Tíminn - 21.07.1963, Page 15
íjjróttir
lagi í Noregi og Danmörku að
undanförnu, að blanda sér inn í
baráttuna, en sunnudaginn 28. júlí
leikur Valur við' Keflavík á Laug-
ardalsvellium.
Þess má geta, að síðustu leikirn-
ir í I. deild verða 25. ágúst og þá
leika KR-ingar á Akureyri og Fram
cg Valur á Laugardalsvellinum.
Ragnh. Stefánsd., Umf. Samh. 14,1
Rannveig Haldórsd. Uf. Vöku 14,1
Björg Einarsd., Umf. Njáli 14,5
4x100 m. boðhlaup kvenna:
A-sveit Umf. Samhygðar, 59,7
A-sveit Umf. Njáls, 60,5
A-sveit Umf. Vöku, 61,4
A-sveit Umf. Selfoss, 63,6
Hástökk kvenna:
Kristín Guðm.dóttir, Uf. Hvöt, 1,42
(Skarphéðinsmet).
Helga ívarsdóttir, Uf. Samh. 1,40
Guðrún Óskarsdótt. Uf. Njáli 1,35
Ása Jakobsen, Uf. Self. 1,30
Árangur hástökkinu var eftir-
tektarverður, 9 stúlkur stukku
yfir 1,30 m.
Kúluvarp kvenna:
Kristín Guðm.dóttir, Uf. Hvöt 8,98
ÍTé''iður Sigurðard. Uf. Hruna 8,50
G 'ún Óskarsd. Uf. Njáll, 7,90
Guðbj. Guðmundsd. Uf. Sam. 7,68
Kringlukast kvenna:
Ása Jakobsen, Uf. Self. 27,10
Margrét Hjaltad., Uf. Gnúp. 25,27
Þórdís Kristjánsd. Uf. Samh. 24,90
Ingibjörg Sveinsd. Uf. Self. 24,57
Kristín Guðmundsdóttir Umf. Hvöt
iilaut afreksbikar kvenna að
þessu sinni fyrir hástökkið sem
gefur 745 stig.
Mótstjóri var Þórir Þorgeirsson,
kynnir, Hafstein Þorvaldsson, —
dómarar: Stefán Magnússon, Hörð-
ur Óskarsson Tómas Kristinsson,
og Helgi Björgvinsson.
UMF Selfoss hlaut frjálsíþrótta-
bikarinn að þessu sinni, fyrir flest
stig á mótinu. 16. félög sendu kepp
endur á mótið.
H.Þ.
SALTSÍLDIN
Framhald af 1. síðu.
um Vestur-Evrópuiöndum í seinni
t.ið, vegna þess að framleiðsla
þeirra sjálfra hefur stóraukizt.
Norðmenn voru lengi vel í fyrsta
sæti, en síðustu ár hefur aflabrest-
ur og sömuleiðis minnkandi áhugi
á síldarkaupum Austur-Evrópuland
anna, orðið til þess að útflutn-
ingur Norðmanna hefur minnkað
gífurlega, og nú eru þeir komnir
: þriðja sæti útflutningslandanna.
Á síðasta ári munu þeir hafa flutt
út um helmingi minna en fslending
ar.
Á fundi Félags síldarsaltenda á
Suðvesturlandi nú fyrir skömmu
kom fram, að í júlí í fyrra hafi
ekki litið vel út um sldarsöltun
sunnanlands, úr þessu hafi þó ræzt,
þegar líða tók á sumarið, og að
ickum hafi þetta orðið mesta sölt-
unarárið frá því félagið var stofnað
1954. Söltunin nam 137.740 tunn-
i'.m, þar af 31.766 tunnur flött og
Hökuð síld, og útflutningsverð-
mæti síldarinnar nam rúmiega
112,3 miljónum. Söluhorfur Suð-
urlandssíldar munu ekki vera góð
ar í Beneluxlöndum, Frakklandi
og ísrael, en of snemmt mun vera
■iö segja nokkuð ákveðið um þetta
atriði, að pví er Gunnari Flóvenz
fiamkvæmdastjóri Síldarútvegs-
nefndar skýri frá. Síld var í fyrsta
:inn á síðasta ári seld tii þessara
ianda. Á ísraelsmarkaði liggur
urkið af saltsld frá fyrra ári, og
ar algiörlega óvíst, hvort hægt
verður að seija Suðurlandssíld
tangað á næstu vertíð.
Það, sem af er síldarvertíð Vest-
ur-Þióðverja hefur síidarsöltun
verið 100% meir en á síðasta ári.
KLÓRHREINSUN
Framhald af 1. síðu.
