Tíminn - 07.06.1957, Blaðsíða 7

Tíminn - 07.06.1957, Blaðsíða 7
rÍMINN, föstudagiun 7. jíiní 1957. 7 Sjðtngur: Andrés Andrésson, klæðskerameistari Það er venja á landi voru að skiptast á kveðjum, er vinir eða kunningjar mætast á förnum vegi. Á hátíðardögum óskum við hver öðrum góðs og gleði á líðandi stund. En á afmælisdögum leiftr- ar í huga vorum augnabliksmyndir af öllum samskiptum á liðinni tíð. Þetta kom mér í h-ug, er ég var minntur á, að Andrés Andrésson klæðskerameistari er sjötugur í dag. Andrés klæðskeri er fæddur 7. júní 1887 á stórbænum Hernlu í Landeyjum, þar sem búið hefir hin irærka Hemluætt, með hvern Ar.drésinn fram af öðrum. Er hann 4. maðurinn með því nafni (og hinn 5. kominn á legg). Andrés fæddist um það leyti er fyrst bjarmaði af betri tíma í íslenzku þjóðlífi, eftir hörmungarár og ald- ir. Þó var ekki lengra komið en sVo, að þá flúðu menn land sitt liundruðum saman, en þeir sátu eftir, er bezt voru brynjaðir ís- lenzku seiglunni, trúðu á landið, sj'álfa sig og guðs forstjón um fram allt. Frá sinni góðu og göf- ugu móður drakk hann í sig bæn- irnar svo að segja með móður- mjólkinni og sá andi lifði á heim- ilinu, að enginn af fjölskyldunni mátti vamm sitt vita. í æsku tók hann sinn þátt í sveitastörfum sem aðrir unglingar, barst svo til sjávar og komst í bráð an lífáháska á opnu skipi við Vest- mannaeyjar. En hann ætlaði sér ekkert af þessu til frambúðar. Með stórhuga drengnum leyndist þrá eftir fulikomnara lífi. Hann reif sig upp, lærði þá iðn, er var hon- um að skapi og varð lífsstarf hans. Hann byrjaði strax við námið þá gæfuleið, að trúa á sigur hins góða. Léttur í lúnd og öruggur vann liann með dugnaði, samvizkusemi og frábærri trúmennsku og ávann sér þá þegar virðingu og traust hlrsbónda síns. Hann sigldi svo til Kaupmannahafnar, sér til meiri menntunar og frama. Við heim- komuna gekk á fund hans, hygginn og velmetinn kaupmaður, er spurn ir háfði haft af hinum efnilega unga sveini og mæltist til að Andr- és gjörðist forstöðumaður á sauma stofu, er hann hafði í hyggju að setja á stofn. Þetta varð með þeim ágætum að saumastofan gekk vel og með þeim tókst traust og inni- lég vinátta, sem varaði meðan báð- ir liíðu. Um það leyti, sem Andrés kvænt ist setti hann á stofn sína eigin saumastofu, smáa í fyrstu, en með dugnaði hans og hagsýni er hún orðin það, sem sjá má í dag á Laugavegi 3, er hann sjálfur byggði. Allt stórhýsið frá kjallara gólfi til mænis er undirlagt af starfsemi hans. Fyrir viðburðanna rás hefi ég átt því lúni að fagna að vera ná- inn vinur Andrésar um nær hálfa öld. Gæti því verið að mörgu að hyggja. Eg er eigi maður tii að skrifa um hann, en bæti þó við ör- fáum orðum. Af ágælum foreldrum, kristilega hugsandi og mjög unnandi barni sínu, voi’u honum ungum kennd undirstöðuatriði að fögru lífi. — Þetta sæði féll í góðan jarðveg, og átti það vel við skapgerð hans að tala satt, gjöra rétt og greiða göt- ur annarra manna. Margri völunni hefir hann velt úr vegi samferða- manna sinna og er jafnan minnug- ur spakmælis hans er sagði: „Það sem þér gjörið einum af mínum minnstu bræðrum. Það hafði þér mér gjört“. Hann sómir sér jafn vel í fjölmennum hópi betri manna, sem á eintali við smæl- ingja. Vita fáir hve oft, spakleg og hlýleg