Morgunblaðið - 09.05.1915, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.05.1915, Blaðsíða 1
&unnudag 9. maí 1915 HORGDNBLADID 2. árgangr 184. tölublaá Ritstjórnarsimi nr. 500 | Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen. |Isafoldarprentsmiðja|Aígreiðslnsimi nr. 499 Rin Reykjavíknr IDI DIU Ri ofi-ra nh -Th eater DI U Biograph-Theater Talslmi 475. Dðttir malarans Fallegur sjónleikur i lifandi myndum. Göfugt og átakanlegt efni. Fyrir hönd systra og annara vanda- manna Guðjóns sál. Sigurðssonar úr- smiðs þakka eg innilega öllum hinum mörgu sem á ýmsan hátt hafa sýnt hluttekning við fráfall og jarðarför hans. P. t. Reykjavik, 7. maí 1915. Vigfús Bergsteinsson frá Brúnum. ............................... t iarðarför Gyðu sál. dóttur okkar er ákveðin þriðjudaginn II. þ. m. og hefst kl. Il‘/a f. h. á heimili okkar, Mið- stræi 6. Sigríður Benediktsdóttir. Stefán Gunnarsson. K. F. U. M. Kl. 4 Y.-D. fundur. Allir drengir io—14 ára velk. Siðasti fundur á starfsárinu. Kl. 8V2 Almenn samkoma. Allir velkomnir. íslenzkt Smjðr fæst bezt og ódýrast hjá Guðjóni Björnssyni við verzlunina Björn Kristjánsson. ^iðjið einungis um: Yacht Fána niðursoðna grænmeti, smjörlíkið viðurkenda, og tegundirn- ar »Bouquet«, »Roma«, ,Buxoma«, »H«, »E«, »D«, »C«, Baldur smjörlikið ágæta, í 5 kilogr. spor- oskjulöguðum pappa-ílátum, Juwel btr 1 heildsölu fyrir kaupmenn, hjá O. Eiríkss, Reykjavik. Kirkjuhljómleikar Theodórs Árnasonar og Lofts Guðmundssonar varéa enóurfafínir í fivoló fil. 9 í Dómkirkjunni. Aðgöngumiðar kosta 50 aura og eru seldir í Hotel ísland (Caféinu) og forsal alþingishússins eftir kl. 4 i dag. Lusitaniu sökt. London 8. mai. Hér fara á eítir síðustu opinberar upplýsingar um Lusitania, sem þýzkir kafbátar söktu framundan Kinsale þ. 7. mai. Tundurbátar. gufuskip, togarar (tugs) og vopnaðir botnvörpungar hafa flutt6j8 lifnndi menn á land og 45 dauða. Ef til vill hafa fiskibátar fri Kinsale bjargað fáeinum mönn- um. Vopnaður botnvörpungur og tveir fiski-botnvörpungar hafa komið með 100 lik auk þessa. Eigi eru það nema fáir af fyrsta farrýmis farþegum, sem hafa komist lifs .af. Skipið sökk á 15—25 mínútum og það er roælt að á það hafi kom- ið tvö tnndurskeyti. Afgreiðslumaður Cunard-félagsins segir að 2160 menn hafi verið á skipinu a.ls, Cunardfélagið hefir skýrt frá þvi, að farþegar hafi verið þessir: Á fyrsta farrými: 179 brezkir 106 amerískir 3 grískir 1 sænskur 1 mexikanskur 1 svissneskur. Á öðru farrými: 521 brezkur 65 amerískir 3 rdssneskir 1 belgiskur 3 hollenzkir S franskir 1 italskur 2 (þjóðerni óþekt). Á þriðja farrými: 204 enzkir 39 iiskir 13 skozkir 59 rússneskir 17 ameriskir 21 persneskir 3 griskir 4 skandinavar 1 franskur 1 mexikanskur. London, 8. tnai. Útdráttur úr opinberum skýrslum Frakka 5.-8. mai. Þann 5. mai gerðu Þjóðverjar áhlaup á vinstri herarm Breta, en voru brotnir á bak aftur. Franska stórskotaliðið kom þeim i opna skjöldu til hliðar og féilu óvinirnir unnvörpum. Síðar sóttum vér fram milli Lizirne og Het Sas og höldum nú þeim stað. Þjóðverjar gerðu áhlaup skamt frá Zwartelen-skotgryfjum á 60. hæðina. Notuðu þeir þar kæfandi gas og náðu fyrst nokkrum hluta af þeim stöðvum, en Bretar gerðu gagnáhlaup og tóku nftur skotgrafirnar. Grimm orusta stóð milli Meuse og Moselle. Þjóðverjar skutu á stöðvar vornr hjá Les Eparges og gerðu þar siðan áhlaup, en biðu al- geran ósigur og mistu fjölda manns. I Dailly-skógi miðaði oss dálitið áfram með gagnáhlaupum Áhlaup óvinanua hjá Bagatelle mishepnuðust algerlega. Norðan við Ypres hefir staðið grimmileg stórskotaliðsorusta. Hjálpræðisherinn 20 ára. Viðtal við Grauslund Stabskapt. Næstkomandi .þriðjudag eru iiðin 20 ár siðan Hjálpræðisherinn hóf starf sitt hér á landi. 1 tilefni af því, hefir forstjóri hersins fengið leyfi stjórnarráðsins til þess að selja lítil minningarmerki og á ágóði af þeirri sölu að ganga i byggingarsjóð hersins. NÝJA B í Ó Prinsinn. Gamanleikur frá Nordisk Films Co. Aðalhiutverkin leika hinir al- þektu dönsku gamanleikarar: Carl Alstrup Fred. Buch Lauritz Olsen Oscar Stribolt og þarf þá ekki að þvi að spyrja að gaman muni að leiknum þeim Allir verða að sjá myndina og allir munu hlæja dátt. Sýning í kvöld kl. 9—10. Fjalla-Eyvindur verður leikinn sunnudaginn 9. þ. mán. í Iðnó kl. 8 síðd. Pantaðra aðgöngumiða sé vitj- að fyrir kl. 3 í dag. Biðjið ætíð um hina heimsfrægu Muslad öngia. trO Búnir til at 0. Mustad <& Sön Kristjaníu. — Hvaða byggingasjóður er þetta, spurðum vér Stabskapt. Grauslund, er vér hittum hann i gær. - Við höfum lengi verið að hugsa um að byggja hér stórhýsi. Þörfin er afskaplega mikjl, það er svo langt frá því að við getum hýst alla, sem til okkar leita. En hinsvegar skortir oss peninga til bygfiingarinnar. Þar sem við nú höldum hátiðlegt 20. ára afmæli vort á íslandi, notum vér tækifærið til þess að auka þennan byggingarsjóð og höfum fengið leyfi ráðherra til þess að selja þetta litla merki. — Hr. Grauslund tekur dálítið merki upp úr skúffunni, blátt að lit og á það er prentað með hvitum stöfum »20 ár«. — Als höfum við látið prenta 4500 slik merki sem við vonum að seljist hér i Rvík. — — Ætlar Hjálpræðisherinn að láta reisa nýjan »kastala« bráðum? — Eg vona að þaði verði byrjað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.