Vísir - 03.04.1936, Page 2
VlSIR
Viðræður
Eden’s
og von Ribbentrops í dag.
Frekari umræður þeirra milli fara fram í dag.
Eden vill fá að vita hvort Þjóðverjar eigi að
eins við herinn, þegar þeir lofuðu, að auka
ekki heraflann í Rínarbygðum — eða þykist
hafa óbundnar hendur að því er snertir naz-
istasveitirnar. Ennfremur ætlar hann að ræða
við von Ribbentrop um friðaröryggissáttmála
við nágranna Þjóðverja að austanverðu og
loks nýiendukröfur Þjóðverja.
Einokonar-græðgin.
Námsbóka-farganið og
tpiibodið rauða.
London 3. apríl.
Heimsblöðin ræða nu meira
en nokkuð annað um svör þau,
sem Hitler hefir gefið við Lund-
únatillögunum á dögunum, og
hefir tillögunum verið mæta vel
tekið í Bretlandi, en ríkisstjórn-
in telur nánari skýringa á þeim
þörf og mun Anthony Eden ut-
anríkismálaráðherra ræða til-
lögurnar með þetta markmið
fyrir augum, við von Ribben-
trop í dag, en að því búnu er
búist við, að von Ribbentrop
haldi heimleiðis og Eden gefi
þinginu skýrslu. í svörum sín-
um hafnaði þýska stjórnin
þeirri tillögu, að leggja frakk-
nesk rússneska sáttmálann und-
ir úrskurð gerðardómsins í
Haag og eins, auk þess, sem áð-
ur er talið, að lagðar væru
nokkrar byrðar á Þjóðverja, án
þess að aðrar þjóðir tæki á sig
hliðstæðar byrðar. Um þetta at-
riði og fleiri vill Eden fá frekari
skýringar og það er mikið undir
því komið hvernig þær verða,
hverja afstöðu breska stjórnin
tekur til málsins, en talið er
að hún vilji nota tillögurnar
sem samningsgrundvöll, í von
um, að af frekari samningaum-
leitunum leiði, að unt verði að
tryggja friðinn í álfunni. Það,
sem Anthony Eden mun leggja
sérstaka áherslu á, að fá vitn-
eskju um, er m. a. þetta:
1. Eru árásarliðssveitir naz-
ista o(g S. A. sveítirnar tald-
ar með því liði, sem Hitler hef-
ir lofað að auka ekki í Rínar-
bygðum meðan á frekari samn-
in,gaumleitunum stendur?
2. Eru Þjóðverjar fúsir til að
skrifa undir friðaröryggissátt-
mála við nágrannaríki sín bæði
að austan og vestanverðu í sam-
ræmi við sáttmála Þjóðabanda-
lagsins?
3) Vill þýska stjórnin láta
uppi hvenær hún muni bera
fram kröfur um jafnrétti í ný-
lendumálum, en breska stjórn-
in gerir ráð fyrir, að Þjóðverjar
muni bera slíkar kröfur fram
fyrr eða síðar. Mun Eden leitast
víð að fá svör við þeirri spurn-
STRÍBIB.
Berlín, 3. apríl. FÚ.
Eftir því, seni næst verður
komist, munu ítalir hafa mist
1200 manns i undanfarinni or-
ustu á norðurvigstöðvunum. Af
Abessiniumanna hálfu er sagt
að fallið hafi margt háttsettra
manna.
I dag kom ítalska krónprin-
sessan til Massawa í Eritreu, og
var henni veitt móttaka með
mikilli viðhöfn. Krónprinsess-
an ætlar að lijúkra særðum
hermönnum í Eritreu.
Sagt er að ítalskar hersveitir
séu nú komnar því nær fast að
Tanavatni. 1 tilefni af þessu
fullyrða ítölsk blöð, að réttur
Breta til að náða yfir valni
þessu verði ekki véfengdur.
ingu hvort þýska s^tjórnin hafi í
huga, að fara fram á, að fá ný
lendurnar, sem teknar voru af
Þjóðverjum upp úr heimsstyrj-
öldinni, aftur skilyrðislaust, eða
hvort þeir ætla að bera fram
kröfur um, að fá umráðarétt yf-
ir þeim.
Öll þau atriði, sem hér er um
að ræða,- eru afar mikilvæg.
