Tíminn - 06.10.1961, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.10.1961, Blaðsíða 2
r / T í MIN N, föstudaginn 6. október 1961. Svíar ræöa sammarkað NTB—Stokkhólmur, 5. október. Sænska ríkisstjórnin vonar að geta tekið í nóvember upp viðræður um sambancl við Sammarkaðinn. Hún býst einn ig við að gera það í samvinnu við hlutlausu ríkin Sviss og Austurríki. Erlander forsætis- ráðherra og Lange viðskipta- málaráðherra sögðu þetta á blaðamannafundi í dag. Þeir lögðu áherzlu á, að viðræðurn ar yrðu eingöngu hagfræði- legar og ekki kæmi til mála, að Svíþjóð léti af hlutleysis- stefnu sinni. Erlander sagði, að hlutleysið væri Svíum of dýrmætt til að gefa það eftir fyrir tollalækkanir. Lange sagði, að Svíar geti ekki samþykkt Rómarsamninginn í ó- breyttri mynd, en mcð tilliti til efnahagsmálanna verði Svíþjóð að leita eftir sambandi við Sammark aðinn. Atvinnulífið eigi kröfu til Afli þegar á sjó gefur Neskaupstað, 5. okt. Fjórir stórir þilfarsbátar hafa nú byrjað róðra. Afla þeir prýði- lega og sækja stutt, þegar á sjó gefur, en gæftir hafa verið mjög stirðar. Þessir bátar hafa að jafnaði fengið 12—16 skippund í róðri hver. Um 30 trillur og litlir þilfars- bátar hafa róið héðan í sumar og róa enn. Afla þeir mjög vel á línu. Frystihúsið gerir ekki betur en hafa undan, þegar bátarnir komast út. Heyskap er ekki lokið. Margir eiga talsverð hey úti. Slátrun er nýhafin. —V.S. ag vita, hvað framtíðin beri í skauti, og því verði viðræðurnar að hefjast sem fyrst. Hann sagði cinnig, að hagsmunir allra ríkja fríverzlunarsvæðisins verði að tryggja, áður en eitt rí'ki þess gangi yfir í Sammarkaðinn. Erlander sagði, að ríkisstjórnin hefði náið samband vig fulltrúa úr atvinnulifinu og alþýðusamtökun- um um Sammarkaðsmálin. Stjórn- in hefði einnig samband við leið- toga allra stjórnmálaflokka, svo að einnig mætti verða um ákveðn anir þjóðarinnar í þessum efnum. Erlander sagðist harma, að tolla bandalag Norðurlandanna hefði komið svo seint til sögurinar, að efnahagsleg samvinna Norður- landanna væri í hættu af völdum Sammarkaðsins, en sagðist vona, að sá ótti væri ástæðulaus. Harður eltiiigaleikur í gærkvöldi var bifreiSinni R-1368 stolið fyrir utan Skeiðavog 51. í húsinu urðu menn varir við, þegar bifreið- inni var ekið brott. Veittu tþeir henni eftirför á annarri bifreið. Þjófurinn mun hafa séð, að honum var veitt eftirför, því að hann gaf í og jók nú mjög hrað- ann eftir Skeiðavoginum og þvert yfir Langholtsveg, en stöðvaði snögglega, þegar hann kom yfir gatnamótin. Unglingsstúlka, sem var þar á ferð, taldi sig hafa sloppið naumlega við bifreiðina. Sá hún þar til ferða mannsins, sem ók, að hann stökk út úr bifreiðinni og ^hvarf í húsagarða við Nökkva- vog. Lögreglunni er ekki kunnugt, hver þessi stúlka er. Hún er því vinsamlega beðin að gefa sig fram við rannsóknarlögregluna. Bifreið- in er óskemmd, nema hvað þjóf- urinn hafði slitið leiðslurnar frá kveikjulásnum og tengt beint. tiátthrafnarnir á fangeisisgarðinum í fyrrakvöld brauzt Jóhann Víglundsson út úr steininum, en var handtekinn af rann- sóknarlögreglunni skömmu síðar. Jóhanni yar sleppt af Li.la- Hrauni í sumar. Síðan hefur hann verið ódæll, brotið af sér og abb- azt upp á fólk, og þótti ekki ger- legt að láta hann ganga lausan áfram. Jóhann sagaði sundur rimlana fyrir klefaglugganum og ' komst upp úr fangelsisgarðinum af eystri álmu hússins. Talið er, að iámsaearhlaði hafi verið iaumað til hans, en fangarnir hafa sam- band við kunniugja þeirra, sem koma í garðinn á nóttunni og hjala við þá. Fangaverðirnir hafa stundum ekki við að reka þann lýð af garðinum. Þeir, sem koma í þessar nætur- heimsóknir, geta laumag smáhlut um til fanganna með því að láta þá detta niður í garðinn. Fang- arnir hirða þá svo í grasinu, þeg ar þeim er sleppt úr klefunum að deginum. Jóhann mun vera sá fyrsti, sem kemst út úr garðinum í seinni tíð, en að undanförnu hafa pasturs- minni fangar verið geymdir í steininum. Hinir hafa verið flutt- ir á Ijtla-Hrann. I r Saga