Vísir - 22.06.1932, Blaðsíða 3

Vísir - 22.06.1932, Blaðsíða 3
VISIR MaBnhorg-harmonium •og ýmsar aðrar tegundir orgel- harmonium, hæði ný liljóðfæri og notuð, hefi eg til sölu. Verð frá kr. 285.00. Greiðslukjör eft- ir samkomulagi. Elías Bjarnason, Sólvöllum 5. verksmiðjan Frón sýnir hinar fjölbreyttu framleiðslutegundir sínar í leikfimissalnum. Þykir eigi ástæða til að fjölyrða um hana, þar sem fyrir nokkrum dögum birlist itarleg frásögn í Vísi um starfrækslu þessarar verksmiðju. Aðeins skal þess getið, að framleiðsluvörunum er smekklega fyrir komið. Utan af landi. ísafirði, 21. júní. FB. 17. júni var liátiðlegur hald- inn'með ræðuhöldum, söng og knatt spymukappleik. Bæj arf ó- getinn setti samkomuna. Steinn Emilsson og Ingólfur Jónsson bæjarstjóri héldu ræður. 19. júni var einnig minst hér með ræðum. Karlakórinn söng og leiksýning var lialdin um kveldið. Grasspretta afbragðs góð hér um slóðir. Fyrsti nýræktarhlett- urinn á bæjarbúinu var sleginn 13. þ. m. í fyrri viku voru menn að greftri skamt frá Mýri á Snæ- fjallaströnd og komu niður á beinagrind af manni undir mó- hellu. Er þetta slcamt frá, þar sem ætlað er að Hávarðsstaðir hinir fornu liafi verið. Fyrir nokkrum dögum hvolfdi bát með 4 mönnum á leið frá Nesi i Grimnavík að Stað. —- Tvær unglingsstúlkur í Nesi setlu fram bát og tókst þeim að bjarg'a mönnunum, allþjök- uðum. Bóndinn í Nesi, Elías Hall- dórsson hefir að sögn bjargað alls fimtán mönnum frá drukn- un. — Bæjarfréttir 1 IðOO 0>OCÍ! Jarðarför Jóns Hallgrímssonar, gjaldkera bæjarsímans, fór fram í gær að viðstöddu fjölmenni. Vcðrið í morgun. Hiti í Reykjavík io stig, ísafirði II, Akureyri n, Seyðisfirði 17, Vestmannaeyjum 10, Stykkishólmi 11, Blönduósi 10, Hólum í Horna- firði ii, Grindavík 11, Færeyjum 9, Julianehaab 6, Jati Mayen 5, Angmagsalik 5, Hjaltlandi 9, Tyne- mouth 10 stig. Skeyti vantar frá Raufarhöfn og Kaupmannahöfn. Mestur hiti hér í gær 14 stig, minstur 7 stig. Úrkoma 3.2 mm. Sólskin 6.3 stundir. — Yfirlit: Lægð fyrir nor'ðvestan land á hreyfingu norðaustur eftir. Hæð fyrir sunnan land og austan. — Horfur: Suðvesturland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir Og Norð- urland: Suðvestan kaldi, skúrir. Norðáusturland, Austfirðir: Suð- vestan gola. Víðast úrkomulaust og bjart veður. Suðausturland: Suð- -vestan kaldi; skúrir. Italska flugvélin var á sveimi yfir bænum og nágrenninu i gær góða stund. Flugvélin settíst á Skerjafjörð og hélt þar kyrru fyrir liðlega hálfa klukkustund. Voru flug- mennirnir að athuga lendinga- skilvrði þar. Stjóm Afmælisfélagsins óskar þess getið, að bama- heimilið Egilsstaðir í Hvera- gerðj í Ölfusi, taki til starfa upp úr næstu mánaðamótum. — Nánari upplýsingar, sem og eyðublöð undir dvalarbeiðnir, fást i Bókaverslun Ársæls Árnasonar í dag. Norður Kaldadal fór bifreiðin RE. 340 á sunnu- daginn var. Er það í fyrsta sinn, sem bifreið fer norður Kalda- dal á þessu sumri. Frá Allsherjarmólinu. Karl Sigurhansson, hinn ágæti þolhlaupari Jieirra Eyjamanna, vann J>að afrek í gær, Jirátt fyrir and- stætt veður og enga samkepni, að ryðja hinu 11 ára gamla meti Jóns Kaldal á 10 km. Hljóp Karl vegal. á 34 min. 6.1 sek., en gamla metið var 34 mín. 13.8 sek. — í kveld kl. 10 verða verðlaun afhent í K. R.