Tíminn - 02.06.1962, Síða 9
»v«sca
útgerðin, samvinnutryggingar,
efling iðnaðarins, stofnun olíu-
félags og stofnun Samvinnu-
sparisjóðsins — eigi sér djúp-
ar rætur í þeirri reynslu, sem
ég hafði öðlazt í starfi mínu
hjá KEA. Eg hafði sannfrrvzt
um nauðsynina á þessum þátt-
um samvinnusamstarfsins við
það að reka mig á óleystan
vanda. Og við athuganir inn-
an lands og utan höfðu orðið
til greinilegar áætlanir um það,
hvernig bezt væri að koma
framkvæmdunum á. Óhagstæð
flutningakjör og óréttlæti við
hinar dreifðu byggðir í sigl-
ingum gerði þörfina á skipaút-
gerð samvinnumanna knýjandi.
111 tryggingakjör og ónóg þjón
usta við fólkið í tryggingamál-
um var forsenda að stofnun
Samvinnutrygginga. Óhagstætt
verðlag, og of lítil þjónusta
knúði fram stofnun Olíufélags-
ins, og það breytti hvoru tveggja
mjög til batnaðar. Samvinnu-
sparisjóðurinn var stofnaður til
að efla fjárhagslegt sjálfstæði
samvinnufélaganna, sem ég hef
ætíð talið fjöregg þeirra. En
af því að samvinnuiðnaðurinn
er ef til vill öðrum greinum
fremur tengdur Akureyri, lang-
ar mig til að minnast lítillega
á aðdraganda hans.
Þegar ég var lítill snáði norð
ur á Akureyri heyrði ég oft
talað um þau undur, að Aðal-
steinn Halldórsson hefði ráðizt
í það nokkru fyrir aldamót að
koma upp „tóvinnuvélum"
til var í mínum augum, og sá
ljómi þvarr aldrei, þó að ann-
að margfalt stærra og mikil
fenglegra væri skoðað síðar.
Svo vildi til, að nokkru
seinna tók Jónas bróðir minn
að vinna við verksmiðjuna, og
áður en langt var liðið, var
hann orðinn þar verksmiðju-
stjóri og var allt til dauðadags.
Tók verksmiðjan stórkostleg-
um stakkaskiptum undir stjóru
hans, og var elja hans og áhugi
við að halda verksmiðjunni
gangandi á fyrri stríðsárunum
óbilandi og undravert, hvernig
það tókst, þrátt fyrir kolaleysi,
vöntun á lit og varahlutum í
ryálarnar og ótoljandi önnur
vandkvæði. En það er önnur
saga, sem segja þyrfti, þó að
síðar yrði.
— En hvert var upphaf að
þátttöku samvinnumanna í
þessum rekstri?
— Löngu áður en ég fór frá
Akureyri höfðum við í KEA
byijað að kaupa hlutbréf Gefj-
unar, jafnótt og þau urðu föl.
Það var vegna þess, að við lit-
um svo á. að þessi bezta ullar-
verksmiðja landsins ætti vel
heima i rekstri samvinnu-
manna. Nokkru siðar keypti
Sambandið svo verksmiðjuna
og var hún þá þegar stækkuð
og endurbætt. Varð hún þarft
fyrirtæki og gott, og sérlega
mikilvægt á stríðsárunum.
Ullarverksmiðjan Gefjun og
skinna- og skóverksmiðjan Ið-
unn, ásamt sápuverksmiðjunni
Hekla var keypt af ungum og
dugandi brautryðjanda og hann
ráðinn til að veita henni for-
stöðu. Varð Hekla mikið fyrir-
tæki. Þetta kostaði allt mikið
fé, en líklegt tel ég, að nú sé
búið að afs'krifa það að mestu
eða öllu leyti.
Sérstaklega finnst mér
ánægjulegt. að þótt þessar fram
kvæmdir þættu miklar og of
stórar, þá er nú þegar svo
komið, að iðnrekstur samvinnu
manna á Akureyri er að
sprengja utan af sér fötin og
kalla eftir stærri húsum, af-
kastameiii vélum og fleira fólki
til vinnu.
— Og hvað er nú efst í huga,
þegar litið er yfir hálfrar ald-
ar veg aftur til fyrstu áranna
hjá KEA?
— Þegar ég hugsa til komu
minnar til KEA fyrir 50 árum
og lít yfir farinn veg sem
snöggvast, þá er mér efst í
huga þakklæti og gleði yfir því
að hafa fengið að vera með í
því starfi, sem unnið hefur
verið, með í þeirri uppbygg-
ingu, sem orðið hefur í landi
okkar á þessari hálfu öld. Þakk
læti til þeirra, sem ég hef unn-
ið fyrir og til þeirra, sem með
mér hafa unnið og sýnt mér
trúmennsku, vináttu og trygg-
lyndi um ár og áratugi.
