Morgunblaðið - 07.03.1944, Blaðsíða 12
Miðvikudag-ur 8. mars 1944
12
Bússneski
sendiherrann
kominn
SENDIHERRA Sovjetrikj-
anna, Alexei ' Nicolaywitch
Kassilnikov og starfslið hans
er nýkomið til landsins. Með
sendiherranum er kona hans
og þriggja ára sonur þeirra. —
Sendiherrann er fæddur árið
1909 í borginni Kazan, sem er
höfuðborg Tatar-lýðveldisins,
og stendur á bökkum Volgu.
Faðir hans var lyfjafræðingur
þar í borg.
Árið 1929 útskriíaðist sendi-
herrann frá fjárhagsverkfræði-
háskóla í Leningrad. Árið 1940
hóf hann starf við utanrikis-
þjónustu Sovjetrikjanna.
Sendiherrann gekk í gær á
fund utanríkismálaráðherra
Vilhjálms Þórs.
Skipulagsskrá
vöggusfofusjéðs
sfaðfesf
SKIPULAGSSKRÁ nefir ver
ið gerð, og staðfest af ríkis-
stjóra, um Vöggustofusjóð
Ragnheiðar Sigurbjargar ís-
aksdóttur, sem stofnaður var
í des. s.l. í tilefni af opnun nýja
bamaheimilisins í Suðurborg.
— Stofnfje sjóðsins var 5 þús.
krónur.
Ákveðinn hluti af ársrentum
sjóðsins rennur til styrktar
munaðarlausum börnum í
vöggustofum Sumargjafar.
Gert er ráð fyrir, að sjóður-
inn aukist með minningargjöf-
um. I tilefni af því hafa verið
gefin út minningarspjöld og
keypt minningargjafabók, sem
nöfn þeirra. er minst er, ásamt
rafni gefenda, verða færð i.
Minningarspjöld sjóðsins fást
hjá forstöðukonum barnaheim-
ila Sumargjafar og hjá for-
manni fjelagsins.
Fyrsta minningargjöf til
vöggustofusjóðsins er frá Sum-
argjöf. Stjórn fjelagsins ákvað
að gefa kr. 1000.00 — eitt þús-
uncl krónur — í sjóðinn til
minningar um ungfrú Ingi-
björgu Þorsteinsdóttur, for-
stöðukonu í Vesturborg, sem
ljest 23. febr. s.l. og verður
jarðsungin í dag. Vitað er um
nokkra vini, sem einnig hafa í
hyggju að gefa minningargjöf
í vöggustofusjóðinn í tilefni af
fráfalli forstöðukonunnar.
Edik fyrir romm.
LONDON í gærkvöldi. Skotsk-
ur hermaður ætlaði að kaupa
sjer rommflösku í Aberdeen og
ræddi um það, við fjelaga sína,
Iivar slíkt myndi vera að fá,
er maður gekk fram og bauðst
tii að útvega# hermanninum
hnossið. Fór hann síðan á brott
og kom að vörmu spon aftur
með flösku vafða innan í blað
og greiddi hermaðurinn 1 pund
sterling fyrir þfjjta í þeirri trú j
að romm væri á flöskunni. En
það var þá edik.
Svikarinn hefir náðst og
verið dæmdur í sekt.
—Reuter.
LANDSMÓT í innanhús-
handknattleik hófst í gær-
kveldi og voru eftirfarandi
leikir háðir:
í kvenflokki keptu Ármann
og í. R. og vann Ármann með
16:6.
í II. fl. karla keptu F. H. og
í. R. Vann F. H. með 12:11. og
er í. R. þar með úr leik.
í meistaraflokki Valur og
Víkingur. Vann Valur með
22:18 og er Víkingur úr leik.
I kvöld fara fram eftirtaldir
leikir: I kvenflokki keppa Hauk
ar og K. R., dómari Þráinn Sig
urðsson. í I. fi. karla keppa F.
H. og Víkingur, dómari Skúli
Nordahl, og í meistaraflokki
K. R. og Ármann, dómari Þrá-
jgn Sigurðsson.
