Morgunblaðið - 28.03.1942, Side 3
jLatigardagur 28. raars 1942.
■ÍH o K GU N tíl.AÐI Ð
í kirkju.
Kistan borin úr kirkju.
Útför dr. Jóns Helgasonar biskups var
fjölmenn og virðuleg
„Mjei|fjellu að erfðahlut indæiir staðir“
U TFÖR dr. Jóns Helgasönar biskups í gær var
hin virðulegasta, sem hjer hefir lengi farið
fram, sem eðlilegt var. •
Bæjarstj&rn Reykjavíkur annaðist útföriiia i wib'Singarskyni við
þenna rnerka Reykvíking, kirkjuhöfðingja og fraeðimann, er helgaði'
:sogu ReykjáVTkur mikið af fræðastörfum síninn.
St. Priðrik Haligr'ímsson flutti
húskveðju á ketmili biskups í
Tjaruargptu. gr. Halfdán Helga
son sonur biskups imelti þar og.
nokkur kveðjuorð f.yrir hönd
þeirra systkinanna og mæltist
mjög vel. Haun béirKÍi og nokkr-
nm orðinn til móður sinnar.
Prestar hempuklæddir siifnuðmst
í fordyrí Alþingishússins meðan á
húskveðju stóð, en gengu þaðari
í skrúðgöngu til kirkjunnar, áðmr
, en líkfylgdín kom jiangað. Þeir
voru nál. 30 að tölu.
Er kistan var borín í kirkjn
var leikinn sorgarmars eftir Hart-
mann, er hann samdi fyrir útför
Bertel Thorvaldséns.
Borgarstjóri og bæjarráðsmenn
báru kistuna í kirkju. Kistan var
fagurlega blómskreytt og á henni
silfurskjöldur, er Sigurgeir Sig-
urðsson biskup hafði lagt á kist-
una. Var á honum þessi áletrun:
„Dr. Jón Helgason biskup, með
þakkarkveðju frá þjóðkirkju Is-
Iands“. Heiðnrsmerki hins látna!
voru og á kistunni. [
Tvær ræðnr voru fluttar í kirkj-
unni. Þá fyrri flutti dr. Bjarni
Jónsson vígslubiskup. Honum fór-
ust m. a. orð á þessa leið:
— Mjer finst, best. fara á því,
að hann sjálfur velji textann, er
jeg nú mæli minningarorð við
kistu dr. Jóns Helgasonar bisk-
ups.
Þegar hann á síðasta kvöldi árs-
ins 1938 kvaddi starf sitt og
prjedikaði hjer í kirkjunni lýsti
hann æfi sinni með þessurn orðum
ritningarinnar: „Mjer fjellu að
erfðahlut indælir staðir“.
Líf og starf hafði flutt Jóni
Helgasyni biskupi mikla gleði.
Honum var auðvelt að koma auga
á indælis staði. En honum var
aldrei nóg að horfa á staðina.
Starfið heillaði hann.
Hann sagði: „Mjer her að
vinna verk þess er sendi mig, með-
an dagur er. það kemur nótt, þeg-
ar enginn getur unnið“.
Síðan rakti dr. Bjarni starf
Jójis Ilelgasonar, er fæddist að
Qörðprn á ÁÍEfcanesi nákvæmlega
2()0 árum síðar en ,Jön Þorkelsson
Vídalín fæddist þar.. Hann mint-
PRAMH. 1 SJÖTTU SÍÐU
Prestafylkingin.
Jöklaferð Fjalla-
manna um páskana
Frásögn Guðmundar Einarssonar
Iþróttamenn bæjarins, yngri og eldri, búa sig
þessa dagana í útilegur yfir páskana. I dag
leggja „Fjallamenn“ upp í viku ferðalag upp
í óbygðir, austur á jökla.
Fararstjóri verður GuSmundur Einarsson frá Miðdal, stofn-
andi og sjálfkjörinn foringi „Fjalþimanna“. Guðmundur hefír skýrt,
tíðindamanni Morgunblaðsins frá ferðaáætlun og fyrirætlunum:
— Áformað er að leggja af
stað nú um miðjan dag áleiðis
austur á jökla. Við verðum um
30 talsins. Sjö fjallameyjar og
konur verða með í förinni. Plestir
þátttakendur eru vanir fjallaferð-
um og alt fólkið reynt og dug-
andi.
Þó má enginn halda að slík
ferðalög sjeu neinar svaðilfarir.
Fyrir okkur vakir aðallega að
þjálfa fólk og æfa í útilegu og
langferðum um .jöklana og svo að
æfa allskonar íþróttir sem að
gagni koma í slíkum ferðum, svo
sem: að klífa í þergi og bröttum
ís, skíðatækni í erfiðu fjalllendi,
snjóhúsabygging og meðferð sleða.
• Um síðustu páska dvöldu 55
inanns á Fimmvörðuliálsi og jeg
hýst. við að það verði svipað nú,
því að á skírdag kemur annar
hópur til viðbótar. Skálinn rúmar
þó eigi neina 20 manns, svo að
meir en helmingur verður því að
búa í tjöldum og snjóhúsum.
