Morgunblaðið - 25.06.1919, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.06.1919, Blaðsíða 4
MOBftUBBLAÐIB 4 *h. - <.vJfcr5*.k. iírUi=fírv* -r?'í't 'ftt."4:yer-íi^.--í FríBarskilmálsrnir Stjórnin þýzka hefir mælt mörg æðruorð út af friðarkostum Banda- manna og talið þá með öllu óhaf- andi. Eini flokkurirm í Þýzkalandi, sem þegar í stað taldi sjálfsagt að taka skilmálunum, voru óháðir jafnaðarmenn. En þeir Ebert og Scheidemann hafa tekið munninn sva fullan, að ólíklegt er að þeir ,geti undirskrifað samningana,nema þeim verði breytt til mikilla muna, og á því eru litlar horfur. En að hafna þeim er eigi að síður ógern- ingur. Gheti varúðarleysi ríkis- og ráðuneytisforsetans í ummælum þeirra því orðið til þess, að stjórn- arskifti yrðu í Þýzkalandi og óháð- ir jafnaðarmenn tækju við. En þá er hætt við að bolzhewisminn næði ráðunum í landinu. Friðarkostirnir þykja harðir. En hvernig hefðu þeir orðið, ef Þjóð- verjar hefðu sigrað? Yarla betri. Nokkra bendingu í þá átt gefa orð Vilhjálms uppgjafakeisara í ræðu, sem hann hélt í júlí 1917. Þar kemst hann svo að orði um skaðabæturnar: — Bandamenn verða að borga allan herkastnað Þjóðverja, þar með talin útgjöld vor til hervarna og heraukn- ingar á síðastliðnum 40 árum, sem er nálægt. 20,000 miljónir. Skuln þeir borga þetta með hráefnum og með því að láta af hendi helming alls verzlun- arflota síns og allar eignir og mann- virki, hvert heldur eru opinber eign eða einstakra manna, á landsvæðum þeim, er vér höfum tekið herskildi. Erzberger sagði svo um mála- gjöldin: — Þjóðverjar verða að takast á héndur alla vfirumsjón ekki að eins með Belgíu, heldur einnig allri frönsku ströndinni, frá Dunkerque til Bou- logne, og eignast allar eyjarnar í Erínasundi. Námurnar í franska hlut- anum af Lothringen verða að vera und- ir þýzku eftirliti. Skaðabætur þær, er bandamönnum verður gert að skyldu að borga, verða að hrökkva til fulls endurgjalds á herkostnaði vorum, og öllum þeim skaða, sem vér höfum beð- ið við ófriðinn. Þó þetta séu eigi löng ummæli né -margorð, ættu þau þó að geta sýnt, að Þjóðverjar mundu eigi hafa orð- ið hógværir né engillyndir, ef þeir hefðu staðið sem sigurvegarar yfir bandamönnum. Og framan af, með- an þeir þóttust vissir um sigur, létu þeir sem eigi mundi náðar að vænta ef bandamenn sigruðu. A fyrsta ó- friðarárinu gáfu þeir út tvö kort af Evrópu, og var yfirskriftin yfir öðru: „Ef vér sigrum“, en hinu: „Ef vér töpum“. Á fyrra kortinu var mikill hluti Vestur-Rússlands, Bélgía og alt Norður-Frakkland gert þýzkt. írland og Skotland voru lýðríki, undir yfirstjórn Prússa, Wales var þýzk nýlenda o. s. frv. Þó eigi megi taka þennan pappírs- snepil alvarlega — hann var af- sprengi hins takmarkalausa of- metnaðar og sigurvonar-vímu Þjóð- verja, er alla hlutleysingja furðaði á í þá daga — þá er hann samt sem -áður ímynd þýzku 'þjóðarlundar- Válryggingarfjelðgin Skandinavia - Baltica - National Hlutaf je samtals 43 millíóni? króna. íslands-deildin Trolie & Bothe h.f., Beykjavíh. Allskonar sJÓ- og striðsvátryggingar á skipum og vörum gegn lægstu iðgjöldum. Ofannefnd fjelög hafa afhent Islandsbanka í Reykjavik til geymslu hálfa millión krónur, sem tryggingarfje fyrir skaðabótagreiðslum. Fljót og góð skaðabótagreiðsla. Öll tjón verða gerð upp bjer á staðnum og fjelög þessri haía varnarþing hjer. BANKAMEÐMÆLI: Isiandftbanki. i Nokkrir menn óskaat í vlnnu nú þegar. Hátt kaup. Upplýslngar á Laugavegi 2. Herved meddeles at Herr Aane Stangeland er udtraadt av vort firma. Dette fortsættes VÁTBYGGIBG43. TRONDHJÍEKS VÁTBYGGINGABTlLBG, U Alls konar bnmetryggfncftS, ABalaumboðsmaður Carl Finseu, Skálholti, Reykjavík. Skrifstofut. 