Fjársöfnun til
danskra flóttamanna
EFTIRTALDAR gjafir hafa
til þessa borist beint til skrif-
‘»tofu minnar:
L. Kampmann kr. 5000.00.
Hjalti Jónsson konsúll kr.
5.000.00. B. G. W. kr. 500.00.
Hjer í blaðinu birtist fyrir. skömmu fregu þess efnis,
að nýlega hefði verið kveikt á götuljósum öllum í London
um hábjartan dag, vegua mikillar þoku, sem skall yfir borg-
ina. Myndin hjer að ofan er tekin við svipað tækifæri, að
vísu fyrr, en gefur góða hugmynd um hina illræmdu Lund-
únaþoku, sem svo miklar sögur. hafa farið af.
Heimdallur heldur glæsilega
kvöldvöku fyrir meðlimi sína
og gesti þeirra í kvöld
FJELAG ungra Sjálfstæðismanna efnir í kvöld til
kvöldvöku fyrir meðlimi sína og gesti þeirra að Hótel
Borg. — Hefir verið hið besta vandað til undirbúnings
kvöldvökunni og dagskrá mjög fjölbreytt.
Með þessari kvöldvöku vill
fjelagið vinna að aukinni
kynningu meðlima sinna og
útbreiðslu fjelagsins. Hefir
meðlimum verið boðið á kvöld-
vökuna og heimilað að taka
gest með sjer.
Góður alli á
Stokkseyrarbála
Egill Árnason kr. 500.00. Jón
Jóhannsson kr. 200.00. Laura
og Magnús Scheving Thor-
steinsson kr. 10.000.00. X kr.
100.00. Hallur Hallsson tann-
læknir kr. 1000.00. J. Á. kr.
100.00. A. J. kr. 100.00. Guðr.
kr 25.00. Geirlaug kr. 10.00.
Sigurjón Jónsson og fjölsk. kr.
200.00. Sigr. Magnúsd. kr.
10.00.
Fjársöfnunarnefndin hefir
unnið að undirbúningi fjársöfn
unar víðsvegar um land nú að
undanförnu og hefir málaleit-
un hennar alstaðar verið vel
tekið. Gögn varðandi fjársöfn-
unina verða send út þessa dag-
ana.
Dagþlöðin öll hjer í bænum
taka á móti framlögum vegna
söfnunarinnar, og ættu menn,
sem hafa í huga að láta gjaf-
ir af hendi rakna, að koma þeim
sem fyrst á framfæri, með því
að fyrsta hjálpin er besta hjálp
in og fjeð verður sent nokkurn
veginn jafnóðum og eftir því
sem kostur er á.
Þakka jeg fyrir nefndarinn-
ar hönd gjafir þær, sem borist
hafa.
Boðsbrjefum til fjelaganna
fylgir eyðublað undir inntöku-
beiðni, sem stjórn, fjelagsins
væntir, að hver fjelagi skili út-
fyltu, annað hvort á kvöldvök-
unni eða á skrifstofu Sjálfstæð
isflokksins í Thorvaldsens-
stræti 2.
I Heimdalli er mikil fjelags-
starfsemi og vakandi áhugi
unga fólksins.
Til skemtunar verður, að frú
Soffía Guðlaugsdóttir leikkona
les upp kvæði, Skúli Halldórs-
son leikur á píanó, þ.á.m. frum
samin lög, Gunnar Kristinsson
syngur með undirleik Gunnars
Sigurgeirssonar og Lárus Ing-
ólfsson leikari syngur gaman-
vísur. Á milli skemtiatriðanna
verða fluttár stuttar ræður. —
Salirnir verða sjerstaklega
skreyttir.
í G-ÆR bárust blaðinu afla-
frjettir frá Stokkseyri.
Eins og frá fyrstu tíð róa
flestir bátar frá Stokkseyri, í
veiðistöðvum austan fjalls, og
ganga nú þaðan þessa vertíð 6
vjelbátar að stærð 12—16 smál.
