Morgunblaðið - 18.01.1939, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.01.1939, Blaðsíða 7
7 Miðvikudagur 18. ja». 1939. MORGUNBLÁÐIÐ Minning Vaidemars Danaprins Kalundborg í gær. FÚ. danska þinginu hjelt Staun- ing forsætisráðherra minn- ingarræðu í dag um Valdemar Danaprins. Þakkaði hann hon- um í nafni þjóðarinnar fyrir það hversu hann hefði jafnan Jtömið þannig fram erlendis, að dönðku þjóðinni hefði verið aíetrid og hagur að. Ennfremur þakkáði hann honum fyrir starfsemi hans í þjónustu dariskrá landvarnarmála. Elutti hánn að lokum fjöl- sfkyldu hans og börnum samúð- arkveðju þings og stjórnar í til- efní áf fráfalli prinsins. Margt útlendra gesta er nú að köttia til Kaupmannahafnar Sil þéss að vera viðstatt jarðar- föfifla. Fer fyrrihluti hennar fram frá Holmenskirkju í Kaup mannahöfn. Skriftafaðir kon- angs Neiendam prófastur held- útfararræðúha. Frá HolmenSkirkju verður kistan flutt til Hróarskeldu- dómkirkj u og jarðsett þar í aömu grafhvelfingu og prins- ®«sa María, eiginkona Valde- mars prins er grafin í. íslenskir rithófundar í Kaupmannahöfn Halldór Kiljan Laxness, sem nú dvelst í Kaupmanna- hofn, vinnur að skáldsögu, sem er framhald á „Höll sumar- landsins", en Halldór hefir eihnig aðra skáldsögu í smíð- um. Seinasta bók Kristmanns Guðmundsson hefir vakið mikla athygli. Hann hefir nú tvær skáldsögur í smíðum. Þórbergur Þórðarson, sem frá því í semptembermánuði s.l., hefir dvalist í Kaupmannahöfn, hefir lokið við samningu nýrrar bókar. Frá Guðmundi Kamban, sem ■einnig er í Kaupmannahöfn, má og vafalaust vænta nýrrar bókar, áður en langt um líður, eri hann er sem stendur önnum kafinn við að undirbúa leikrit sitt „Tidlöse Dragter“, til sýn- ingar á Konungl. leikhúsinu. Hefir hann sjálfur leikstjórn- ina með höndum. FÚ). Platinurefaskinn á 4000 krónur Oslo í gær. FÚ. skinnauppboði, sem haldið hefir verið í Oslo voru meðal annars seld nokkur plat- ínu-refaskinn. Seldust þau fyrir mjög hátt verð. Þess er t. d. getið, að 2 skinn •saman hafi verið seld á 3200 krónur. Eitt skinn á 4000 kr. Eitt á 3900 kr. og eitt á 3000 krónur. C-listinn er lísti Sjfálfstæðis- manna við Dagsbrúnarkosning- arnar. Dagbók. I. O. O. F. (Spilakvöld). Veðurútlit í Reykjavík í dag: A- eða NA-gola. Úrkomulaust. Veðrið í gær (þriðjud. kl. 5) : Yfirleitt hæg N eða NA-átt hjer á landi. Talsverð snjókoma á Vestfjörðum og lítilsháttar snjó- koma á NA-landi. Bjartviðri aust- an lands og sunnan. Frost 2—5 st. með ströndum fram, en 8—16 st. í innsveitum. Grunn lægð yfir landinu á hægri hreyfingu suður- eftir. Næturlæknir er í nótt Páll Sig- urðsson, ITávallagötu 15. Sími 4959. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Fermingarbörn síra Árna Sig- urðssonar eru beðin að koma í fríkirkjuna á föstudagirin kem- nr kl. 5 síðd. Hjónaefni. Nýlega hafa- opinber- að trúlofun sína ungfrú Sigurlaug Auðunsdóttir, Hafnarfirði, og Bjarni Árnason stýrimaður frá Akri, Eyrarbakka. Hjónaefni. S.I. langardag opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Hulda Dagmar Þorfinnsdóttir, Bergþórugötu 41 og Friðþjófur Þorsteinsson, bifreiðarstjóri hjá Sanitas. Sjálfstæðiskonur. Munið fund- inn í „Hvöt“ í kvöld. Hann verð- ur haldinn í Oddfellowhúsinu og hefst kl. 8%. Doktorspróf sr. Eiríks Alberts- sonar á Hesti fer