Háskóla Islands' í gær kom í bókaverzlanir Saga Háskóla íslands eftir dr. Guðna Jónsson, prófessor, en útgefandi er Háskóli íslands. Er bókin, að því er höf. segir í formála, samin samkvæmt tilmælum háskólarektors og háskólaráðs, og þá í tilefni af hálfrar aldar afmæli háskól- ans. Bókin er rúmlega 300 bls. að stærð. Er í upphafi hennar, í kafla, er nefnist Stefnt að háskóla, rakin forsaga háskólastofnunar allt frá skólamálaritgerð Baldvins Einarssonar. Síðan segir frá stofn- un háskólans 1911 og því næst rakin starfsemi háskólans fyrstu þrjá áratugina. Nefnist sá kafli Við kröpp kjör, en allan þann tíma var háskólinn til húsa í Al- þingishúsinu og heldur laklega að honum búið. Þá er gerð grein fyrir háskóla- lögum, stjórn háskólans, deildum og kennurum, embættisveitingum, háskólaháttum og stúdentum, íþróttamálum o. s. frv. Síðan er sérstakur kafli helgaður hverri deild háskólans, þá um aðrar stofnanir háskólans, bókasafn, orðabók, rannsóknarstofur, at- vinnudeild o. s. frv. Loks er fjall- að um sjóði háskólans, félagsmál stúdenta, samstarf háskólans við umheiminn og síðast ýtarleg og næsta gagnleg nafnaskrá. Bókina prýðir fjöldi mynda, bæði af áhrifamönnum í málum háskólans og stofnunum háskól- ans. Prentun hefur annast Prent- smiðja Jóns Helgasonar og er frá- gangur hinn vandaðasti. Hergögn og mála- liðar til Katanga NTB— Leopoldville, 5. október. | Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna íj Kongó óska cftir því, að senda nefnd til Norðurlandamæra Ka- tanga til að rannsaka, hvort þar streymi inn hergögn og málaliðar til Katanga. Nefnd frá S. þ. fékk í dag leyfi til að heimsækja Jadotville, en þar hafa hermenn Katangastjórn- j arinnar haldið 150 írskum her-' mönnum, sem þar voru á vegum S. þ., í fangelsun. Þrátt fyrir atburði síðustu daga í Katanga, hafa vopnahlésumræð- j urnar ekki fallið niður. Fulltrúi S. þ., Indverjinn Mahmoud Khi-| ari sagði, að það væri jafnvel ekki útilokað, að Tsjombe kæmi sjálfur til Leopoldville til viðræðna, á- samt einhverjum ráðherra sinna. Stjórn Kongó hefur lýst sig reiðubúna að tryggja Tsjombe og félögum hans fullt öryggi, ef þeir koma til Leopoldville. Tsjombe hefur hins vegar snúið sér til Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands með beiðni um vcrnd, ef hann fer til Leopoldville. Bifreiðakennsla Guðjón B Jónsson Háagerði 47. Sími 35046 i Kjarnorkumálastofnun Framhald .af 3. síðu. kommúnistaríkjanna og margra hlutlausra ríkja, þar á meðal Ind- lands. Hann var hins vegar studd ur eindregið af Vesturveldunum. Hann fékk 46 atkvæði, en 16 voru á móti og fimm sátu hjá, Vildu þrjá framkvæmda* stjóra Sovétrikin höfðu áður lagt til, að framkvæmdastjórar stofnunar innar yrðu þrír í stað eins, en sú tillaga fékk ekki byr. Þegar Ek- lund hafði verið kjörinn, varð hann fyrir hörðum árásum full- trúa Sovétríkjanna. Eklund sagði á blaðamannafundi í fyrradag, að hann vonaði, að Sovétrikin mundu láta af andstöðu sinni gegn framkvæmdastjórn hans, svo að hægt yrði að einbeita sér að hinum raunverulega ' aðkallandi verkefnum. Andúð Indlands Fulltrúi Indlands dró skyndi- lega til baka loforð um að veita 25 þús. dollurum til stofnunarinn ar. Er það talig standa í sam- bandi við kjör Eklunds, en Ind- land hafði áður látið í ljós megna andúð á því, að hann yrði kjörinn framkvæmdastjóri. Fylltur úr blekbyttu á venjulcgan hátt eða með blekfyllingu, sem sett er í á augabragði, Hvílík þægindi, sparnaður og ánægja að skrifa með góðum penna, sem fæst á hóflegu verði. EVERSHARP SUPER E er nýjung í pennasmíði, sem sparar yður tíma og óþægindi. Hann er ávallt reiðubúinn til skrifta, mjúklega og örugglega. EVERSHARP SUPER E sameinar alla kosti lindarpennans og kúlu- pennans. Munið að kynna yður kosti EVERSHARP SUPER E pennans, þegar þér ákveðið kaupin á skólapennanum. EVERSHARP SUPER E fæst í helztu ritfanga- og bókaverzlunum. Góður penni, hóflegt verð................það er <EV€RSHARP SUPER € EVERSHARP

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.