þau fyrirmæli að öll frystihús, sem
nota sjó við framleiðsluna, eða
vatn, sem ekki er talið nægilega
gott, komi upp hjá sér klórblöndun
artækjum, og hafa 30 frystihús
gert ráðstaíanir til þess að fá tæk
;n, og 10—12 hafa þegar tekið þau
i notkun.
Fiskibátar eru oft þvegnir úr
sjó, og þá ósjaldan í höfn, þar sem
sjórinn er langt frá því að vera
hreinn. Þvi hefur sama skilyrðið
verið sett um bátana og frystihús-
ín, og hafa 10 bátar úr Reykjavík
og Hafnarfirði fengið klórblöndun
artæki. Fyrsti báturinn, sem tæk-
in fékk var Ásgeir frá Reykjavík,
og hafa þau reynzt mjög vel.
Klórtækin, sem notuð eru, eru
tvenns konar, annars vegar klór-
dælur, sem yfirleitt kosta um 15
þús. kr., og hins vegar klórgas-
■ æki, og kosta þau minnstu 30
þús. kr. Klöri er blandað í vatnið
til þess að dauðhreinsa það, og
þarf fremur lítið magn til þess,
og veldur það ekki tjóni á mat-
vælum. í frystihúsum þarf venju-
iega 5—10 p.p.m. (paita per mill-
jóu) af klóri, en þaðan af meira
ef frystihúsin eru mjög stór. í
bátum eru yfirleitt notaðir 10 p.p.
m. Ýmislegt þarf að athuga í sam
bandi við kiórblöndunina, því efn-
ið getur haft tærandi áhrif á
málma og málningu og lykt get-
ur t. d. komið af fiski, en þetta
gerist því aðeins, að ákaflega mik-
ið _magn sé notað.
Á Akranesi hefur verið rætt
um að klórblanda neyzluvatn, því
þar verða bæjarbúar að notast við
ofanjarðarvatn úr hlíðunum. í því
eru gerlar, og jarðfræðingar hafa
sagt, að ekki sé neitt hægt aS gera
til þess að bæta vatnsból staðarins.
Sláturhús um allt land notast
einnig við neyzluvatn hvert á sín-
ucn stað, og er ijóst, að sama máli
gegnir um heilnæmi þess og vatns
ins, sem notað er í frystihúsunum.
Því er ekki ósennilegt, að heil-
brigðisyfirvöldin láti fara fram
rannsókn á vatninu, og sömu ráð-
stafanir verði síðan að gera og hjá
frystihúsunum. Aðeins eitt slátur-
hús í landir.u hefur nú tekið í notk
un klórblöndunartæki, og er það
sláturhús Samvinnufélags Fijóta-
manna í Haganesvík.
FNJÓSKÁRBRÚ
Framhald af 1. síðu.
við Laufás í Dalsmynni og
verða því allir þungaflutn-
ingar að fara fram um
gömlu Fnjóskárbrúna. Er
full ástæða til að hvetja
menn að fara þar eftir sett-
um reglum, sjálfra þeirra
vegna og annarra. Reglur
um hamarksöxulþunga eru
ekki settar af illgirni, held-
ur að vel athuguðu máli, og
meðan vegirnir eru ekki
betri en þeir eiu. er ekki
nema eitt að gera: Hlíta
þeim.
ÍSINN
Framhald af 1. síðu.
ur út af horni, en stundum nær,
og siglingaieið verið mjög óhrein
fyrir Horni Vonandi er nú „lands-
ms forni fjandi" farinn frá landi
fyrir fullt og allt í sumar og hverf
ur aftur tii síns heima með aðstoð
hafstrauma.
RJÚPUR
Framhaii aí 16. síðu
— Hvernig eru lifnaðarhætt-
ir rjúpunnar?
— Áður en varptíminn hefst
velja karrarnir sér ákveðið
svæði, þar sem parið heldur sig
síðan, á meðan á varptíma stend
ur. Svæðin eru dálítið misjöfn
að stærð og fara eftir því,
hversu stór stofninn er í það
og það skipti. Þau eru venju-
lega frá 2 í 8 ha. að stærð þeg-
ar rjúpurnar eru sem flestar,
en frá 6—20 ha. þegar þær eru
færri. Hæfustu fuglarnir velja
sér beztu svæðin, en þeir sem
óhæfari eru, verða oft útundan
o,g fá engan samastað. Deyi fugl
secn haft hefur ákveðið svæði,
tekur annar, sem hvergi hefur
átt höfði sinu að halla, að sér
svæðið. Þegar fuglarnir deyja,
hlýtur það annað hvort að vera
af því, að einhver breyting hef-
ur átt sér stað í þeim sjálfum,
eða -á lífsskilyrðum þeirra, og
það er einmitt þetta, sem við
erum að reyna að komast eftir.
