Morgunblaðið - 20.03.1937, Side 2
MORGUHBLAÐíÐ
Laugardagur 20. mars 1937.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Ritstjðrar: Jðn Kjartansson og
Valtýr Stéfánsson —
ábyrgtSarmaður.
Ritstjðrn og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Slmi 1600.
Heimasfmar:
Jð'i Kjartansson, nr. 3742
vaitýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánuSi.
í lausasðlu: 15 aura eintakið.
25 aura með Lesbðk.
Auðsýkín.
Hjeðinn Valdimarsson er í
hóp auðugustu manna á land-
inu. Mikið af þessum auði hef-
ir hann fengið á þann hátt, að
hann hefir gerst þjónn erlends
auðhrings, og selt sjómönnum
hjer olíu við verði, sem Alþýðu-
blaðið efir kallað okur.
Það t<r langt síðan að Alþýðu-
blaðið skýrði frá því, að ríkis-
stjómin hefði skipað nefnd til
þess að rannsaka olíusölu Hjeð-
ins, og að vænta mætti mikils
árangurs af hennar starfi. En
ekkert hefir heyrst frá nefnd-
inni, og engin lækkun fengist
á olíuverðinu.
Hjeðinn, með hringavaldið að
baki, hefir sigrað í þessari við-
ureign.
*
Ilt er tveimur herrum að
þjóna. Hjeðinn hefir tekið að
sjer það hlutskifti að þjóna
erlendum auðhring og fátækum
verkamönnum í Reykjavík, sem
vanta tilfinnanlega atvinnu.
Fyrir þjónustu hins erieridá
auðhrings hefir Hjeðinn orðið
vellauðugur maður. En fyrir
atbeina fátæku verkamannanna
fekk Hjeðinn mikil völd í hend-
ur. Þeir fólu honum margar
trúnaðarstöður, og hann lofaði
þeim atvinnu í staðinn.
, Svo komu árekstramir og
svikin. Auður Hjeðins óx með
hverju ári, og varð að lokum
svo mikill, að Hjeðinn varð
hræddur. Þá hljóp hann til
kommúnista og bað þá að
vernda sig og auðinn, en í. stað-
inn lofaði hannaðleggja Kveld-
úlf í rústir.
En það fór á annan veg fyrir
skjólstæðingum Hjeðins, verka-
mönnunum- Þeirra atvinna fór
stöðugt minkandi, en fátæktin
vaxandi.
Hjeðinn hafði gleymt skjól-
stæðingunum, sem lyftu honum
til vegs og valda, í þeirri trú
að þeir feugju atvinnu og brauð.
Hanm gleymdi öllu — nema
auðsöfnuninni.
Þegar svo að því kom, að
Hjeðinn skyldi velja á milli
auðsins og verkamannanna,
fórnaði hann skjólstæðingunum.
Hann kaus að fá að vera í friði
með auðsöfnunina undir vernd-
arvæng kommúnista, en tók
jafnframt að vinna að því að
leggja að velli það atvinnufyr-
irtæki, sem brauðfæðir flesta
verkamenn.
Kæmi Hjeðinn fyrirætlan
sinni í framkvæmd myndu þús-
undir sjómanna og verka-
manna missa atvinnu. Miklu
fær auðsýkin áorkað!
Ógurleg sprengin^ i skólahúsi í Texas.
SJO HUNDRUÐ NEMENDUR
OG KENNARAR FARAST!
1500 börn voru i skólanum er slysið vildi til.
m~
Mæður leita að limlestum
börnum sfnum i rústunum.
•v* * XJ
Hræðilegt ástand
á' slysstaðnum.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
UM 700 börn og kennarar fórust í spreng-
ingu, sem varð í skóla einum í bænum
New London í Texasríki í gær. Gas-
sprenging varð í ketilherbergi og var hún svo mik-
il að skólabyggingin sprakk í loft upp eins og hún
hefði verið sprengd upp með dynamiti.
Meira en 1300 nemendur á aldrinum fjórtán
til átján ára sátu í kenslustofum skólans er spreng-
ingin varð. Þrjú hundruð lík hafa þegar fundist,
en mörg liggja enn grafin í rústunum.
Einn nemendanna, sem bjargaðist úr sprengingunni
segir svo frá: „Jeg hentist um 200 metra frá skólabygg- ■
ingunni. Hræðilegt var að sjá, hverjar áfleiðingar spreng-
ingin hafði. Jeg sá skólasystkini mín hendast í Ioftinu í
kringum mig, handleggir og fætur rifnuðu frá ííkaman-
um af hinum ógurlega þrýstingi, sem. sprengingin o!!V‘.
Þrjú hundruð börn úr barnaskóla einum í nágrenningu
þustu að slysstaðnum til að. leita að eldri systkinum sínum. Ör-
vinglaðar mæður leituðu í rústum skólabyggingarinnar að börn-
um sínum. Lík flestra barnanna eru óþekkjanleg og hafa risið
upp deilur milli foreldra, sem halda því fram hver fyrir sig, að
sama líkið sje af þeirra barni. Hefir verið reynt að þekkja Iíkin
með fingrafararannsóknum.
