Morgunblaðið - 13.06.1918, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.06.1918, Blaðsíða 3
MORQUNBLAÐIÐ 3 3- gr- Útflutningsnefndin sinnir eigi framboðutn nema frá kaupmönnum, er kaupa fisk fyrir eigin reikning til heildsölu innanlands eða til útflutnings, ellegarfrá fjelögum, er útflutningsnefndin viðutkennir, svo og frá útgerðar- mönnum er hafa talsverða framleiðslu. Sökum nauðsynlegra ráðstafana er mælst til, að allir kaupmenn, fjelög og útgerðarmenn sem hafa fisk með höndum, komi með framboð sín svo fljótt sem unt er. Og eigi mega þau síðar veta fram komin en 15. júli næstk. 4- gr- Samkvæmt nefndum samningi er verðið á fyrstu 12000 smál. af allskonar fiski, sem Bandamenn kaupa, pannig: a. Óþurkaður saltíiskur. Stórfiskur...........................kilogr. 0.61 Stór netjafiskur....................... — 0.57 Smáfiskur (allar tegundir) .... — °-5^ Ýsa.................................... — 0.49 Upsi................................... — 0.46 Keila.................................. — 0.47 Langa.................................. — o.6i b. Fullverkaður saltflskur. Stórfiskur nr. 1..............skpd. 170 kr. ----— 2.......................— i54 — ----lakari tegundir, þar með talinn lakur netjafiskur . — 140 — Netjafiskur stór nr. z .... — 161 — ----— — 2 .... — 149 — Smáfiskur nr. 1.................— 157 — ----— 2 ...............— 149 — Labradorfiskur, þurkaður sem venja er til........................— 123 — Ýsa nr. 1.......................— 140 — — — 2.........................— 132 — Upsi nr. 1......................— 132 — — — 2........................— 123 — Keila nr. 1......................— i4o _________ — — 2.......................— 132 — Langa ur. ...........................— 17° — — — 2.......................— 134 — Alt verðið er háð þeim skilyrðum, sem tilgreind eru hjer á eftir, Og gilda þau skilyrði einnig um fullverkaðan saltfisk, það sem þau ná. 5. gr- - Allur saltfiskur á að vera metinn af hinum skipuðu eiðsvörnu mats- mönnum, sem staðfesta að fiskurinn sje vel saltaður og óaðfinnanleg góð vara, af hverri tegund út af fyrir sig, og skal fiskurinn hafa legið að minsta kosti 28 daga í salti, áður en hann er vigtaður til sölu. ^ 6. gr. Fulltrúi Bandamanna getur krafist 14 daga frests til að ákveða, hvort hann vilji sinna kaupum, þó getur hann, ef þörf þykir, krafist lengri fíffia til að lúka skoðun á fiskinum, og ákveða um kaupin að því búnu. Sinni hann kaupum, mega liða 30 dagar þangað til borgun ferfram, eða 30 dagar frá því að vottorð matsmanna hefir borist fulltrúanum; en verði vörunni skipað út fyrir þann tíma, skal verðið greitt um leið. Ganga má að þvi visu, að fulltrúinn kaupi allan þann óþurkaða salt- fisk, sem boðinn verður innan hins ákveðna tíma (sjá 3. gr.) og á stöð- um þeim, sem tilteknir eru í 2. gr. 7- gr- Skylt er seljendum að flytja allan fisk um borð, greiða tolla og ðnn- ur gjöld kaupanda að kostnaðarlausu og skal fiskurinn allur vera pakkað- ur i hreinar, sterkar strigaumbúðir (Hessian), ef krafist verður og sje það hægt, og i 50 kg. pakka, auk umbúða, eða bundinn með snærum i 50 kg. bindum, eða laus i skip, alt eftir vali kaupanda. Sje fiskurinn að- eins i bindum, skal dregið frá andvirði hans kr. 1,75 fyrir hver 160 kg., en sje honum hlaðið lausum i skip skulu dregnir frá 50 aurar fyrir hver l6o kg., sem þóknun fyrir innanklæðning i skipið. 8. gr. Á meðan fiskinum er eigi skipað út, hvílir vátryggingarskylda á seljendum, á ábyrgð landsstjórnar, en kaupandinn endurgreiði vátrygging- argjaldið hlutfallslega fyrir þann tíma, sem fram yfir er 30 daga frá því kaup gerðust i hvert skifti. Sömuleiðis er það skylda seljanda, að geyma fiskinn í sinum húsum meðan honum er ekki skipað út, en seljendur fá borgaðan geymslukostnað, hlutfallslega fyrir þann tlma, sem fram yfir er 30 daga frá þvi að kaupin gerðust, og skal það reiknað eftir þvi sem venja er til, eða eftir samkomulagi. Kröfur um endurgreiðslu á slíkum gjöldum skulu sendar útflutningsnefndinni tafarlaust, þegar varan er komin um borð. 9- gr- Komi það fyrir, að fulltrúi Bandamanna afsali forkaupsrjetti sinum, má útflutningsnefndin flytja vöruna út til viðtakanda i löndum Banda- manna, Bandaríkjanna í Norður-Ameríku, eða til viðurkendra viðtakenda í viðurkendum hlutlausum löndum að áliti Bandamanna. 10. gr. Komi það fyrir, að fulltrúi Bandamanna kaupi meira, en ofangreind- ar 12000 smálestir af allskonar fiski, er verðið ákveðið þannig: a. Óþurkaður saltfiskur. Stórfiskur . kilogr. 0.90 Stór netjafiskur 0.85 Smáfiskur (allar tegundir) . . . — 0.82 Ýsa 0.72 Upsi 0.67 Keila 0.70 Langa 0.90 b. Fullverkaður saltfiskur. Stórfiskur nr. 1 . skpd. 250 kr. -----— 2.........................— 225 — -----lakari tegundir, þar með talinn lakur netjafiskur . — 206 — Netjafiskur stór nr. 1 .... — 237 — Smáfiskur nr. 1......................— 231 — ----- — 2......................— 219 — Labradorfiskur, þurkaður sem venja er til...............................— 181 — Ýsa nr. 1..............................— 206 — — — 2..............................— 194 — Upsi nr. 1.............................— 194 — — — 2..............................— 181 — Keila nr. 1........................... — 206 — — — 2..............................— 194 ~ Langa nr. 1............................— 250 — — — 2..............................— 225 — Kaup með þessu verði eru háð sömu kvöðum og skilyrðum, sem þegar eru tekin fram. 11. gr. Verð fyrir þann fisk, sem seldur verður umfram tilgreindar 12000 smálestir, hvort heldur að fiskurinn selst til fulltrúa Bandamanna eða frjáls sala fæst á honum til tiltekinna landa, verður að lokum lagt við' verðið fyrir ofannefndar 12000 smálestir þannig, að eitt jafnaðarverð fáist, að kostnaði frádregnum, fyrir hverja tegund fiskjarins út af fyrir sig. Nánari reglur og leiðbeiningar um sölu og útflutning á fullverkuðum saltfiski verða auglýstar siðar. Reykjavik, n. júní 1918. Thor Jensen, Pjetur Jónsson. p. t. formaður. Ó. Benjamínsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.