Bretar vilja sýnilega fá áreið-
anlegar og vafalausar upplýs-
ingar um, hvort loforðið um að
auka ekki heraflann í Rínar-
bygðum, sé miðað við herinn
einan, eða hvort Hitler telur sig
hafa óbundnar hendur með naz-
istasveitirnar.
Þá er það mikilvægt, að fá
fulla vissu um það, hvort Þjóð-
verjar vilja tryggja friðinn við
austurlandamæri sín með samn-
ingagerðum, og þar með undir-
gangast að ásælast ekki þau
lönd, sem af þeim voru tekin
þar eystra upp úr heimsstyrj-
öldinni og fengin öðrum í hend-
ur.
I þriðja lagi eru nýlendukröf-
urnar og er svo að sjá, sem
Bretar vilji taka þau mál með í
reikninginn nú þegar, en ekki
eiga yfir höfði sér og samherj-
anna í heimsstyrjöldinni, að
nýjar kröfur þar gð lútandi
verði síðar bornar fram. (Unit-
ed Press —FB).
Frakkar telja. íillögur Þjóðverja
óaðgengilegar.
Berlín í morgun FÚ.
Frönsk Ijlöð eru yfirleitt
þeirrar skoðunar, að tillögur
Hitlers séu óaðgengilegar. Jour-
nal og Matin óttast, að tíinahil
hinna alhliða öryggissáttmála sé
nú á enda, en að við muni laka
Iveggja-ríkja sáttmálar, eins og
f}rrir stríð. Þó telur Journal enn
ekki öll sund lokuð.
Hollenskt blað hlynt
tillögunum.
Hollenska hlaðið Telegraph
ræðir um tillögur Hitlers, og
ráðleggur stjórnum Frakldands
og Englands eindregið að ganga
að þeim.
Loftskipið „Hindenburg“.
London 2. apríl FÚ.
Þýska loftskipið Hindenburg
liefir nú farið fram hjá Cap
Verde eyjum, og er nú úti \dir
opnu Atlantsliafi á leið sinni til
Rio de Janiero.
Dr. Eckener, skipstjóri á Graf
Zeppelin, er nú í ónáð hjá naz-
istum. Um daginn, er verið var
að vígja loftskipið Hindenburg,
hrópaði hann „Ileil Þýskaland“,
í stað „Heil Hitler“. Hefir Göbb-
els gefið út fyrirskipun um, að
nafn dr. Eckeners skuli ekki
nefnt í þýskum blöðum fyrst
um sinn, né myndir af honum
vera birtar.
Stjórnarflokkarnir keppa að
því marki, að leggja öll frjáls
viðskifti í rústir.
Þeir hafa tekið hverja vöru-
tegundina á fætur annari úr
frjálsum viðskiftum og einokað
í höndum ríkisvaldsins. — Ekk-
ert tækifæri er látið ónotað til
þess, að ganga æ lengra og
lengra á braut einokunar og
ófrelsis. Á hverju þingi eru nýj-
ar og nýjar vörulegundir lu’ifs-
aðar úr höndum kaupsýslustétt-
arinnar og einokaðar.
Það er ekki verið að gera
þetta í þágu ríkissjóðs eða alls
almennings. Síður en svo. Allir
vila að einokaðar vörur eru að
jafnaði lakari en jiær, sem seld-
ar eru í frjálsum viðskiflum.
Og þær eru líka dýrari. Þetta er
alkunna og þarfnast ekki nán-
ari skýringa. Hafa og þrásinnis
verið leidd rök að því liér í
blaðinu.
t Einokunarfarganinu er beint
gegn kaupsýslustéttinni í lieild,
gegn einstökum mönnum og
fyrirtækjum og gegn bæjarfé-
lagi Reykjavíkur.
Rauðu foringjarnir vona, að
takast megi með j>essum hætti,
að leggja frjálsa verslun og við-
skifti algerlega í rústir, ná sér
niðri á einstökum mönnum og
fvrirtækjum og snúa í flag fjár-
hag höfuðstaðarins. —
Og nú þykjast þeir sjá fram
á, að jieir sé ekki all-langt frá
takmarkinu.
