Morgunblaðið - 18.05.1938, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 18. maí 1938.
MORGUNBLA3IÐ
7
S|ö(uií«r:
Gnðlaugur Þor-
bergsson
a
Sjötíu ára er í dag Guðlaugur
Þorbergsson veggfóðrara-
öieistari Ivjer í bænum. Hann flutt
ist hingað til Reykjavíkur fyrir
50 áruni, lærði söðlasmíði hjá ÓI-
afi Eiríkssyni og stundaði þá iðn
fyrst framan af, en fór síðan að
■gefa sig eingöngu við veggfóðr-
araiðniuni.;
Þan eru, orðin mörg sporin bans
Huðlaugs hjer í bænum, og hand-
tökin er hann hefir unnið fyrir
bíeja rbúa í veggfóðrarastarfinu.
-Jeg sá Guðlaug á götu nú um
flutningadagana, þegar . annríkið ,í
þátis iðn .er, einna,; mest, yirtist
nijer haiinvfurðulítið hafa bheyst,
og halda jafn ljettilega á tröppu
fiinni og öðrum yeggfóðraraáhöld-
Um og þá hánn var upp á sitt
besta. Að Gúðlaugi hefir farið l’ít-
ið .aftur má best mafka á því, að
fólk sækist enn eftir að fá hann
til að setja í stand fyrir sig. Er
það áreiðanlega hættulaust, því
Guðlaugur hefir, fylgst vel með
öllum framförum í starfi sínu og
stendur stjettarbræðrum sínum
fyllilega jafnf ætis ennþá, þrátt
fyrir þennan aldur.
Guðlaugur hefir, með sínu glaða
ug hlýja viðmóti, eignast marga
vini, og til ér það heimili, honum
óskylt, sem seint, mun gleyma
hjálpsemi hans og trygð, er hann
á í svo óyenjulega ríkum mæli.
H.
.........................—■
E.S. LYRA
fer hjeðan á morgun (fimtu-
daginn 19. þ. m.) kl. 7 síðd.
til Bergen um Vestmanna-
eyjar og Thorshavn.
Farseðlar sækist fyrir kl.
6 í dag.
Flutningi veitt móttaka til
hádegis á morgun.
E.S. Nova
fer hjeðan á hádegi á morg-
un. —
P. Smith & €o.
EF IiOFTUR GETUR ÞAÐ
EKKI-------ÞÁ HVER?
Dagbók.
Merca 195830 Oddfellow. Skemti
ferðin.
Veðurútlit í Rvík í dag: Stinn-
ingingskaldi á A. Ljettskýjað.
Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5):
Suðvestur af Reykjanesi er grunn
og nærri kyrrstæð lægð, sem veld-
ur SA- eða A-átt um alt land. Á
SV-landi er veðurhæð 6—8 vindst.,
en yfirleitt 2—3 vindst. í öðrum
landshlutum. Hiti víðast 8 st., en
á annesjum norðan lands þó að-
eins 2-—4 st. hiti.
Næturlæknir er í nótt Kristján
Grímsson, Hverfisgötu 39. Sími
2845.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn,
Hjónaband. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Magnea Magnúsdóttir og Jens
Jensson. Heimili ungu hjónanna
er á Ásvallagötu 25.
Dánarfregn. Friðrik Jóussón
kaupmaður, Laufásveg 49, apdað-
ist í gær.
75 ára er í dag Árni Geir Þór-
arinsson, Laufásvegi 41.
Farþegar með e.s. Lyra frá út-
löndum voru m. a.: Guðm. Ás-
björsson, Guðm. Jensson og frú,
Axel Mogensen, frú Björnsson,
Sigurður Benediktsson blaðamað-
ur o. fl. o. fl.
Af veiðum komu í gær Gull-
toppur með 85 föt lifrar, Arin-
björn hersir 40, Geir 70, Skalla-
grímur 85, Snorri goði 110, Hann-
es ráðherra 100 og Þórólfur 79.
Skipin munu öll hætta veiðum.
Barnavemdarnefnd er flutt í
Mjólkurfjelagshúsið, herbergi nr.