— Hver er aðalmunurinn á
rannsónunum hér og í Skot-
landi?
— í fyrsta lagi er gróðurinn
á varpsvæðum rjúpunnar hér
miklu fjölbreyttari en í Skot-
landi, þar sem rjúpan lifir ein-
göngu á beitilyngi, en hér hef-
ur hún úr miklu að velja. Ann-
ar aðalmunurinn er ,að í Skot-
landi flyzt hún ekki úr stað eft-
ir árstíðum. Hún býr á sama
stað allt árið um kring, og or-
sakast þetta af því að veðráttan
er mildari en hérna. Bæði þessi
atriði gera rannsóknirnar hér
miklu erfiðari viðureignar en
hjá okkur.
— Veldur sveiflulengd stofns
ins ekfci erfiðleikum líka?
— Já. Við getum komið fram
með ýmsar hugmyndir um það, ‘
hveð gerist, en það er erfitt
fyrir okkur að sannprófa, hvort
þær eru réttar eða ekki, vegna
þess hvesu óreglulegar sveifl-
urnar eru. Þetta er betra hér,
því menn vita nokkurn veginn
fyrir víst, hvenær stofninn nær
hámarki og hvenær lágmarki.
— Tafca margir vísindnmenn
þátt í rannsóknum yðar á rjúp-
unni í Skotlandi?
— Við erum tveir dýrafræð
ingarnir og svo er einn grasa-
fræðingur og einn aðstoðarmað
ur.
Dr, Jenfcins hefur sfeoðað þrjú
af fjórum rannsóknarsvæðum
hér á landi, Hrísey, Heiðmörk
og Laxárdal í Suður-Þingeyjar
sýslu, en fjórða svæðið er í Ör-
æfum.
Að sögn dr. Finns Guðmunds
sonar eru 53 rjúpnapör í Hrísey
sem er aöeins 8 ferkílómetrar.
Þykir það mjög mikið.
KORNIÐ
Framhald af 1. síðu.
þar væii betur á vegi statt
en í fyrra, en þá var að vísu >
óvenju lélegt ár. Bezt væri
það á veg komið í Fljótsdaln
um. en yfirleitt væri það a.
m. k. viku á undan því sem
það var í fyrra.
í Hornafirði munu horf-
ur yfirleitt góðar. Þar er
kornið ræktað í sandi, og
var mjög vel á veg komið,
en vegna mikilla þurrka und
anfarið voru menn orðnir
nokkuð áhyggjufullir, og
eitthvað var farið að sjá á
korninu. í nótt rigndi þar
nokkuö og eru menn nú von-
betri af þeim sökum.
VILLTUR í ÞOKU
Framhald vt 16. síðu.
leiðangur flugbjörgunarsveitar
innar á tveimur bílum. Um sex-
leytið í morgun lögðu leiðangurs-
menn svo upp, ásamt fólki, sem
dvalizt hefur á Hveravöllum og
í Kerlingarfjöllum, og var haldið
norður á bóginn, þar sem talið
var, að Garðars væri að leita.
En um það bil klukkustundu
síðar kom Garðar sjálfur að Hvera
völlum og úr suðri. Hafði hann
rekizt á göturnar úr Þjófadölum
og fylgt þeim til Hveravalla.
Garðar veit lítið, hvert hann
íór í þokunni. Eins og sagt er
frá í blaðinu í dag fannst slóð
eftir hann í gær, en hún hvarf
aftur. í gærdag mun hann hafa
sofið, sennilega um það leyti, sem
leitað var að honum úr flugvél-
T í M I N N, sunnudagurinn 21. júlí 1963. —
inni, en seint í gær kveðst hann
hafa heyrt í flugvél. Mun það
hafa verið, er Björn flaug með þá
félaga.
Garðar kvartaði ekki um hung-
ur, en kvaðst hafa verið mjög
þyrstur og borðað snjó við þorst-
anum. Þykir það benda til þess,
að hann hafi lengst verið á ferli
í nágrenni Kráfcs, en þar er eina
vatnslausa svæðið á þessum slóð-
um. Síðan virðist hann hafa farið
hátt meðfram norðurenda Lang-
jökuls, ofar fjallalæfcjum, úr því
hann ekki gat svalað þorsta sín-
um. Síðan, er létti, hefur hann
sveigt niður og fundið götuslóðann,
sem liggur frá Þjófadölum til
Hveravalla.
Garðar svaf í dag, er Björn flaug
upp á Hveravelli, til að sæfcja
Jóhannes' og félaga. Hann hafði
um það orð í morgun, að hann
rvissi ekfcert, hvort hann kæmi
strax til byggða. Hann vildi helzt
ekki koma heim, án þess að veiða
neitt!!
