Vísir - 26.03.1940, Blaðsíða 2

Vísir - 26.03.1940, Blaðsíða 2
VÍSIR -------..... ........- • Félag íslenskra tónlístar- manna stofnað hér í bæ. Margvísleg verkefni tónlistinni til eflingar. VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóíi: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá -IngÖlfsstræti). Símar 1660 (5 línur). Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10 og 20 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Gjaldeyris- Jl ÓTT mikill fjöldi mála liggi fyrir Alþingi, gera menn sér samt vonir um, að því geti orðið lokið bráðlega, eða upp úr næstu mánaðamótum. Af- greiðsla fjárlaganna hefir geng- ið svo greiðlega að þessu sinni, að engin líkindi eru til að þing- að þurf^ að tefjast þeirra vegna. Af öðrum málum, sem fyrir liggja, (beinist athygli manna sérstaklega að gjaldeyrisfrum- varpi Sjálfstæðisflokksins. Nú eru liðnar upp undir þrjár vik- ur síðan málinu var vísað til nefndar, svo það getur varla dregist lengi úr þessu, að nefnd- arálit Icomi fram. Ástæðan til þess, að athygli manna dregst að gjaldeyris- frumvarpinu öðrum málum fremur, er sú, að með því er gerð endanleg tilraun til þess að leysa á friðsamlegan hátt það höfuðdeilumál, sem verið hefir innan stjórnarflokkanna og verða mun meðan óleyst er. Sjálfstæðismenn hafa fullan skilning á því, að samstarfið blessast ekki, nema því aðeins að þeir flokkar, sem að þvi standa séu þess ávalt búnir, að sýna gagnkvæma tilhliðrunar- semi. TiIIögur þær, sem Sjálf- stæðisflokkurinn ber fram, eru gerðar með þetta meginatriði stjómarsamvinnunnar fyrir augum. Ef flokkurinn hefði óskað samvinnuslita, hefði hann borið fram róttækar kröfur í verslunarmálunum. Flokkurinn óskar áframhaldandi samstarfs. Þess vegna eru tillögur lians miðaðar við það að samstarfs- flokkarnir geti aðhylst þær. Þetta er öllum mönnum ljóst, sem um það vilja hugsa. Sjálf- stæðisflokkurinn hefir hliðrað til í þessu deilumáli. Hann hef- ir þannig fyrir sitt leyti uppfylt þá kröfu, sem réttmætt er að gera til stjórnarflolckanna sam- eiginlega. Ef svo færi, að hinir flokkamir neituðu þessari sam- komulagstilraun, hefðu þeir þar með gert sig bera að því, að hafa brotið hið óskráða á- kvæði um gagnkvæma tilhliðr- unarsemi, sem öllum kemur saman um, að vera hljóti meg- ingrundvöllur slíkrar sam- vinnu, sem hér er stofnað til. Sjálfstæðisflokkurinn hefir bor- ið fram frumvarp sitt, ekki til að slita samvinnunni, heldur til að tryggja hana. Ef hinir flokk- arnir láta sér ekki skiljast þetta, þá er ástæðan sú ein, að þeir telja samstarfið ekki eins þýð- ingarmikið og Sjálfstæðisflokk- urinn. Einn hefir ekkert komið fram um það, að samstarfsflokkarnir muni liAftla þein-i sáttatilraun, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefir borið fram. í Timanum og Al- þýðublaðinu hefir verið ofurlít- ið maldað í móinn. En þær að- finslur, sem þessi blöð hafa bor- ið fram gegn frumvarpinu, hafa ekki verið á rökuni reist- ar. Það er þess vegna engin á- stæða til þess að ætla, að frum- varpið geti ekki náð fram að ganga. Afstaðan til þess er ein- I. göngu undir þvi komin, hvort meiri eða minni samstarfsvilji er fyrir hendi. Ef svo skyldi fara, að Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn legðu end- anlega stein í götu málsins, þá væri það sönnun þess, að þeir vildu lítið á sig leggja fyrir það samstarf, sem þeir sóttust báðir eftir í fyrravetur. Afgreiðsla þessa máls verður prófsteinn á samstarfsvilja stjórnarflokkanna. Ef einlægur vilji er fyrir hendi, að þrír stærstu flokkar þingsins standi saman um lausn vandamálanna á þessum erfiðleikatimum, er málinu borgið. a FIMTUGUR: Theodór Jakobsson skipamiðlarí. Theodór Jakobsson skipa- miðlari á fimtugsafmæli í dag. Hann er meðal þektustu kaup- sýslumanna og atvinnurekenda þessa bæjar. Allmörg ár var liann framkvæmdarstjóri „Kol og Salt“. Síðan gerðist hann skipamiðlari, var stofnandi Eimskipafélags Reykjavikur og framkvæmdarstjóri þess frá upphafi. Það má segja að undirbúning- ur Theodórs undir æfistarfið hafi verið með nokkuð óvenju- legum hætti. Hann lauk korn ungur námi við Latinuskólann og var einhver glæsilegasti námsmaður sinnar líðar. Að því loknu fór hann til Hafnar. Hann Iagði þó ekki stund á viðskifta- mál. Hann las árum saman heimspeki og fagurfræði. Eg býst ekki við að hallað sé á neinn, jiótt sagt sé, að Theodór sé víðlesnasti og fjöhnentaðasti maðurinn í íslenskri kaupsýslu- stétt. Áhugi hans á bókmentum og fögrum listum hefir ekki kulnað, þótt hann hafi haft öðr- um verkefnum að sinna. Það er alkunnugt að Tlieodór er óvenjulegur hæfileikamaður að hverju sem hann gengur. Hitt vita þeir sem best þekkja, að hann er engu síður frábær maður að drengskap og mann- kostum. Hann er ekki einungis vitmaður og mentamaður, hann er eitt hið mesta göfugmenni í öllum hugsunarhætti. Tlieodór er kvæntur Kristínu dóttur Páls Einarssonar hæsta- réttardómara, hinni mestu á- gætiskonu. Þau eiga 7 börn. Margur mun koma á heimili þeirra í dag til jiess að þrýsta hönd þeirra í fölskvalausri vin- áttu. Árni Jónsson. Þrjár stúlkur íót- brotna á skíðum. Þrjár stúlkur héðan úr bæn- um fótbrotnuðu á páskadaginn er þær voru í skíðaferð. Ekki munu brotin vera hættuleg. vStúlkur þessar voru Ragn- Sunnudaginn 17. þ. m. höfðu 12 tónlistarmenn í Reykjavík mælt sér mót í sendisal Ríkis- útvarpsins, til þess að stofna með sér félagsskap. Tveim vik- um áður hafði þegar verið hald- inn annar fundur til undirbún- ings félagsstofnunarinnar. Á stofnfundinum var ákveðið að félagið skyldi bera nafnið „Fé- lag íslenskra tónlistarmanna“, lög þess í 15 greinum samþykt og stjórn kosin, en hana skipa Þórarinn Guðmundsson, for- maður, Hallgrímur Helgason, ritari, og Árni Kristjánsson, gjaldkeri. Tilgangur félags þessa er að ákveða lágmarkstaxta fyxár störf einleikara og tónskálda innan félagsins og gæta liags- muna þeiri-a gagnvart einstakl- ingum og því opinbex-a. Félagið stuðlar að útbreiðslu góðrar lif- andi tónlislar í landinu með flutningi innlendra og erlendra tónverka og vill þar með glæða skilning og áhuga fyrir góðri tónlist; það vill bæta alla lón- ment í landinu bæði í slcólum landsins og í allri einkakenslu og vera á verði gegn skaðlegum stefnum og uppeldisáhrifum á sviði tónlistar, hvort sem þau koma fi-am í „vokal“- eða „instrumental-músik“. Tilgangi sínum hygst félagið að ná með því að efla sam- vinnu og viðkynningu félags- manna, koma á framfæri ís- lenskum tónsmíðum til