Alþýðublaðið - 17.06.1941, Page 4
MH&JUBAGUE 17. JÚNl 1941.
ÞRIÐJU DAGUR
Næturlæknir er Björgvin Finns-
eon, Laufásvegi 11, simi 2415.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,00 Ungmennatími (forseti U.
M. F. í. talar o. fl.). Tón-
leikar.
20,00 Fréttir.
20,25 Ræða.
20,45 Kórsöngur (Dómkirkjukór-
inn).
21,00 Erindi: 17. júní 1911 (Val-
týr Stefánsson ritstjóri),
21,20 Kórsöngur (Dómkirkjukór-
inn).
21,35 Útvarpshljómsveitin leikur
íslenzk alþýðulög.
21,55 Fréttir.
22,05 Danslög.
23,00 Dagskrárlok.
Trúlofun.
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Kristín Ásgeirsdóttir frá
Grundarfirði og Þorsteinn Krist-
insson, sjómaður frá Dalvík.
Reykvíkingar unnu Akureyringa
í skákkeppninni, sem fór fram
milli þeirra í fyrradag. Unnu sunn-
anmenn 14 % skák af 20, sem
tefldar voru. Um kvöldið var
norðlenzku skákmönnunum haldið
aamsæti í félagsheimili verzlunar-
manna.
Ekið á hest.
S.l. föstudag ók bifreið á hest á
Suðurlandsvegi. Hélt bílstjórinn
áfram án þess að skipta sér af
slysinu. Maðurinn,, sem var með
hestinn, gat ekki nað númeri bíls-
ins, en þarna á veginum voru
menn, sem kunna að geta gefið
upplýsingar um slysið, og vill
rannspknarlögreglan hafa tal af
þessum mönnúm.
Seðlaúthlutun
fyrir sykri til sultugerðar hefst
á morgun í Góðtemplarahúsinu og
stendur yfir kl. 9—12 f. h. og 1—5
e. h. á morgun, fimmtudag og
föstudag. Seðlarnir verða afhentir
gegn framvísun stofna af núgild-
andi matvælaseðlum.
Dýrlingurinn skerst í leikinn
heitir ameríksk leynilögreglu-
mynd, sem Gamla Bíó sýnir núna.
Er hún gerð sámkvæmt skáldsögu
éftir Leslie Charteris. Aðalhlu.t-
verkin leika: George Sanders og
Wendy Barrie.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag frú Solveig Jónsdóttir
og Gísli Halldórsson. Bergstaða-
stræti 25.
Dansleik
heldur st. Verðandi nr. 9 í kvöld
kl. 10 í Góðtemplarahúsinu.
íslenzkir litir,
bréfkort er selt á götunum í
dag, með umsögn skálda vórra.
Spegilbret í Mifnð-
sári á mni.
EINS og skýrt var frá í blað-
inu í gær, kom vélbáturinn
„Pilot“ með 14 skipbrotsmenn.
Voru sex þeirra fluttir á sjúkra-
hús og þar liggja þeir enn.
Voru tveir þeirra sárir á höfði,
en einn fótbrotinn. Þegar sárið
á höfði annars þeirra var
hreinsað, kom upp úr því speg-
ilbrot, 2 cm. langt. Maðurinn
var staddur á þilfari, þegar
sprengingin varð, en engir
speglar voru nálægt, nema
neðan þilja.
iaæaöööíöRöaaaía
Kartðflnverðið.
helzt enn óbreytt um hríð,
' I
en hækkar áður en langt
um líður.
Grænmetisverzlun ríkisins.
2000 HVÍTKÁLSPLÖNTUR
seljast ódýrt í Klömbrum
í dag og á morgun. Upp-
lýsingar í síma 1439.
xxxx>oocoo<xx
fltbrelftíft Alþý&ublaölð!
RÍKISSTJÓRINN.
(Frh. af 1. síðu.)
1881 og voru fareldrar hans
Björn Jónsson, ritstjóri ísafold-
ar og síðar ráðherra og kona
hans Elísabet Sveinsdóttir.
Sveinn Bicrnrson lauk stúd-
entsprófi í Reykjavík árið
1900, las- síðan lög.-við Kaup-
mannahafnarháskóla og út-
skrifaðist þaðan árið 1907.
Frá þeim tíma og til ársins
1920 var hann málaflutnings-
maður við yfirdóminn og síðar
hæstarétt í Reykjavík, en var
auk þess mjög fljótt hláðinn
ýmsum opinberum störfum. —•
Þingmaður fyrir Reykjavík var
hann árið 1914—1915 og aftur
árið 1920. Árið 1915 var hann
kosinn í velferðarnefnd, sem
stofnuð var vegna heimsstyrj-
aldarinnar. í ársbyrjun 1916
var hann skipaður forstjóri
Brunabótafélags íslands og
gegndi hann því starfi í fjög-
ur ár.
