Morgunblaðið - 08.08.1917, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.08.1917, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ 30-40 ungar og góðar varphænur fást keyptar nú þegar i Skothúsinu. Hérmeð tilkynnist vinum og vanda- mönnum að elskulegur eiginmaður ur minn, Teitur Hansson, lézt 3. þ.m. fJarðarförin fer fram frá heimili hins látna, Spltalastig 10, kl. II f. m. Valgerður Eyjélfsdðttir' 6. Brauðverðarhúsmálið er komið úr nefnd i efri deild, bjargráðanefnd. Ræður nefndin deildinni til að samþykkja það með lítilsháttar breytingum, sem flestar eru orðalagsbreytingar. 7. Forkaupsrétíur landssjóðs á jðrðum- Landbúnaðarnefnd vill gerbreyta frv. Sig. Sig. um það efni. Úr breytingartillögum hennar verðor nýtt frv. svo látandi: 1. gr. Þegar jörð er til sölu, og hvorki viðtakandi hennar eða hlut- aðeigandi sveitarfélag vill nota kaup- rétt sinn, skal jafnan skylt að bjóða landsstjórninni kaup á jörðinni fyrir landssjóð, er hefir þá forkaupsrétt. 2. gr. Nú tilkynnir eigandi, eða annar fyrir hans hönd, landsstjórn- inni, að jörð sé til sölu samkvæmt 1. gr., og skal landsstjórnin þá afla sér nauðsynlegra uppiýsinga um jörð- ina og sannvirði hennar, og tilkynna hlutaðeiganda innan mánaðar, hvort hún vill nota kauprétt landssjóðs. Landssjóður greiðir kostnað er af kaupunum leiðir, ef kaup eru gerð. Seljanda er þó heimílt að selja öðrum, ef landsstjórnin vill ekki sinna því verði, sem boðist hefir fyrir jörðina. 3. gr. Ef um áður seldar þjóð- jarðir eða kirkjujarðir er að ræða, greiðist kaupverðið úr sjóðum þeim, er andvirði jarðanna er runnið í, ella greiðist það úr landssjóði. Stjórnarráðið gerir nauðsynlegar ráðstafanir um bygging jarðanna, en um umráð þeirra fer eins og lög ákveða. 4. gr. Ef jörð er seld öðrum en viðtakanda eða sveitarfélaginu, án þess að landsstjórninni hafi verið gert viðvart samkvæmt 1. gr., er landsstjórninni heimilt að rifta söl- unni og kaupa fyrir sama verð og jörðin 'seldist siðast fyrir. 5. gr. Skylt er hreppstjórum að hafa vakandi auga á, hver í sinum hreppi, að fyrirmælum 1. gr. sé hlýtt. Ef út af er brugðið, skal hreppstjóri tafarlaust tilkynna það sýslumanni. 8. Holrasi ot* fanfstéttir á Akureyri. Allsherjarnefnd Ed. gerir nokkrar breytingartillögur við frv. Magnúsar Kristjánssonar um gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri, en vill að öðru leyti láta það ganga fram. Úr etri deild í gær 12 mál á dagskrá. 1. Frv. um breyting á lögum um manntal í Reykjavík; frh. 3, umr. Frv. samþykt umræðulaust og afgr. til Nd. 2. Frv. um slysatrygging sjó- manna; 2. umr. Um það mál urðu allmargar umræður. Framsögumaður sjávarútvegs- nefndar, Magnús Kristjánsson, mælti eindregið með öllum breyt- ingartillögum nefndarinnar, og studdu þeir hann dyggilega með- nefndarmenn hans, Karl Einars- son og Kristinn Daníelsson, en forsætisráðherra þótti nefndin, hafa stórspilt