Morgunblaðið - 28.06.1922, Síða 4
MOBGUNBLABXB
»Gott kvöld«f sagði hann, þegar
Breitenbach hneygði sig knrteyslega.
Og án þess að afsaka nokkuð að
hann hefði verið látinn bíða, bætti
hann við:
»Mjer hefir verið sagt að þjer
befðuð áriðandi mál að tala við mig.
Viljið þjer svo vel gera að vera
stuttorður því eg hefi mjög naum-
an tíma!»
Af því að hann hvorki fekk sjer
sjálfur sæti nje bauð Breitenback
það, varð hann að gera sjer að góðu
að standa, hvort sem hann vildi eða
ekki. En i rauninni þótti honum
ekkert að þvi. Hann var töluvert
hærri en hinn magri og mjói rit-
stjóri og fann til likamlegra yfir-
burða sinna yfir hann, og gaf það
honum nokkurskonar uppbót fyrir
áfall það sem sjálfsþótti hans hafði
fengið við móttökurnar.
»Mjer hefir i dag borist nafnlaust
brjef, þar sem mjer er sagt að
»Herold« ætli að flytja eftirtekta-
verða grein um verslunarbankaun,
má jeg spyrja yður herra ritstjóri,
hvort það sje svo?«
»|i 1«
»Si, sem brjefið skrifar, talar um
að flett muni verða ofan af ýmsu,
sem vekja muni mikla eftirtekt al-
menDÍngs. Mjer er með öllu
óskiljanlegt, hvað átt getur verið
við með þessu og jeg efast ekkert
um að brjefritarinn muni vera að
gera hlægilega tilraun til að hræða
mig, því ef að þessi blaðagrein er
þannig úr garði gerð, sem lýst er
i brjefinu hefðuð þjer auðvitað ekki
látið hjá líða að sýna mjer hana og
heyra álit mitt um hana«.
»jeg get enga ástæðu sjeð til þess,
þegar jeg hafði fullkomna vissu fyr-
ir að upplýsingar þær, sem mjer
voru gefnar væru allar á rökum
bygðar. — En fyrst þjer fóíuð að
ómaka yður hingað vil jeg gefa
yður tækifæri tilj að lesa greinina;
gerið svo vel hjer er hún«.
Breitenbach hjelt nú á annari
próförk, af sama tagi og hinni fyrri,
og þó hann kynni hvert'orð f henni
utanað, Ijet hann þó, sem hann
læsi hana vandlega. Hvað eftir
annað ljek háðsbios um varir hans,
og loks lagði hann blaðið frá sjerá
borðið.
-5 DAGBÖK. =-
Allakonar
skófatnaður
bestur og ódýrastor hjð
Hvanaibergsbrðeðrum
Leikmót íþróttafjelags Reykjavíkur
yerður haldið á íþróttavellmum laug-
ardag 8. og suunudag 9. júlí, en ekki
um miðjan júlí, eins og áður hefir
verið auglýst. Hefir mótið verið flutt
fram um eina viku, vegna þess a@
skotsku knattspyrnumennirnir koma
hingað 16. júlí. Á mótinu verður
kept í 100, 800, 1500 og 5000 metra
hiaupi og 4X100 metra boðhlaupi
og einnig 3000 metra stokkahlaupi,
hástökki, langstökki og stangarstökki
og kringlukasti, spjótkasti og kúlu-
varpi með betri hendi. Verða þrenn
verðlaun- veitt í hverri íþróttagrein.
Má búast við að ýmsir nýjir menn,
sem staddir eru bjer á námsskeiði
Iþróttafjelagsins taki þátt í mótinu,
en í hópi þeirra eru margir, sem
eflaust eru ágæt íþróttamannaefni
og sumir jafnvel líklegir til að setja
ný met. Þátttakendur eiga að gefa
sig fram við formann fþróttafje-
lagsins fyrir 5. júlí.
Hljómleikar Eggerts Stefánssonar
í Báruhúsinu í gærkveldi voru haldn-
ir fyrir fullu húsi áheyrenda og voru
aðgöngumiðar allir útseldir um há-
degi í gær. Eggert var margkallað-
ur fram og varð að endurtaka sumt
°g syngja mörg aukalög. Sigur hans
var fullkominn.
Skotsku knattspyrnumennirnir, sem
Olympíunefnd knattspyrnumanna hef-
ir boðið hingað, eru væntanlegir með
Gullfossi, sem kemur hingað 16. júlí.