-húsinu, og eru allir þátttakendur mótsins og starfsmenn boðnir þang- að. — Frekari fréttir af mótinu bíða þar til á morgun. Gengið í dag. Sterlingspund .. kr. 22.15 Dollar . . 6.16 100 ríkismörk . . 146.68 —■ frakkn. fr . . — 24.38 •— belgur . . — 85-59 — svissn. fr . . — 120.25 — lírur . . — 3I-63 •—• pesetar .. — 50.81 — gyllini . . — 249.20 — tékkóslóv. kr. .. .. — 18.39 — sænskar kr . . —- 114.02 — norskar kr . . — 109.42 —• danskar kr 120.97 Gullverð ísl. krónu er nú 60.58. Ms. Dronning Alexandrine er væntanleg að vestan og norð- an í kvöld kl. 10—11. E.s. Suðurland kom frá Borgarnesj í gær- kveldi. E.s. Goðafoss kom í nótt frá Keflavík og Akranesi. Fér héðan i kveld áleiðis til útlanda. E.s. Vestri kom í morg'un til Siglufjarð- ar. „Listviðir“. Júníblaðið ér nýlega komið út, fjölbreytt að efni með mörg- um myndum. Frú Ruth Hanson Anderson var meðal farþega á Brúar- fossi í fyrrakveld. Dansleikur í sambandi við allsherjarmót- ið verður haldinn í kveld kl. 10 í K. R. húsinu. Allir þátttakend- ur mótsins eru boðnir. Aðrir íþróttamenn geta fengið að- göngumiða í dag í verslun Har- alds Árnasonar, fyrir sig og gesti sína. Keppendur og starfs- menn mótsins eru beðnir að mæta stundvíslega kl. 10. Knattspymumót Islands Fyrsti kappleikur mótsins er í kveld kl. 8y2 milli K. R. og Vikings. Fimm félög keppa á mótinu, K. R. Valur, Fram, Vikingur og Knattspymufélag Akureyrar. 1 Þjópsárdal Tun guferðip og Skemtiferð (í drossium). Sunnudaginn 25. júní að fpá Bifpeiðastöð Kristins. Símar 847 og 1214. GRÝLU, KERI, LAUGARVATNI ÞINGVÖLLUM. Nýtt I Nýtt I heitir alveg ný gerð af garðslöngustút, sem er í senn krani, dreyfari og stútur. Afar handliægur og ódýr. ------- Fæst hjá Kaffi, mjólk m. kökum eða skyr og rjómi i Hveragerði. 2 réttir matar og kaffi á Laugarvatni og kaffi á Þingvöllum. Verð: 17 krónur, alt innifalið. Helga Magniíssyni & Co. Utvarpið í dag. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 16,00 Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir. 19,40 Tónleikar. (Útvarps- kvartettinn). 20,00 Klukkusláttur. Grainmófóntónleikai-: Ivarneval dýranna, eftir Saint-Saéns. Dúettar: Gluntarne. 