Vísir - 12.11.1937, Blaðsíða 2

Vísir - 12.11.1937, Blaðsíða 2
VÍ»IR ~ ■mmmmmmmKBmmmammmmmmBammmmmmmmmm VÍSIR DAGBLAÐ. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstj.: Páll Steingrímsson Skrifstoftj . . i tn , } Austurstr. 12 og afgr. J S í m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Prentsmiðjan 4578 Verð 2 kr. á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan. Heimtur úr helju? IIVGBLAÐ Framsóknar- ^ flokksins lét þa'ð svona hálft í hvoru í veðri vaka, með- an á sameiningarbollalegging- um socialista og kommúnista stóð, að það mundi gela orðið nokkuð afdrifaríkt fyrir sljórn- arsamvinnu Framsóknarflokks- ins og Alþýðuflokksins, hvort sameiningin tækist eða ekki. Mun það hafa átt að skiljast svo, að Framsóknarflokkinn fýsti lítt að eiga nokkur skifti við Alþýðuflokkinn, eftir að hann liefði sameinast kommún- istaflokknum, svo mjög „væmdi hann við, vofu slika að gleypa“ sem Kommúnistaflokkurinn væri, sbr. það, sem forðum var kveðið. Það dylst þá heldur engum, að til þess muni ætlast, að menn láti sér einnig skilja það, að það liafi verið sem þungu fargi væri af Framsóknarflokknum létt, er upp úr þeim samningum slitnaði, líkast því sem hann liefði nú heimt Alþýðuflolckinn úr helju, og þá „hina farsælli menn“ hans, sem Tímadagblað- ið segir að sýnilegt sé, að hafi „reynst drýgri í viðskiftunum“. Og þykir nú blaðinu tími til kominn, „að Alþýðuflokkurinn fari að gefa skýr svör og skjót um afstöðu sína til þeirra mál- efna, sem nú bíða úrlausnar á Alþingi, og úr þvi munu skera, liversu háttað verður um stjórn landsins í næstu framtíð”. Það slcal á engan liált véfengt, að Framsóknarflokkurinn fagni mjög þessari lausn Alþýðu- flokksins úr álögum kommún- ismans. En þvi meir sem hann fagnar þeirri lausn hans, því meira virðist það hljóta að skifta fyrir hann, að með öllu sé ugglaust um það, að álögun- um sé að fullu af létt, eða að þau „taki sig ekki upp“. En því virðist fara all fjarri, að svo sé. Ef nokkuð niá marka orð og atliafnir Alþýðuflokksmanna, þá hafa þeir aldrei verið sólgn- ari í saineiningu en einmitt nú. Siðan Alþýðusambandsþinginu sleit, hafa þeir verið önnum kafnir við að láta félögin og flokksdeildir samþykkja liinar hjartnæmustu áskoranir til flokksþings kommúnista, um að ganga að sameiningartilboði þingsins. Og í annan stað bera fregnir þær, sem nú hafa verið birtar frá Alþýðusambandsþing- inu, en fyrst og fremst fundar- gerðir samninganefndanna, sem birtar hafa verið í blaði komm- únista, það með sér, að áhugi þingsins fyrir sameiningunni hafi verið ákaflega sterkur, jafnvel livað sem hún kostaði. Og þó að liinum „farsælli“ for- ingjum socialista tækist að þessu sinni að afstýra samein- ingunni, virðist liættan aldrei hafa verið meira yfirvofandi en nú. Og liver er í rauninni mun- urinn á þvi, hvort Alþýðuflokk- urinn sameinast Kommúnista- flokknum raunverulega þegar í stað eða hann keppir að þvi marki að sameinast lionum svo fljótt sem verða má. Eru nokkr- urar líkur til þess, að samvinn- an við flokkinn geti orðið „far- sælli“ að eins fyrir þá sök, að þvi er frestað um sinn, sem þó á fram að koma, og flokkur- inn telur sitt æðsta markmið. Og jafnvel þó að núverandi ráðamenn flokksins séu andvíg- ir sameiningunni, hve lengi get- ur þeim þá tekist að koma í veg fyrir hana og að lialda forust- unni, ef