Sendiherra íslands í Kaup-
mannahöfn var hann skipaður
á miðju sumri 1920 og hefir
verið það alla tíð síðan áð
tveimur árum undanteknum,
1924—1926, þegar sendiherra-
embættið var um stundarsakir
lagt niður.
Sveinn Björnsson kom hing-
að heim eftir hertöku Dan-
merkur í fyrravor og hefir síð-
an starfað hér í sambandi við
utanríkismálaráðuneytið að því
að skipuleggja sjálfstæða, ís-
lenzka utanríkismálaþjónustu.
Sveinn Björnsson er kvænt-
ur Georgíu Hinriksdóttur Han-
sen, lyfsala í Hobro í Dan-
mörku og á með henni fimm
börn, öll upp komin: Björn,
kaupmann í Danmörku, Önnu
Kathrine Aagot, gifta Sverri
Paturson frá Færeyjum, dýra-
lækni í Danmörku, Hans Hin-
rik Emil, lögfræðing í Reykja-
vík, Svein, tannlæknisnema í
Dýrlmgurinn skerst
i ieikinn.
(The Saint Takes Over.)
Ameríksk leynilögreglu-
mynd, gerð samkvæmt
skáldsögu eftir Leslie
Charteris. Aðalhlutverkin
leika: ~
Gfeorge Sanders og
Wendy Barrie.
I" Sýnd klukkan 5, 7 og 9.
Börn yngri en 12 ára fá
ekki aðgang.
NÝJA RW SSB
Spennandi og viðburðarík
ameríksk kvikmynd frá
Universal Pictures.
Aðalhlutverkin leika:
Claire Trevor og George
Raft.
Aukamynd: Ensk íþrótta-
kvikmynd.
Börn yngri en 1S ára fá
ekki aðgang.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
3 rðskar stúlknr
óskast á Hotel Borg nú þegar
Húsfreýlan.
Danmörku, og Elisabet, sem út-
skrifaðist sem stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík í
dag.
Stérfelldar loít-
árásir Breta á
RíHarhéruðia.
Mihlir eldar geysa viða á
iðiiaðarsvæðimim.
REZKAR spFengjuflugvél-
ar fóru í nótt í stóruxn
hópum til árása á iðnaðarhér-
uð Vestur-Þýzkalands. Voru á
rásir gerðar á Köln, Dxisseldorf
og fleiri borgir, og kornu upp
miklir eldar. Nánari fregnir
eru væntanlegar í dag.
Þetta er sjötta nóttin í röð,
sem brezki flugherinn gerir
stórfelldaf árásir á Rínarhér-
uðin, enda eflist hann nú með
hverjum degi, bæði við það að
fá nýjar enskar og ameríkskar
flugvélar og síaukinn fjölda
flugmanna frá Kanada..
Allmiklir bardagar voru háð-
ir í gær yfir Doversundi og tók
fjöldi orustuflugvéla þýzkra og
enskra þátt í þeim. Útvarpið í
London segir, að 11 þýzkar
flugvélar hafi verið skotnar
niður og 6 brezkar, en tveir
brezku flugmannanna sluppu
ómeiddir.
Árásir' Þjóðverjá á Bretland
Lnótt voru óverulegar, og þrjár
flugvélar þeirra skotnar niður.
136 THEODORE DREISER
JENNIE GERHARDT
skyldan var svo íhaldssöm og vanaföst, að henni
fannst ekkert vera athugavert við þetta.
Á fimmtudaginn kom frú Lester. Hún var mjög
harmþrungin, því að hún hafði borið falslausar til-
finningar í brjósti til Lesters ekki síður en Jennie.
Um nóttina, þegar allt var orðið hljótt, fór hún út
úr herbergi sínu og gekk þangað sem kistan var.
Hún laut yfir líkið og skoðaði svipinn, sem henni
þótti sVo vænt um. Tárin drupu af hvörmum henn-
ar, því að hún hafði verið hamingjusöm í samtaúð-
inni við hann. Hún strauk kaidar kirínar hans og
hendur. Enginn hafði skýrt henni frá því, að hann
hafði sent eftir Jennie. Fjölskyldan vissi ekkert um
það.
