Alþýðublaðið - 21.01.1955, Blaðsíða 5
Föstudagur 21. jan. 1955
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
SUMI'R aðdáendur Davíðs
Stefánssonar frá Fagraskógi
telja hann brautrvðjanda í ís-
lenzkri ljóðagerð. Samt mun
nær sanni að álykta, að Davíð
eigi sigurinn því að þakka, að
hann gekk tll móís við nýjan
tíma án þess að brjóta brýr
fortíðarinnar að baiti sér. Ljóð
Davíðs strax í ..Svörtum fjöðr
um“ eru nýstárleg. tilraunir
skáldsins með efni og form
vltna um dirfsku og stórhug,
en skyldleikinn við gömlu
meistarana kemur fljótt í leit-
irnar eigi að síður. Kvæðin eru
folómjurtir af akri sögunnar og
íþjóðlífsins, en jaínframt legg-
ur Davíð áherzlu á að túlka
viðhorf og tilfinningar sjálfs
sín, tjá gleði og sorg persónu-
legrar reynslu. Hann spinnur
öðrum þræði örlagavef sinn á
rokk ljóðagerðarinnar, gerir
lesandann að trúnaðarvini og
segir það, sem honum býr í
hug, eins og barn móður eða
móðir barni. Þess vegna varð
Ijóðum hans greiðfær leið að
hjarta þjóðarinnar. Lestur
kvæðanna er nautn upplifunar
innar.
Davíð er stórtækastur allra
samtíðarskálda okkar, frama-
djarfastur og afkastamestur.
Hitt er þó mest um vert, að
fjölhæfni hans gerir hann
jafnvígan á stórt og smátt.
Hann er eins og ferðamaður,
sem leggur leið sína um marg-
fereytilegt og víðáttumikið
landslag og hyggur í senn að
fjalli og blómi, hafi og lind,
jökli og steini, sól og stjörnu,
höll og hreysi. musteri og tjald
stað. Samlíkingin bregður þó
engan veginn uop viðhlítandi
mynd, því að Davíð sveiflast
einnig milli gleði og sorgar,
fagnaðar og iðrunar, útþrár og
átthagaástar. Hann er he'ms-
foorgari og íslenzkur sveita
maður, fer til að koma og kem
ur til að fara. Allt þetta spegl
ast og bergmálar í skáldskap
hans, hljómar hörpunnar
minna á straumfall fossins og
klið lækjarins. siguróp her-
skaranna og grát b.arnsins,
storminn í trjákrónunum og
folæinn í laufinu. Þetta er æv-
íntýralegur tónasláttur.
Fræðimönnum reynist sjálf
sagt auðvelt að benda á inn-
lenda og útlenda lærifeður,
sem Davíð Stefánsson hafi
num'.ð af. F.n hann unir ekki
skólavistinni nema skamma
hríð, lærir að vinna sjálfstætt
og hefst síðan handa um, ætl-
unarverkið. fer utan af þörf og
kemur aftur heim af tryggð
ein.s og farfuglarnir, en lætur
aldrei fjötrast. er hrókur alls
fagnaðar á góðra vina fundi,
en telst eigi að síður einmana
útlagi jafnvel í fjölmenni af
því að líf hans er sífelld le'it,
hvorki sókn né flótti í venju-
legum skilningi, heldur veg-
ferð til að sjá og heyra, skynja
og njóta. Þetta er ævintýri í
fari mannsins, en opinberun í
skáldskap Davíðs. Ljóð hans
eru misjöfn eins og þau eru
margbreytileg, en í heild sinni
minna þau helzt á landið, sem
61 skáldið, sögu þjóðarinnar og
örlög hennar, sumardaginn og
vetrarnóttina, gieðistundina
og sorgarárið. Leyndardómur-
inn við skáldskap Davíðs er
sennilega sá, að hann er
margra manna maki í listinni
að lifa og hefur borið gæfu til
að tjá hana í ljóðum sínum.
Davíð Stefánsson hefur ort
mörg löng og stórbrotin
kvæði, þar sem hann rekur
mikla og örlagaríka stjgu. Sum
þeirra vitna um frdbæra list-
ræna íþrótt og þola vafalaust
samanburð við ágætustu afrek
íslenzkra og norrænna skálda.
