Morgunblaðið - 16.07.1940, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 16.07.1940, Qupperneq 7
Þriðjudaginn 16. júlí 1940. M O R GUNBLAÐIÐ J Ræða Churchills FRAMH. AF ANNARI SÍÐU vörn flotans og flugflotans, og innrásarhættuna, sem yfir vofir og enginn veit hvenær ríður yfir, kannske í kvöld, kannske í næstu viku, kannske aldrei. Hann hvatti til samheldni og djarflegrar baráttu; ræddi þann kvíða, sem vart hefði orðið með al vina Breta í öðrum löndum, vegna þess, sem gerst hefði ann arsstaðar, er heilar þjóðir hafi gefist upp fyrir Þjóðverjum á fáum vikum, jafnvel dögum. En slíkar baráttuaðferðir, að grafa undan viðnámsþreki og sam- Leldni, eins og annarsstaðar hefði tekist, myndi ekki hepn- ast í Bretlandi. Hann ræddi hinn vandlega undirbúning Þjóðv., fyrirfram gerðar áætlanir þeirra um inn- rás í Pólland, Danmörk, Noreg og Holland, og hvernig farið hefði í Frakklandi. Vafalaust hefði Hitler einnig vandlega gerða áætlun um inn- rás í Bretland. En þar yrði ó- líkari mótspyrnu að mæta. Nú ætti Hitler í fyrsta skifti að mæta mikilli þjóð, þar sem und irróður hans hefði ekki haft á- hrif. HVER BLETTUR VARINN Bretar hefði nú 11/2 xniljón æfðra manna undir vopnym, og heraflinn ykist stöðugt, og auk þess væri'l miljón manna í heimavarnarsveitunum, sem í þeim væri fjöldi manna sem hefði reynslu frá því í seinustu styrjöld. Bretlandi kæmi ekki til neinn ar uppgjafar, heldur yrði hver blettur varinn. Lundúnaborg yrði ekki gef- in upp baráttulaust eins og París, heldur yrði barist um hverja götu og hvert hús í borg inni, eins og barist yrði um hvert þorp, hvern bæ og hvei'ja einustu borg á Bretlandseyjum „Við munum ekki biðja um neina miskun“, sagði ráðherr- ann að lokum, ,,en kannske munum við sýna miskun“. UNDIRTEKTIR Ræðu Churchills hefir verið vel tekið í Bandaríkjunum, en í Þýskalandi fær hún að vonum slæma dóma. Þjóðverjar segja t. d., að sú ákvörðun Churchill, að láta verja London, sýni, að hann hafi ekki gert sjer ljóst, hvað gerðist í Antwerpen og Varsjá. Vörn Varsjá hafi ekki tafið Þjóðverja nema í tvo daga : þeirra áætlun og eftir 20 mín útna loftárás Þjóðverja á Ant- werpen hafi verið ákveðið að gefast upp, heldur en að láta gjöreyða borginni. Þá er farið háðulegum orðum um það, er Churchill sagði, að innrás Þjóð verja gæti komið í kvöld, næstu viku eða kannske aldrei. Segja þýsk blöð að engu sje líkara en að Churchill hafi ver ið að leika sjer við hnappana á vestinu sínu. Roosevelt líklegur sem forsetaefni Demokrata Roosevelt forseti hefir enn ekki látið neitt uppi um hvort hann verður í kjöri við forsetakosningarnar í haust, en talið er, að hann muni ekki neita að verða í kjöri, ef flokks jing demókrata er einhuga um að velja hann sem forsetaefni flokksins. Flokksþing demókrata kom saman í Chicago í gær og á æssu þingi verður valið forseta efni fyrir flokkinn. Um 1100 :!ulltrúar sitja þingið, en engar ákvarðanir hafa enn verið tekn ar um forsetaefni. Kelley, borgarstjóri í Chicaco, setti flokksþing demókrata í gær. Hann mælti eindregið með: íví að Rossevelt yrði í kjöri^ Er h-ann sagði, að flokkurinri yrði að tryggja það, að lýðræis1 og mannvinur settist að í Hvíta húsinu, eftir næstu kosningar, og að sá maður væri einmitt Roosevelt, kváðu við fagnaðar- æti fulltrúanna. ' Aðrir ræðumenn á þinginu tóku í sama streng. Sjálfur var Roosevelt ekki á þinginu, heldur sat hann heimá hjá sjer í Hvíta húsinu og var sambandi við þingsalinn með beinu talsímasambandi. :gr.uqiis HAFNBANNIÐ Á KÍNA. FRAMH. AF ANNARI SÍDU. sendingum til Kínverja um Birma- leiðina. V ar samkomulagsumleitunurii þessum lángt komið og talið, að Bretar hefðu fallist á að hætta að nota Birmaleiðina í þrjá mánuði, ef Japanir notuðu þann tíma til að taka upp friðarsamnínga við Kínverja. En nií er búist við að þessi sam- komulagsgrundvöllur raskist vegna hins nýja hafnbanns Jap- ana og óþæginda þeirra, sem Bret- um kann að stafa af því liafn- banni. Verkamannabústaðirnir í Rauð- arárholti. Undanfarið hefir fólk verið að flytja inn í verkamanná- bústaðina nýju í Rauðarárholti, eri þeir voru síðar tilbúnir eu ráðgert hafði verið, vegna ófrið- arins. Fjöldi fjölskyldna, serix ætlaði að flytja inn í bústaðina í vor, hefir síð'an 14. maí orðið að liafast við í Ijelegum híbýlum á meðan verið var að ljúka við íbúð • irnar í verkamannabústöðunum. I. 0. 