Tíminn - 16.07.1963, Síða 7
Útgefi-ndl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson, Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Daviðsson.
Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar
skrifstofur, simi 18300. Áskriftargjald kr. 65.00 á mán. innan-
lands. í lausasölu kr 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f —
Veik ríkisstjórn
Frá vettvangi Sameinuðu þjóöanna:
| Bjartsýni ríkir um þrdun
I efnahagsmáia í heiminum
| Alþjóðleg viðskiptaráðstefna haldin á vegum S.Þ. í ársbyrjun 1964.
EITT stjórnarblaðanna, Vísir, birtir fyrir nokkr-
um dögum forustugrein úr danska blaðinu „Berlingske
Tidende1 um þjóðaratkvæðagreiðsluna, er nýlega fór
fram í Danmörku um landeignamálið. Eins og áður hefur
verið rakið hér í blaðinu, urðu úrslitin þau, að frumvörp
ríkisstjórnarinnar féllu og hún verður því neydd til að
hefja um þau samningaviðræður við stjórnarandstæð-
inga, en því hafði hún hafnað fyrir atkvæðagreiðsluna og
hugðist nota hinn veika þingmeirihíuta sinn til þess að
knýja stefnu sína fram. Stjórnin hefur nú lýst yfir því, aö
liún muni draga þær ályktanir af atkvæðagreiðslunni, að
brátt verði hafnir samningar við stjórnarandstöðuna um
málið. „Berlingske Tidende“ telur það hins vegar ekki
nóg. í greininni, sem Vísir birti, undir fyrirsögninni „Hin
bitra stund Krag“, segir m. a.:
„Það er nauðsynlegt að Krag taki víðtækara tillit
til úrslita þjóðaratkvæðagreiðslunnar en þess eins ,að
hann láti hefja undirbúning eða umræður um málið.
Áhrif atkvæðagreiðslunnar ná lengra en það. Forsæt-
isráðherra verður nú að taka tillit til, eða beygja sig
fyrir þeirri staðreynd, að hann getur ekki hundsað al-
gjörlega sjónarmið stjórnarandstöðunnar . . .
Hann verður að hætta að treysta á þann meiri-
hluta, sem hann getur unnið eða haft í augnabliki,
sér til skamms framdráttar, því sá meirihluti eyðilegg-
ur möguleikana á að hægt sé að leysa hin stærri og
þýðingarmeiri vandamál“.
Þetta er vafalítið rétt, en það eru fleiri en Krag, sem
þurfa að gera sér þetta ljóst. Ríkisstjórn, sem hefur mjög
veikan þingmeirihluta að baki sér og nær helming kjós-
enda á móti sér, má ekki haga sér eins og hún hafi hálf-
gert einræðisvald í þjóðfélaginu. Hún má ekki ráðast i
framkvæmd umdeildra mála, nema kringumstæður séu
alveg óvenjulegar, gegn á'kveðinni andstöðu stjórnarand-
stæðinga. Hún má ekki hefjast f’’amkvæmda um stjórn
arstefnu, sem raunverulega gerbreytir þjóðfélagsskip
uninni, t. d. dregur eignir og yfirráð langtum meira a
t'áar hendur en áður hefur átt sér stað. Hún má heldui
ekki taka ákvarðanir í utanríkismálum, sem geta ger
breytt aðstöðu þjóðannnar og bundið hendur hennar til
iangs tíma. Nánast sagt má hún ekki beita sér öllu meira
en embættismannastjórn myndi gera
Slík stjórn verður að gera sér ljost, að hún er veik
stjórn. Hún verður að taka fullt tillit ul þess, að hún hefur
nær helming þjóðarinnar á móti sér £f slík stjórn hyggst
að láta kenna aflsmunar, getur hún íyrr en varir upplif-
að þá bitru stund, að meirihlutinn hefur snúist gegn henni.
Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Danmörku eru ekki
aðeins lærdómsrík fyrir Krag forsætisráðherra, heldur
og aðra valdamenn, sem líkt er ástatt um.
Mismunun
UM ÞAÐ LEYTI, sem núverandi ríkisstjórn kom til
valda, nutu sjávarútvegurinn og landbúnaðurinn nokkurn
veginn jafnréttis í veitingu svokallaðra afurðalána. —
Þetta jafnrétti var eðlilegt, vegna svipaðrar aðstöðu.
Núverandi ríkisstjórn hefur breytt reglunum um
veitingu þessara lána, þannig, að hlulur landbúnaðarins
hefur verið stórlega skertur. Hann íær nú miklu lægri
afurðalán en sjáavrútvegurinn.