flokkurinn í heild er sameiningunni fylgjandi? En hversu „farsælir“ sem þeir kunna að hafa verið í viðskift- unum við kommúnistana á Al- þýðusambandsþinginu að þessu sinni, þá liefir forysta flokksins ekki orðið farsælli en svo í höndum þeirra, að svo virðist sem þeir séu alveg i þann veg- inn að missa tökin á honum. Og þó að Framsóknarflokkur- inn hafi heimt foringjana sjálfa úr helju, þá er óvíst að hve miklu leyti flokknum er borgið. En þó að ef til vill megi notast við foringjana flokkslausa í hili, þá er það varla til fram- búðar. Akureyri í morgun. Samningaumleitanir í vinnu- deilunni standa nú yfir, en hafa engan árangur borið enn sem komið er. — Sáttasemjari rík- isins, dr. Björn Þórðarson, hefir falið Þorsteini M. Jónssyni skólastjóra, að vera fulltrúi við sáttaumleitanirnar. Hefir hann lialdið nokkra fundi með full- trúum deiluaðila. Fundir halda áfram eftir há- degi í dag. NOBELSVERÐLAUN 1 EFNAFRÆÐI OG EÐLIS- FRÆÐI. London 12. nóv. FÚ. Nobelsverðlaunin fyrir eðl- isfræði hafa verið veitt þeim George Paget Thomson í London og Clinton Davison í New York, fyrir rannsóknir á sviði útvarpstruflana. — Thomson er sonur Sir Josepli J. Tliomson, sem hlaut No- belsverðlaunin í eðlisfræði árið 1906. Nobelsverðlaun í efnafræði hafa lilotið enslcur prófessor yið Birmingliamháskólann og svissneskur prófessor i Ziirich, fyrir rannsóknir sín- ar á C-fjörefninu. Fárviðri mikið gekk yfir Suður-Noreg í gær og suður- hluta Sviþjóðar og olli miklu tjóni, einkum á simalinum, hæði í Noregi og Sviþjóð. Járn- brautarlestum seinkaði um marga klukkutíma, en fjöldi skipa á leið til Noregs og Svi- þjóðar hefir seinkað um dægur eða meira. — NRP.-FB. Stórleld áætlim um sstiidaiin.g' vid Kínverja, vegna neitunar Japana að taka þátt í JSrusselarrádstefhunni. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. Fregn frá Tokio í morgun hermir, að japanska st jórnin *hafi hafnað hoðinu um þátttöku í ráðstefnunni í Briissel. Ástæðurnar segja Japanir þær, að hún hafi sent flota og her til Kíria i sjálfsvarnarskyni, og sé það því algerlega fyrir utan verksvið BrússelaiTáðstefnunnar, að ræða styrjöldina í Kína. Hún verði eigi til lykta leitt, nema með bein- um samningaumleitunum milli Japana og Kínverja. Fregn frá Briissel herm- ir, að þar sem Japanir hafi öðru sinni hafnað boði um þátttöku í Briisselarráð- stefnunni, sé búist við, að ráðstefnufulltrúarnir taki til meðferðar stórfelda á- ætlun til aðstoðar Kínverj- um. Sú aðstoð yrði fólgin í lánveitingum og útvegun hergagna. United Press. Samkvæmt Reuter-fregn frá Shanghai byrjuðu skotárásir Japana á borgarhverfið Nantao aftur í morgun. Stórskotalið og fluglið tekur þátt i árásun- um. 18.000 manna japanskur her sækir fram til Nantao frá Chapei. Japanir hafa tekið Poo- tung austanmegin Whangpoo- fljóts, gegnt Nantao. Kínversku fulltrúarnir á Brusselráðstefnunni hafa hirt opinbera yfirlýsingu frá Chiang- Kaishek þess efnis, að Kinverjar hafi hörfað undan frá Shanghai, af liernaðarlegum ástæðum. I yfirlýsingu sinni segir Chiang Kai-shek, að kínverska her- stjórnin sé staðráðin í að halda áfrarn mótspyrnunni gegn Jap- önum, og muni Kínverjar í engu hvika af grundvelli níu velda sáttmálans. Litvinov lagði af stað frá Brússel í gær áleiðis til Moskwa. — NRP.