fram á morgun í Stúdentagarðinum og hefst kl. 1*4 o. h. Ándmælendur af hálfu Háskólans eru próf. Magnús Jónsson og Sigurður Einarsson dósent. Leikfjelag Reykjavíkur sýnir á morgun sjónleikinn Fróðá fyr- ir lækkað verð. Nokkrir mjög ó- dýrir miðar seldir daginn sera leikið er. Súðin var á Reykjarfirði í gær- kvöldi. Frá Akranesi. Selfoss hlóð í gær 80 smálestir af síldar- og fiskimjöli á Akranesi. Fer þaðan til Hollands. Brttarfoss var á Akra nesi í gær og tók þar 150 smá- lestir af síldarlýsi til Englands. Fánar voru dregnir að hún á Akranesi í gær í tilefni af 25 ára afmæli Eimskipafjelagsins. Stúkuheimsókn. í fyrrakvöld heimsótti St. Einingin í Reykja- vík st. Morgunstjörnuna í Hafn- arfirði. Voru móttökur hinar prýðilegustu eins og vant er hjá Haf nar f j arð arstúkunum. Frindur- inn var svo fjölmennur, að fleiri gátu ekki komist í húsið, því að auk Morgunstjörnufjelaga, voru þar rúmlega 40 Einingarfjelagar og 33 aðrir gestir. 13 nýir fjelag- ar gengu inn í stúkuna á fund- inum. , Helgi Helgason verslunar- stjóri hjá Ziemsen, sem var með- al heimsækjenda, mintist þess, að hann hefði fyrst gengið í Morg- unstjörnuna, og á hennar vegum hefði hann leikið fyrsta hlutverk sitt á leiksviði Góðtemplarahúss- ins í Hafnarfirði Væri nú á morg- un (fimtudag) 46 ár síðan. Varð það upphaf að óslitinni leikstarf- semi hans um nær 30 ára skeið. ísfiskssölur. Sviði seldi í Hull í gær, 2088 vættir fyrir 1088 sterlingspund. Ga-rðar í Hull, 2268 vættir fyrir 1015 stpd. Belgaum í Grimsbv, 1640 vættir fyrir 1054 stpd. og Haukanes í Grimsby, 1973 vættir fyrir 852 stpd. B.v. Hafsteinn kom af-. veiðum í gær með íúml. 2000 körfur. Sltip ið fór áleiðis til Englands með afl- ann. í gær var til moldar borinn einn af elstu Haínfirðingum, Ein- ar Þórsteinsson, að viðstöddu fjölmenni, Einar var hinn mesti atorkumaður og sómamaður í hví- vetna. ” Hvatarfundur í kvöld í Odd- fellowliúsinn kl. 8y2. Margt gott til skémturiar’, þar á meðal leik- þáttur. Konur beðnar að mæta stundvíslega; Pjetur A. Ólafsson konsúll var formaður stjórnar Eimskipaf je- lags íslands á árunum 1920— 1924; þessa láðist að geta í blað- inu í gau', Pjetur var frá upp- hafi ötiill stuðningsmaður fjelags- ins. Gestir í bænum. Ilótel Vík: Árni Vilhjálmsson útgerðarm., Seyðisfirði. Björgvin Sigurðsson bifreiðarstj., Stokkseyri. Ólafur Stefánsson, Akrariesi. Griðm. J. Guðmundsson, Eyrarbak-ka. Magn- ús Guðmundsson, Mykjunesi, !JRangárvall'asýslu.V-T- HóCel Skjald breið : Magnús Arnbjaruarson lög- fr., Þórður Einarsson útg.m. og frú, Norðfirði. Björgvin Færseth, Siglufirði. Evert Þorkelsson, verslm.. Sigluf. Ólafur Jónsson sjóm., Patreksfirði. Stefán Traustason prentari, Akureyri. Sigurþór Guðfinsson útgerðarm., Keflavík. Jakob Jónsson skipstj., Akufeyri. Karl Gíslason skipstj., Siglufirði. Gunnar Rogstad appre- tör, Noregi. Ein tillaga, sem Morgunblað- inu barst í gær um heitið á nýja Eimskipaf jelagsskipinu: Ljósu goðin lýsi oss, líkni oss í þrautum. Ljósa gnoðin Ljósafoss ljómi oss á brautum. Hrói höttur frá El Dorado nefn ist amerísk kvikmynd, sem Gamla Bíó sýnir nú. Kvikmyndin gerist á þeim tímum, er menn streymdu til Kaliforníu hvaðanæfa úr heim inum til að leita gulls. Urðu spánskir landeigendur, er þar áttu heima, fyrir þuiigum búsifjum af hendi