upp- færslu og prentunai’, gefa út tímarit um tónlistarmál, beita sér fyrir góðri tónlistargagn- rýni í blöðum og tímaritum og Ieitast við að hafa liönd í bagga með úthlutun fjár og styrkveit- inga til tónlistarmála. Félagið lætur sér séi’staklega ant um að styðja hverja þá við- leitni, sem miðar að því að skapa þjóðlegan músiksmekk, er samsvari fyllilega almennu menningarstigi þjóðai’innar og leitar til þess samstarfs við önnur félög, hvort sem það eru stéttasamtök eða áhugaflokkar. Til þess að slíkt komist í kring, álítur félagið, að áherslu beri að leggja á, að meir sé gert að því að kynna íslensk þjóðlög og korna jxeim fyrir almennings- sjónir í aðgengilegum útgáfum til eflingar heimilistónlistar í laTxdinu (söngur, píanó og har- moníum), því að þjóðlögin hljóta altaf að vera sá grund- völlur, sem öll önnur þjóðleg tónlist í smáum og stórum formum byggist á; og þegar þess er gætt, að aðeins örlítið brot af öllum þeim þjóðlögum, sem til eru í landinu, eru al- menningi kunn, hlýtur það að vera Ijóst, að mikil og mörg verlcefni þessa grundvallaratrið- is tónlistarinnar bíða og krefj- ast úrlausnar. Félagið beitir sér og fýrir eflingu söngs og sam- heiður Jónsdóttir, Halldórsson- ar, skrifstofustjóra í Lands- bankanum og Kristín Haralds- dóttir, Árnasonar kaupmanns. Var Ragnheiður á leið frá Skíða- skálanum í Hveradölum til Kol- viðarhóls, er slysið skeði, en Kristín fótbrotnaði í Hellis- skarði, rétt hjá Kolviðarhóli. Ennfx-emur fótbrotnaði í skíðaferð dóttir Nieljoniusar Ólafssonar verslunarmanns hjá Kol & Salt. Stúllcan heitir Sig- friður. Hún þríbrotnaði um öklann. Yfirleitt munu allmargir hafa hlotið meiðsli í skíðaferðum nú um páskana, því að færi var hart og hættulegt viða hér syðra. taka í þvi skyni að glæða al- mennan söngáliuga og út- breiða þekkingu á undirstöðu- alriðum tónlistar. Félagsskapurinn sjálfur starf- ar sem samtakaeining allra Jxeirra íslenskra tónlistarmanna, sem fengið liafa ítai’lega sér- mentun í aðalfagi sínu (hljóð- færi eða ,,teóría“), enda hafi þeir jafnframt öðlast nokkra mentun í öðrum greinum al- mennrar tónlistai’fræði og slundi tónlistai’staif sem aðalat- vinnu. Sérhver meðlimur fé- lagsins skal eftir atvikum fær um að skapa eða flytja tónlist, er hafi varanlegt gildi og sé samið í all-stóru broti. Ráðstaf anir til heilsu- verndar sjómanna. Á fiskiþingi um daginn vakti Renedikt Sveinsson máls á jxví, að í berklavarnarlögunum, sem géngu í gildi 1. janúar þ. á. væri fyi-irskipað um læknaskoðun i skipvei’jum farþegaskipa (8. gi’.), en engin ákvæði sett um skyldu til læknaskoðunar skip- verja á fiskiskipum, þótt þess virðist engu síður brýn þörf. Benti hann á dæmi Um hættu þá, sem oft hefði hlotist af þvi, að hásetar hefði ráðist í skip án nægilegrar skoðunar. í sjómannalögunum, nr. 41, 1930, eru engin ákvæði um læknisskoðun á skipverjum. Nefnd athugaði málið og bar það undir berkla-yfirlækni. — Mælti hann fastlega með tillögu þeirri, er nefndin bar undir hann. Kvað hann Jiá breytingu, er nefndin færi fram á, mjög létta fyrir sínu starfi og vera næsta þarflega. Var liann þakk- látur fiskijiingi við fylgi við á- hugamál sitt um berklavarnir. Tillagan var síðan samjiykt á fiskijiingi með samhljóða at- kvæðum. Er