-FB. ítalir reyna að fá lán hjá Bretnm. EINKASKEYTI TIL VlSIS. London í morgun. Daily Express segir að þá er þeir Ciano greifi og Perth höfðu átt tal sam- an hafi sú fregn borist til Lon- don að Italía ætli að reyna að fá lán í London. Blaðið telur, að ef þeir fái lánið, muni það leysa mörg vandamál við Mið- arðarhaf og í Evrópu yfirleitt. (United Press). Þýski ísfisksmarkaöurinn lokast í morgun, íslenskip togaraF liafa n»F altaf selt fypip hámarksveFð. SKRIÐUFALL I JAPAN. 300 MENN BlÐA BANA. London 12. nóv. FÚ. Skriða féll á námubæ einn í Japan i gær, og biðu 300 manns bana, en 13000 eru sagðir heim- ilislausir. Meðal þeirra, sem lentu í skriðunni voru 15 böm. Skriðan hljóp yfir mynnið á koparnámu, en menn voru að vinna niðri í námunni, og eru þeir allir taldir af. Samkvæmt skeyti til norska útgerðarmannafélagsins liafa herskip Franco lagt tundur- duflum fyrir utan liöfnina í Valencia. — NRP.-FB. OIÐASTA íslenska skipið, ° sem fær að selja ísfisk í Þýskalandi á þessari vertíð, los- ar þar farm sinn á morgun. Er það togarinn Gulltoppur. Verðum við þá búnir að selja fyrir þá upphæð, sem okkur er nú leyfilegt að selja fyrir í Þýskalandi, en skv. samningum við þýsku stjómina, sem gerð- ur var í sumar, nemur sú upp- hæð 900 þús. ríkismörkum. Eins og kunnugt er voru í sumar mjög miklir örðugleikar í samningunum við Þýskaland. Setti þýska stjórnin ‘nú há- marksverð á þorsk, ufsa og karfa og var það í fyrstu svo lágt að ekki var viðunandi. Var þá Sveinn Björnsson sendiherra sendur til Þýska- lands til að reyna að fá samn- ingunum breytt og tókst hon- um og Jóh. Þ. Jósefssyni, sem einnig starfaði að þvi sama, að fá þeim hreytt þannig, að hámarksverðið var hælíkað um tiltekið tímabil, og einnig var leyft að við mættum flytja inn fyrir 900 þús. R.M. í stað 800 þús., sem gert liafði verið ráð fyrir, gegn innflutningi 2000 tonna síldarlýsis fyrir markaðs- verð, án þess að þyrfti að greiða í frjálsum gjaldeyri. Stenst það nú á endum, að á mánudag n. k. lækkar hámarks- verðið á fiskinum, eins og samningarnir segja til, úr 24 pfenning pundið niður í 19 pf., en á laugardag landar síðasta íslenska skipið í Þýskalandi og hefir því verðlækkunin ekki þýðingu fyrir okkur. Verðið á þýska markaðinum féll snögglega s.l. miðvikudag og stendur það í sambandi við stóraukið framboð. Þýslci veiði- flotinn er nú að liætta síldveið- um sínum og tekinn að afla ís- fiskjar og herst því mjög mikið af honum nú á markaðinn. Þetta var altaf fyrirsjáanlegt, og var það því ósk Þjóðverja, að við yrðum sem minst á þeirra markaði eftir að nóvem- ber væri kominn. Annars liafa sölur íslensku skipanna á Þýskalandsmarkað- inum gengið mjög vel i haust. Skipin hafa nær altaf þar til nú á síðustu dögum, er verðið tók að falla, náð hámarksverði á allan afla og var það meira en búast mátti við, þegar hið nýja hámarksverð var sett. . ^ ' - ■ »*' * Þrátt fyrir þær hömlur, sem nú eru á sölum ísfiskjar í Þýskalandi ber markaðurinn þar þó mjög af sama markaði í Englandi. Má sem dæmi nefna að islenskur togari seldi á dög- unum í Englandi 25 smál. af ýsu og 60 smál. af þorski fyrir 900 stpd., en með því verðlagi sem verið hefir í Þýskalandi, hefði ýsan selst þar fyrir 1200 —1300 stpd. og þorskurinn fyr- ir um 1200 stpd. eða alls um 2400 stpd. Annað dæmi má nefna, og það er að fyrir skömmu seldi íslenskt skip 1230 vættir af bátafiski í Eng- landi fyrir 440 stpd. en hefði