 þáttum.
Sýning á miðvikudag kl. 8 síðdegis.
Aðgöngumiðasala í Iðnó frá kl. 3 í dag. — Sími 3191.
Ath. Aðgöngumiða er hægt að panta í síma (3191) kl. 1—
2 og eftir 4. söludaginn. Pantanir skulu sækjast fyrir kl. 6
sama dag.
SKIPAUTCERÐ
ni'.yi.-n '
„Sverrir”
Aukaferð til Sands, Ólafsvík-
ur, Grundarfjarðar og Stykkis-
hólms.
PYRINATE
Hið nýja ameríska meðal, sem
eyðir lúsum og nitum þeira á
15 mínútum, og er þó hættu-
laust, líka börn.
Fyrirsögn meðfylgir.
30 grömm (í tinbelg) kr. 6,10.
Fílabeinskambur — 6,50.
Sendum um land allt.
Vörumóttaka í dag.
Seyðisfjarðar Apótek.
Jarðarför
Guðmundar Hannessonar,
fyrrv. prófessors,
fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 9. október. kl.
2 síð'deg'is.
Þeir, sem hafa hugsað sér að senda blóm eða blómsveig,
eru vinsamlega beðnir að láta andvirði þeirra renna til
Styrktarsjóðs ekkna og munaðarlausra barna íslenzkra
lækna.
Börn og tengdabörn hins látna.
á Álafossi. Hann tók sig til og
flutti beinin norður.“
„Hvernig komust þau í hans
hendur?“
„Hann varðveitti þaú. Hann
kom með líkvagn niður á
bryggju, þegar beinin komu
heim, og flutti þau með sér á
Laufásveg 14, þar sem við
skiptum um umbúðir og lögð-
um þau í kistuna. Þetta var í
yfirbyggðu anddyri og járnhurð
fyrir, læst með lykli. Lykilinn
geymdi hann.“
„Hvenær vissuð þér um norð-
urförina?“
„Ég bjóst alls ekki við þessu.
Ég frétti fyrst um hana á laug-
ardagskvöldið. Þá vjir símað til
mín að norðan. Þá var Sigurjón
kominn norður. En þeir fyrir
norðan hafa líklega vitað, að
ekki var allt með felldu, svo að
ekkert var gert. Annars lít ég
svo á, að beinin hafi verið kom-
in úr minni umsjá.“
„Er það rétt, að Sigurjón á
Álafossi hafi kostað heimflutn-
inginn?“
„Nei — ekki er nú hægt að
segjá það. En hann bauðst til
þess að leggja út peninga,
sem honum verða sjálfsagt end-
urgreiddir.“
„Þér vitið um silfurskjöldinn
á kistunni. Hvaðan er hann
kominn?“
„Sigurjón mun hafa fest
hann á. Hann pantaði kistuna
hjá Eyvindi.”
HAUSTMARKAÐUR
o
Þórsgötu 1 við Óðinstorg
l\ýtt trippa- o}»’ folaldakjöt,
Gulrófur, lækkað verð, 80 kr. pokinn.
SVIÐAHALSAR.
Harðfiskur og riklingur, barinn I 5 kg. buntuni
Hausskorin síld í 1/8. tn.,
KARTÖFLLR.
Safnið vetrarforða. - Sendið tunnur. -
Þaulvanir söltunarmenn annast söltun.
Dragið ekki að gera innkaup!
Sími 5664. Sími 5664.