En skemmtilegusíu og sönn-
ustu heimildirnar um snilld
Davíðs eru þó smákvæði hans,
þegar hann bregður upp mynd
eða túlkar hughrii með töfra-
brögðum tvíleiksins. Lesand-
inn er stundum í vafa um,
hvort þessi kvæði séu ort í al-
vöru af því að þau koma kunn
uglega fyrir sjónir og eyru
eins og suðandi dægurflugur,
en þau reynast honum m'.nnis-
stæð líkt og augnafotik fyrstu
ástar eða andartak örlagaríkra
vonbrigða, er fram líða stund-
ir og kynningin verður að end
urminningu. Þar gerir Davíð
vanda hins smáa að stórum
s'.gri, lætur fjallið speglast í
lindinni og blæinn heyrast í
storminum, ísland rísa úr haf-
inu og útlagann víðíörla krjúpa
við móðurkné til að þakka og
biðjast fyr'.rgefningar. Þá
skiptir ekki boðskapur upp-
reisnarmannsins og fordæm-
ing spámannsins máli lengur
af því að gleðin og harmurinn
er allri vizku æðri og skáldið
snjallast, þegar það talar eins
og barn eða tilfinningapæmur
maður, .serp segir góðum v'.ni
teyndarmál psrsónulegrar
reynslu.
Davíð þótti villtur og ung-
æðislegur, þegar hann kvaddi
sér hljóðs með „Svörtum fjöðr
um“. Hann var heiðinn í fögn-
úði sínum, lofsöng syndina og
krafðist nautnarinnar. En list
hans rís hæst í kvæðinu Stjörn
urnar, sem er ort til að veg-
sama guð fyrir dýrð himinsins.
Davíð hefur oft kveðið af
meiri íþrótt, en sjaldan af öðr-
um elns innileik:
Stjörnurnar. sem við sjáum
sindra um himininn,
eru gleðitár guðs, sem hann
felldi,
er hann frét í fyrsta sinn.
— Honum fannst ekkert af
öllu
yndi sér veita né ró
og allt vera hégómi og
heimska
á himni, jörð og sjó. —
Svo var það á niðdimmri
nóttu,
að niðri á jörð hann sá,
hvar fagnandi hin fyrsta
móðir
frumburð sinn horfði á.
Skáldkonungurinn Davíð Stefánsson sexiugur
S á 11 ii «
en undirs
DAVIÐ STEFAN8SON
Og þá fór guð að gráta
af gleði; nú fann hann það
við ást hinnar ungu móður,
að allt var fullkomnað.
En gleðitár guðs. sem hann
felldi,
er grét hann í fyrsta sinn,
eru stjörnurnar, sem við
sjáum
sindra um himininn.
,.Kvæði“ geyma listræn stór
virki, enda hefur skáldinu vax
Ið ásmegin þroskans og kunn-
áttunnar. Davíð hafði lagt leið
sína suður í heim og fundið til
skyldleikans við friðlausa fugl
inn, leiksopp grimmra örlaga,
sem býður samt öliu byrginn,
en skáldið játar í undrun upp-
lifunarinnar sitt tvíþætta eðli:
Tilkynning
um aímennt tryggingasjóðsgjald o. fl.
Hluti af álmennu tryggingasjóðsgjaldi fyrir
árið 1955 fellur í gjalddaga nú í janúar, svo sem
hér segir:
Karlar, kvæntir og ókvæntir, greiði nú kr. 350,00
Konur, ógiftar greiði nú kr. 250,00
Vanræksla eða dráttur á greiðslu trygginga-
sjóðsgjalds getur varðað missi bótaréttinda.
Skrifstofan veitir einnig móttöku fyrirfram-
greiðslum upp í önnur gjöld ársins 1955.
Reykjavík, 18. jan. 1955.
Tollstj óraskr if stof an,
Arnarhvoli.
Ég er friðlausi íuglinn,
sem finnur sinn viilta þrótt.
í hjartanu hálfu er dagur,
en hálfu kolsvört nótt.
