Morgunblaðið - 13.11.1932, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.11.1932, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Stormvax. Útvegum yður þaulvanan mann til þess að þjetta hurðir og glugga í húsi yðar með hinu óbrigðula Stormvaxi. Árangurinn er sá, að hvorki rignir nje næðir í gegn um glugga þá, er áður voru óþjettir. Sanmastoia Valgeirs Kristjáassonar er flntt i Anstnrstræti 12 (taús Stefáns Gunnarssonar). Væntanlegt með e.s. Dettifoss. Epli, Delecious og Jonathan. Áppelsínur. — Laukur. Eggert Kristjánsson & Co> Slmar 1317 og 1400 jeg ætíð álitið að það væri skylda dómarans að skýra rjett frá stað- reyndum, en jeg hefi sýnt fram á hjer að framan að svo er ekki gert. Að lokum vil jeg taka það fram að það mun verða erfitt fyrir lög- fræðinga að semja fyrir menn um skuldir ef ekki er Ieyfilegt að leggja til grundvallar samningum efnahagsreikning liiggilts endur- skoðanda. Ef málaflutningsmaðurinn er ekki „politiskur“ mundi þó mega telja slíkt hætttulaust. Reykjavík 12. nóv. 1932. G. Þ. Kristur uort líf. Prjedikanir á öllum sunnu- og helgidögum kirkjuársins eftir Jón Helgason dr. theol. biskup yfir íslandi. Kostn- aðarmaður Bjarni J. Jó- hannesson. Bókin 616 bls. Ný bók. Það kemur engum á ó- vart. Það eru altaf að koma út nýjar bækur. Ný bók eftir biskup- inn. Það undrar engan, sem þekkir biskupinn. Þeir, sem hann þekkja, vita, að lionum er eðlilegt að vera síst.arfandi. „Látið mig kynnast manni, sem syngur glaður við vinnu sína“, segir Carlyle. Biskup inn er einmitt ríkur af slíkri starfsgleði. Dómarnir um biskup- inn geta verið á ýmsan veg eins og um aðra menn, en eitt mun mönnum koma saman um, er um hann skal dæma, að þar sje iðinn og starfandi maður. Kennari var biskupinn um ára- tugi, en hann hefir altaf verið það sem hann er enn, altaf verið læri- sveinn. Bækur hans, og þær eru margar, bera vott um lestur og fróðleik. Hin nýja bók hans ber vott um hið sama. Pjörutíu ár voru í sumar liðin frá því, að Jón Helgason steig í stól í fyrsta sinn hjer í dómkirkjunni, og er for- máli bókarinnar ritaður á þeim minningardegi. En hin fyrsta prje- dikun var byrjunin, því að fleiri hafa á eftir farið. Á liðnum ára- tugum hefir hann oft látið til sín heyra á þeim stað. Það var merkur viðburður í kirkjulífi Reykjavíkur, er Jón Helgason var vígður til prjedik- arastarfs í dómkirkjunni. Vígðist hann til þess starfs vorið 1895, og gegndi því starfi endurgjaldslaust um 13 ára skeið fjöldamörgum bæjarbúum til mikillar gleði. Þeir, er sóttu guðsþjónustu hans, &ttu góðar stundir og ógleymanlegar. Hver af þeim, er í dómkirkjunni voru á páskadagsmorgni 1906, get- ur gleymt þeirri morgunstund, er ræðuefnið hjet ,Gleðiefnið mesta' ? Var sú prjedikun huggunarræða til hinna mörgu, er áttu um sárt að binda vegna fráfalls hmna mörgu sjómanna, er druknuðu í ofviðrinu 7. apríl, og voru Reyk- víkingar sjónarvottar að hinu sorglega slysi, er skipshöfn einnar fiskiskútunnar ljet lífið við strönd Viðeyjár. Minningarnár geymast um fagra og áhugasama prjedikunarstarf- semi biskupsins. Þess vegna verður hin nýja bók „Kristur vort líf kærkomin þeim, er unna kirkju og kristindómi. Hvert er þá efnið í þessum pr je- dikunum 1 Jeg held, að þeirri spurningu sje best svarað með því sem sagt er á 40. og 41. bls. bókar- irinar. En þar segir svo: „Trúir þú á guðs kærleika, eins og Jesús Kristur hefir opinberað oss liann? Að trúa á Jesúrn Krist merkir á máli Jóhannesar guðspjallamanns, að trúa eða treysta opinberun guðs kærleika í honum, svo að vjer höndlum kærleikann eða til- einkum oss hann sem kærleika til vor sjálfra persónulega, gerum hann að undirstöðu lífs vors og hvílumst í honum í lífi og dauða“. Jeg vil benda á játning höfundar- ins, hans eigin trúarjátning: „í Kristi sje jeg guð; í Kristi elska jeg guð; í Kristi kemur guð á móti mjer sem faðir á móti barni sínu. Þar sem Kristur er á ferð. Þar er sjálfur guð það líka“ (bls. 60—61). Sjá ennfremur þessi orð á bls. 162—163: „Af því Jesús Kirstur er guðs orð til mannanna, þess vegna prjedikum vjer Jesum Krist. Jesus Kristur og hann kross- festur er opinberun