Morgunblaðið - 20.03.1917, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.03.1917, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ gleðilegan vott nm aukið hreinlæti meðal almennings. Þess ber og að gæta, að margir húseigendur hafa siðustu árin látið koma fyrir baðtækjum í húsum sín- nm og við það minkar auðvitað að- sóknin að hinnm opinberu böðum. En skýrslan ber það greinilega með sér, að húsið er orðið altof lítið og að nauðsyn ber til þess að stækka það hið allra fyrsta. Mun hafa verið i ráði að það yrði gert síðastiiðið sumar, en þótti þó ekki tiltækilegt þegar til kom, vegna þess hve bygg- ingarefni er orðið dýrt. En ákveðið mun það vera undir eins og ófrið- nrinn er á enda. Böð eru hverjum manni nauðsyc- ieg. Það er eigi síður nauðsynlegt að þvo allan líkamann, en að þvo sér í andliti og á höndum, en það gera allir siðaðir menn daglega. Baðhús Reykjavíkur er þörf stofn- un sem enginn mun telja eftir þó bæjarsjóður styrki með ríflegri fjár- upphæð árlega. Erl. símfregnir frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl Kaupmannahöfn, 17. marz. Þingið rússneska hefir neytt Rússakeisara til þess að láta af völdum. Stdnuskrá hinnar nýju stjórnar landsins hefir verið birt. Ætlar hún að koma á almennum kosningarétti, al- mennu prentfrelsi og fleirum þessháttar umbótum. Michael stórfursti er frjáls- lyndur. Dómsmálafréttir. Landsyfirdómur 19. marz. Málið: Tómas jónsson gegn Ólafi Briem f. h. Landsbankans eða hon- um persónulega. Áfrýjandi er Skagfiiðingur og taldi hann Óiaf Briem hafa brigðað við sig kauprétti eða að m. k. forkaups- tétti á jörðinni Syðri-Hofdölum, en hana átti Landsbankinn og hafði Ól. Br. umsjón með henni íyrir hönd bankans. Málið var dæmt í undirrétti, fyrir gestarétti Skagafjarðarsýslu, þann veg, að stefndi (Ó. Br.) var sýkn- aður af kröfum T. J. og málskostn- aður látinn falla niður. Er málið svo kom til yfirdóms, var J>vi fyrst vhaíjrá dómi, sökum þess, að Landsbankanum, sem var aðili í málinu, var ekki stefnt, og skyldi áfrýjandi greiða málskostnað. Síðan var þvi enn áfrýjað, og krafðist T. f. þess, aðallega, að Ó. Br. f. h. Lands- bankans yrði skyídaður til þess að selja honum umgetna jörð, að við- lögðum dagsektum og greiða skaða- bætur, en varakrafa hans var, að Ó. Br. yrði dæmdur til þessa persónu- lega. En svo fór á ný, að málinu var aiallega vlsað jrá yfirdómi aftur, ex officio, vegna þess að eigi hafði nú heldur Landsbankanum verið stefnt, og skyldi áfrýjandi greiða 2/ kr. sekt í landssjóð fyrir óþarfa þrætn. — Varakrafan var þar á móti tekin upp til dóms að efni til. Komst yfir- dómur að þeirri niðurstöðu, að stefndi hefði eigi gefið áfrýjanda neitt sjálf- stætt eða skilyrðislaust loforð um kaup á jörðinni og að öðru leyti hefði áfrýjandi eigi getað fært sönn- ur á mál sitt. Taldi dómurinn þvi að stefndur Ó, Br. hefði hvorki brot- ið á áfrýjanda fyiirmæli laganna um forkaupsrétt leiguliða né önnur lög. Var hann því algerlega sýknaður, og áfrýjandi dæmdur í 40 kr. máls- kostnað. Astæðu fann yfirdómurinn til þess að víta það, að málfl.m. Bogi Brynj- ólfsson hafði farið óviðeigandi orðum um hinn fyrri frávísunardóm yfir- réttar, en þótti þetta þó eigi nægja til þess að sekta lögmaoninn. Málið: Carl Sæmundsen & Co. gegn borgarstjóra Reykjavíknr f. h. bæjar- sjóðs. Málið er risið út af útsvarsgjöld- um, sem firmanu C. S. & Co. var gert að greiða hér í bænum, en’það neitaði, kvaðst ekki hafa hér aðsetur, en að eins svokallaðan »Pladsagent« Fór þá fram úrskurður fógetaréttar um gjöld þessi, er voru að upphæð kr. 450,00 og skyldi lögtak fram fara, ef gjaidið yrði eigi greitt. Firmað áfrýjaði fógetaúrskurðinum til yfirdóms. Voru þar fieldur eigi tekin til greina mótmæli áfrýjánda gegn útsvarsgreiðslunni. Var upplýst, að firmað hefir hér í bænum skrif- stofu og lager og launaðan umboðs- mann, er annaðist hér kaup og sölu f. h. firmans. Taldi yfirdómur full- sannað, að það ræki hér arðsama at- vinnn og væti því útsvarsskylt. Fó- getaúrskurðurinn var því staðjestur og greiði áfrýjandi jo kr. í máls- kostnað. -------- «» ------------ StjórnarbyHingin r I Rússiandi. Mönnum er farið að leiðast stríð- ið. Bæði þeim sém að því starfa og hinum sem hjá sitja. Þeir eru orðn- ir svo vandfýsnir með fréttimar, að