Morgunblaðið - 04.03.1937, Síða 3
‘ ipr/ -i i.\ ^
Fimtudagur 4. mars 1937.
MORGUNBLAÐÍÐ
3
íslendingar eiga sjálfir að annast
sína landhelgisgæslu að öllu leyti.
Uppreisnar*
menn
við Madrid.
Aukning gæslunnar og
afsal gæslu Dana.
Þingsályktun i sameinuðu þingi,
Þrír Sjálfstæðismenn,þeir Signrður Kristj
ánsson, Gísli Sveinsson og Gunnar
Thoroddsen flytja þingsályktunartil-
lögu í sameinuðu Alþingi um aukningu landhelg-
isgæslu Islendinga og jafnframt, að lokið sje
landhelgisgæslu Dana hjer.
Tillagan er svohljóðandi:
1. Alþingi skorar á ríkisstjórnina að greiða landhelgissjóði
nú þegar skuld ríkissjóðs við hann, og að verja öllu andvirði varð
*kipsins Óðins þegar á þessu ári til byggingar vopnaðs gæslu-
skips, eins eða fleiri. Einnig skorar Alþingi á ríkisstjórnina að
einbeita starfi varðskipanna að landhelgisgæslunni meira en gert
hefir verið hin síðustu ár.
2. Jafnframt ályktar Alþingi, að Island skuli, þegar lið 1. er
fullnægt, neyta að fullu þess rjettar, sem því er áskilinn í 8. gr.
dansk-íslensku sambandslaganna til þess að taka að öllu leyti í
sínar hendur gæslu fiskmiða í íslenskri landhelgi.
I greinargerð benda flutnings
menn á, að krafa þjóðarinnar
sje að landhelgisgæslan sje ör-
ugg og í höndum íslendinga
sjálfra. Alþingi hafi aðhylst
þessa.kröfu, og þessvegna látið
byggja tvö gæsluskip og keypt
það þriðja.
Einnig benda flm. á, að þegar
meirihluti Alþingis tók þá af-
stöðu að selja Óðinn, hafi jafn-
framt sú ákvörðun verið tekin,
að láta byggja varðbáta fyrir
alt andvirðið. Um þetta hafi
verið samþykt einróma þings-
ályktun í þinglokin í fyrra, eins
og getið hefir verið áður hjer í
blaðinu.
Ríkisstj órnin hafi vanrækt að
framkvæma þenna vilja Alþing-
is, og ekki aðeins það, heldur
hafi hún ,,í algerðu heimildar-
leysi og þvert ofan í skýlaus fyr-
irmæli Alþingis“, tekið út úr
Landhelgissjóði andvirði Óðins
og gert að eyðslueyri ríkissjóðs.
Um landhelgisgæslu Dana hjer
við land segja flutningsmenn :
„Landhelgisgæsla Dana hjer
við land hefir ekkert breyst þau
19 ár, sem liðin eru síðan sam-
bandslögin voru samþykt. En
ísland á nú tvö sæmilega búin
gæsluskip og leigir einn til tvo
vjelbáta til landhelgisgæslu
lengri og skemri tíma árlega.
Auk þess er svo fyrir mælt, sem
áður segir, að öllu andvirði Óð-
ins skuli þegar varið til aukn-
ingar landhelgisgæsluflota Is-
Iendinga.
Af þessu er alveg ljóst, að
ísland er fullkomlega þess um-
komið að taka landhelgisgæsl-
una að öllu leyti í sínar hendur,
ef fyrirmælum Alþingis um
aukningu varðskipastólsins er
framfylgt og skip landhelgis-
sjóös og leigubátar eru því að
ins notuð til annars en land-
heígisgæslunnar, að það ekki
rýri hana. Undan er auðvitað
skilið gæslustarfið við Vest-
mannaeyjar og hjálp til handa
skipum, sem stödd eru með á-
höfn í háska.
Loks er skylt að verða við
þeim ákveðna þjóðarvilja, sem
fyrir er, að ísland taki land-
helgisgæsluna að öllu leyti í
sínar hendur. Það samrýmist á
engan hátt metnaði þjóðarinn-
ar, að annað ríki en ísland hafi
á hendi löggæslu í íslenskri
landhelgi undir öðrum fána en
fána íslands“.
100 íbuðarhús;
279 nýjar fbúðir.
Nýjar byggingar
í Reykjavik.
Byggingafulltrúi bæjar-
ins, Sigurður Pjeturs-
son, hefir gert yfirlit yfir
byggingar í bænum árið
1936.
Á yfirlitinu sjest, að bygð bafa
verið 100 ný íbúðarhús frá 1 hæð
upp í 3 hæðir. En auk þess hefir
verið bygð viðbót við nokkur hús.
Á árinu bættust við 279 íbúðir.
Þar af eru 106 íbúðir 2 lierbergi
og eldhús í steinhúsum og 6 í timb
urhúsum. Þar næst hefir verið
bygt mest af íbúðum með 3 her-
bergjum og eldhúsi, eða alls 103.
