Vísir - 15.10.1915, Blaðsíða 3

Vísir - 15.10.1915, Blaðsíða 3
V ISiH ShefofoVS t\u$|ew$a s\hon og feampaww. S'^' \$ö Með næstu skipum á eg von á stórri sendingu af prima dönsku rúgmjöli sem verður ódýrara en áður hefir þekst. Menn ættu að bíða með að birgja sig upp þangað til þeir hafa talað við mig. Ennfremur hefi eg fengið miklar birgðir af kandís og melís sem selst með sama verði og áður, þrátt fyrir stöðuga verðhækkun í útlöndum. Virðingarfylst. Jón frá Vaðnesi. Talsími 3531 Talsími 353 Steinolía! Steinolía! Festið e k k i kaup á steinolíu án þess að hafa kynt ykkur tilboð mín. — Kaupið steinolíu að eins eftir vikt, því einungis á þann hátt fáið þið það sem ykkur ber fyrir peninga ykkar. Eg sel steinolíu hvort heldur óskað er frá þeim stað sem olían er geymd á (»ab Lager«) eða flutta heim að kostnaðarlausu fyrir kaupanda. A t h 11 ö1 í * Tómar steinolíutunnur undan olíu sem 11 S * w ’ keypt er hjá mér, kaupi eg aftur með MiMMBIMgBEinil8WH11!■ iWII'H■ rnjðg háll vcrði I pr. pr. vessl, »VON«, Laugavegi 55 Hallgr. Tómasson. Talsími 353! Talsími 3531 Sendið auglýsingar tímanlega. Eg undirritaður kaupi tómar steinolíutunnur hæsta verði eins og hinir. Jón Jónsson úeykir, Laugavegi 1. Alfatnaður seldur afar ódýrt. Sturla fónsson fást hjá Jes Zimsen, Bogi Brynjólfsson yfirrjettarmálaflutningsmaður. Skrifstofa Aðalstræti 6 (uppi.) Skrifstofu tími frá kI.12-1 og 4-6 e. h. Talsfml 250. Prentsm. Gunnasrs Sigurðssonar. *}Cau^\Í öt \xí Qlg«ti*u\w\ &$\tt S&aUa^úmssow. Stmv 39 fc. LJrskurður hjartans Eftir Charles Garvice. Frh. Veronika beygði höfuðið á Sally niður og hvíslaöi kveðjuorðum í eyra henni. »Mér fellur þungt að yfirgefa þig, SaIIy«, sagði hún lágt, »en eg ætla að fara til annars, er þykir enn vænna um mig en jafn- vel þér.« Þessi hugsun gaf herini byr und- ir báða vængi. Hún gekk út úr hesthúsinu, fór hratt yfir skemti- garðinn og hé!t til stöðvarinnar. Hún vissi, að snemma þessa morg- uns átti lestin að fara tii markað- aðarins. Er hún kom þangað, voru þar fyrir allmargir bændur og bændakonur, meö körfur á hand- leggjunum. Þær virtust ekkert hissa á að sjá Veroniku svona snemma á ferli, Veronika kinkaði til þeirra kolli 0g gaf sig jafnvel á tal viö sumar þeirra, eins og alt væri með feldu. Án þess að sjá nokkuð í skild- inginn tók hún einn besta klefann og var auðvitað ein um hann. Henni varð það ekki ljóst fyr en hún hafði yfirgefið iestina, að hún haföi séð á bak allsnægtunum fyrir fult og fast, og að hún var að nýju neydd til að hafa ofan af fyrir sér sjálf. En, þvi var ekki þannig farið. Var hún ekki lögð af stað til þess að finna Ralph og hjálpa bon- um í baráttu tífsins? Það var öðru málí að gegna fyrst svo varl Hún hló lágt og roðnaöi um leið og hún hugsaði til þess hvernig hann myndi útlits er hann sæi hana, hvað hann myndi segja, er hún fyndi hann og legði hönd sína í hönd hans og segði: »Eg kom á eftir yður, Ralph, af því að eg fann svo vel, að eg gat ekki lifað án yðar. Nú er eg hjá yður og sleppið mér ekki.« Talbot fór á fætur með morg- unsárinu. Hanti hafði legið and- vaka og starað á vegginn. Það var eins og viðburðurinn í skóginum væri þar uppmálaður. Ásjóna myrta mannsins gægðist til hans frá veggn- Uítt. Endurómur dauöahryglunnar btrst að eyrum honum úr hverju horni herbergisins. Hottum var næst skapi að fara ei kert á kreik úr herberginu, forð- así alla. En hann vissi, að ef hann hagaöi sér á einhvern hátt öðruvísi en venjulega, gæti það vakið eftir- tekt cg grunsemi, og því reynst hættulegt fyrir hann. Hanu hringdi því á Qibbon. Gibbon kom inn, hljóður og undirgefinn eins og hann átti að sér. Honum varð allra snöggvast litið á föla andlitið á húsbónda sínum. »Baðið er til, herra.« Þannig var hið fastskorðaða orðatiltæki hans við slík tækifæri. En hann bar það fram hljómminna en venjulega. »Þakka«, mælti Talbot. Hann hc rfði í kringum sig er Gibbon fór að lagfæra frá kvöldinu áður. »Eg er smeykur við, að þér finnið fötin mín fremur illa á sig komin. Eg lenti í ófæru í skóginum í gær- kvöld og datt. Þér megið eiga þau, en náið í önnur handa mér.« Þegar Gibbon rendi augunum eftir moldugu fötunum, brá fyrir ánægjuglampa í þeim. »Þakka yður, herra«, mælti hann þakklátlega. »Á eg að fara til borg- arinnar, nú í dag?« »Hvað? Nei, eg man«, svaraði Talbot. »Það er ef tif vill betra, að þér farið hvergi. Skeð getur, aö eg leggi sjálfur af stað til borg- arinnar einhvern tíma í dag og þurfi þá á yður að halda.« »Já, herra«, svaraði Gibbon með djúpri lotningu. Hann hélt svo á fötunum út og lét þau óburstuð og að öllu leyti óhreyfð á kistubotn sinn. Talbot fór niður til að snæða morgunverð. Veronika var þar ekki fyrir. »Er ungfrú Verónika ekki komin á fætur?« spurði hann. »Nei, herra«, svaraði kjallara- meistarinn, »ekki enn. Hún vill ef til vill borða í herbergi sínu. Eg ætla að senda til að spyrja eftir því.«

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.