orð hans, mælt af djúpum skilningi og samúð, hafa létt þungri byrði af þjakaðri súl. Eftir viðtal við Andrés gengur betri mað ur út en inn gekk. Kæri vinur, hamingjan breiði blóm sín á ófarna ævibraut þína. Magnús Þórarinsson. s; ira SránargtoíftiM í Vatnsdal Sjötug er í dag Guðrún Jónsdótt-1 ir frá Guðrúnarstöðum í Vatnsdal. ! Gúðrún er fædd að Öxl í Þingi j 7. júní 1887, en þar bjuggu for- eldrnr hennar. Hún giftist 1919 Guömundi Magnússyni og hófu þau búskap sama úr að Guðrúnar stöðum. Guðmundur lézt 1937 og var Guðrún þá fyrst ráðskona þar, én hefur síðan ýmist dvalið hjá börnum sínum hér í Reykjavík I Guðrún er mikil ágætiskona, góðgjörn og traust. Hún nýtur vináttu þeirra ,sem hafa kynnst henni, og mun henni því vafalaust berast í dag margar heillaóskir heim í dalinn fagra, þar sem hún hefur kosið að vera á þessum merkisdegi sínum. Þ. Föstudagur 7. júní Páli byskup. 158. dagur árs- ins. Tungl í suðri kl. 20,37. Árdegisflæði kl. 0,36. Síðdeg- isflæði kl. 13,09. 370 Lárétt: 1. gá í kring um sig. 6. kúga. 8. hvassviðri. 9. veitingastaður. 10. ástfólgin. 11. lítil. næringu. 13. land. 15. einingar. Lóðrétt: 2. frlSarspillir. 3. fanga- mark. 4. löt. 5. + 7. þrautir. 14. mannsnafn (fornt). Lausn á krossgátu nr. 369: Lárétt: 1. aular. 6. Pan. 8. sóp. 9. dal. 10. sær. 11. úða. 12. íra. 13. lak. 15. malar. — Lóðrétt: 2. Uppsala. 3. la. 4. andríka. 5. Ásrún. 7. aldar. 14. al. Þróttur 4. ílokkur. Knattspyrnuæfingar eru á Gríms- staðarholtsvellinum, þriðjudaga kl. 7, miðvikudaga kl. 7 og laugardaga kl. 3. — Geymið auglýsinguna. Mætið vel. — Þjálfarinn. SKATAR! Munið B. P.-mótið, látið sltrá ykk- ur fyrir 10. júní. hljóðlát og fögur í æðunum sló, ástin sem yljar og gleður. Nú syrgir þig konan og dóttirin dáð dapurt er iífið og þverrandi ráð. Þú húsbóndinn, heimilið kveður. Horfinn er kvíði og kvalarfullt bál, hverfur til himna þín göfuga sál. Eilífðar tími upp runninn. Svo vaknarðu frískur á friosæili strönd, friðarins alvaldur réttir þér hönd. Til sigurs er sjúkdómur unninn. eða hjá dótur sinni, sem býr nú á Guðrúnarstöðum. Þar dvelur Guðrún á afmælisdaginn, enda unir hún þar hag sínum bezt. Þau Guðrún og Guðmundur eignuðust fjögur börn, sem öll eru á lífii og öll hin mannvænleg- ustu. Mmning: Geðbjartur Magnús Björnsson, baðvörður Fæddur 22. Júlí 1903. Dáinn 31. maí 1957. Hljótt ér í sinni, því harma fregn slær, horfinn er vinur, sem okkur var kær. Ástvinir sárast hans sakna. Hann var þeim svo mikið og veitti þeim skjól, vafði þá hlýju og kærleikans sól. Viðkvæmar minningar vakna. Á hamingjustundu þú byggðir þitt bú, og bættir það ávallt í lifandi trú, á fegurstu framtíðar drauma. Konuna dáðir og dóttirin ein, djúpstæð var ástin, göfug og hrein. Samstilling lifandi strauma. Á heimili þínu var hamingju ró, DENNI DÆMALAUSi Eg þakka svo vinur öll vináttu hót, þú veittir að gleði kærleikans rót. Margs er frá liðnu að minnast. Nú starfar ei lengur þín hjálpandi hönd, hér eru slitin þau jarðnesku bönd. En göfgandi er góðum að kynnast. Svo kveð ég þig hljóður við kveði- um þig öll, það kveðja þig dalir, hlíðar og fjöll frá æskunnar átthaga slóoum. Lífið er eilíft þó lokið sé hér, lausnara alheimsins treystum vér, og felum þig guðunum góðum. Jóhannes Sigurðsson. — Mér