stjórnarf rum varpinu. Um þetta deildu þeir lengi. Gerði Jón Magnússon lítið úr skilningi nefndarinnar á málinu, en Magn- ús Kristjánsson frýjaði stjórnar- ráðinu vits og reynslu á við nefndarmenn. Varð orðakastið snarpara á milli þeirra en búast mátti við milli flokksráðherra og stuðningsmanns. Halldór Steins- son studdi forsætisráðherra í flestum atriðum, en Magnús Torfa- son var til beggja, mælti með tillögum stjórnarinnar í sumum atriðum, en nefndarinnar í öðrum. Svo fór, að flestar breytingar- tillögur nefndarinnar voru sam- þyktar með miklum atkvæðamun. Þó féll breytingartill. hennar um, að orða 5. gr. frv. svo: Verði sjómaður fyrir slysi á vá- tryggingartímabilinu, skal úr Blysa- tryggingarsjóði greiða o. s. frv. En orðalagið istj.frv.: »Verði sjó- maður fyrir slysi á skipi á leið úr landi út í skip eða frá skipi í land á því tímabili, sem greitt hefir verið iðgjald fyrir, skal« o. s. frv. var samþ. önnur breytingartill. frá nefnd- inni um, að systkin hins látna hefðu einnig rétt til skaðabóta, var og feld með jöfnum atkv. Frv. visað til 3. umr. 3. Frv. um breyting á lögum um útmæling verzlunarlóða o. fl. Samþ. til 3. umr. umtölulaust. 4. Frv. um heimild til ráðstaf- ana út af N orðurálfuófriðnum (komið frá Nd.); 1. umr. Vísað tíl 2. umr. og bjargráða- nefndar. 5. Frv. um framlenging vöru- tolls (komið frá Nd.); 1. umr. Fjármálaráðherra mælti með frv. og var því síðan vísað til 2. umr. og fjárhagsnefndar. 6. Frv. um viðauka við samþ.- lög um kynbætur hesta (frá Nd.); 1. umr. Vísað til 2. umr. og land- búnaðarnefndar. 7. Frv. um hækkun tolls af tó- baki o. fl. (frá Nd ); 1. umr. Vísað til 2. umr. og fjárhagsnefndar. 8. Frv. um mjólkursölu í Rvík (frá Na.); 1. umr. Vísað til 2. umr. og allsherjarnefndar. 9. Frv. um stimpilgjald (frá Nd.); 1. umr. Vísað til 2. umr. og fjár- hagsnefndar. 10. Frv. um Landsbankaútibú í Árnessýslu (frá Nd.); 1. umr. og 11. Frv. um Landsb.útibú i Suð- ur-Múlasýslu (frá Nd.); 1. umr.; hvorutveggja vísað til 2. umr. og allsherjarnefndar. 12. Ákveðin ein umr. um þings- ályktunartill. um endurbætur á gild- andi löggjöf um stofnun og slit hjú- skapar og afstöðu foreldra til barna. Fundi slitið kl. 3^/2 s'ðd. og urðu ekki neinar umræður, svo að telj- andi sé, um neitt annað en slysa- trygginguna. Úr neðri deild í gær. 1. Frv. um áveitu á Flóann; 3. umr. Sig. Sig. flutti brtt. við frv., um hana þurftr að leita afbrigða frá þing- sköpum, en nm þau var neitað, og má slikt eins dæmi heita. Frv. samþ. og afgr. til efri deildar. 2. Frv. um framkvæmd eignar- náms; 3. umr. Frv. sarnþ. umræðulaust í einu hljóði og endursent efri deild. 3. Frv. um stækkun verzlunar- lóðar ísafjarðar; 3. umr. Frv. samþykt umræðulaust i einu hljóði og afgr. til landsstjórnarinnar sem lög frá Alþingi. 