15. Sími fyrst. um sinn 4658.
Sumarskóli Ragnhelðat Pjeturs-
dóttur getur enn tekið á móti
nokkrum börnum. Kent verður í
Autturbæjarskólanum. — Frekari
upplvsingar er hægt að fá á
Freyjugötu 35 í síma 3793.
J. Spoelstra, hollenskur menta-
maður, sem var hjer sumarið 1933,
hefir ritað doktorsritgerð um úti-
legumenn og útilegumannasögur á
íslandi. Kemur sú ritgerð bráð-
lega út.
Þrjátíu ára starfsafmæli á í dag
Brynjólfur Eiríksson, símaverk-
stjóri frá Seyðisfirði. Hann byrj-
aði vinnu við landsímann 18. maí
1908, en varð verkstjóri 1912.
Mest hefir Brynjólfur starfað á
Austurlandi, en auk þess bæði á
Norður- og Suðurlandi. Brynjólfur
er nú fluttur hingað til bæjarins
og tekur nú við verkstjórn í ná-
grenni Reykjavíkur.
Berlingatíðindi frá 11. þ. mán.
segja frá því. að Gunnar Cortes
cand. med. hafi verið ráðinn kandi-
dat við sjúkrahús, í Árósum, og
hafi annar, íslenskur kandidat, S.
Hallgrímsson, verið við sjúkrahús-
ið síðastliðið ár.
Foringjaráðsfundur Varðarfje-
lagsins verður haldinn í kvöld í
Kaupþingssalnum. Einn af þing-
mönnum flokksins talar um gjald-
eyrislánið og fleíri þingmáh Auk
þess yerður rætt um skemtisiai'f-
semina að Eiði í sumar. Er nauð-
’synlegt að foringjaráðsmenn fjöl-
menni á fundinn. Lyftan verður í
gangi. Ath. Fundurinn er í Kaup-
þingssalnum.
Tímaritið Morgunn. Morgunblað
ið hefir verið beðið að geta þess,
að útgáfa tímaritsins Morgunns
hefir dregist vegna veikinda rit-
stjórans, sem hefir legið síðan um
páska og er enn mjög þungt hald-
inn.
tJtvarpið:
20.15 Erindi: Úurtakynbæturnar í
Svalöf á Skáni (Áskell Löve
fil. stud.
20.45 Hljómplötur:
a) „Helgi vorsins“, eftir Stra-
vinski. b) (21.20) íslensk lög.
c) (21.40) Lög leikin á Bíó-
orgel.
NÝ HÚSAGERÐ —
VIKURSTEYPA.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
trygði hann sjer námurjettindi
fyrir þremur árum og ætlaði þá
þegar að fara að taka upp vikur-
inn. Náman er um 6 km. frá Arn-
arstapa, og er þar um veglaust
fjalllendi að fara. Fyrst átti að
reyna að flytja vikurinn í trjá-
rennum til sjávar, en það mis-
tókst. Þá kom Jóni til hngar að
safna saman leysingarvatni úr
jöklinum og leiða það í gamla
lækjarfarvegi og gil, og flytja
vikurinn fram að strönd. Var
byrjað á þessu í fyrra og tókst á-
gætlega. Vatnið fleytti vikrinum
niður undir Amarstapa og þvoði
um leið úr honum allan sand. Nið-
ur hjá Stapa fer svo vikurinn í
mulningsvjel, sem bryður hann
niður í hæfilega möl. Síðan er
mölinni rent í trjestokkum og
slöngu alla leið um borð í skip.
Ilafa komið að vestan þrír skips-
farmar xindanfarna daga, og yar
xxtskipxininni hagað eins og segir
hjer að framan. Hefir það geisi-
mikla þýðingu að sem minstur
kostnaður ieggist á vikurinn frá
því hann er tekinn upp og þang-
að til hann er koxninn á bygging-
arstað. Vonar Jón, að sjer muni
takast að leysa þann vanda svo,
að vikurinn geti beinlínis orðið
útflutningsvara. Er vikurtegund
þessi á Snæfellsnesi svo góð, að
hún er fyllilega samkepnisfær við
þær erlendar vikurtegundir, sem
notaðar eru til einangmnar.