EKKI VERKFALL
Framhald af 16. síðu.
fengið að undanförnu, en á undan-
var komin 5%, hækkunin. Þá var
einig samþykkt byrjun á aldurs-
uppbótum. Eftir 10 ára starf fá
mjólkurfræðingar nú 5% uppbót
og 10% eftir 15 ár. Auk þessa var
samið um lengingu á sumarfríi.
Tiu ára starfsmenn hafa fengið
19 daga, virka, en fá nú 20, og 15
ara starfsmenn fá 22 virka daga
í staðinn fyrir 21 áður.
MINKUR
FramhaU af 16. síðu
sem enginn minkur sést.
Minkur rnun hafa verið í Elliða-
ánum allt frá 1932, þegar fyrstu
minkarnir sluppu út úr búrum
sínum. Aftur á móti hefur Elliða-
ánna verið betur gætt en margra
annarra, þai eð Karlsen minkabani
liefur stöðugt haldið minknum
þarna í skefjum.
SKÁLHOLT
Framhald af 1. síðu.
il. Viðbúnaður er einnig til
að mæta óhöppum, sem kunna
að henda, og munu skátarnir
sjá um það, en kvenfélagskon-
ur úr Skálholtssókn munu selja
veitingar/
Engir komast í kirkju við
sjálfa vígsluathöfnina, aðrir en
boðsgestirnir, en komið hefúr
verið fyrir hátölurum, sem
flytja athöfnina til þeirra, sem
ekki komast í kirkjuna. Eftir
vígsluathöfnina er kirkjan op-
in öllum, sem vilja skoð'a hana,
og kl. 3 er svo almenn guðs-
þjónusta. Athöfninni verður út-
varpað, svo að sem flestir geti
fylgzt með. Auglýst er í blöðum
í dag, að útvarp verði í dóm-
kirkjunm í Reykjavk á morgun
svo að kirkjugestir geti hlýtt á
i Skáihoitsvígsluna.
En sjón er sögu ríkari, og
þeir muna það vafalaust alla
ævi, sem sjá prósessíu lærðra
og leikra ganga í Skálholts-
kirkju kl. 10 á morgun undir
voldugrj klukknahringingu úr
tumi kirkjunnar. Og vonandi
leggur sólin blessun sína yfir
athöfnina og skín að Skálholti
á morgun.
GEGNUM SKOÐUN
Framhai'-' ai 16 síðu
sem kynnu að eiga vara-
hlutj ; svona bíl, að renna
við á Skúlaskeiði 6, þar sem
hann ú heima. — Bíll
inn. nema í skoðunina, —
en nú getur hann farið að
reyna gæði hans á vegunum
utan Hafnarfjarðar. Bíllinn
er ijomandi fallegur útlits,
eins og myndin ber með sér,
en bar sem hún er ekki í
litum. getur blaðið frætt les
endur á því, að hann er
dökkgrænn með rauðri rönd
á hliðum og svörtum hjól-
hlífum. (Ljósm.: Tíminn
hlífum.
iLjósm.: TÍMINN-GE).
APv-
SNOGH0J 2 II B B B B 1 B FOLKEH0JSKOLE pr. Fredericia DANMARK
Alm. hBjskolc med sprog og nordlsk-europælsk hold.
lærere on elever fra hele Norden.
Poul Engberg
við Litlabeltisbrúna
6 mánaða skóii, jafnt fyrir
stúlkur og pilta.
Allar uppl. veitir.
Poul Engberg, Fredericia
Sími Erritsö 219 Danmörku
li óskast
Ung hjón vantar 2 herb.
íbúð fyrir miðjan sept. Upp
lýsingar í síma 20553 eftir
kl. 5.
Ferð í
Skálhoit
Lagt verður af stað frá fé-
lagsheimilinu í Kópavogi
kl. 10 árd. Þátttaka tilkynn-
ist í síma 36927 eða 10479.
Farfuglar í Kópavogi.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúS viS andlát og jarðarför
mannsins míns og fiour okkar
GARÐARS HJÁLMARSSONAR,
bifvéiavirkja, Ásvallagötu 39.
Þökkum sérstaklega læknum og hjúkrunarkonum handlæknin-n-
deildar Landsspftalans fyrlr ómefanlega hjálp. — Guð blessi yk nr
öll. — F.h. foreldra, systkina, tengdaforeldra og annarra ætt ngia.
Edda Jónsdóttir og synir.
Útför
LILJU MARTEINSDÓTTUR,
Freyjugötu 11,
fer fram frá Fossvogskapellu, þriðjudaginn 23. þ.m. kl 1 30. —
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu mlnnact hinnar
látnu, er bent á líknarstofnanir.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
15