Með þessari mismunun h-?iuj ríkisstjórnin sýnl
að hún gerir upp á milli atvinnuvega þjóðarinnar o.e
ætlar landbúnaðinum minni rétt en öðrum atvinnuvegum.
VÍÐA um heim var fram-
leiðsluaukningin árið 1962
minni en árin næst á undan
og oft rýrari en vonir stóðu
til, segir í síðasta yfirliti Sam
einuðu þjóðanna yfir efna-
hagsþróunina í heiminum. -r-
Hins vegar lofaði framleiðslu
(aukningin fyrstu mánuði
þessa árs góðu, og horfurnar
um næstu framtíð eru enn
góðar, segir ennfremur í yf-
irlitinu.
Þessi skýrsla, „World Eco-
nomic Survey, 1962“, er til um-
ræðu á fundi Efnahags- og fé-
lagsmálaráðsins í Genf í þessum
mánuði Fyrri hluti skýrslunnar
fjallar um þróunarlöndin og
heimsviðskiptin, en seinni hlut-
inn hefur að geyma yfirlit yfir
hina raunverulegu efnahagsþró-
un í iðnaðarlöndunum, í þeim
löndum, sem flytja út hráefni, og
Ií löndum, sem reka áætlunarbú-
skap.
Samkvæmt skýrslunni var
framleiðslan í Norður-Ameríku
allverulega meiri árið 1962 en ár
ið 1961. Hins vegar er vert að
hafa í huga, að árið 1961 hafði
komið. afturkippur í framleiðsl-
una. Enda þótt þróunin hafi leitt
í ljós, að óttinn við hlé á áfram-
haldandi aukningu árið 1983 hafi
verið ástæðulaus, þá er á það
bent í skýrslunni, að efnahags-
líf-ið einkennist enn af illa nýtt-
um framleiðslumöguleikum og
atvinnuleysi.
í Vestur-Evrópu varð fram-
leiðsluaukningin árið 1962 minni
en árið áður, og stafaði það af
því að hin mikla fjárfesting und-
anfarinna ára virtist vera í rén-
un. Af þeim sökum er þróunin
ótryggari en verið hefur. í nokkr
um löndum gerðu snöggar verð-
sveiflur málið flóknara.
í þróunarlöndunum naut út-
flutningurinn árið 1962 góðs af
bættu ástandi í Norður-Ameríku
eftir afturkippinn 1961, samfara
nokkurri birgðaukningu í Vest-
ur-Evrópu. Enda þótt útflutnings
aukningin væri hlutfallslega
minni en allsherjaraukning á al-
þjóðlegum viðskiptum, var hún
samt örari etn árið 1961.
Meðal þeirra landa, sem reka
áætlunarbúskap, var aukningin
mjög svipuð og árið á undan i
landbúnaðarframleiðslu Sovét-
rikjanna. Hins vegar kom veru-
legur afturkippur í þá fram-
leiðslu í nokkrum þessara landa,
fyrst og fremst vegna slæms veð-
urfars. í nokkrum löndum Aust-
ur-Evrópu var framleiðsluaukn-
ingin árið 1962 minni en hún
hafði verið flest árin eftir seinni
heimsstyrjöld. Hins vegar hélt
iðnaðarframleiðslan áfram að
aukast ört í öllum löndum Aust-
urEvrópu — yfirleitt örar en á-
ætlað hafði verið fyrir árið
1962.
Haldi efnahagsútþenslan
Vestur-Evrópu áfram með sama
hraða og á árunum 1950—60, er
U THANT,
— undirbýr alþjóðlega viðskipta-
ráðstefnu í byrjun næsta árs, þar
sem m.a. verður rætt um efnahags-
bandaiög eins og EBE og áhrif
þeirra á heimsviðskiptin.
sennilegt að innflutningur Vest-
ur-Evrópu frá öðrum heimshlut-
um muni fara stöðugt vaxandi.
jafnvel þótt hlutdeild þessara
landa í allsherjarviðskiptum
Vestur-Evrópu munj minnka
vegna hinnar efnahagslegu sam-
einingar, segir í fyrra hluta
skýrslurinar, sém" fjallar um þró-
unarlöndin og alþjóðaviðskiptin.
Hins vegar mundu hinar óhag-
stæðu afleiðingar þess, þ.e. í stað
innflutnings komi innlend fram-
leiðsla, ef samdráttur yrði í
Vestur-Evrópu, verða að sama
skapi meiri og alvarlegri. Jafn-
vel þótt samanlagður innflutn.
ingur Vestur-Evrópu frá öðrum
löndum haldi áfram að aukast,
geta þar fyrir utan ákveðnar
vörutegundir og ákveðin lönd
orðið fyrir eínahagslegum
skakkaföllum af sameiningu
Vestur-Evrópu. Á það einkum
við um landbúnaðinn
★
Alþjóðleg viðskiptaráð-
stefna.
