Morgunblaðið - 24.10.1917, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Verzlunin
VÍSIR
Nýkomnar vörur:
Margarini, ágæt tegund,
Ostar,
Hveiti,
Haframjöl,
Kartöflumjöl,
Sago.
0
Kex
ótal tegundir, sætt og ósætt.
0
Avextir,
þurkaðir og niðursoðnir,
fjölbreytt úrval.
0
Handa reykingamönnum
Three Castle
Capstan,
Flag,
Louisville,
Westminster,
Glasgow Mixfure,
Richmond Mixture,
Navy Cut,
Smoking Mixture.
#
Vfsis kaffi
gerir alla glaða.
«
Verzlunin
Simi 555.
úreyringum er ísl. fáninn á stöng
með útskornum stalli, frá Skag-
firðingum skriffærastallur (blek-
stativ) ásamt reglustriku, penna-
stöng og pappírshníf, alt hin feg-
ursta hagleikssmíð eftir Stefán
Eiríksson; frá ísfirðingum göngu-
stafur, silfurbúinn með áletrun,
frá Reykvíkingum (nefndinni) mál-
verk, »Jökulhlaup« eftir Ásgrím
Jónsson, frá Ársæli Árnasyni And-
vökur Stephans bundnar í hákarls-
skráp. Auk þess máluð andlits-
mynd af Stephani eftir Magnús
Á. Árnason, mótuð mynd eftir
Ríkharð Jónsson og »Drangey«,
málverk og gjöf frá Einari Jóns-
syni málara. Gerðust margir til
þess að skoða gjafir þessar og
þóttu þær bæði fagrar og þjóð-
legar, svo sem vera bar.
...... I »---------
+
Tiyggvi Gunnno
lézt aðfaranótt sunnudagsins 21.
þ. m. tveim árum og tveim dög-
um betur en áttræður. Hafði
hann haft fótavist alt þangað til
á laugardaginn, en mjög fór þó
máttur hans þverrandi síðasta
misserið. <;
Tryggvi var af manntaks-
mönnum kominn í báðar ættir,
enda var hann hinn mesti at-
orkumaður sinnar samtíðar. I
æsku nam hann smíðar og stund-
aði búfræði um hríð í Noregi áð-
ur hann hóf búskap á Hallgils-
stöðum í Fnjóskadal. En brátt
gaf hann sig við umsvifamiklum
Btörfum, gekst mjög fyrir stofn-
un Gránufélagsins og var kjör-
inn »kaupstjóri« þess, þegar er
það var stofnað og gengdi þeim
starfa yfir 20 ár. Dvaldist hann
þá lengstum í Kaupmannahöfn.
Síðan gerðist hann bankastjóri
landsbankans og stýrði bankan-
um í 17 ár.
Alþingismaður var Tryggvi
fyrst kosinn af Norður-Þingey-
ingum 1869, og sat á þingi löng-
um siðan, en þó eigi samfleytt.
Alls mun hann setið hafa á 16
þingum. Var hann framan af í
öndverðri fylking Jóns Sigurðs-
sonar og all-þingríkur, en þótti
deigari í sjálfstæðiskröfunum á
efri árum og réð þá minna.
Tryggvi hafði um langan aldur
ágætt færi á að láta mikið gagn
af sér standa, enda var hann við
margar framkvæmdir riðinp. Var
það hvorttveggja, að hann var
hagur sjálfur og lagði hug á
mannvirki, enda tókst hann á
hendur og stóð fyrir smíð brúnna
á Skjálfandafljóti og ölfusá,
Landsbankahússins og margra
annara mannvirkja. Hann ýtti
undir stofnun margra fyrirtækja
og var formaður fjölda félaga;
áttu þau þar hauk í horni, er
bankastjórinn var. Þilskipaút-
gerðina studdi hann einkum kapp-
samlega1).
Langan aldur var Tryggvi
formaður Hins íslenzka Þjóðvina-
félags. Gat hann með miklum
sanni sagt, að »félagið væri hann
sjálfur*, enda var honum ekki
mikið um gefið annara afskifti
af stjórn þess. Almanakið gaf
hann út um fjölda ára og safn-
aði í það margvíslegum fróðleik;
vann það sér meiri kaupenda-
fjölda en nokkur bók önnur i
landinu.
Þrek og kjarkur var Tryggva
gefinn óbilandi og mjög var hann
verksígjarn. Kappsmaður varhann
og metnaðargjarn, en ófíkinn á fé;
lagði ódeigur í mörg fyrirtæki
meir til þess að láta starf af sér
standa heldur en í gróðaskyni,
enda síður sýnt um nákvæmni
við reikningagerð, heldur hitt,
að nokkuð væri aðhafst.