En í húsinu í South Park Avenue var kona, sem
varð að bera harm sinn í hljóði, og enginn tók þátt
í kjörum hennar. í öll þessi ár haíði hún alið í brjósti
leynda von um það, að einhvern tíma lægju leioir
þeirra saman aftur. Hann hafði komið aftur — því
bar ekki að neita -— hann hafði komið aftur, þegar
hann var að deyja. Og nú var hann farinn. En hvert
hafði hann farið Hafði hann farið sömu leið og
móðir hennar, Gerhardt og Vesta? Hún hafði enga
von um að sjá líkið, því að hún hafði séð í blöðun-
um, að það ætti að grafa hann í Cincinnati. Síðasta
athöfnin átti að fara fram í rómversk-kaþólsku kirkj-
unni í South Side, St. Michael’s.
Jennie tók þetta mjög nærri sér. Hún hefði vilj-
að, að hann hefði verið j.arðaður í Chicago, svo að
hún hefði getað gengið að gröfinni stöku sinnum,
en þannig átti það ekki að fara. Hún hafði aldrei
getað ráðið við örlög sín. Það voru alltaf aðrir, sem
réðu. Henni fannst hann hafa verið tekinn frá henni
að fullu og öllu, þegar líkið var flutt til Cincinnati,
eins og fjarlægðin gerði nokkurn mismun. Hún
ákváð loks að hafa þykka slæðu fyrir andlitinu og
vera viðstödd athöfnina í kirkjunni. Blöðin höfðu
tilkynnt, að athöfnin ætti að fara fram klukkan tvö
síðdegis. Klukkan fjögur átti að flytja líkið á braut-
arstöðina og flytja það með lestinni. Meðlimir fjöl-
skyldunnar ætluðu að fylgja líkinu til Cincinnati.
Hún ætlaði að fylgja til járnbrautarstöðvarinnar.
Rétt um það leyti, sem von var á líkfylgdinni til
kirkjunnar, sást við einar hliðardyrnar kona með
þykka, svarta slæðu fyrir andlitinu. Hún fékk sér
sæti í afsíðis horni. í fyrstu virtist hún vera dálítið
taugaóstyrk, því að þegar hún sá, að kirkjan var
tóm og dimm, varð hún hrædd um, að hún hefði
farið kirkjuvillt. En þegar hún hafði beðið full eft-
irvæntingar í fáeinar mínútur, var byrjað að hringja
hátíðlega klukku upp: í turninum. Skömmu seinna
kom meðhjálpari í svörtum fötum og fór a£ kveikja
á kertunum. Uppi á söngloftinu heyrðist fótatak og
lágt þrusk, sem gaf til kynna, að athöfninni ætti
að fylgja söngur. Nokkrir forvitnir náungar höfðu
komið sér fyrír á bekkjum úti í horni, fáeinir slæp-
ingjar og örfáir kunningjar, sem ekki hafði bein-
línis verið boðið.
Jennie horfði updrandi á þetta. Aldrei á ævi sinni
hafði hún komið inn í kaþólska kirkju. Rökkrið,
hinar skrautlegu rúður, hvítt altarið og kertaljósin
höfðu áhrif á hana. Þetta hús var táknmynd lífsins
með leyndardómum sínum og öryggisleysi.
Meðan klukkan hringdi kom hópur kórdrengja
innan úr skrúðhúsinu. Sá minnsti var ellefu ára
snáði með engilsásjónu. Hann gekk á undan og hélt
silfurkrossi hátt á lofti. Kórdrengirnir, sem komu
á eftir honum, gengu tveir og tveir saman og héldu
á löngum kertum, sem logaði á. Presturinn, sem var
í svartri hempu, gekk inn á eftir kórdrengjunum og
fylgdu honum tveir meðhjálparar sinn til hvorrar
handar. Skrúðgangan fór fram í forsal kirkjunnar
og sást ekki aftur fyrr en kórinn byrjaði að syngja
latnesku bænina um miskunnsemi og frið.
Þegar söngurinn hófst, kom hin hátíðlega skrúð-
ganga aftur í ljós, silfurkrossinn, ljósin, prestur-
inn, sem las hátt meðan hann gekk inn, og lík
Lesters í stórri, svartri kistu með silfurhandföngum
og báru hana sex menn, sem gengu hægum, hátíð-
legum skrefum. Það fór hrollur um Jennie. Það var
eins og rafstraumur hefði farið um hana. Hún þekkti
engan af þessum mönnum. Hún þekkti ekki Ró-
bert. Hún hafði aldrei séð Midgely. í líkfylgdinni
þekkti hún aðeins þrjár manneskjur, sem Lester
háfði sýnt henni íyrir löngu. Hún sá frú Kane, því
að hún gekk rétt á eftir kistunni og studdi s:g við
arm ókunnugs manns. Á bak við hana gekk Wat-
íj son, hár og virðulegur. Hánn leit snöggvast til
1 beggja handa, eins og hann byggist við að sjá hana,
| en þegar hann kom ekki auga á hana, horfði hann
beint fram. Jennie horfði á hann með athygli.