Undirbúningur hinnar Alþjóð-
legu ráðstefnu um viðskipti og
þróun, sem halda á í ársbyrjun
1962, framkvæmdaáætlunin um
„þróunaráratug“ Sameinuðu
þjóðanna og efnahagslegar og fé-
lagslegar afleiðingar afvopnunar
eru meðal veigameiri umræðu-
efna á sumarþingi Efnahags- og
félagsmálaráðsins, sem nú stend
ur yfir í Genf.
Að því er snertir viðskiptaráð-
stefnuna hefur sérstök undirbún-
ingsnefnd setið á rökstólum síð-
an í janúar. Hún hefir fjallað
um uppkast að þeim umræðu
efnum, sem ráðstefnan tekur fyr
ir. í uppkastinu eru sjö megin-
atriði: 1. Útþensla alþjóðaverzl-
unar og þýðing hennar fyrir efna
hagsþróunina. 2. Alþjóðleg vöru
vandamál. 3. Verzlun með iðnað-
arvörur og hálfunnar vörur 4.
Endurbætur á ósýnilegri verzlun
þróunarlandanna. 5. Afleiðingar
svæðisbundinna efnahagssam-
taka. 6. Fjárhagslegur stuðning-
ur við aukin alþjóðaviðskipti. 7.
Undirbúningur, aðferðir og end-
anleg tilhögun opinberra stofn-
ana á ráðstöfunum, sem miða að
því að færa út kvíar alþjóðavið-
skipta.
í skýrslu frá nefndinni um al-
þjóðleg vöruviðskipti er fjallað
um tvær tillögur um ráðstafanir,
sem gerðar verði með það fyrir
augum að jafna hinar breytilegu
útflutningstekjur landa. sem
framleiða hráefni.
Annað mikilvægt atriði á
skrá Efnahags- og félagsmála-
ráðsins er fjárhagsstuðningur
við efnahagsþróunina. í skýrslu
Sameinuðu þjóðanna um þetta
efni segir, að straumurinn af fjár
. magni, sem lánað er til langs
tíma, og opinberum fégjöfum frá
háþróuðum löndum með einka-
rekstur hafi vexið úr 5.2 milljörð
um dollara árið 1959, í 6 millj-
arða 1980, og 7.2 milljarða 1961.
Lönd þau, sem reka áætlunarbú-
skap, veittu á þessu skeiði að-
stoð, sem árlega nam einum
milljarði dollara, og er það tals-
vert meira en áður var. í sam-
bandi við þetta atriði skýrir fram
kvæmdastjórinn frá samnings-
viðræðum, sem hann hefur átt
við rkisstjórnir í háþróuðum
löndum varðandi tillöguna u-m
að koma upp stofnlánasjóði hjá
Sameinuðu þjóðunum
Áætlanirnar um „þróunarára-
tuginn“ hafa m.a að geyma til-
lögu um að koma á fót árið 1964
stofnun Sameinuðu þjóðanna til
menntunar og rannsókna, og til-
lögu um samræmingu allra að-
gerða með tillitj til vatnsforða
heimsins.
★
Nafn matarins skiptir miklu.
Ensku nöfnin á steinbíti og
háfi eru Catfish (kattfiskur) og
Dogfish (hundafiskur), og fáir
kæra sig um að leggja sér slíka
fiska til munns. En sé skipt um
nöfn á þessum næringarríku og
bragðgóðu fisktegundum og þær
nefndar „kótelettufiskur" og
„fiskur 45“, er mikil eftirspurn
eftir þeim. Þetta dæmi hefur
Daninn John Fridthjof komið
fram með. Hann veit hvað hann
er að segja, því undan farin 10 ár
og rúmléga það, hefur hann starf
að sem nærjngarséríræðingur
fyrir Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunina (FAO) í Suður-Ame-
ríku og Afriku, og nú hefur hann
sent á markaðinn bók um
reynslu sína.
Dæmið um „kattfiskinn“
(steinbítinn) kemur frá Dan-
mörku á árunum eftir stríð.
Steinbíturinn var ein bezta fisk-
tegund, sem veidd var, mjúkur
og bragðgóður. En það var ekki
fyrr en mönnum datt í hug að
selja hann í sneiðum og kalla
hann „kótelettufisk", að hann
fór að ganga út.
Háfurinn („hundafiskurinn")
er veiddur við Vestur-Afríku og
er bæði góður og bætiefnaríkur.
En nafnið var honum andstætt
og hann átti litlu gengt að fagna,
Framhald 6 13 sfðu.
\
T I M I N N, þriðjudagurinn 16. júlí 1963. —
2