hún sem hér segir: „Fiskiþing skorar á Alþingi að taka upp í Sjómannalög, nr. 41, 1930, ákvæði þess efnis, að þar sé áskilið, að hver skipverji, sem skráður er á fiskiskip, sýni heilbrigðisvottorð um, að hann sé ekki haldinn smitandi berkla- veiki eða öðrum næmum sjúk- dómum, þegar hann er lög- skráður á skip í fyrsta sinn á því ári, sem lögskráning hans fer fram. Heilbrigðisvottorð er því aðeins gilt, að það sé frá héraðslækni, eða heilsuverndar- stöð í þeim héruðum, sem þær starfa.“ Væntanlega verður Alþingi við þessari áskorun, Jiar sem hún stefnir að því að tryggja lieilsu og líf fiskimanna vorra. Forn-íslensk orðabók 3-4000 blaðsíður. Fyrir nokkuru var haldinn fundur í Kaupmannahöfn, til undirbúnings útgáfu stórrar forníslenskrar orðabókar, sem gert er ráð fyrir að verði 3— 4000 bls. að stærð. Þenna fund sátu Danir, Norð- menn og einn íslendingur. ls- lendingurinn var próf. Jón Helgason, Danirnir dr. phil. Ejnar Munksgaard og prófess- orarnir Arup og Bröndum-Niel- sen, en af hálfu Norðmanna sátu fundinn dr. Koht, utanrík- ismálaráðherra, próf. A. Seip, rektor Osloar-háskóla og Anne Holsmark, dósent. Stuttbylgjusvæðið. Þögn á stuttbyljgusvæðinu. Undanfama 2—3 daga hef- ir ekki tekist að lieyra í stutt- bylgjustöðvum að neinu gagni og raunar má segja, að alger Jiögn hafi rikt á stutt- þylgjusvæðinu. Heldur ekki hefir tekist að ná erlendum stöðvum á miðbylgjum. Slílc- ar truflanir munu hafa kom- ið fyrir áður og liafa staðið 3—4 daga. Á langbylgjum heyrist hinsvegar vel. Kemur það sér bagalega nú fyrir út- varpshlustendur, að ekki heyrist á mið- og stuttbylgj- um, þar sem ensku stöðvarn- ar útvarpa einungis á mið- og stuttbylgjum frá Jiví styrjöld- in byrjáði, en áður var út- varpað líka á langbylgjum, sem kunnugt er. Samkvæmt skeyti frá Uni- ted Press, sem Vísi hefir bor- ist, frá New York, hefir verið um meiri tmflanir slíkar og að framan greinir, en útvaps- fræðingar vestra muna eftir, og eru uppi ýmsar getgátur um, hvernig á þessu muni standa, svo sem hvort þetta stafi af völdum norðurljósa, sem hafa verið mikil og fög- ur víða undangengin dægur, eða livoi’t Jietta getur stafað af Jiví, að sólblettir eru stærri en vanalega. Rannsóknir Jóns Dúasonar. I kyrþei hefir fræðimaður þessi unnið að því um mörg ár, að rannsaka, alt sem við kemur sögu íslendinga á Grænlandi og' í Vesturheimi. Verk þetta hefir ekki verið unnið fyrir fé né neitt af gæðum Jiessa heims, lieldur af einskærri þjóðrækni og skyldurækni við Iand sitt og Jijóð. Er menn vinna i þeim hug, er helst von um góðan árang- ur. Rannsóknum þessum er nú Iokið, og árangur þeirra liggur fyrir í tveimur stórum handrit- um. Rit Jiessi hafa hlotið mikið lof allra þeirra, er séð liafa, þar á meðal ýmsra hinna merkustu manna, er mælt liafa með út- gáfu Jieirra, svo sem Heinrich heitinn Erkes, Vilhjálmur Stef- ánsson, dr. Rögnvaldur heitinn Pétursson, form. Þjóðrælcnisfé- Iagsins í Vesturheimi, próf. Matthías Þórðarson fornminja- vörður og Barði Guðmundsson þjóðskjalavörður. Þrír hinna síðasttöldu liafa rannsalcað ritin af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þeim, sem séð hafa rit þessi, ber saman um, að það sé fyrst og fremst tvent, sem sérkenni þau: 1) Það, hversu