Eru þessir menn frá f jelaginu „Edin-
burgt Civil Service Pootboll Club“
og meðal þeirra eru ýmsir mjög
góðir knattspyrnumenn, til dæmis
keptu isumir af þeim sem hingað
koma, með fjelaginu „Queens Park“
í Kaupmannahöfn í fyrra. Knatt-
spyrnumennirnir eru 16 talsins og
heitir foringi þeirra G. H. Mitchell.
Sennilega leika þeir fjóra kappleiki
h.;er, tvo við tvö af fjelögunum hjer,
sitt í hvoru lagi og tvo við samsett-
an flokk, en eigi er þetta fyllilega
afráðið enn. Knattspyrnumennirnir
standa hjer við 10 daga og fara aft-
ur með Gullfossi. Verða þeir gestir
ýmsra bæjarbúa meðan þeir standa
við hjer í bænum.
Læknaþingið hófst í fyrradag og
eru fundir þess haldnir í samkomu-
sal neðri deildar alþingis. Á þinginu
eru bæjarlæknarnir allir, sem ekki
eru komnir í sumarfrí, og þessir að-
komulæknar: Guðmundur Guðfinns-
son á Stórólfshvoli, Halldór Gunn-
laugsson og Páll Kolka í Vestmanna-
eyjum, Ólafur Finsen á Akranesi,
Sigurjón Jónsson á Dalvík, pórður
Pálsson i Borgarnesi, Eiríkur Kjær-
ulf á ísafirði, Guðmundur Guðmunds-
son í Stykkishólmi, Magnús Pjeturs-
son á Hólmavík og Björgúlfur Ólafs-
son læknir í Singapore. Aðalmálið
sem fyrir þessu þingi liggur er berkla
varnamálið og hóf Guðmundur Björn-
son landlæknir nmræður um það, Eru
skoðanir lækna mjög skiftar í því
máli. f fyrrakvöld höfðu læknar sam-
sæti á Hótel ísland.
Inntökupróf Mentaskólans hófst í
gær og heldur áfram í dag. Ganga
52 nemendur undir prófið að þessu
sinni.
Dr. Páll Eggert Ólason prófessor
fór til Englands með Maí í fyrra-
dag. Ætlar hann að dvelja í London
mánaðartíma við skjalarannsóknir í
British Museum.
1
__ íþróttamót verður haldið að Þjórs-
ártúni á laugardaginn kemur og eru
það ungmennafjelög Árness- og Rang-
árvallasýslu, sem gangast fyrir því.
Verður þar kept í ýmsum íþróttum,
bvo sem hlaupum og stökki og kapp-
glíma háð nm farand-skjöld íþrótta-
eambandsins „Skarphjeðinn“. Sama
daginn verður að tilhlutun Sam-
vinnuflokksins landsmálafundur hald-
inn við pjórsárbrú í tilefni af lands-
kjörinu 8. júlí. Pjöldi fólks hjeðan
nr bænnm ætlar að sækja mótið ef
veður verður sæmilegt.
Jón Stefánsson málari er á förum
hjeðan austur í Skaftafellssýslu og
ætlar að dvelja þar fram eftir snmri
og mála. Býst hann við að fara alla
leið austur í Öræfi.
25 ára studentar. Vorið 1897 út-
skrifuðust 20 studentar frá Lærða
Fatapokinn
„ A 11 i d f p i “
nýkominn í
Bókaverslun ísafoldar.
800 kr. í silfri
eru til sölu. Tilboð leggist inn á
afgr. þeBsa blaða fyrir 30. þ. m.
í lokuðu brjeíi merkt: »22«.
Hafölöur,
Ijóðabók eftir Asm. Jónsson
frá Skúfstöðum.
Fæst bjá öllum bóksölum borg-
arinnar.
27. þ. m. var dregið um bapp-
drætti Landspitalasjóðsins á skrif-
stofu bæjarfógetans í Reykjavík
og komu þessi númer upp:
1. Gullúrið nr. 3832.
2. 2 armstjakar nr. 1742.
3. Dagstofuborð nr. 1451.
4. 100 kr. í peningum nr. 3540.
5. 2 serviettuhringir nr. 3648.
Munanna sje vitjað til frú Guð-
ríðar Guðmundsdóttur, Miðstr. 8a.
Víkingur
þakpappinn er endingarbestur.
Fæst aðeins hjá
Hf. Carl Höepfner.
Vasabók hefir tapast. Finn-
andi vinsamlega beðinn að skila
henni i ísafoldarprentsmiðju h.f.