20.30 Fréttir. Músik. Míðka-strákar. —o— Það er segin saga hvert sum- ar, hvenær sem dropi kemur úr lofti og rakt er í rót að kveldi, að þá er sægur af strákum kom-' inn í garða bæjarbúa svona um miðnættið, þegar búist er við að allir séu háttaðir og sofnaðir. Þetta eru maðkastrákarnir. Eru þeir herskáir í mesta lagi og slenst engin girðing þann stefnivarg. Varpa þeir sér yfir girðingarnar, en vaða því næst um garðana þvera og endi- langa og safna ánamöðkum í pjáturdósir. Mun maðkurinn vera verslunarvara þeirra og þyk i r auðvitað mikið undir því komið, að liandsama sem allra flesta. Sjaldan eða aldrei munu strákar þessir biðja um leyfi til þess, að tína maðka í görðum manna og mætti þó ekki minna vera en að þeir gerðu það. Eru þeir oft. ærið flóttalegir við þessa iðju sina, skima í allar áttir, en þó oftast i húsglugg- ana í kring, ef vera kynni, að einliver sæi til þeirra. Og sjái þeir fólk í gluggunum, taka þeir oftast til fótanna, stökkva á girðingarnar þar sem lientast þykir og bíða ekki boðanna. — Ber slikur flótti vitni um það, að piltum jiessum sé ljóst, að þeir eru að aðhafast það, sem þeir liafa ekki leyfi til. — Rétt er að geta þess, að sumir þess- ara maðkastráka fara vel að ráði sínu að því leyti, að þeir traðka ekki niður blóm eða annað, heldur þræða göturnar með varkárni og gæta þess, að stiga ekki á blóm eða i beð. Aðrir hirða ekkert um þetta, heldur vaða beint af aiigum, svo sem þeim þykir lientugast. Eru það slæmir gestir og ætti skilið að tekið væri duglega í lurginn á þeim. Virðist alveg nóg, að farið sé inn i garða hjá fólki í óleyfi, þó að engu sé spilt. — Eg vildi nú mælast til þess, að víkingar þessir bæði um leyfi garðeiganda, áður en þeir leggja út í maðkahemað- inn. Mundi slíkt leyfi auðfengið hjá mörgum. Gæti þá strákar Áptis hangikjöt frá Laxamýri. NÝJAR KARTÖFLUR á 60 aura kg. fæst í IHALI’S Sissons Brothers Máiningavðrnr eru þektar uin víða veröld og þá einkum fyrir gæði. Hall’s Distemper (vatns- farfi). Botnfarfi, á járn og stálskip. Lestamálning, 2 teg. Skipamálning. Húsamálning. Lökk allskonar. Zinkhvíta. Blýhvíta. Þurkefni. Terpentína. Kítti. Trélím. Fernisolía. Málningarpenslar. í heildsölu hjá Sr. 0. Skegfjörð Sími 647. lokið maðka-stríði sínu fyrir miðnætti, og þyrfti ekki, eins og nú, að fara liuldu liöfði eða hegða sér „eins og þjófar á nóttu". Garðeigandi. Hitt og þetta. Mikil flóð komu í Oklahoma, Banda- ríkjunum, i júníbyrjun. Nokkr- ir menn drukknuðu, en á anm að þúsund menn urðu að flýja að heiman. — Eignatjónið var mikið. Ferðaskrifstofa fslands. Sími 1991. BtMO£K OUT Áwi 4tnv hið óbrigðula skordýra- eitur — frá Helga Mapússyni & Co. BifreiSastjórar! Ein dós af „Pneumosan" og þér þurfið alls ekki að bæta smágöt, sem koma á slönguna. „Öpninn“. Laugaveg 8. Brúnn foli verður seldur á uppboði á morgun kl. 2 í Tungu við Laugaveg. Lögreglan. Nýkomið: 25x1 mtr. 2” möskvar ferkant, Varastykki í Narag-katla: Ristar, hristiristar o. s. frv. Nokkra rafmagnsmótora (0,7—5 ha.) seljimi við mjög ódýrt. k. Einarsson & Fnnk. Amatörap. Framköllun og kópiering best og ódýrust hjá okkur. — Kodak-filmur fyrir 8 mynda- tökur. Amatörverslunin Þorl. Þorleifsson. Austurstræti 6. Sími: 1683.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.