Og stærsta listaverkið, sem
hann smíðar í siglingunni og
suðurgöngunni, er kvæðið um
konuna með sjalið, svipmynd-
in. sem greyp'.st í minni og
vikur þaðan ekki. þó að vindar
örlagaveðra blási og bárur ver
aldarhafsins rísi;
Hún kom eins og draumur,
konan með sjalið,
og hlustaði í kvrrð.nni
á kvöldbylgjuhjalio.
Hún brosli með sjr.lið
um brjóstin vafið . . .
En ég var blærinn,
sem barst um hat'ið.
Ég var blærinn.
sem bærðl sjalið.
og veit, hvað bak við það
brennur falið.
Ég var blærinn,
sem barst yfir eyna
og faðmaði að mér
Feneyjameyna.
Og nú er hún horfin . . .
En nóttin er fögur
og segir hjartanu
helgisögur.
Cg enn syngur blærinn
og bylgjuhjalið
um hvítasta brjóstið
og svartasta sjalið.
Ég sigli í haust •— er ekki
voldugasta kvæðið i ,.Kveðj-
um“, en þar lýsir Davíð Stef
ánsson einföldum orðum sjálf
um sér sem manni og skáldi,
játar hið tvískipta eðli sitt,
sem gleði hans og sársauki á
rætur sinar í, og lesandinn
þekkir hann eins og samferða
mann, sem hefur opriað hjarta
silt af þrá og þörf til að vera
skilinn:
b
Sumarið líður. Sumarið líður.
Það kólnar og kemur haust.
Bylgjurnar byrja að ólga
og brotna við naust.
Af liminu fýkur laufið.
Börnin breyta um svip.
Fuglarnir kveðja. í íestar toga
hin friðlausu skip . . .
Ég lýt hinum mikla mætti.
Það leiðir mig húlin hönd,
og hafið. — og hafið kallar.
— Það halda mér engin
bönd.
Ég er fuglinn, sem flýgur,
skinið. sem bvlgjan ber.
Kvæ’ði mín eru kveðjur.
Ég kem, og ég fer.
I „Nýjum kvæðum'‘ eru ljóð
tré með þungum greinum og
litfögru laufi eins og Hallfreð-
ur vandræðaskáld, Hrærekur
konungur í Kálfski.nni og Með
an Rómaborg brann, lék Neró
á sílar og söng. en þau skyggja
ekki á þrjú urraðsleg smáblóm,
sem anga í tilhugsuninni og
snretta í endurminningunni.
Olíuviðurinn er ógleymanleg
dæmisaga í bundnu máli:
En fuglar himins flugu
með fræin, sem limið ól.
Hvar sem hann vex, þessi
viður,
og veitlr hryggum skjól,
er Getsemanegarður,
sem grætur á móti sól.
skilnaði kemur lesandan
andlegu jafnvægi án
hann verði átakanna
Ég kem til að flytja þér kærar
þakkir
og kveðja þig, vinur og bróðir.
Skip mitt bíður .. . Það
skyggir að kvöldi
og skeflir í fornar slóðir.
veizt, að ég get ekki verið
hér lengur
og verð að sigla og fara.
Ef einhver spyr, hví ég lagði
frá landi,
þá láttu þögnina svara.
Skilaðu kærri kveðju t:l allra,
sem köstuðu að mér steinum,
en nefndu það ekki, að ég vildi
þeim ve1
og vildi ekki bregðast neinurn.
Sjáirðu unga, svarthærða konvt
með svein yfir mioju enni,
þá minnztu þess, að ég vildi
ekki vera
í veginum fyrir hanni.
Og finnírðu, að hennar milda
mál
sé minningaljóma vafið,
berðú þá til hennar beztu
kveðju
og bentu henni út á hafið.
Svo kveð ég þig, vinur. Þú
veizt, hvað það er.
sem varð mér til hugarsorgar.
Segðu, að ég ætli til Egypta-
lands
eða austur til Jórsaiaborgar.
Og Örlög er barnsleg en heit
og sönn játning Davíðs Slef-
ánssonar:
Mig dreymir um dýrlegt sumar
í dimmasta norðanbyl.
Þó sál mín syngi af gleði,
er sorgin mitt undirspil.
í seinni ljóðabókum skálds-
ins, ,.í byggðum“, ,,Að norðan1'
(Frh. á 7. síðu.) ;