víðtæk og rækileg heimildasöfnun og djúptækur og fjölhliða lærdóm- ur liggur til grundvallar fyrir þeim, og 2) skapandi liugar- flug, víðsýni og rökfimi, er skýrir samband atburða, orsaka og afleiðinga og setur efni rits- ins fram Ijóslifandi og vekjandi fyrir hugskot lesandans. Nokk- ur sýnishorn af Jiessu hefir Ies- andinn fengið í erindum þeim, sem Helgi Hjörvar hefir lesið upp í útvarpið, og hafa líkað fá- dæma vel, enda anda öll ritin ást og aðdáun höfundar fyrir menningu og sögulegum afrek- um íslenslcu þjóðarinnar. Þar sem mál höfundar er létt og lip- urt, gerir alt Jietta saman ritin aljiýðleg og skemtileg aflestrar, svo sem vera ætti um allar ís- lenskar bækur. Fyrirsagnir 15 fyrstu kapítula ritanna gefa nokkra hugmynd um, hversu fjölbreytt og marg- víslegt efni ritin fjalla um, þótt alt sé það saga íslendinga: Kap. I Uppliaf íslendinga, II íslenska heimsmjmdin, III íslendingar á Grænlandi, IV Skrælingjar, V Landnám íslendinga, VI Tunnit, VII Hversu vítt náði Grænland, VIII íslendingar og Skrælingjar, IX Líkamsmæhngar á Eskimó- um sanna kynblöndun íslend- inga og Skrælingja, X íslensk menning meðal Eskimóa, XI Norræn sérkenni í útliti fólks á Eskimóasvæðinu eftir 1500, XII Verslun og siglingar til Græn- lands, XIII Siglingar Grænlend- inga vestur, XIV Sjóleiðin til Grænlands týndist aldrei, XV Fyrstu siglingar Norðurálfu- manna til Ameríku í lok 15. ald- ar. Boðsbréf að ritum Jóns Dúa- sonar er nú komið út. Vér sjá- um því, að ef að vanda lætur, muni íslenska þjóðin bregðast þannig við, að áskriftasöfnunin verði henni bæði til mikils sóma og ómetanlegs gagns, og styrk- ingar á lífsréttindum, sæmd og hagsmunum landsins. Skákmótid: Önnur og þriðja umferð. Önnur umferð í skákþingi ís- lendinga hófst um kl. 1% á páskadag, og urðu úrslit i meistaraflokki þau, er hér seg- ir: Ásmundur Ásgeirsson vann Áka Pétursson, Sturla Péturs- son vann Jóhann Snorrason, Einar Þorvaldsson vann Haf- stein Gíslason, en skák Eggerts Gilfer og Árna Snævarr varð biðskák. Þriðja umferð var tefld i gærkvöldi og fóru leikar þann- ig: Áki Pétursson og Jóhann Snorrason jafntefli. Eggert Gilfer og Einar Þorvaldsson jafntefli. Árni Snævarr vann Sturlu Pétursson, og Sæmund- ur Ólafsson og Hafsteinn Gísla- son gerðu jafntefli. Annað lcvöld kl. 8 lieldur kepnin áfram í K.R.-liúsinu. Nýr verslunar samn- ingur milli Rúmena og Júgóslava. Einkaskeyti frá United Press. K.höfn \ morgun. Verslunarmálaráðh. Jugo- slaviu er væntanlegur til Buka- rest í yfirstandandi viku, til þess að ganga frá nýjum verslunar- samningi milli Rúmeníu og Júgóslavíu. Takmarkið með samningsgerðinni er að auka viðskifti Rúmena og Júgóslava. Danir vilja taka 35.000 finsk börn. Danir hafa alls boðist til þess að taka að sér 35.000 finsk böm og er fyrsti hópurinn kominn til Kaupmannahafnar fyrir nokkru. AIIs hafa safnast í Danmörku um 8 milj. danskra lcróna og nú, eftir páskana, á að hefja frekari söfnun, sem hefir verið vel undirbúin að undanförnu. (Skv. sendiherrafregn). Jón sendi stöku um Iokun hafnarinnar, svohljóðandi: Ymsir sækja í þann bás, ekki er gott að passa það. Eg held að Jiað dugi hengilás, ef hann er bara á réttum stað!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.