Sólrik stofa með húsgögnum
og sjerinngangi til leigu frá 1.
júli. Ræsting fylgir. A. v. á.
skólanum í Reykjavík. Fjórtán þeirra
koma hjer saman þessa dagana til
þess að minnast afmælisins og eru
það þessir menn: Læknarnir Halldór
Gimnlaugsson, Sigurjón Jónsson á
Dalvík og Eiríkur Kjerúlf, prestarn-
ii‘ Böðvar Bjarnason á Rafnseyri,
Gísli Skúlason á Stóra-Hrauni og
Ólafur Briem á Stóra-Núpi Sigurbj.
Á Gíslason cand. theol., Árni Páls-
son bókavörður, dr. Ólafur Dan.
Daníelsson, Jón Þorláksson verkfræð-
ingur, Eggert Claessen bankastjóri,
Jón Proppé kaupmaður, Sigfús Sveins
son kaupmaður á Norðfirði og Einar
Gunnarsson. Fjarverandi eru Elín
Jacohsen í Kaupmannahöfn, sem er
fyrsti kvenstúdentinn, sem útskrif-
ast hefir frá lærðum skóla hjer og
Jóhannes Jóhannesson læknir vestan
hafs
Magnús Jónsson fjármálaráðherra
fer með íslandi nú til Kaupmanna-
hafnar, og jafnframt í eftirlitsferð
til þeirra staða, sem skipið kemur
við á.
Reglugerð um sölu Spánarvínanna
er nú fullgerð og á leiðinni til al-
mennings í Lögbirtingablaðinn.
Eldur kom upp í bifreið nr. 209 í
gærkveldi. Slökkviliðið var kallað og
drap eldinn samstundis, svo bifreið-
in skemdist lítið sem ekkert.
I fjarveru minni
gegnir hr. hjeraðslækuir Jón Hj.
Sigurðsson læknistörfum fyrir mig
Sæm. Bjarnhjeðinssom
í. s. í. í. s. t
LEIKMÓT
Iþróttafjelags Reykjavíkur,
eem auglýst var þann 15. og 16. júlí, verður háð á Iþróttavellinum
í Reykjavík þ. 8. og 9. júli
(vegna komu skosku knattspyrnumanna hingað).
Kept verður í þessum íþróttum:
Hlaupuma 100 m., 800 m., 1500 m. 5000 m. og 4X100 m.
boðhlaupi. Einnig 3 km sveitarhlaupi (5 manna)
á skeiðbraut.
Stökkum: Hástökki, langstökki og stangarstökki.
Köstum: Kringlukasti, spjótkasti og kúluvarpi - betri handar.
Þrenn verðlaun verða veitt í hverri grein.
Þáttakendur gefi sig fram fyrir miðvikudag 5. júlí við for-
mann íþróttafjelags Reykjavíkur.
Framkvæmdanefndin.
Besla slldueilislsfl!i s saflrii
óskar eftir að verka í alt að 6000 tunnur í sumar. Fyrsta flokka
vinna. Talið við Kristjðn Guðmundsson, Skólavörðustíg 20 A
kl. 6-7.
Steinolía.
í dag og næstu daga seljum við nokkur hundruð tunnur aí
steinolíu, sjerstaklega góð ljósaolía, með mjög lágu verði.
Weiðapfæravepsluniii vGeysip‘.
Simi 817. Simi 817.
Uppboð
á tóbaksvörum og sælgætisvörum, tilheyrandi þrotabúí
Þorst. J. Sigurðssonar kaupmanns, verður haldið í Bárunni föstu-
daginn 30. þ. m. og hefst kl. 1 síðdegis.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 27. júní 1922.
Jóh. Jóhannesson.
Auglýsing.
Vegna málingar verða sundlaugarnar lokaðar í dag og á morgun.
"Jón og Olafur.
Molasykur í kössum
Haframjöl
Hrísgrjón
Hebe-mjólk
Rúsínur
Sveskjur
Epli, þurpuð
Mjólkurostur
Cacao
Ávaxtasulta
Kaffl, brent og malað
Mackarony
Soyja
»Henco« Blegesoda
Liveppool.
HMbunr ijwðrtwht kaapdr hhn
vwffi h.f.
Þar sem landsstjórnin hefir nú
selt til niðurrifs gistihúsið við
Geysir tek eg mjer fordæmið til
fyrirmyndar og tilkynni hjermeð
að jeg tek alls ekki á móti
ferðafólki framvegis.
Skipholti 20. júní 1922
Guðm. Erlendsson.
2 herbergi
með vönduðum húsgögum (þar á
meðal piano) til leigu í 3 mánuði.
Ef þjer notið einu sinni rjóe**
ann frá Mjólknrfjelaginu