✓
En samt eru jieir ekki á-
nægðir. ,
Og eitt af j>vi, sem þeim finst
enn á skorta — frá pólitísku
stjórnarmiði — er j>að, að enn
sé börnin nokkurnveginn varin
fyrir „rauðum“ námsbókum. -—
Þeir vita sem er, að „lengi
býr að fyrstu gerð“. —
Og svo var undið að j>vi, að
slofna til einokunar á náms-
bókum. Börnin áttu elcki leng-
ur að fara á mis við hið rauða
fagnaðar-erindi, j>egar á fyrstu
árum skóíágöngunnar.
Rauðir menn klömbruðu
sainan frumvarpi um „ríkisút-
gáfu námsbóka“.
, Frumvarp ]>etta dagaði uppi
á síðasta þingi. En nú er }>að
komið fyrir ]>ingið af nýju,
frámunalega bjánalegt, eins og
]>að var í upphafi.
Þar er sagt i 2. gr., að „ríkið
gefi út allar námsbækur, sem
nauðsynlegar eru til barna-
fræðslunnar í landinu“.
Ritstjórn námsbóka-útgáf-
unnar ber að velja j>annig (3.
gr. frv.) að litlar líkur virðast
til }>ess, eins og nú horfir, að til
j>eirra starfa verði hæfir menn
kjörnir. — En bitlinga fá þarna
þrír menn, 10 kr. á dag hver um
sig, fyrir hvern fund er þeir
sitja. Og fundirnir geta væntan-
lega orðið nokkuð margir.
Hin vísa „ritstjórn“ á að
leggja á ráðin, en „forstöðu-
maður ríkisprentsmiðjunnar
annast framkvæmdir starfa
fyrir ritstjórnina“, segir í 4. gr.
En j>ess er ekki getið, hvort
lionum sé ætlað að gera j>að
kauplaust eða gegn sérstakri
þóknun. — t
Núverandi forstjóri rikis-
prentsmiðjunnar er talinn soca-
listi eða kommúnisti. — Ætli
það geti ekki hugsast, að þarna
verði búinn til ofurlitill auka-
biti lianda svo góðu barni. —
Það yrði þá fjórði bitlingur-
inn.
Og svo kemur auðvitað
gríðarleg hersing eða halarófa
rauðra manna, sem fengnir
verða til þess, að semja náins-
bækurnar. Það verður víst fé-
legur liópur!
Sumir munu j>egar teknir að
æfa sig lítilshátlar. Hafa jafnvel
verið gefin út sýnishorn af lær-
dómi og snild þvílíkra pilta.
I 10. grein frv. er gert ráð
fyrir því, að ríkisprentsmiðjan
„gefi út eða útvegi og útbýti til
skólaskyldra barna á sama hátt
sem námsbókum þeim, sem út
eru gefnar samkvæmt j>essum
lögum, öðrum skólanauðsynj-
um, svo sem forskriftarbókum,
stilabókum, teiknibókum,
vinnubókum, pappír og rit-
föngum“. — Þessum ákvæðum
er beint gegn fyrirtækjum þeim
sem versla nú með j>vílik.ar
vörur.
Og í 11. gr. eru ákvæði um
j>að, að ríkisprentsmiðjan megi,
ef svo ber undir, „gefa út náftis-
bækur í lestri fyrir byrjendur
og aðrar bækur til smábarna-
kenslu til undirbúnings hinni
opinberu barnafræðslu“.
Samkvæmt þessu mun j>á
jiykja vissara, að börnin geti ált
kost hinnar „réttu fræðslu“ áð-
ur en j>au hafa náð skólaskyldu-
aldri.
„Ekki er ráð nema í tíma sé
tekið“.
Og loks er svo í 12. gr. frv.
klykt út með j>vi, að ríkisprent-
smiðjan geli að boði ráðherra
gefið „út fleiri eða færri náms-
bækur og aðrar skólanauðsynj-
ar fyrir nemendur annara al-
mennra skóla en barnaskóla, og
útbýta l>eim á sama hátt sem
námsbókum harnafræðslunnar"
o. s. frv.
Hefir I>ersýnilega j>ólt var-
hugavert, að slep]>a börnuiium
með öllu undan oki liins rauða
fagnaðarerindis, er þau Iiefði
lokið barnaskólanámi. — Og
því er það, að þau eiga, bæði
áður en j>au fara í barnaskólana
og í framhaldsskólum eða lýð-
skólum, að geta átt j>ess kost,
að festa sér í minni visku hinna
rauðu námsbóka.