Og þegar litið er til fram-
tíðarinnar er það gleðiefni, að
framundan blasa við mikil,
óteljandi og risavaxin verkefni,
sem bíða eftir því, að hafizt sé
starfsdags fyrir 50 árum
norður við Glerá, en það var
nafn Gefjunar á fyrstu áratug-
um fyrirtækisins. Mér var
sagt, að vatni væri veitt úr Gler
á um langan skurð, er féll svo
gegnum pípu niður á hjól, sem
knúði svo aftur margar stórar
kembivélar — svo stórar, að
hver þeirra kemdi á við mörg
hundruð kamba eins og þá, sem
ég sá oft í liöndum pabba míns
— og spunavélar, sem spunnu
á við eitt þúsund rokka henn-
ar mömmu minnar. Þetta voru
mestu stórmerki um verk-
smiðjurekstur, sem mér höfðu
borizt til eyrna. Og þegar ég
fékk sex ára gamall að koma
þarna upp eftir og líta þetta
allt, þá urðu barnsaugun stór,
og það, sem fyrir þau bar,
gleymdist aldrei. Seinna vissi
ég að vísu, að þetta var allt
harla smávaxið og ófullkomið
miflað við annað stærra, en
það breytir ekki þvi, að þetta
var þá það stórkostlegasta, sem
Sjöfn, veittu mjög mikla at-
vinnu á Akureyri. Samvinnu-
iðnaðurinn þar hafði komið í
stað fiskvinnslu og síldarsölt-
unar, sem bærinn lifði að veru-
legu leyti á áður fyrr. Það var
augljóst, að sjálfsagt var að
styrkja þetta bæjarfélagsins
vegna. Það var sjálfsagt, að hin
gamla og gróna Gefjun væri
aukin til þess að gera iðnað
samvinnumanna sterkari og af-
kastameiri. Það var augljóst,
að iðnaður landsmanna þurfti
yfirleitt að aukast, og að sjálf-
sögðu átti sá iðnaður að sitja
fyrir, sem nýtti íslenzk hráefni.
Þegar þetta allt er haft í
huga, lá beint við að hefjast
fljótt handa. Sambandsstjórn-
in ákvað að taka á sig þá
áhættu að byggja upp að nýju
allan iðnað sinn á Akureyri.
Gefjun var endurnýjuð, stór og
vistleg hús byggð og nýjar vél-
ar keyptar. Iðunn fékk ný húsa-
kynni og prjónaverksmiðjan
þaii'ítác|á!íítíá vandann og
sköpuð betri lífsskilyrði með
þessari þjóð.
Óskir mínar til samvinnu-
hreyfingarinnar allrar eru þær,
að hún megi vaxa að vilja og
þrótti til þess að verða áfram
öflugur og vaxandi þáttur í
uppbyggingu landsins, en mér
er vorkunn, þó að hugurinn
leiti mjög í hinn „fagra fjörð“
— norður til Eyjafjarðar, þar
sem vagga mín stóð og ég hef
lengst unnið, — leiti þangað
með einlægri ósk til fólksins
þar, bæði í sveit og við sjó,
um að því auðnist ávallt að
standa fast saman gegn öllum
örðugleikum, sem að steðja,
eins og það gerði svo vel á
löngu liðnum áium — ósk um,
að það megi áfram kunna að
nota mátt samtaka og samvinnu
til þess að gera líf sitt betra,
bjartara og ríkara af ölllP því,
sem gott er, sagði Vilhjálmur
Þór að lokum. — AK.
Efsta myndin sýnir verlunarhús Kaupfélags EyfirSinga eins
og þaS var um þær mundir, sem Vilhjálmur Þór byrjaði að
starfa hjá félaginu 1912! — Næsta mynd sýnir „stóra húsið“ —
hiS glæsilega verzlunarhús KEA viS Hafnarstræti, sem fullbúið
var 1930. — Þriðja myndin sýnir eyfirzkar húsmæSur í heim-
sókn á Akureyri á vegum-KEA, eftir 1930. Myndin er tekin
í hvamminum neðan við barnaskólann, en þar stóð þá yfir
iðnsýning. — Neðsta myndin er af húsum Mjólkursamlags KEA.
— Myndin hér til hliðar er teikning af nýbyggingunni, sem hafin
var 1933, en þar er nú gistihús, lyfjabúS, kjötbúð og fleira. Hús-
ið var lítiS eitt á annan veg, þegar því var lokiS, en teikningin
sýnir, hvernig hún var ráSgerð í tíð Vilhjálms sem kaupfélags-
stjóra.
T í M I N N, laugardagur 2. júní 1962,
9