Að þessu sinni verður með fólk
úr flestum íþróttafjelögum borg-
arinnar. Okkur þykir mjög vænt
um það, enda buðum við í upp-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Þitig Slysavarna
flelags íslands
sett I cær
Þing Slysavarnafjelags íslands
var sett í gær kl. 4%. Á
f.yrsta fundi þingsins gerðist
þetta:
Forseti Slysavarnafjel., Guð-
bjartur Ólafsson hafnsögumaður
setti þingið með stuttu ávarpi.
Mintist hann hins mikla mann-
tjóns ísl. sjómannastjettar árið
1941 (139 sjómenn druknaðir)
og vottaði þingheimur hinum
látnu virðingu og ættingjum sam-
úð með því að rísa úr sætum sín-
um.
Kjörbrjefanefnd var skipuð
(Friðrik Ólafsson skólastj,, frú
Guðrún Jónasson bæjarfulltrúi og
Sigurjón Jónsson fyrv. hjeraðs-
PKAJHH. i SJÖUNDU * *ÍBtí
Ný vjelasamstæða til
Laxárvirkjunaiinnar
Fyrir milligöngu
Steingríms Jónssonar
rafmagnsstjóra
Akureyri í gær.
D æjarstjórn Akureyrarkaup-
staðar kom saman til auka-
fundar 24. þ. m. í tilefni af því,
að daginn áður höfðu rafveitu-
nefnd og fjárhagsnefnd haft sam
eiginlegan fund, þax sem rætt var
og lagt fram símskeyti, frá Stein-
grími Jónssyni rafmagnsstjóra í
Reykjavík, en sem nú dvelur í
Bandaríkjunum, og hefir m. a.
unnið að því að útvega tilboð í
nýja vjelasamstæðn til stækknn-
ar Laxárvirkjunarinnar.
Rafmagnsstjóri skýrði frá því
í skeytinu, að nokkur amerísk
firmu hefðu gert tilboð, en hann
mælti sjerstaklega með tilboði frá
firmunum Morgan & Smith og
Westinghouse Eleetric Co., og
yrði þá 4000 hestafla vjelasam-
stæða keypt.
Kostnaður er áætlaður 1620
þúsund krónur alls.
Ilöfðu nefndirnar lagt til, að
gengið væri að tilboði þessu, ef
lán fengist, sem aðgengiíegt mætti
teljast, innflntningsleyfi 'fengist og
útflutningsleyfi í Bandaríkjunnm
og önnur nauðsynleg skilyrði væru
fyrir hendi.
Bæjarstjórnin samþykti þessa
tillögu nefndanna og fól bæjar-
stjóra að útvega leyfin og vinna
að útvegun láns til fyrirtækisins.
Gullna hliðið verður sýnt ann-
að . kvöld. Þetta verður síðasta
sýning fyrir páska.
$
Síefán A. Pálsson
kosinn formaður
Aðalfundur Varðarfjelagsins
var haldinn í Kaupþings-
salnum í* gærkvöldi.
Formaður, Árni Jónsson frá
Múla gaf skýrslu um starfsemina
og hóf umræður um kjördæma-
málið og kosningarnar. Urðu fjör-
ugar umræður úm þessi mál og
töluðu: Hannes Jónsson, Sigurðm*
Kristjánsson, Gísli Jónsson, Jón
Pálmason, Sigbjörn Ármann og
Ólafur Þorvarðsson.
Ný stjórn var kosin og hlutu
þessir kosningu: Stefán A. plrls-
son formaður og meðstjórnendur
þeir Andrjes Þormar, Magnús
Þorsteinsson, Guðm. Guðjónsson,
Gísli Jónsson, Kristinn Kristjáns-
son og Guðbjartur Olafsson.
Varamenn í stjórn voru kosp:
ir: Einar Ásmundsson hrm.,
Gunnar E. Benediktsson og Ólaf-
ur Þorvarðsson.
Endurskoðendur voru endur-
kosnir þeir Ólafur Ólafsson og Ás-
mundur Gestsson.
Æíluðn að
flmygla spiritus
Tveic íslenskir sjómenn voru
dæmdir í lögreglurjetti í gær
morgun fyrir tilraun til að smygla
áfengi inn í landið. Höfðu þeir
falið í skipi sínu 10 brúsa — um
80 lítra — af óblönduðum spíritus
og nokkrar flöskur af sterkum
vínum.
Annar mannanna var dæmdur í'
3100 króna sekt til Menningar-
sjóðs og til vara 75 daga fang-
elsi, verði sektin ekki greidd inn-
an fjögurra vikna. Hinn var dæmd
ur í 2700 króna sekt, eða 70 daga
fangelsi.
íslenskur sjómaður
hverfur I enskri höfn
C íðast þegar togarinn Gyllir
^ var í höfn í Englandi, hvarf
einn skipverjanna, Tómas Guð-
mundsson háseti. Hafði hann far-
ið í land með fjelögum sínum, en
orðið viðskila við þá og ekkert
síðan til hans spurst.
Skipstjórinn á togaranum ljet
lögregluna ensku vita af hvarfi
marmsins áður en skipið fór úr
höfn í Englandi.
Tómas Guðmundsson var ekkju*
maður og átti uppkomin börn.
4 skipum sökt
vlð Island
Úr tilkynningu þýsku her-
stjórnarinnar í gær:
,J austur frá íslandi rjeðist
kafbátur á 1500 smálesta kaup-
skip, sem hafði fylgd varðskips
og tveggja kafbátaspilla, og sökti’
öllum fjórum skipunum“.