fregnir um dráp margra þúsunda, fall stórra borga eða tortíming tuga af skipum ganga inn um annað eyrað og út um hitt. Nú þykir mest varið í friðartíðindi. Fregnirnar af atburðum þeim, sem orðið hafa í Rússlandi síðustu vik- una, hafa þótt tíðindum sæta. Um- talið um hafnbannið hefir orðið að þoka fyrir þeim stórtíðindum. Simfregnirnar herma að rétturinn til keisaradóms hafi verið fenginn Michael stórfursta með alþjóðar sam- þykki. Virðist því svo sem viðburð- irnir séu aðrir og meiri en ætla mátti í upphafi, þvi afsetning og fangelsun gamla ráðuneytisins þurfti ekki endilega að hafa í för með sér keisaraskifti. Þetta gat verið iík breyt- ing þeirri í Englandi, er Asquith fór frá en Lloyd George tók við. Aðferðin bara rússnesk. Þvi hefir verið spáð fyrir löngu að ófriðar þyrfti með tii að koma rússneska einveldinu fyrir kattarnef. Meðan stóð á ófriðnum við Japana, reyndi almúginn rússneski að hrista af sér okið, en mistóksí hraparlega svo sem kunnugt er. En nú eru tímarnir breyttir og undarlegt má heita, hversu friðsamlega þessi mikla breyting hefir á komist, ef treysta má símfregnunum. } Rússneska einveldið er úr sög- unni. Og nú vaknar til starfa fjöl- mennasta þjóð Evrópu, sem hingað til hefir legið í dvala í ánauðar- hlekkjunum. Þjóðin sem í margar aldir hefir þráð frelsið, en átt vísa Síberíuvist fyrir ógætilega talað orð eða alls ekki neitt. Og nú má bú- ast við risavaxnari þroska Austur- evrópu á næstu árum, en nokkurn hefir dreymt um. Sennilega verður stjórnarbyitingin ekki til að flýta fyrir úrslitum ófrið- arins. Menn voru að spá því í fyrstu að nú væru Rússar úr sögunni sem þátttakendur i stríðina, en önnur virðist raunin ætla að verða. Hinum gamla yfirhershöfðingja, Nikulási stór- fursta hafa verið fengin öll völd i hendur á ný og ekki ástæða til að ætia annað en að herinn felli sig við breytinguna. Utn framtíðarfyrirkomulag:ð á æðstu stjórn landsins er erfitt að segja nokkuð ákveðið. Ætla má að stjórn Micbaelis keisarabróður sé að eins til bráðabirgða. En hvað síðar verð- ur veit maður ekki. Hver veit nema einvaldsríkið verði innan stundar orð- ið að lýðveldi? Hin tíðu stjórnarskifti sem orðið hafa í Rússlandi upp á síðkastið gáfu ástæðu til að vænta breytinga. En hitt mun fæsta hafa grunað, að breyt- ingin kæmi svona fljótt og gengi svona hljóðalaust aí. Máttur þjóð- arinnar og skiluingur hennar á þýð- ingu sjálfrar sín, hefir að lokum vax- ið embættismannasamábyrgðinni svo rækilega yfir höfuð, að hún hefir ekki séð sér fært að veita viðnám lengur. Jarðarför ekkjunnar Vilborgar Jónsdóttur frá Setbergi), sem- andaðist þann 12. þ. m., er ákveðin fimtudagínn þann 22. þ. m. kl. II f. in. og hefst með húskveðju á heim- hinnar látnu, á Jófríðastaðavegi 13. Eftir ósk hinnar látnu verður kistan borin hina fornu Garðakirkju. Hafnarfirði 17. marz 1917. Börn og tengdabörn. NikðSaus stórfursii. Hinn var í upphafi ófriðarins yfir- hershöfðingi Rússa. En eftir hinar miklu hrakfarir, sem Rú-srr fóru fyrir Þjóðvetjum sumarið 1915, var hann settur af, og tók keisarinn þá sjálfur yfirstjórn hers og flota. En Nikolaus var settur yfir her Rússæ suður í Kaukasus. Þar var hann þangað til í haust að hann var send- ur til Rúmeníu og hoaum fengin yfirherstjórnin þar. En nú hefir hann aítur fengið fulla uppreisn, þar sent hin nýja frjálslynda stjórn í Rúss- landi hefir gert hann að yfirher-- stjóra alls Rússahers á landi. Bannlagabrot. Um daginn kom hingað einn islenzku botnvörpunganna, sem tií viðgerðar hafði vetið í Danmörku. Lá þegar grunur á því að skipið hefði áfengi meðferðis og styrktist hann við það, að skipið íór út aft- ur áður en lögreglunni hafði gefist kostur á að rannsaka það. Síðar fundust í Viðey og Gufunesi, að sögn eftir tilvísun einhverrar stúlku í Viðey, allmiklar áfengis-birgðir, sem grunut lék á að fiuttar hefðu verið á land úr botnvöipungnum. Fyrir rétti ját- uðu skipverjar að skipið hefði hafí' áfengi þetta meðferðis. Réttarhöld hafa mörg verið í ®ált þessu og mun það ekki útkljáð enn. SSS3S D A 9 BOF,J N. Afmæfi f dag: Guðbjörg Þorsteinsdóttir, húsfru. SigríSur Þorláksdóttir, búsfrú. , Steinunn Sigurðardóttir, húsfru. f. Henrik Ibsen, 1828. f. Jón Ólafsson, 1850.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.