En meira virði er þó hitt, ef
hjer væri fengið hentugt og hag-
anlegt byggingarefni fyrir oss
sjálfa. Byggingafróðum mönnum
líst svo vel á það, að þegar hafa
verið pantaðar hellur úr öllu því
efni, sem hingað er komið, og
meira til. Eru þær meðal annars
notaðar í skilrúm og útveggi í
hinni nýju Háskólabyggingu.
Byggingarlagið hjer í Reykja-
vík hlýtur að breytast á komandi
árum. Og það bi’eytist á þann
hátt, að meira verður bygt af ein-
lyftum einbýlishúsum með görð-
um í kring. Nóg er landrýmið.
alt. Seltjarnarnes og Melarnir alt
inn að Elliðaám, Bústaðaland,
Breiðholtsland, Ártúnsland og Ár-
bæjarland, Gufxnxesland, Eiðisland
og Geldinganes. Og það er ekki
v'xst að mjög langt verði þangað
til að santfeldar byggingar ná alla
leið milli Hafnarf jai’ðar og Reykja
víkur. Þaxx bæjarhverfi. sem hjer
éftir verða bygð,' þxxvfa að hafa
í’únxt um sig, og húsin þxxrfa að
vera sem ódýrust. Máske er hjer
fundin leið í áttina til þess.
Ungurmaður
óskast frá 1. september til þess að veita forstöðu sjerversl-
un hjer í bænum. Umsóknir með kaupkröfum, meðmælum
og helst mynd, óskast sendar afgr. blaðsins, merktar „Ung-
ur maður“, fyrir 24. þ. m.
ForingjaráOsfundur
Varðarfjelagsins verður í kvöld kl. í Kaupþingssalnum.
Rætt verður um:
1. Gjaldeyrislánið og fleiri þingmál.
2. Undirbúning sumarstarfseminnar að Eiði.
Lyftan verður í gangi. Áríðandi að allir foringjar
mæti.
STJÓRNIN.
F. Ú. S. S. Ú. S.
Heimdalliir
Fjelagsfundur verður haldinn n.k. fimtudag kl. 8y2 í
Varðarhúsinu.
FUNDAREFNI :
1. Atvinnuhorfur ungra manna: Framsögumaður
Bárður Daníelsson frá Kirkjubóli.
2. Afstaða skólafólks til stjórnmála: Framsögumað-
ur Guðmundur Bl. Guðmundsson.
3. Sambandsþing ungra Sjálfstæðismanna á kom-
anda sumri: Framsögumaður Kristján Guðlaugs-
son forseti S. Ú. S. r'
Fjelagar fjölmennið stundvíslega.
STJÓRNIN.
i!jl)l!llliIÍIllll]jlllitt}illl!tii!t!!!l}ill)lit}{][}tlj|jil!)1fllfl]Illlinnil!!]!tlSlS!!iIit(tj}lll]jjl1!injnfifíl!II0lIli!iK!llI!{lIHlIinnY
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIH
Timburverslun =8
e= P. W. lacobsen & 5ön 0,5.
= Stofnuð 1824.
fi Símaiefni: Granfuru — 40 Uplandsgade, Köbenhavn S. =
Selur timbur í stærri og smærri sendingtun. frá Kaup- H
= mannahöfn. Eik til skipasmíða. Einnig heila iH =
skipsfarma frá Svíþjóð og Finnlandi. B
Hefi verslað við ísland í circa 100 ár.
Jarðarför konunxiar rninnar og móður,
Sólveigar P. Eiríksdóttur,
fer fram frá fríkirkjunni á morgun, fimtudaginn 19. þ. m., og
hefst með húskveðju að heimili hennar, Þórsgötu 18, kl. 1.
Vigfús Bjarnason. Guðbjörg Vigfúsdóttir.
Maðurinn minn, faðir okkar og bróðir,
Friðrik Jónsson,
kaupmaður, andaðist í gær að heimili síixu, Laufásveg 49.
Reykjavík, 18. maí 1938.
Marta Jónsson og börn.
Sturla Jónsson. Þóra Magnússon.