4. Frv. um fyrirhleðslu fyrir Þverá og Markarfljót; 2. umr. Eftir langar umræður, er Mbl. hlustaði ekki á, var frv. í einu hlj. vísað til 3. umr. 5. Frv. um afnám laga um skýrsl- ur um aldýrasjúkdóma; frh. 2. umr. Frv. samþ. í einu hljóði og vísað til 3. umr. 6. Frv. um stefnubirtingar; 2- umr. Frv. samþ. og vísað til 3. umr. í einu hljóði. Sig. Sig., Stef. Stef., Þór. Jóns. og Ól. Briem. Pétur Jónsson greiddi ekki atkv. og gerði enga grein fyrir ástæðum sínum til þess, og kvaðst forseti mundu beita við hann hegningu eftir fyrirmælum þingskapanna. En þingsköp mæla svo fyrir, að ef þingm. neitar að greiða atkv. og ber ekki fyrir sig þær ástæður, er teknar verði til greina af deildinni, missi hann dagpeninga sína þann dag. Frv. vísað til 3. umr. með 13:11 atkv. að viðhöfðu nafnakalli. 8. Frv. um stofnun hjónabands; 2. umr. Frv. samþ. með breytingum eftir tillögu allsherjarnefndar og vísað til 3. umr. í e. hlj. 9. Frv. um framlenging á frið- unartíma hreindýra; 2. umr. Frv. samþ. og vísað til 3. umr. f e. hlj. 10. Frv. um breyting á lögum um umboð þjóðjarða; 1. umr. Frv. vísað til 2. umr. í e. hlj. 11. Fnv um lögráð; 1. umr. Frv. vísað til 2. umr. í e. hlj. og til allsherjarnefndar. 12. Frv. um heimild fyrir stjórn- arráð íslands til að setja reglugerð um notkun hafna; 1. umr. Tekið út af dagskrá. 13. Frv. um að reikna verka- mönnum hins íslenzka ríkis kaup í landaurum; 1. umr. Tekið út af dagskrá. 14. Frv. um misærisskatt af tekj- um; 1. umr. Tekið út af dagskrá. IS- Frv. um veðurathugunarstöð í Reykjavík; 1. umr. Tekið út af dagskrá. 16. Tillaga til þingsályktunar um konungsúrskurð um fullkominn sigl- ingafána fyrir Island; ein umr. Bjarni Jímsson hafði framsögu og mun ræða hans birtast hér í blaðinu. Forsatisráðherra kvað ráðuneytið mundu gera sitt ýtrasta til að beit- ast fyrir málinu hið fyrsta. Var tillagan samþ. með einróma 23 atkv. að viðhöfðu nafnakalli. — Afgr. til Ed. 7. Frv. um að skipa dr. phil. Guðmund Finnbogason kennara í bagnýtri sálarfræði við háskóla ís- lands; 2. umr. Bjarni Jónsson mælti fast með frv., en i móti Einar Jónsson og Jörundur Brynjólfsson. Var frv. samþ. með 12:11 atkv. að viðhöfðu nafna- kalli og sögðu já: Bjarni Jónsson, Björn Kristjánsson, Björn Stef., Einar Arnórss., Gísli Sveinss., Jón Jónss., Jón Magn., Magn. Pét., Matth. Ól., Sveinn Ól., Þorl. Jóns., og Þorst. Jóns. Nei sögðu: Einar Árna, Einar Jóns., Hákon Krist., Jör. Bryni., Magn. Guðm., Pét. Ott., Pét. Þórð., Rú88ne8ka kveaþjóOin hefir nú látið til sín taka um það að handsama og framselja strokumenn úr hernum. Er það haft eftir blöð- unum i Petrograd að fjöldi kvenna hafi komið saman á ráðstefnu i Tam- boy-héraði og hafi þær samþykt að framselja alla strokumenn í hendur yfirvaldanna, enda þótt það værn þeirra eigin menn. Eitt blaðið segir að tiu konur i Kozlov hafi dregið þrjá stroku-hermenn til herstöðvanna og meðal þessara kvenna hefðu ver-- ið konur tveggja þeirra. i 1 . ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.