æfintýramannanna. Seg- ir kvikmyndin frá Spánverja ein- um, sem hugði á hefndir vegna ofríkis hinna nýju innflytjenda. Þetta er vel leikin og spennandi kvikmynd. Aðalhlutverkin leika Warner Baxter og Ann Loring. Prinsinn og betlarinn heitir kvikmynd, sem Nýja Bíó sýnir um þessar mundir. Er myndin gefð eftir hinni heimsfrægu skáld sögu Mark Twains og segir frá tveimur jafnöldrum, sem voru svö nauðalíkir, að þeir þektust ekki að. Annar var betlari, en hinn prins af Wales. Kvikmyndin er skemtilega gerð og hefir þég- ar vakið athygli. Aðalhlutverkin eru leikin af Errol Flynn og tví- burabræðrunum Belly og Bobby March. Sjálfstæðisverkamenn. Munið að C-LISTINN er ykkar listi við Dagsbrúnarkosningarnar. Ágætur fiskafli hefir verið við ísafjarðardjúp undanfarið. Á laugardaginn var reru tveir af bátum Samvinnufjelagsins og komu þeir inn í gærkvöldi með góðan afla. Mikill afli hefir einn- ig verið hjá smábátuni þaf vestra. Afmælis Eimskipafjelags fs- lands var minst á ísafirði með því að fanar voru víðsvegar dregnir að liún í bænutnií 80 borgarar sendu fjelaginu heillaóskaskeyti. Blaðið Vesturland, sem kom út í gær, flytur ítarlega grein um E, X. ‘ Skrá um íslenska lækna, lækna kandídata, tannlækna, tannlækna kandídata og dýralækna 1. jan. 1939 heitir bækliugur, seni Land- læknisskrifstofan hefir gefið út. Er þar fyrst skrá yfir alla lækna, sem hafa lækningaleyfi á Islandi. Eru nöfn þeirra taliri upp í staf- rófsröð ásamt fæðingardegi og ári hvers eins og hvenær hann tók læknispróf. Eru það samtals 169 læknar, sem lækningaleyfi ■ hafa hjer. Samskonar skrá er svo yfir tannlækna og dýralækna. Til Strandarkirkju: Bússi (gam alt áheit) afh. af sr. Fr. Hall- grímssyni 12.00. S. E. 5.00. N. N. 10.00. Fríða (gamalt áheit) 2.00. F. B. 0.50. Mi Mil 5.00. Ónefnd- ur 35.00. S. II. (gamalt áheit) 10.00. Á Elliðavatni voru liátt á ann- að hrindrað manns á skautum um helgina.bg daglega hafa Verið þar síðan fjöldi manns. Veitingar fjekk fólk í sumarbústað síma- manna, Elliðahvammi, og Ijetw menn mjög af húsakynnum þar og aðbúnaði öllum. Útvarpið: Miðvikudagur 18. janúar. 1 10.00 Yeðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 18.15 Islenskukensla. 18.45 Þýskukensla. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Hljómplötur; Nýtísku tó»- list. 19.50 Frjettir. 20.15 Kvöldvaka: j Þorsteins kvöld Erlingssonar, ;-,,, Timburverslun | P. W. Oacobsen & 5ön R.s. Stofnuð 1824. II Símnefni; Granfuru — 40 Uplandsgade, Köbenhavn S. §§§ Selur timbur í stærri og smærri sendingum fri Kanp- ||| mannahöfn. —;— Eik til skipasmíða. - Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð og Finnlandi. = Hefi verslað við ísland í cirka 100 ár. Rúðugler Útvegum allar tegundir af ráðugleri frá Þýskalandi eða Belgíu. Eggert Kristfámsson & Co. b.f. Reykjavík. Wakefield mótoroliur smyrja fullkomlega, draga úr viðgerðum og eru drjúgar. Oliuverzlun íslands h. f. — Einkaumboðsmenn á íslandi fyrir: C. C. Wakefield & Co. A/s — ■ - - - .... .. _________________________________ Jarðarför Sesselju Knútsdóttur fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, fimtudag 19. þ. m. og hefst með bæri á Elliheimilinu Grund kl. 1. Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum, Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.