Morgunblaðið - 16.02.1918, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.02.1918, Blaðsíða 3
Spejepylsa fæst í Matardeildinni í Hafnarstræti. Tóbaksdósir komnar í Tóbakshíisið. Kona, sem á telpu 6 ára, óskar eftir góðu herbergi með góðum hús- gögnum, hjá góðri fjölskyldn, sem einnig vill selja þeim mat. Verðið er aukaatriði. Tilboð mrk. »Kona«, sendist Morgunbl. sem fyrst. Bæjarskrá Reykjavíkur 1918 er nú í undirbúningi í prentsmiðjunni. VerS- ur Bkráin töluvert fjölbreyttari að þessu sinni en fyrri útgáfurnar. Feitmetissbortur er mjög farinn að gera vart við sig hór í bænum. Smjör nær ófáanlegt og litið kemur af smjöriíki til landsins. Heimilið verður sýnt i siðasta sinn annað kvöld. Þar á eftir mun vera í ráði að leika »Ókunni maðurinn« og síðan líklega »Frænka Charles«, hvort- tveggja leikrit, sem sýnd hafa verið hór áður. Ágætur afli er nú syðra, en gæftir hafa verið fremur slæmar það sem af er. Herflutningar Bandaríkjamanna. í opinbera skeytinu síðastliðinn sunnudag var sagt frá því, að ame- rikska herflutningaskipinu »Tuscana« hafi verið sökt aí þýzkum kafbáti við írlandsstrendur. Var það í fyrsta sinni sem kafbátunum hafði tekist að granda skipi, sem flutti lið til Frakklands frá Ameríku. í erlendum blöðum frá janúar- byrjun er sagt frá þvi, að fyrsta her- skipið, sem Bandaríkjamenn hafi mist i ófriðnum, hafi verið tundur- spillir. Þýzkur kafbátur hafi skotið hann tundurskoyti íyrir verstan ís- land, en hafi þó eigi hæft hann bet- ur en það, að hann hafi komist i höfn á Bretlandi, svo skemdur þó, hann verði eigi sjófær fyr en að lokinni mikiili viðgerð. Sama blað hermir og þá fregn, að ameríkska herflutningaskipið »An- hflesf hafi verið kafskotið af þýzk- 1,111 kafbáti skamt fyrir vestan Eng- *aQd. Var það skip á leið frá Frakk- *aQdi, eftir að hafa skilað af sérher- ^önnunum í franskri höfn, svo að ein áhrif á herflutainginn hefir þetta MORGUNBLAÐIÐ Taða og ágæfí úff)et) tií söíu i cKungu við cffieyMjavifi Simi 6£9 t Beztu flatningshnífar sem hér eru fáanlegir, eru seldip lang-édýra^t í Járnvörudeild Jes Zímsen. Hátt verö er borgað á afgreiðslnnni fyrir mámidegsbiaðið 28. yanúar 1918. Hin ágæta Overland-bitreiö R. E. 17 fæst til kaups nu þegar. — Semjið við Brlend Péturseon, á afgreiðslu Sameinaðaíél. Með 1000 króna afslætii fæst keyptur nú þegar nýr 10 hesta báísmótoi' með tilheyrandi varastykkjum. Magnús Guðmundsson, skipasmiður. i Nokknr Furuborð og Eikartré til skipabyggingar) til sölu hjá Carl Höepfner. Talsími 21. ekki. A skipinu voru samtals 257 menn og fórust 67 þeirra. Meðal þeirra sem fórust, voru nokkrir danskir íjómenn. — Það er enginn vafi á þvi, að Þjóð- verjar gera alt sem í þeirra valdi stendur til þess að hindra herflutn- ingaAmeríkumanna. En þeim hefir að eins tekist að granda einu skipi, sem herlið var á, og sýnir það glögt hve góðar eru varnir banda- manna gegn kafbátunum. Kafbál- arnir þora sjaldan i færi við vel vopnuð skip, en hitt þora þeir, að ráðast að óvopnuðum skipum, þar sem þeir vita að þeim sjálfum er óhætt. Það þykir þeim hin mesta frægð og hreysti. Sambandsfáni Norðurlauda. Hér i blaðinu hefir áður verið getið um þá hugmynd, að Norður- lönd stofnuðu eitt sambandsríki, og var þar einnig sagt frá þvi, hvernig menn hefði hugsað sér sambands- fánann. Dönsk blöð hafa auðvitað lika- skýrt frá þessu máli, en þótt 3 það væri eigi margbrotið, hefir þeim þó tekist að sýna þar fáfræði sina um ísland, eins og myndin hér að ofan ber með sér. Hún er tekin eftir dönsku blaði og þar segir svo: — Höfundur uppástungunnar um sambandsríki Norðurlauda, hefir ræki- lega athugað málið. Það sýnir meðal annars uppkast hans að sambands- fánanum. Að ofan eru fánar Svia og Dana, að neðan fánar Norðmanna og íslendinga. — Virðingin skiftist þannig eftir fólksfjölda þjóðanna, en því má breyta með því að sniía fán- anum við. Fána hinna þriggja Norð- urlanda þekkja allir. Islenzki fdninn er blár með rauðum krossi, o% innan í honum hvítur kross! Siðustu simfregnir Rúmenar neita að semja frið. K.höfn 15. febr. Frá Washington er símað, að Rúmenar hafi skorast undan að semja sérfrið, eins og Mackensen fór fram á við þá. Pólska stjórnin segir af sér. K.höfn 15. febr. Stjórn Pólverja hefir neitað að viðurkenna friðarsamninga þá, sem Miðveldin hafa gert við Ukraine- stjórnina og sagt af sér þegar í stað. Lloyd George sigrar. K.höfn 15. febr. Frá London er símað, að við um- ræður i neðri deild þingsins, hafi stjórnin fengið traustsyfirlýsingu frá meirihluta þingmanna og Lloyd. George þannig sigrað í deilunni við Asquith. Ho furnar að austan. K.höfn 15. febr. »Berliner Tageblattc álitur að ófrið- urinn við Rússa sé eigi á enda kljáður ennþá, meðan Krylenko hafi eigi verið tekinn fastur, þvi að nú hafi hann afturkallað skipun um það, að uppleysa rússneska herinn. Hörmungar Finna. Khöfn 1s. febr. í Finnlandi vaða hermenn Rússa uppi með báli og brandi og myrða saklausa borgara, konur og börn, hrönnum saman. — Rússneskir hermenn á Álandseyj- um óttast það, að Sviar muni sker- ast í leikinn. Fulltrúi Maximalista i Stokkhólmi er farinn þaðan til Álandseyja, til þess að reyna að stöðva blóð^út- hellingarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.