þess hjarta- þels, sem guð be» til mannanna, þess vegna prjedikum vjer Jesúm Krist og hann krossfestan“. í nánu sambandi við þenna skýra vitnisburð má benda á prje- dikunina á 13. sunnud. eftir trini- tatis, „Jesús Kristur er sól sólar vorrar' ‘. Þetta er aðalefnið, sem prjedik- aranum er ljúft að tala um. En um leið og á aðalefnið er bent, þá má ekki gleyma, hve vel hver prjedikun er bygð, hvernig efninu er raðað, hvernig alt er skýrt sett fram, hvernig alt er sundurliðað með nákvæmri vand- virkni. Það er ekki þotið með flýti úr einu í annað, efnið er vandlega athugað frá ýmsum hliðum, svo að sá, sem hlustar eða les, er vel vakandi. Jeg vil benda á ræðuna: „Öldungurinn kveður“. Sú ræða er haldin á síðasta sunnudegi árs- ins. Öldungurinn er ímynd ársins. I kveðju öldungsins er fólgið þakk læti ásamt syndajátning. *Það er kannast við hverfleika lífsins, en um leið og öldungurinn verður að kveðja, notar hann tækifærið til þess að hvetja til sjálfsprófunar. Endir prjedikunarinnar verður í nánu samræmi við upphafið. Hver liðurinn styðst við annan. Það má með sanni segja, að í prjedikunum þessum er víða kom- if. við, og það er ekki farið fram hjá erfiðum viðfangsefnum. Lesið t. d. ræðuna, sem heitir „prjedikun stjarnanna". Djúp alvara ásamt bjartsýni set- ur fagran blæ á þessar ræður. Þjóðinni er ekki gleymt á björtum og erfiðum tímum. f því sambandi má nefna ræðuna „Kristindómur og ættjarðarást“. Það er talað um heimilislífið, sjá ræðuna „Konan og móðirin' ‘. Það er talað um hin- ar „jarðnesku og himnesku skyld- ur“. Það er talað um líf og starf sjómannanna í sjerstakri prjedik- un, sem sjómönnunum er helguð, og heitir „Kristilegt sjómannalíf". Mörgum eru minnisstæðar hinar hátiðlegu sjómannaguðsþjónustur. Þær voru án efa haldnar fyrir þakklátum áheyrendum. í prjedikunum þessum er talað um trúna, en það er einnig talað um verkin, sem trúnni fylgja. Það er bent á þá ávexti, sem eiga að prýða hið góða trje. Jeg nefni þessu til sönnunar ræðurnar „Hag- nýtið tímann“, „Varastu vorkunn- arleysið“, og ýmsar fleiri má nefna, sem sýna, hvernig helgun- ii\ á að fylgja trúnni, hvernig trúin á að sjást í verkinu. Prjedikanirnar eru 66 að tölu og er ýmist lagt út af guðspjöllum eða pistlum kirkjuársins, og má í ræðum þessum finna margar fagr ar perlur. Frágangurinn á bókinni er hinn prýðilegasti. Það má segja, að alt hjálpist að, til þess að gera bókina sem fegursta, pappír, prentun og band. Prentvillur hafa ekki fengið að komast að. Hjer er ekkert sparað, alt er með rausn og prýði .Er bók þessi bæði höf- undi og iitgefanda til mikillar sæmdar. Á útgefandinn, Bjarni J. Jóhannesson, þakkir skilið fyrir hinn fagra búning, sem prjedikun- um þessum er valinn. Er auðsjeð á öllu, að honum hefir verið ant um, að mönnum yrði gleði að því að eiga hina fögru og vönduðu bók. Hjer er aðeins lauslega ritað um ágæta bók. Með þeirri ósk, að hún verði kristni landsins til stuðnings og mörgum til hvatningar og heilla, bendi jeg á bók þessa. Sú er von mín, að lestur hennar hvetji menn til þess að leita hins besta, góða hlutans, sem verður mönnum dýrust eign á gleðinnar dögum, og verður ekki tekinn frá þeim á hinum erfiðu stundum. Jeg á þá ósk besta, er jeg minn- ist á þessar prjedikanir, að þær verði þjóð og kirkju, heimilum og einstaklingum til blessunar. Bj. J. Grýttu ekki maður (glerhúsi siálfur. í 258 tölublaði Vísis er ritstjórn- argrein um greinarstúf, sem jeg ritaði um sýningar og birtist í Vísi 14. sept. Hafði jeg í þeirri grein gert að umtalsefni tómlæti það, sem all- ur almenningur sýnir þeim, er við listir fást og bent á nokkrar or- sakir, er kynnu til þess að liggja. Enn fremur var bent á að lista- mennirnir sjálfir og blöðin mundu geta , og bæri jafnvel skylda til, að gera meira fyrir þessi mál svo að sambandið milli listamannanna og þjóðarinnar yrði nánara. Af eínhverjum lítt skiljanlegum áistæðum hefir höfundur Vísis- greinarinnar snúist þannig við þessu máli að grein hans verður ekki látið ósvarað, og stafar und- andráttur sá sem á því hefir orðið meðal annars af því, að í kosn- ingabaráttunni vildi jeg