I Úx* Miðiacðarhaf«för Edwards. I
London í gær. FÚ.
Kenslutíma var nýlega lokið
í annari byggingunni, og hafði
börnunum verið hleypt út; en
10 mínútur voru eftir af kenslu
tíma í hinni byggingunni, og
voru þar um 700 börn og 40
kennarar.'
Böm, sem komust lífs af,
segja frá þýj, ^ð alt í einu hafi
heyrst ógurlegur hvellur, og í
sömu svipan hafí borð og bekk-
ir og alt sem l'áuslegt var í stof-
unum kas'tasl í* loft upp, húsið
spru'ngið og sVo fallið saman
aftur, yfir þau börn, sem ekki
höfðu kastast út fyrir takmörk
þess.
Björgunar og
líknarstarf.
í alla nótt átreymdu læknar
og hjúkrunarkonur til New
r,ondon með járnbrautarlesttim
t bifreiðum, en sjerfræðingar
■roru fluttir þangað með flug-
vjelum. Roosevelt forseti hefir
boðið Rauða Krossinum og líkn-
arstofnunum, sem reknar eru
af ríkinu, að veita alla mögu-
lega aðstoð. Svæðið hefir verið
lýst í hernaðarástandi, og ríkis-
vamarliðið kvatt á vettvang, til
þess að bægja frá byggingunni
þeim, sem í angist sinni hafa
þyrpst þangað til þess að að
leita að bömum sínum, en valda
aðeins töfum á björgunarstarf-
inu.
Nýkomin frjett .segir, að nokk-
ur börn hafi fundist á lífi, en
þó særð, í rústunum. Fyr í dag
höfðu tvö börn fundist undir
boga einum, sejp,' /msþimar
mynduðu. Höfðu þau. hjúfrað
sig þar hvort upp að öðru. —
Björgunarstarfið hófst sam-
stundis og sprengingin var um
garð gengin, og í alt gærkvöld
og alla nótt mátti sjá foreldra
bera heim böm sín, sum lif-
andi en hræðilega limlest, önn-
ur dáin, af ógurlegum sárum.
í dag hafa borist samúðarskeyti
til vandamanna barnanna og
forráðamanna hjeraðsins frá
fólki úti um allan heim.
Amelia Eafhart
tefst í hnatt-
fluginu.
London í gær. FÚ.
Amelía Earhart varð að
fresta flugl sínu frá Hon-
olulu til Port-Darwln í dag,
vegna óhagstæðs veðurs.
Mynd þessi var tekin í Miðjar ðarhafsför Edwards fyrv. Breta-
konungs og frú Simpson.
Reynt að ógilda
skilnað Simpson-
hjónanna.
Óvinum hertogans af Windsor
mistókst lilraunin.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
OVINIR hertogans af Windsor og þeir
sem eru á móti því, að hann giftist
Mrs. Wallis Simpson, hafa enn á ný
reynt að koma í veg fyrir hjónaband hertogans
og frú Simpson. En sú tilraun fór þó út um þúfur.
Konung-legur embættismaður, sem hefir með
höndum eftirlit í hjónaskilnaðarmálum (Kings
Proctor), var fenginn til að taka hjónaskilnaðar-
mál þeirra frú Simpson og manns hennar, útgerð-
armannsins Ernest Simpson upp að nýju.
Fjöldi manns hefír undanfarið skrifað til eftirlitsmannsins
með hjónaskilnaðarmálum og krafist þess að hann ljeti fara
fram rannsókn á hjónaskilnaðarmáli þeirra Simpson-hjóna og
heimtað að skilnaður þeirra yrði dæmdur ógildur.
Þessar kröfur eru rök-
studdar með því, að frú
Simpson hefir oft verið
ótrú manni sínum, m. a.,
er hún var á ferðalagi með
Játvarði fyrverandi Breta-
konungi (Mr. Windsor) í
Miðjarðarhafsför hans í
haust.
En eins og kunnugt er, ferð-
1 aðist konungur á lystiskipi
þeirra Simpsonhjóna til Mið-
jarðarhafsins.
Undanfarið hefir á lævísleg-
an hátt verið breiddur út orð-
rómur í Bretlandi um sambúð
þeirra hertogans af Windsor
og frú Simpson, og er litið svo
á að þesi nýja rannsókn í hjóna-
skilnaðarmáli Simpsonhjónanna
sje gerð til að kveða þenna ill-
kvittnislega orðróm niður.
1 síðara skeyti frá frjettarit-
ara vorum í gærkvöldi segir
svo;
Hiónaskilnaðarrjetturinn tók
í dag fyrir mótmæli, sem sett
FRAMHALD Á SJÖTTU SÍÐU.