í 9. gr. frv. er lagt bann við
j>ví og hcirð refsing, að náms-
bækur þessar gangi kaupum
og sölum, án náðarsamlegs leyf-
is ráðherra. — Þar segir svo:
„Námsbækur j>ær, sem út eru
gefnar samkvæmt j>essum lög-
um, mega ekki án heimildar
ráðherra, ganga lcaúpum og scil-
um, að viðlögðum sektum, 10 —
100 krónum“.
Þella er furðulegt ákvæði og
ber ofríkis-lundinni og ómensk-
unni örugt vitni.
Komi það t. d. fyrir, að
barnamaður í fjarlægri sveit
selji granna sínum þessar „for-
kostulegu“ bækur, án þess að
hafa aflað sér leyfis til sölunn-
ar hjá ráðherra, með kostnaði
og fyrirhöfn, þá fellur á hann
alt að 100 króna sekt fyrir slíkt
tiltæki! —
Það virðist ekki liggja alveg í
augum uppi, að heilbrigð skyn-
semi standi að j>vílíkri laga-
smíð!
Frá Alþingl
í gær.
Efri deild.
1. Frv. til 1. urn viðauka við
I. um forgangsrétt kandidata
frá Háskóla íslands til embætta.
1. umr.
Samsöngur í Gamla Bíó
miðvikudaginn 1. apríl síðastl.
Ivarlakór K. F. U. M. er 20
ára. Þessi samsöngur var stutt
minning hins glæsilega kórs,
sem tvímælalaust hefir á að
skipa besta raddvali allra ís-
lenskra karlakóra. Jón Hall-
dórsson, skrifstofustjóri Lands-
bankans, hefir verið söngstjóri
kórsins frá byrjun. Hann liefir
gefið honum þann svip, sem
allir jiekkja. Hann er hinn eigin-
legi skapari kórsins. Sumir
segja að Jón Halldórsson sé of
„konservativ“ í vali laganna. Eg
lít ekki jiannig á málið.
Hann lætur ekki syngja önnur
lög en j>au, sem eru kjarngóð og
með j>ví menningabragði, sem
söngmentaðir menn liljóta að
viðurkenna. Yfirleitt eru nor-
ræn lög aðalkaflinn lijá honum.
Það var hátiðarsvipur á j>ess-
um samsöng. Húsið troðfult af
úrvalsfólki. Kórinn skapaði
stemninguna með hárfínum
„rytma“ og fögrum söng. Eg
vil taka j>að fram, að „rytminn"
eða hljóðfallið er einhver sterk-
asta lilið söngstjórans. „Olne
Rythme keine Musik“, segja
Þjóðverjar. Þ. e. án hljóðfalls
er engin músik til. En eg vil
táta geta j>ess liér, að hljóð-
Málinu var vísað til 2. umr.
og mentamálanefndar.
2. Frv. til 1. um landssmiðju.
Frli. 2. umr.
Umræðunni var haldið á-
fram, en ekki lokið. Málinu var
frestað og tekið út af dagskrá.
Neðri deild.
Á dagskrá voru 8 mál en ekk-
ert var afgreitt.
1. Frv. til 1. um ríkisútgáfu
námsbóka. 1. umr.
Mál j>etta er búið að ganga
í gegnum efri deild, en j>egar
vísa átti j>ví til 2. umræðu
fékkst ekki næg j>átttaka í at-
kvæðagreiðslunni til j>ess, svo
j>ví var frestað.
2. Frv. til 1. um afnám 1. nr.
30 um heimild lianda ríkis-
stjórninni til einlcasölu á bif-
reiðum, rafvélum, rafmagnsá-
liöldum o. fl.
Flm. Gísli Sveinsson, Ól. Th.,
Jakob Möller, P. Ilalldórsson,
Guðbr. ísberg, Sig. Krisljánss.,
Garðar Þorsteinsson.
Greinargerð fyrir frv. er svo-
hljóðandi:
Einkásölulög j>au, sem liér
um ræðir, voru knúin fram á
Aljiingi jrvert ofan í rölcstúdd
mótmæli j>eirra, er j>ekkingu
liöfðu á málinu.
Framkvæmd laganna hefir
verið með þeim ódæmum, sem
lýst var á síðasta l>ingi, en j>ar
sem bót hefir enn ekki fengist
á_ j>essu, og lögin vafalaust
verka áfram til skaðsemdar,
þykir rétt og tímabært að leggja
til, að þau verði numin úr gildi
jiegar í stað.