Mannúðarmaður var Tryggvi á
ýmsa lund, hjálpsamur mörgum
er leituðu ásjár hans. Dýravinur
var hann mikill, sem ritgerðir
hans (í »Dýravininum«) bera ljóst
vitni um.
Tryggvi var hár á velli, mik-
ill bolsvexti, karlmannlegur, fríð-
ur »ýnum, manna sterkastur og
lengstum hraustur að heilsu.
Tryggvi gróðursetti Alþingis-
garðinn trjám og skrautjurtum
og vann þar að löngum í tóm-
stundum sínum. Er sagt, að hann
muni þar heygður verða.
B. Sv.
Fossanefndin.
Hún hefir nú verið skipuð af kon-
ungi og eiga í henni sæti þessir
menn :
Guðm. Björnson landlæknir for-
maður.
Sveinn Ólafsson i Firði.
Bjarni Jónsson frá Vogi.
Jón Þorláksson verkfræðingur og
Guðm. Eggerz sýslumaður Árnes-
inga.
Að likindum mun nefnd þessi taka
sér ferð á hendur til Noregs til þess
að skoða þar »fossafyrirtæki«. Kem-
ur hún því vonandi heim aftur full
fróðleiks og með góð ráð og holl
landinu til heilla í þessu þýðingar-
mikla máli.
Kveikt á Ijóskerum hjólft og bif-
relða kl. ö1/^
Hólmfriður Árnadóttir kenslukona
fór nú með Lagarfossi til Ameríku.
Fyrsta útgerðarfélagið stofn-
aði Tryggvi fyrir sextigum vetra
norður í Þingeyjarþingi; keypti
þá við fjórða mann þilskip til
hákarlaveiða.
Hygst hún að dvelja þar eitfc ár. Bað
hún Morgunblaðið að flytja þeim vin-
um sínum og kunningjum kæra kveðju,
sem hún náði eigi fundl af.
Gangverð erlendrar myntar.
Dollaf Bankar 3,40 Pósthús 3,60
Franki 57,00 57,00
Sænsk króna ... 119,00 116,00
Norsk króna ... 102,50 103,00
Sterlingspund ... 15,40 15,50
Mark 45,00 45,00
Áttatíu og fjogra ára afmæli á
Jóhanna Zoéga, systir Geirs rektors,
í dag.
»Beautiful Star«, færeyskt fiski—
skip fór hóðan fyrlr rúmum þrem
vlkum og átti að tlytja vörur til
Sauðárkróks og fara þaðan norður á-
Tjörnes og taka þar kolafarm. En
síðan hefir ekkert frézt til skipsins og
eru menn hræddir um það. Skipstjóri
var Ólafur Sigurðsson og stýrimaður
Lárus Bjarnason.
Lagarfoss átti að fara hóðan í fyrra-
dag, en komst eigi á stað vegna veð-
urs. Gullfoss á að fara hóðan í dag og
verða þeir ef til vill samferða »foss--
arnir«.
Hermann Jónasson rithöfundur
fer héðan með Gullfossi í dag og ætl-
ar að fara vestur að Kyrrahafi til
dóttur sinnar og bróður síns. Hefir'
hann í hyggju að dvelja þar í vetur
og ef til vill frameftir sumri.
.... ....-. r-g-i-Ss.......
Fáninn.
Engar fregnir hafa enn komið
frá forsætisráðherra vorum, en
þeirra er nú vænst á hverristundu.
Bíða menn þess nú með óþreyju
að fá að vita hver afdrif fána-
málið fær.
Að óreyndu mun ástæðulaust
að ætla annað en að forsætisráð--
herra fylgi því máli fram með
festu og einurð. Hefir hann þar
að baki sér þingviljann óskiftan
og þjóðina sem einn mann.
Eftir andanum í sumum dönsk-
um blöðum má búast við þvi, að
einhverir Danh- muni reyna að
spilla fyrir því að við fáum fán-
ann. En í því máli er rétturinn
óskiftur okkar megin og auk þess
getur forsætisráðherra sýnt það
ljóslega að okkur er það bráð
nauðsyn að fá fánann. Hefir hann
því svo góða aðstöðu sem hugs-
ast getur. 0g enginn skyldi trúa
öðru um konung en að honum sé
svo ant um hag hinna íslenzku
þegna sinna, að hann vilji þeim
hið bezta í öllu.
En danskar raddir hafa heyrst
um það að betri væri skilnaður
heldur en ísland fengi sérstakan
fána. Og verði það nú ofan á,
að þetta sé vilji þeirra, þá er það
vonandi að íslenzka þjóðin geti
gefið góð svör og greið. En heflr