selt sama magn í Þýskalandi fyrir 1200 stpd. Er glögt af þessum dæmum hve gífurlegur munur er á verð- inu á ísfiskinum á þessum tveimur mörkuðum. Englandsmarkaðurinn er enn opinn og mun vanta töluvert á að það magn, sem við megum flytja þangað, sé notað að fullu. Síðastliðið ár var það fyrir- komulag haft, að miklar liöml- ur voru lagðar á hve margar ferðir skipin mættu fara og live mikið magn þau mættu flytja i liverri ferð. Annaðist Fiski- málanefnd þessar úthlutanir og fórst henni það svo liönduglega (eins og flest annað), að inn- flutningskvóti okkar til Eng- lands varð ekki notaður að fullu, enda þótt nægilegur afli væri til þess, og tapaðist þann- ig mikill erlendur gjaldeyrir. En nú er sem betur fer horf- ið frá þvi ráði að láta Fiski- málanefnd hafa slíka úthlutun með höndum og er frjálst að sigla með ísfisk til Englands meðan markaðurinn enn er op- inn* 4' :ÍM — <ti . all %\ M • ;i / jeraSimillon % '’HYRTIVíRUR Iiiiií irílttll- 1»u» t ÆSf: VeraSimhlon SHYRTIVffl) U R SKÓLl JÓHAfVWSSON o c Sfra Magnús Helgason fyrrum skólastjóri, er áttræðup í dag. Hann hefii* verið þjóð- kunnur maðui* hálfa öld eða lengur og góðkunnur að sama skapi. —• Hann þjónaði tveim prestaköllum, Breiðabólsstað á Skógarströnd og Torfastöðum í Biskupstungum og þótti hinn ágætasti klerkur. Eftir það gerðist hann kennari í Flens- borg um skeið, en því næst for- stöðumaður Kennaraskólans, er sú stofnun varð til. Síra Magnús er einn af mæt- ismönnum þjóðarinnar, gáfað- ur, starfsamur og skylduræk- inn, réttlátur í dómum, góðvilj- aður og hleypidómalaus. Hann var óvenjulega ástsæll af sókn- arhörnum sinum og nemönd- um. Og óhætt mun að fullyrða, að hann hafi reynst ýmsum nemöndum sínum þannig, að sliks sé ekki mörg dæmi hér á landi, enda er hann elskaðut og virtur af nálega öllum þeim, sem kenslu hans hafa notið. Síra M. H. er ritfær í besta lagi og skrifar svo fagurt mál, að fáir munu snjallari í þeirrí íþrótt hér á landi. Hann hefir gefið út þrjú rit: „Kveldræð- m* í Kennaraskólanum”, „Upp- eldismál“ og „Skólaræður“. ■—< Bera þau öll vitni um göfugan liugsunarhátt, fróðleik og smekkvísi. i.o.o.f. F.i m VeÖrið í morgun. í Reykjavík — 2 st., mestur hiti í gær 4 st., minstur í nótt —- i st. Sólskin í gær í 2.4 st. Yfirlit: Há- þrýstisvæSi og hægviðri um Is- land og hafiS fyrir sunnan. LægS viS suSvestur-Grænland. Horfur: Faxaflói: HægviSri í dag, en þyknar upp meS sunnanátt, þeg- ar líSur á nóttina. Slys. Rétt fyrir níu í gærkveldi varS kona ein, Ása Víglundsdóttir, fyrir bílnum R 848 fyrir utan iLækjargötu 12. Fékk hún heila- hristing, en sakaði ekki aS öSru lejdi. Byggingarmál Reykjavíkur. Grein (meS myndum) urn þau efni, eftir Hörð Bjarnason húsa- meistara, birtist í næsta Sunnu- dagsblaSi Vísis. Sjómenn ganga af skipi. Nokkrir hásetanna á „Varild“, fisktökuskipinu, gengu af skipinu er þeim varS kunnugt um, aS för þess væri heitiö til ítalíu. íslend- ingar voru ráSnir í þeirra staS. Varild fór í gær. Borgarstjóri, Pétur Halldórsson, og Valgeir bæjarverkfræSingur Björnsson, tóku sér fari utan meS Brúarfossi í gær. MeSan Pétur er utan tek- ur 1. varamaöur SjálfstæSisflokks- ins sæti hans á þingi, Jóhann G. Möller. Áheit á Hallgrímskirkju í Saurbæ, af- hent Vísi: 5 kr. frá S. R. og 5 kr. frá G. H. Frh. á 3. og 4. bls.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.