Vísir - 28.10.1913, Blaðsíða 1
781
21
Ostar
beslir ug ódýrasiir
í verslun
Einars Árnasonar.
*,
ÍS
18
aSS5«K@EWKS:KKB:R»Kí9!SKR9KSKaíJ55K»S5«!g \
i
"ND\s\t
í««KK!
Stimpla o g
Innslgllsmerki
étvegar afgr.
Vísls.
Sýnishorn
llggja framml.
Kemur út alla daga. — Sími 400. I 25 hlöð(frá 10. okt.) kosta á afgr. 50 aura.
Afgr.í Hafnarstr. 20. kl. llárd. til 8 síöd. Send út um land 00 au, — Einst, blöð 3 au.
Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (ur 'i),
opin kl. 12-3. Sími 40Ó.
Langbesti augl.staður i bænum. Augt,
sje skilað fyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu.
Þrlðjud. 28. okt. 1913.
Hjá Einari Jónssyni.
Eftir Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
---- Frh.
Árstíðirnar.
1. Árstíðirnar (The Seasons),
heitir eitt þeirra. Er það jarðár-
hnötturinn stendur hjá honum
kona og heldur honum mill handa
sinna, sinni hendi hvorum megin;
fyrir aftan hana er önnur kona
talsvert stærri, heldur hún hinni í
fangi sjer og nær með höndunum
enn þá lengra yfir á hnöttinn hvoru
megin; fyrir aftan hana er sú
þriðja enn þá stærri og seilist utan-
um báðar hinar og heldur hnettin-
um þannig; þá er sú fjórða og síð-
asta að baki þeirrar þriðju og er
hún stærst þeirra allra, hún heldur
hnestinum milli handa sinna að
hún hefur allar hinar í fangi sjer.
Sú fyrsta er fögur og blómleg eins
og stúlka milli æsku og þroska;
svipurinn sýnir fjör og barnslega
ánægju. Hún táknar vorið. Önnur
myndin er fullvaxin kona, hún lýs-
ir alvörublandinni ánægju; það er
sumarið. Sú þriöja hefur sama al-
vörusvipinu, sem nú er blandinn
kvíða og þreytu; þaö er haustið.
Fjórðu myndinni er best lýst með
því að bera hana saman við sumar
fátækar örvasa konur, sem maður
sjer stundum á götum stócborg-
anna á köldum vetrardegi; sú sjón
gengur öllum mönnum til hjarta,
sem tilfinning hafa; hún táknar vet-
urinti.
Þaö er mikið í þessari mynd,
þegar ljós íhugunarinnar fær að
skína á hana. Jeg býst við að ein-
hverjum detti í hug, hversvegna
maöurinn hafi ekki látið árstiðirnar
koma í annari röð. Hversvegna Ijet
hann ekki veturinn koma fyrst og
myndina enda með vorinu? Þetta
á að tákna árstíðir lífsins ekki síður
en hinar verulegu árstíðir og mörg-
um fellur það betur að láta »sög-
una enda veU, eins og sagt er;
hvers vegna gerði hann það ekki?
Svarið er auðsætt, hann var of mik-
ill listamaður til þess; hann var of
mikið skáld til þess, hann var of
sannur of trúr og of sjálfstæður til
þess. í fyrsta lagi er það jafn óskáld-
legt og jafn óeðlilegt að láta það
enda með vorinu, byrjun lífsins; eins
og það er óeðlilegt að hvílast fyrstu
Stund dagsms eða fyrsta dag vik-
Unnar (þó það sje gert). í öðru lagi
er það veturinn, ellin og loks dauð-
inn, sem endar æfi hvers manns,
en vorið byrjar hana. Árstíðirnar
^ru því í rjettri röð, sjeu þær að-
eins teknar í sinni eiginlegu merk-
>ngu og þær eru einnig í rjettri röð,
sjeu þær látnar tákna mismunandi
tírnabil mannsæfinnar. Ea svo er
Það vel mögulegt að skáldið hafi
haft annað huga meðfram — og
Regnkápur, Glanskápur
allar stærðir kr. 5,25 til kr. 11,50. Olíuföt, Stakkar enskir. Slitfötin þekktu. Yfir höfuð öll
hlífðarföt við útivinnu. Nýkoinið í Austurstrœti 1.
Asg- G- Gunnlauss8Q» & Co-_________________________________
mammmummmmmmammmmumwmmwmmmmmmmmmmmmmmwmmmtmmmmmmmmmm^^mwmmmtm
Karlmanna- og unglinga-föt, 300 sett,
nýkomin f Austurstræti 1.
Ágætir litir — gott snið — afsláttur gefinn um tíma.