Minst er af íbiiðum með 7 her-
bergjum og eldhúsi, eða aðeins 3.
Verkstæði og vinnustofur voru
bygðar 10; gripa- og alifuglahús
8; geymsluhús, bílskúrar og
spennistöðvar alls 36. Fimm opin-
berar byggingar voru bygðar á
árinu, alt steinhiis frá 1 upp í 3
hæðir. Þessar opinberu byggingar
eru:
Atvinnudeild Háskólans, sam-
komuhús, kartöfh "'vmsla, hafn-
arpakkhús og aðai pennistöð við
Elliðaárnar.
Þjóðíjelaginu stafar
háski af atvinnu-
leysi ungra manna.
Hjer þarf bráðra aðgerða.
Allmiklar umræður urðu í neðri deild í
gær um atvinnuleysi ungra manna, og
hvað geri megi til bjargar því ástandi,
sem nú ríkir í því efni.
Umræður þessar spunnust aðallega í sam-
bandi við frumvarp það, sem fjórir Sjálfstæðis-
menn flytja, um atvinnubótavinnu og kenslu
ungra manna.
— Verður—
London rauð áfram?
í dag fara frara kosn-
ingar til bæjarstjórnar í Lon-
don. Sósíalistar fara me5
j meiri hluta í London og hafa
lagt fram alla krafta sína tsl
aS halda þesum meiri hluta.
Þeir eru þó hræddir um aS
þetta reynist erfitt, vegna
fylgis íhaldsmanna.
Tveir íslending-
ar fá viður-
kenningu þýska
Akademisins.
Pýska Akademíið í Miinchen
ákvað á aðalfundi í haust
að veita þeim dr. Jóni Ófeigssyni
og Einari Jónssyni mag. art. virð-
ingu sína og viðurkenningu. Sam-
þykti Akademíið að gera dr. Jón
Ófeigsson að heiðursfjelaga Aka-
demísins og að veita Einari Jóns-
syni heiðurspening úr silfri.
Akadeiníið í Miinchen hefir það
á starfsskrá sinni að rannsaka og
útbreiða þýska tungu og stendur
í náinni samvinnu við fjelagið
Germania lijer í hæ.
í kvöld heldur Germania hátíð
og verður þeim dr. Jóni Ófeigs-
syni og Einari Jónssyni þar há-
tíðlega afhent heiðursskjal og
heiðurspeningar frá Akademíinu.
Viðurkenningu þessa veitir
Akademíið fyrir störf þeirra dr.
Jóns Ófeigssonar og Einars Jóns-
sonar við samningu orðabókarinn
ar þýsk-íslensku.
Þessu frumvarpi hefir áður
verið lýst hjer í blaðinu.
Gunnar Thoroddsen, fyrsti
flutningsmaður frumvarpsins
reifaði málið. Hann sagði m. a.
að atvinnuleysið væri stærsta
böl þjóðfjelagsins. En háskaleg-
asti þáttur atvinnuleysisins væri
atvinnuleysi ungra manna. Það
hefði margskonar afleiðingar,
skapaði vonleysi, kjarkleysi og
drægi æskulýðinn út á braut
spillingar og jafnvel afbrota.
Það væri fullsannað að afbrot
og glæpir stæðu oft í beinu
sambandi við atvinnuleysið, og
væri ein stærsta orsök þess, að
ungir menn leiddust út á
glæpabrautina.
En það þyrfti að gera aðrar
og víðtækari ráðstafanir til
þess að ráða bót á atvinnuleysi
ungra manna en þegar full-
orðnir ættu í hlut. Það eitt
nægði ekki að sjá ungum mönn-
um fyrir vinnu, heldur þyrfti
og að koma upp einskonar upp-
eldisstofnun fyrir þá, þar .sem
þeim væri sjeð fyrir kenslu o.
þessh. Að þessu stefndi frum-
varp þeirra Sjálfstæðismanna.
Þessu næst lýsti G. Th. til-
höguh þeifri, sem ríkt hefir
hjer í Reykjavík hin tvö síð-
ustu árin, þar sem bæjarstjórn
og ríki hafa haldið uppi at-
vinnubótavinnu fyrir unga
menn. Þessi reynsla hefði gef-
ist vel, og væri frumvarpið snið-
ið eftir henni.
G. Th. gat þess að þeir flutn-
ingsmenn væru fúsir til sam-
vinnu um þetta mál, og taldi
rjett að nefnd sú sem fengi
frumvarpið til meðferðar, at-
hugaði hvort ekki væri rjett
að auka framlagið sem varið
skyldi í þessu skyni, og eins
hvort ekki ætti að láta slík lög
einnig ná til stærri kauptúna.
#
Eftir þessa hój: æru ræðu G.
Th. hófst ’angt og nauða ó-
merkilegt karp um það, hver
hefði att upptökin að því, að
komið var á atvinnubótavinnu
unglinga hjer í Reykjavík,
FF AMH. Á SJÓTTF StÐU.