Vertíð byrjaði þar laugar-
daginn 26. f. m. og var róið alla
s.l. viku. Afli á bát hefir verið
8—1500 stk. af vænum þorski,
auk ýsu o. fl. — Aflinn var á
línu og nýja beitu, er bátarnir
öfluðu s.l. haust, og var hún
fryst í hraðfrystihúsinu þar á
staðnum. Nokkuð af aflanum
var selt í frystihúsið og nokk-
uð upp um sveitir.
Síðan hraðfrystihúsið tók til
starfa hafa orðið gífurlegar at-
vinnubreytingar á Stokkseyri
og miklir möguieikar fyrir auk
inni útgerð.
Rv. 6. mars 1944.
Kristján Guðlaugsson.
Rifist fyrir rjefti
Algiers í gærkvöldi.
RJETTARHÖLD hjeldu áfrm
hjer í dag yfir hinum fyrver-
andi franska ráðherra Pucheu,
og var leiddur sem vitni kom-
múnistaþingmaður fyrverandi
frá París. Bar hann Puchdú
Ijótum sökum, og kvað hann
hafa afhent Þjóðverjum
franska gisla til lífláts. Svar-
aði Pucheu fullum hálsi og
varð af mikill hávaðL Kölluðu
þeir hver annan lygara og
morðingja og var erfitt að
halda reglu í rjettinum.
Á morgun verður Giraud
leiddur sem vitni 1 máli Pucheu
—Rsutar,
Lýðveldisstjórn-
arskráin af-
greidd í Ed.
LÝÐ VELDISST J ÓRN AR -
SKRÁIN var í gær samþykt
við 3. umræðu í efri deild með
17 samhljóða atkvæðum, þ. e.
öllum deildarmönnum.
En þar sem Ed. gerðí brevt-
ingu á frumvarþinu við 2. um-
ræðu (varðandi synjunarvald
forseta), verður málið að fara
aftur til Nd.
Virðist svo, sem ágreiningur
sje risinn milli deilda þingsins
um synjunarvald forsetans (26.
gr. frv.). Nd. samþykti á dög-
unum með 19:11 atkv. þá
breytingartillögu frá forsætis-
ráðherra, að lagafrv., sem for-
séti synjar staðfestingar, skuli
fyrst öðlast gildi, er þjóðin hef
ir goldið því jákvæði. Hefir
Mbl. áður látið þá skoðun í
ljós, að þetta fyrirkomulag
væri það eðlilegasta.
En Ed. vildi ekki á þetta fall
ast. Breytti deildin (með 9:8
atkv.) 26. gr. og setti hana
eins og milliþinganefndin gekk
frá henni. Samkv. því öðlast
lagafrv., er forseti synjar stað-
festingar, strax lagagildi, en
lögin falla úr gildi, ef þjóðin
legst á móti þeim við atkvæða-
greiðslu.
Fari svo, að Nd. breyti á ný
26. gr., fer lýðveldisstjórnar-
skráin aftur til Ed. Og ef Ed.
breytir greininrii, fer stjórnar-
skráin í sameinað þing.
Þjóðaratkvæða-
greiðslan.
Frv. um tilhögun þjóðarat-
kvæðagreiðslu um niðurfelling
sambandslaganna og lýðveldis-
stjórnarskrána var samþ. við
3. umr. í Nd. í gær. Deildin
gerði lítilsháttar breytingar á
frv. og fer það því aftur til Ed.
Bridgekeppnin
Þriðja umferð
ÞRIÐJA UMFERÐ meist-
araflokkskepni Bridgefjelags-
ins var spiluð á Hótel Borg s.l.
sunnudag. Eftir þessa umferð
stendur kepnin þannig, að
fyrst er sveit Harðar Þórðar-
sonar með 930 stig, önnur
sveit Gunnars Guðmundssonar
919 stig, þriðja sveit Axels
Böðvarssonar 891 stig, fjórða
sveit Lárusar Fjeldsted 873
stig, fimta sveit Stefáns Þ. Guð
mundssonar 851 stig, sjötta
sveit Gunngeirs Pjeturssonar
850 stig, sjöunda sveit Brands
Brynjólfssonar 807 stig, og átt-
unda sveit ÁrsælS Júlíussonar.
Næsta umferð, fjórða, verður
spiluð í kvöld í húsi V. R. og
hefst kepnin kl. 8. — