Morgunblaðið - 24.07.1940, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.07.1940, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ i Miðvikudagur 24. júlí 1940. KVENÞIOÐIN OO HEIMILIN Hollur er beimafeoginn baggi BERJABÓKIN Berjabókin nefnist nýút- komin bók. Höfundar eru dr. Gunnlaugur Claes- sen og frk. KristbjÖrg Þor- bergsdóttir matráðskona á Landspítalanum. ísafoldar- prentsmiðja gefur bókina út. Efni bókarinnar er þetta: Inn- gangsorð; Ber og berjaafurðir: (Rerjahlaup. — Rotvarnarefni. — Sænskar berjarannsóknir. Til- breytni í fæði); Ahöld og útbún- aður; (Hreinsun á ílátum. Bensó- súrt natron, betamon, atamon. Vínsýra. Flöskum lokað. Hreins- ■un berja. Berjakvarnir. 'Geymsla. Merking); Islensk ber (Krækiber, Bláber, Hrútaber, Ribsber, Sólber, Reyniber). Rabarbari; Sítrónur; Tómatar; Tómatar; 'Gúrkur; Græningi; Grænsúrs; Salöt; Nið- nrsoðin ber. Húsmæður eiga að eignast þessa bók og hagnýta sjer þann mikla fróðleik,; sem hún hefír að geyma. I kaflanum Ber og berjaafurðir, sem dr. Gunnlaugur Claessen hef- ir ritað, er ýmiss almennur fróð- leikur um berin og gildi þeirra. Birtast hjer nokkrar þættir úr þeim kafla: „iÖldum saman. hafa þroskast ber úti um berjamóa þessa lands, án þess að húsmæður hafi gefið þeim nægan gaum. En um hendur ís- lenskra húsmæðra fara á ári hverju margar miljónir króna fyr- ir mat og drykk.Berin voru lengst af lítið annað en til gamans fyrir börn og unglinga, sem hafa farið i berjamó sjer til skemtunar. — Góðskáldið kemst líka svo að orði, að lyngið á Lögbergi helga „blán- ar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik“. Skáldið hefir sennilega ekki órað fyrir, að út um lyngmóa landsins m<á sækja holla og ljúffenga fæðu, ef lands- menn hafa sinnu á því og hús- mæðurnar áhuga og fagþekkingu, lil þess að matbúa berin, og safna forða til ársins. Svo koma auk þess þau ber og matjurtir, sem má rækta í görðum og gróður- húsum. A Norðurlöndum hefir á síðari árum vaknað talsverður áhugi um það hagnýta berin, frekar en áður hefir átt sjer stað. Norðmenn flytja út — einkum til Bretlands — æði mikið af týtuberjum og aðalbláberjum.------- SÆNSKAR BERJERANNSÓKNIR. í Svíþjóð kom fyrir fáum ár- um mikill skriður á að nota ber til-matar, frekar en áður hafði viðgengist. Tilefnið var, að sænsk- nr læknar í Norður-Svíþjóð veittu því eftirtekt, að meir eða minna áberandi skyrbjúgseinkenni gerðu vart við sig meðal almennings, vregna vöntunar <á C-fjörefni í dag- legu viðurværi. í nyrstu lands- hlutum Svíþjóðar er lítill kostur á nýmjólk og nýmeti af öðru tagi. En almúginn lifir mikið á hveiti- brauði og kaffi, ekki síst skógar- höggsmenn, sem tímum saman hafast við í afskektum kofum í skógum1 úti, og lifa þar við fá- breyttan skrímikost., Læknarnir bentu á, að tannsjúkdómar og magasár væru algengir kvillar, af þessum orsökum. Rannsóknir leiddu í ljós, að mesta þörf væri á breyttu og betra matarliæfi í nyrstu Ijenum landsins. Prófessor Gustaf F. Göt- hlin, sem er báskólakennari í líf- eðlisfræði í Uppsölum, tók að sjer, ásamt ýmsum aðstoðarmönnum, að gera vísindalega rannsókn á holl- ustugildi berja, er spretta á víða- vangi í hjeruðunum við Helsingja- botn og í fjallalöndunum þar nyrðra. Auk 'þess var rannsakað- ur lögur úr berjum, sem ræktuð eru í g'örðum, 'einkum rauð og svört ribsber. Athuganir próf. Göt- hlins voru mjög fyrirhafnarmikl- ar og gerðar með mestu mákvæmni. M. a. notaði hann, við hinar vís- indalegu tilraunir sína, hópa af naggrísum, sem iðulega voru rönt- genmyndaðir, til þess að sýna fram á innvortis skyrbjúg, og hvernig hann læknast með hæfi- legum dagskamti af berjasafa. Berin reyndust mjög misjöfn að þessu leyti. Krækiberja er ekki getið í þessum skýrslum. Jeg hygg, að þau sjeu lítt hirt, þar sem um ljúffengari berjategundir er að ræða. Rauð ribsber, hrúta- ber og aðalbláber reyndust að hafa í sjer talsvert af fjörefnum. En langmest fanst af C-vítamini í svörtum ribsberjum, þ. e. a. s. sól- berjum. Safinn úr þeim jafnast, að því leyti, á við appelísnu- og sítrónusafa. — — Próf. Göthlin gerði tilraun um hve mörg grömm á dag þyrfti af berjasafa í fóður tilraunadýra .(naggrísa) til þess að verja þau skyrbjúgi. En þessum skepnum er mjög hætt við skyrbjúgi, ef C- vítamin er of knapt í fóðrinu. Nið- urstöður hans voru á þá leið, að minsti dagskamtur er sem hjer segir: búa til úr berjum og berjaafurð- um1. En það út af fyrir sig er mik- ils virði til þess að prýða matborð- ið og auka lyst og nautn af dag- legum kosti. íslenskt fæði er yfir- leitt frekar einhliða, vegna þess hve innlend matarefni eru fábreyti leg, og kunnáttu ýmsra htismæðra og eldhússtúlkna áfátt. Hjer á landi er ekki til neinn fullkominn húshiæðraskóli! Og ekki bætir um ,hin vanhugsaða fyrirtekt stjórnar- valdanna að banna innflutning á ■ jafn sjálfsögðum matvælum sem sveskjum, rúsínum og ýmiskonar | öðrum ávöxtum og grænmeti. Þær J eru ekki öfundsverðar að þessu |,leyti, íslensku húsmæðumar, enda reynir mikið á hugkvæmni þejrra og úíræði, að hafa nauðsynlega tilbreytni á matborðinu, þótt víða standi lítil efni til. Ætti því að leggja meiri áherslu, en áður hef- ir átt sjer stað, á hagnýting og matreiðslu á berjum og öðrum á- .vöxtum, sem hjer geta sprottið. [Það er misskilningur >á íslenskum sveitaheimilum að gefa sjer ekki tíma til að afla berja til heimil- isins. Það má ekki einblína á kjöt og slátur sem vetrarmat. Yíða eru börn og liðljettingar, sem ekki gera annað þarfara en að^tína ber. En vitanlega þarf húsmóðirin ráð- rúm, áhöld, þekkingu og hentuga geymslu til þess að hagnýta þau. En í því skyni birtist þetta kver, að ekki vanti leiðbeiningar um ís- lenskar berjaafurðir. Notkun skarfakáls Leiðbeiningar 18. aldar manna Sumarfrííð Hentug föt í sumarferða- lög. Tvískift pils og köflóttur jakki. Ef þjer dveljið 2—3 daga á gistihúsi eða einhverju sveitaheimili er kjóllinn og jakkinn við, einkar þægilegur. Sjálfsagt er að hafa hann úr bómullarefni. Skarfakálið er nú umræðu- efni margra húsmæðra. Vafa- laust eru það mörg heimili, sem hafa matjurtagarð og hugsa sjer að fá þessa nytja jurt í garð sinn. Hún er fiölær, eins og rabarbari. Svo ekki þarf að hugsa um að sá til hennar á hverju ári. Og engin hætta er á, að hún þrr.skist ekki í hvaða sumri sem er. En vafalaust þarf planta þessi helst að hafa bæði sendinn og frjóvan jarðveg. Eins og kunnugt er, var skarfakál allmikið riotað til manneldis hjer fyrr á árum, og um það talað í gömlum ís- lenskum bókum er fjalla um nytjajurtir. Um skarfakálið tala þeir mágarnir Eggert Ólafsson og Björn í Sauðlauksdal, en þeir hafa, sem kunnugt er verið manna fróð^stir um alt er lýt ur að notkun og nytsemi ís- lenskra jurta, eftir því sem þekking samtíðarinnar frekast leyfði. Eggert Ólafsson kemst svo að orði í Matjurtagarðsbók sinni: Skarfakál er ein ágætis jurt, sem alþekt er bæði utanlands og innan, og ræktuð í aldin- görðum. Danir og sumir íslend-> ingar búa hana til sem kál graut. Eins er hún hrá fyrir salat etin, og blöðin ýmist hrá eða soðin með kjöti etin. Hún telst af læknum það allra vold ugasta meðal gegn skyrbjúge Björn í Sauðlauksdal segir m. a. um skarfakálið: Af skarfakáli gerist grautur, «em af öðru káli. Má það líka salta til matar, og geyma svo Svört ribsber (sólber) 2 gr. Rauð ribsber 10 — Hrútaber 20 — Aðalbláber 30 — Týtuber 55 — Sólberjarunnar spretta víða vel í görðum hjer í Reykjavík, og ber- in þroskast vel á hlýjum sumrum. ! En vafalaust eru rauðu ribsberin arvissari. TILBREYTNI I FÆÐI. Nú m>á vitanlega ekki einblína á vítamin í fæðunni, enda fer all- mikið af þeim forgörðum við suðu. Reyndar getur líka tekist að geya berjalög og berjamauk I hrátt og ósoðið, án þess að granda fjörefnunum, enda er lýst tilbún- j ing á hrásaft og hrásultu hjer á eftir. En auk fjörefnanna, hafa berin mikið næringargildi að öðru leyti, og gera mögulegt að hafa kær- komna tilbreytni í daglegt matar- hæfi, því margskonar matrjetti má Skarfakál í klettaskoru í Grímsey. (Vigfús Sigurgeirs- son tók myndina). Líka gera þar af gott og holt salat. Að setja brennivín, franskt eða danskt ellegar franskt vín í skarfakálsblómstur, gef-> ur hollan drykk á fastandi maga, helst þeim, sem hætt er við skyrbjúg. Gott er líka að skola með því munninn Við andfýlu. Þá segir Olavius í Urta- garðsbók sinni um skarfakálið: (Það) Vex mikið vel í fastri sandjörð við sjávarsíðu og í eyjum úti. Það verður og fært með hægu móti í uppsveitir, og sáist þar af sínu eigin fræi, sem ekki er vandfengið. 1 graut af vatni, mjólkur og mysu held jeg jurtin sje all-* góð, en eigi í saupi. Og hver vill neita, að eitt lag af þessu káli soðnu, og annað af skyri, geymt til vetrarforða, sje holl- ara en súra skyrið aleina? Betra meðal við skyrbjúg en skarfakál, hrátt með ediki og sykri eða soðið á sagðan hátt vita menn ekki, sem læknar hafa staðfest. Linnæus segir, að það eigi við þungum andardrætti (asth- ma) er oftast fylgir vatnssótt. Teikning af skarfakáli. Gerð plöntunnar og blaðlögun sjest greinilega. (Eftir Flóru Islands).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.