heyrðist þú nú segja við pabba í gærkvöldi, að það vantaði málverk á þennan vegg. oi FLUGVf.LARNAR H. f. Eimskipafélag íslands: Brúarfoss er í Kaupm.höfn. Detti- foss er í Rvík. Fjallfoss fer frá Rvík k. 13 i dag til Ántwerpen og Hull. Goðafoss fer frá N. Y. 13.6. ti Rvíkur Gullfoss er í Kaupm.höfn. Lagaríoss fór frá Leningrad í gær til Gdynia, Kaupmannahafnar, Gautaborgar og Reykjavíkur. Reykjafoss fór frá Gautaborg 4.6. til Ventspils, Hamina og íslands. Tröllafoss fór frá Sandi 28.5. til N. Y. Tungufoss fór frá Þingeyri í gær til Norður- og Aust- urlandsins og þaðan til London og Rotterdam. Mercurius fer frá Vents- pils um 15.6. til Rvíkur. Ramsdal fer frá Hamborg um 17.6. til Rvíkur. Ule fors fer frá Hamborg um 21.6. til Rvíkur. Flugfélag íslands h.f.: Hrimfaxi er væntanlegur til Rvík- ur kl. 20.55 í kvöld frá London. Flug véíin fer til Glasgow og Kaupmanna- hafnar kl. 8.00 í fyrramálið. — Gull- faxi fer til Glasg. og Khafnar kl. 8.00 í dag. Væntanl. aftur til Rvíkur kl. 22.50 í kvöld. Flugvélin fer til Khafn ar og Ilamborgar kl. 9.00 í fyrramái- ið. — Innanlandsflug: í dag er áætl- að að fljúga til Akureyrar, Egils- staða, Fagurhólsmýrar, Flateyrar, Hólmavíkur, Hornafjarðar, fsafjarð- ar, Vestm.eyja og Þingeyrar. HJúskapur Nýlega voru gefin saman i hjóna- band af séra Árelíusi Níelssyni ung- frú Þórunn Björgúlfsdóttir og Guð- mundur Svan Ingimarsson. Heimili þeirra er í Efstasundi 83. Þriðjud. 4. júní voru gefin saman i hjónaband, að Breiðabólsstað í Fljótshlíð, Guðrún Sigurðardóttir, Sólheimakoti í Mýrdal og William Möller, kennari í Skógaskóla. Föður- bróðir brúðurinnar, sr. Sveinbjörn Högnason, prófastur, gaf brúðhjón- in saman. Franska ríkisstjórnin hefir útnefnt Sigurjón Markússon, fyrrverandi embættismann, búsettan í Reykjavík, Riddara Pálmaorðu | frönsku Akademíunnar fyrir starf hans í þógu Menningarsambands ís- lendinga og Frakka. Heiðursskjalið og heiðursmerkið voru afhent honum af Ambassador Frakklands á íslandi, Herra Henri Voillery, við móttökuathöfn, sem gerð var í sendiráðinu í þessu tilefni. Bræðrafélag óháða safnaðarins heldur fund í Edduhúsinu í kvöld kluklcan 8.30. Styrktarsjó'ður munaíar- iausra barna hefir síma 7967. Útvarpið í dag: 8.00 Morgunútvarp. 10.10 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 15.00 Miðdegisútvarp. 16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Lótt lög. 19.40 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 „Um víða veröld". — Ævar Kvaran leikari flytur þáttinn. 20.55 Samleikur á flautu og píanó: Leif Larsen og Fritz Weiss- happel leika. 21.15 Erindi: Hjörleifshöfði (Magnús Finnbogason frá Reynisdal). 21.40 íslenzk tónlist: Lög eftir ísóif Pálsson. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Garðyrkjuþáttur: Ingólfur Da- víðsson magister talar um runnarækt í görðum. 22.25 Harmoníkulög. 23.00 Dagskrárlok. Hiartans þakkir fyrir alla samúð, sem okkur var sýnd við andlát og jarðarför Bjarna Guðmundssonar frá Bóll. Við þökkum af alhug nágrönnum okkar og gömlum sveifungúm. Einnig þökkum við kirkjukórunum og sóknarprestunum, en sérstak- lega þökkum við séra Eiríki Þ. Stefánssyni og karlakór Biskups- tungna. María Eiríksdóttir og aðstandendur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.