5Ya—6% sd. Tal*. 881« GUNNAB EGILSOM, skipamiðlari, Hafnarstræti 15 (uppl). Skrifstofan opin kl. 10-4. Sími 888, »jó-, Stnðs-, BnmatrycgingaCc Talsími heima 479. DET KGL. OCTB. BBANDABSUBABOH Kaupmannahöfn vfctryggir: hús, húsgögn, alls kenSK ▼ömforða o. s. frv. gegn sldsT«8f fyrir lægsta iðgjaid. Eoima kl. 8—12 f. h. og 2—4 a. K, í Austurstr. 1 (búð L. Niolsen), N. B. Nielse& BBUNATBYGGIHOAE sjó- og stríðsvátryggingar. O. Johnson k Kaabefr med Herr Franz Gmmeten, sera disponent og enebestyrer. * Kontoret blir i.ste Juli overflyttet Þa Stavanger til Kristiaaia. Adresse Stonersgadoa 9. A.S. Norsk-lslandsk Handolskompani. Telegr.adr.: Kompaniet. „SUN INSUBANCE OFFIOB” Heimsins elzta og stærsta vitrygg’* bigarfélag. Tekur að sér alls koæsas, brunatryggþigar. AðalumbofsmaBur liér <t landi > Matthías Matthiasson, Holti. Taköaí 48f» innar, eins og hún var þegar ófrið- urinn hófst. Þjóðverjar v.oru mestir bardagamenn og vígafúsast- ir allra þjóða. Það viðurkenna þeir líka nú. En þeir bæta við, að hinir leiðandi menn, sem réðu í þá daga, séu úr sögunni. Keisarinn flúinn og „junkara“-valdið horfið úr sög- unni. Nú sé við aðra menn að eiga: friðelskandi fulltrúa þjóðarinnar sjálfrar, sem aldrei hafi viljað ó- frið. Þeir segja að það sé ranglátt, að láta þjóðina gjalda glópsku þeirra manna, sem áður höfðu völdin. Og sennilegt er, að meiri hluti friðarfulltrúanna hafi viljað verða betur við þessari kenningu, en skil- málarnir bera með sér. Um Wil- son er það víst, að hann hefir vilj- að alt annað og sennilegt um Lloyd Geoi-ge. En jreir hafa orðið að lúta i lægra haldi fyrir „tígris“-dýrinu, sem kallað er, hinum eitilliarða og ósveigjanlega Clemenceau. Clemenceau er maður hins gamla tíma. Hugsjónir Wilsons hafa ekki verkað á hann fremur en fjöður á stálbút. Hann fer sínu fram, og al- varlegur mótþrói gegn.honum hefði orðið til þess að tefja og máske eyðileggja til fulls athafnir friðar- ráðstefnunnar. Friðarskilmálarnir verða því að teljast hans Verk fyrst og fremst. Og ástandið í heiminum á kom- andi tíma verður máske honum að kenna eða þakka fremur flestum öðrum. Það færi betur, að enginn þyrfti að óska þess á næstu árum, að tilræðismaðurinn, sem veitti hon- um áverkann í vetur, hefði verið betri skytta. Grein þessi er r luð áður en f étt- i?t nm urdirskr fi frir'j sla'málanna. LandspitRlasjöðtinnn Síðan 19. júní liafa forgöngu- nefnd landspítalasjóðsiiis borist margar gjafir utan af landi og víð- ar. Frá kvenfélaginu á Eskifirði komu kr. 200.00 og frá verkakon- um í „Svendborg“ í Hafnarfirði kr. 110.00. Með loftskeyti frá „Gull- fossi“ barst og nefndinni tilkynn- iug um það, að 19. júní hefði far- þegar skotið saman 5000 kr. handa landspítalasjóðnum, og var það lag- lega af sér vikið. Enn fremur kom heillaóskaskeyti frá kvenfélagiuu „Brynja“ á Flateyri og tilkynning um það, að símaávísun væri á leið- inni. Þá kom og 100 króna áheit frá íjölbreyttasta úrval 4 landinu," er i Kolasundi hjá Daniel HalJdórssyni. 1AUMASTOFAX. fjölbreytt úrval *f dijt konar Patatfnnm. ■; fyrst . 7ÖBUH0BIÐ. dreng í Borgarfirði og margar fleirí g'jafir og áheit. Fjársöfnunin hér í Reykjavík mun hafa gengið vel, en* enn þá hafa reikningar eigi verið uppgerð- ir, svo að ekki er hægt að segja með vissu, hve mikið hefir inn kom- ið. En ætla má, að sú von landspít- alasjóðsnefndarinnar rætist, að sjóðurinn komist ujip í 1^0 þus. a þessu ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.