Gísli Sveinsson hafði fram-
sögu og rakli all rækilega fram-
Ivvæmdir og störf einkasölunn-
ar í langri, rökfastri og snjallri
ræðu.
Eysteinn fjármálaráðherra
var að reyna að lialda uppi
vörnum bæði fyrir sig og einka-
söluna, en vitanlega fékk hann
engum vörnum við komið. Kl.
4 var umr. frestað og málið, á-
samt öllum öðruin málum, var
tekið úl af dagskrá.
Ný þingmál.
Frumvarp til laga um land-
aura og verðlagsskrár.
Flm. Jón Pálmason, Jón Sig-
urðsson, Jóhann Jósefsson.
fallið er veika hlið okkar ís-
lendinga. Við hlustum meira á
hljómana.
Eg misti af tveimur fyrstu
lögunum, en svo heyrði eg
„Varluft“ eftir Emil Sjögren,.
merkasta tónskáld Svía, í snild-
armeðferð og með ágætri bary-
tonsóló herra Einars B. Sigurðs-
sonar. Eins og hressandi blær
norðan úr höfum var „Háseta-
söngur“ úr „Der fliegende
Hollánder“ eftir Wagner. Lagift
var prýðilega sungið. Það var
með undirleik frk. Önnu Pjet-
urss, sem gerði því góð skil.
Dr. Guðmundur Finnbogason
prófessor tók til máls í hléinu
og talaði af sinni alkunnu snild
um j>að menningarslarf, sem
kórinn hefði unnið. Eins og
hans var von og vísa, j>á vitnaði
hann í j>að sem var næsl lændi,
eitt kvæði, sem var á söng-
skránni, um liina svörtu Mori-
ana, „j>að verður loksins vani
að vera Moriani”, en kórinn með
sínu menningarstarfi forða okk-
ur frá þessum vana. Morianar,
eða liinir svörtu Afrikanar,
grófu fiðluna í moldina og spil-
uðu á skóliornið.
Síðari kafli söngskráarinnar
var daufari. Hr. Óskar Norð-
mann og Garðar Þorsteinsson
sungu einsöngva í tveim lögum,
hinn fyrrnefndi „t álöguin“ eft-
ir Tli. Abt, en síðarnefftdi i
„Haustnótt“ eftir Friðrik
Bjarnason, og fengu báðir góð-
ar undirtektir.
Að lokum söng kórinn
„Sprettur“ eftir Sveinbj. Svein-
björnsson og fékk góðar við-
tökur. Þetla lag er eiginleg
„Galop“ og ekki merkilegt, en
textinn liefir gert j>að vinsælt
hjá allri alj>ýðu.
Kórinn varð að lokum að
syngja aukalag.
B. A.
Sólmypkviim
í júní n. k.
New York í mars.
Tvær merkar amerískar
stofnanir liafa ákveðið að senda
leiðangur vísindamanna til
Sovét-Rússlands i sumar, til
jiess að atliuga sólmyrkva þ. 19.
júni. Þessar stofnanir eru
Georgetown liáskólinn og Land-
fræðifélagið (National Geo-
graphic Society). Lciðangur
j>essi „fer hálfan hnöttinn
kring“ til j>ess að gera athugan-
ir j>ær 2y2 mínútu, sem sól-
myrkvinn stendur yfir. Leið-
togi leiðangursins verður dr.
Paul McNally, forstjóri Georgc-
town College Observatory, cn
alls verða leiðangursmennirnir
5, all menn, sem standa fram-
arlega í sínuin vísindagreinum,
valdir af háskólauum og Land-
fræðifélaginu. Höfuðstöð leið-
angursins verður nálægt Oren-
burg, að líkindum í þorpinu
Sara. (Orenburg er um 775
mílur enskar suðauslur frá
Moskva) á um það bil sama
breiddarstigi og London. —
Ríkisstjórnin í Sovét-Rússlandi
og einnig ríkisstjórnin í Japan
liafa boðið visindamönnum
annara j>jóða að koma í athug-
ana skyni iá þessum fyrsta al-
myrkva sólar siðan i febrúar
1934. Ennfremur liafa jæssar
ríkisstjórnir lofað vísindamönn-
unum margskonar stuðningi.
(Uniled Press. — FB.).
VÍSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.