Ásg. Q. Gunnlaugsson & Ca___________________________________
EJALLARADEILDIN
hefur fengið mikið af óáfengu öli
svo sem:
Reform Maltextrakt
Central do.
Export Dobbeltöl
Krone pilsner
Krone Lageröl
Hafnia do.
Mörk Carlsberg
Lys do.
Carlsberg Porter
H. Th. A. Thomsen.
Hafnarstræti 20. Talsími 2.
Þið gefið konunni ekki kærkomnari gjöf en Taurullur
á kr. 21.50 eða Tauvindur á kr. 12,50 til 17 kr., er fást í
Austurstræti 1.
Asg- G- Gunnlaugsson & Co.
ef til vill hvað helst —; það er
mannlífið í heild sinni. Einar er
fremur þunglyndur maður, og stór
sál í baráttu við erfiðleika með
glöggu auga fyrir kjörum meö-
bræðra sinna; sjer oft skuggahliðar
tilverunnar og dregur þær fram.
Hvað er eðlilegra? Hver veit um
allar þær þungu öldur sem rísa og
falla í huga listamannsins, þegar
höndin gerir það sýnilegt sem hugs-
unin skapar? Hver veit um allt það
sem gerst hefur í huga skáldsins
þegar hann orti þessa mynd?
Frh.
Boröið aðeins Suchards
súkkulaði. Án efa besta át-
súkkulaðið. Fæst alstaöar.
Massage læknir
Guðm. Pjefursson.
Heima kl. 6—7 e. m.
Spítalastíg 9. (niðri).
Sími 394.
fc RADDIR ALMEHHmj
Hárlækningar.
Einhver mesta prýði líkamans
er mikið og fagurt hár. Það er
kórónan á kvenlegri fegurð og
stórmikill fegurðarauki hverjum
karimanni, þótt þar gegni nokkuð
öðru máli.
En það má með sanni segja
um hárið, að »enginn veit hvað
átt hefur fyr en misst hefur.
Margir eru svo ótrúlega skeyt-
ingarlausir um hár sitt og mis-
þyrma því á margan hátt. Ymist
með heitum járnum og öðrum
slíkum ófögnuði, eða þá blátt
áfam með hirðuleysi á að halda
því hreinu og rækta það.
Fagurt hár er einhver besti
vottur um hreysti og heilbrigði
eins og líka sjúkt og rotnandi
hár er venjulega ljótasti vottur
um veiklun. En hárið lifir sínu
lífi og getur sýkst og dáið út
af fyrir sig af sjerstökum hár-
sjúkdómum. Stundum eru þeir
hársjúkdómar ólæknandi, en oft-
ast má að gera, ef ráð er í tíma
tekið og alirar varúðar gætt, því
slíkir sjúkdómar eru oft þrálátir
og mjög næmir.
Til eru kynstrin öll af hár-
meðuium, sem seld eru í búð-
um. Þó að mörg af þeim sjeu
að líkindum meira og minna
gagnleg, munu þau æði mörg
vera meira og minna skaðleg,
eins og þau eru venjulega not-
uð af handahófi eða í hugsunar-
leysi. Hoilast fyrir hárið er hrein-
Iæti og skynsamleg meðferð að
öðru leyti.
Nú er komin hingað frá út-
löndum frú Karólína Þorkelsson,
sem um mörg undanfarin ár hefur
stundað hárlækningar á hárlækn-
ingastofnun (Klinik) í Kaup-
mannahöfn, og hefur síðan stund-
að þær hjer af mikilli alúð og
yfirlætisleysi, og við besta orðstír
þeirra, sem reynt hafa. Hún hef-
ur gert sjer ailt far um að læra
starf sitt sem allra best, og nú
í sumar lagt mikið í kostnað til
að kynnast því enn betur. Hún
hefur mjög mörgum hjálpað,
sem til hennar hafa leitað við
liár- og höfuð sjúkdómum, og
það jafnvel þeim, sem lærðir lækn-
ar voru gengir frá. — Enginn
skyldi halda að aðferð hennar
væru kreddur eða grasasuða.
Húii læknar því nær eingöngu
með hreinlætisböðum, rafmagni
og »massage« — ailt eftir nýustu
tísku, og ráðleggur annars nóg
loft og sólskin, til að styrkja
hárið og auka vöxt þess.
Sumum kann að þykja prýði
og metnaður að »skalia«, jafnvel
á ungum mönnum. En hver,
sem þykir meiri prýði að fögru
hári, og vill gera eittvað til að
halda því, ætti að líta inn til frú
Karólínu. Hún býr á Bókhlöðu-
stfg 9. S.
———g———WBi«aa
Gunnlaugur Glaessen
læknir
Bókhlöðustíg 10.
Heima kl. 1—2. Sfmi 77.
B939SM