ekki eyða dálkarúmi blaðanna til andsvara strákslega ritaðri grein. TJmræddri ritstjórnargrein má skifta í tvent og mun jeg hjer svara þeim helming hennar, sem að málefninu snýr, leiðrjetta rang færslur og það, sem misskilið er. Síðari hlutanum mun jeg engu svara öðru en því að ef greinar- höf. gerir aftur tilraun til að vera ,,skemtilegur“, þá væri þess óskandi fyrir lesendur blaðs hans að nokkrar framfarir gætu orðið hj,á honum. Greinarhöf. byrjar á því að geta um spádóma um að grein mín muni spilla fyirr listsýningum hjer framvegis. Þetta virðist ýera sleggjudómur greinarhöf. sjálfs, því á því tímabili sem umliðið er frá því jeg reit fyrri grein mína, hefir enginn annar látið þessa skoð- un í Ijós og er ótrúlegt að nokkur láti Vísi ákveða það, hvort hann lætur skoðanir sínar í ljós, meðan annar blaðakostúr er hjer í bæn- um. Næst þykir liöf. jeg vera of dóm harður um tómlæti það, er mjer virðist fram koma hjá mörgum listamönnum og blöðunum gagn- vart listum og listsýningum. Þetta kann að vera rjett hvað blað hans snertir og fer það mjög eftir því livaða kröfur þjóðin og aðstandendur þess gera til menn- ingargildis þess. Má hann sjálfur best vita, hvert mark er takandi á því, sem að jafnaði stendur í dálkum þess, en mjer var ekki kunnugt um það ef svo er komið, að ekki sje ástæða til að sakast um tómlæti þess. En hvað listamennina snertir held jeg að ekki geti hjá því far- ið, að affarasælast sje fyrir alla, að þeir standi í svo nánu sam- bandi við þjóðina, sem unt er og sjeu virtir og metnir að verðleik- um. En til þess þarf samúð og velvilja milli aðila, sem byggjast verður á gagnkvæmum skilningi. Þjóðin má ekki skoða listamenn sína sem ómaga, er ekki verði á minst, nema innan gæsalappa og með stakri lítilsvirðingu eins og gert er í áminstri grein. Og lista- mennirnir mega ekki skoða þjóð- ina sjer óviðkomandi, en það virð- ast ýmsir þeirra gera, nema þá sjaldan að eitthvert af verkum þeirra er að seljast. Jeg hefi bent á að í öðrum lönd- um sjeu blöðin notuð til að auka þennan skilning meir en hjer er gert. Þetta virðist höf. taka mjer illa upp og ritar nú langt mál um afstöðu dagblaðanna hjer til sýninga og listdómara og kann sitthvað af því að vera rjett. Þó fæ jeg ekki sjeð, hvað „kunningja skrif“ höf. koma þessu máli við. Jeg fæ ekki sjeð, að það leysi blöðin undan þeirri skyldu að fræða þjóðina um gildi þess, sem unnið ©r í þágu listanna, þó þeim berist „kynstur“ af allskonar kunningjaskrifum, sem ekki eru þess verð að birt sjeu. Og berist ekk^ annað til þeirra eða geti þau ekki aflað sjer neins betra, sannar það einmitt hversu sorglega mikið tómlæti ríkir á þessum sviðum með oss, því enginn mun vilja lialda því fram í fullri alvöru, að hjer hvorki heyrist nje sjáist neitt þess kyns. sem verðskuldi að á það sje minst. ITitt, sem höf, gefur í skyn, að listdómar sjeu lítið eða ekki birtir í útlendum blöðum, er vitanlega alrangt og má í þessu sambandi minna á að í haust birti Vísir allmarga blaðadóma úr ensk- um blöðum um sýningu eins af listamönnum vorum, sem haldin var í Lundúnum. Viti höfundur þetta ekki, hlýtur hann öðru hverju að koma sjer hjá því að lesa „Vísi“ og gæti verið skiljan- legar orsakið til þess. Eða, á hann bágt með að finna fróðleikinn sem lesendum er ætlaður, fyrir öðru góðgæti? Á hrókaræður hefir eng- inn minst nema hann og gæti manni dottið í hug að orðinu hafi skotið upp í huga hans við að líta yfir það, sem í Vísi hefir staðið um kappleikana í Los Angeles. Þá kvartar höf. undan að dag- blöðin hjer ráði ekki yfir miklu rúmi. Þetta verður nú illa sjéð á tilkynningum „Vísis“ um skipa- Hrðir o. fl., og kaupendumir mundu vart kvarta þó ögn meira læsilegt fyndist í umræddri grein, sem hefði getað verið mun styttri öllum að skaðlausu. Alt, sem þar ei sagt um „kunningjaskrif“, „lof gerðarsull“ og „listamenn á gatna mótum' kemur ekkert þessu máli við, en sýnir aðeins smekkvísi greinarhöf. Þá virðist höf. þykja það all- djarft af mjer að jeg skyldi hreyfa þessu máli og verður tíð- rætt um að jeg hafi sest í „yfir-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.