0. F.l* 1227161^4* f Rh. Næturlæknir er. í nótt Björgvin Finnsson, Laufásveg 11. — Síini 2415. Næturvörður er í Iugólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Hjónaband. S.l. laugardag voru géfin saman í hjónaband af síra Bjarna Jónssyni, ungfni Jóhanria Haraldsdóttir (Árnasonar kaup- inanns) og Bjarni Bjarnason lög- fræðingur, fulltrúi lögmaniis (Jónssonar frá VogÍ). Heimib þeirra er á Túngötu 16. Útiskemtun á Eiði. í ráði er að halda útiskemturi að Eiði næst- komandi suunudag, ef veður leyf- ir. Heimdallur, fjelag ungra Sjálf- stæðismanna sjer um þessa skemt- un og mun verða vandað mjög til dagskrárinnar. G-unnar Ólafsson kaupmaður og konsúll í Vestmannaeyjum er staddur hjer í bænum. Hanu tók sjer fyrir nokkru far með strand- férðaskipiriu austur um og fór í land á Sauðárkróki ; • þaðan land- leiðina suður. Siðristu vikuna hef- ir hann dvajið á Þingvöllum. Yfirhershöfðingi Norðmanna, Otto Ruge, hefir, samkv. frjettum frá Tromsö, verið handtekinn og verður liafður í haldi hjá Þjóð- verjum. Ruge neitaði að fara til Englands er konungsfjölskyldan og ríkisstjórnin fóru þangað eftir að norski herinn hafði gefist upp. Barnafjelagið Sumargjöf: „Gam alt áhéit.“ frá N. N. 10 kr. Kvitt ast fvrir með þakldæti. I. J. títvarpið í dag: 20.40' Erindi: Kristindómsfræðsla í barnaskólum nágrannaland- áriiia (Pjetur T. Oddsson prest- ' ur'). 21.10 TDjóínplötur: a) Kvartett. eftir Debussv (g moll, Op. 10). b) Tríó eftir Ravel. Hvernig innr ásar- hernum er tekið i Hoilandi ’C'rá því var sagt í frjettum ‘ Lundúnaútvarpinu í gœr, hvernig Hollendingar haga sjer gagnvart innrásarhernum þar í landi. Frá því var sagt, að ef þýskir liðsforingjar kæmu inn á veit- ingahus 1 Hollandi, væri það merki til allra Hollendinga, sem eru inni á viðkomandi veit- ingahúsi að standa þegar upp og ganga út. Liðsforingjarnir hefðu svo veitingahúsið fyrir sjálfa sig. Þá var frá því sagt, að mjög væri það sjaldgæft, að hollensk ar stúlkur sæjust með þýskum hermönnum. Kæmi það hins- vegar fyrir, að hollensk stúlka gengi á götu með þýskum her- manni, liði ekki á löngu þar til hópur ringra stúlkna og pilta væri kominn í humátt á eftír hjúunum, og eltu þau þegjandi hvert sepi þáu færu. Brfef frá látnum, lem lifftr. Bókaverslnn ísafoldarprenlsmflðl n, Skrftfstofum vorum og vinnu- stöðvum er lokað i dag kl. 1—4 vegna farðarfarar. Lýsissamlag ísl. botnvörpunga. Samtrygging isl. botnvðrpunga. Vcgna farðarftarar verður skrflfsftoln og smftOfum vorum lokað frá hádegi í dag. Vjelsmiðjan HjeDinn. „Skuggi fortíðarinnar" heitii' mynd, sem Gamla Bíó sýnir núna. iSnildarlega vel leikin . mynd og' efnismikil, enda frægir leikarar, Sylvia Sidney og Georg Raft. Lokað í dag ftrá hádegi vegna fardar- ftarar. S.f. StálsmiOjan. Móðir okkur elskuleg GUHRÚN STEINDÓRSDÓTTIR andaðist 15. júlí að heimili sínu, Ráðagerði við Sellandsstíg. María I. Einarsdóttir. Steindór Einarsson. Móðir okkar GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR andaðist að heimili sínu á sunnudagskvöld. Theódór Magnússon. Dóra Magnúsdóttir. Kjartan Magmússon. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda hluttekningn við fráfall móður okkar MÖRTHU INDRIÐADÓTTUR. Helga, Hildur, Björn og Einar Kalman. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við and- lát og jarðarför SOFFÍU HELGADÓTTUR frá Grenjaðarstað. Vandamenn. Innilegar þakkir vottum við þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför mannsins míns og fóður okkar STEFÁNS P. JAKÓBSSONAR. Þó sjerstaklega hjónunum Pjetri og Valrós, Hjalteyri. i Þorgerður og börn. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarð- arför móður okkar EYVÖRU MÁGNÚSDÓTTUR. Fyrir hönd annara aðstandenda Agnes Gamalíelsdóttir. Guðjón Gamalíelsson. Við þökkum öllum þeim, sem við fráfall og útför ÞÓRÓLFS SIGURÐSSONAR í Baldursheimi heiðruðu riúnningu hans, og sýndu okkur og börnum okkar margskonar vináttu og samúð. Eiginkona og móðir. Hólmfríður Hemmert. Sólveig Pjetursdóttir. ...... ^fri Innilegt þakklætii.til aRra, sem anðsýndu okkur samúð við fráfall og jarðarför móður okkar ÞURÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR. Einar Ásgeirsson. Sigurður Ásgeirsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.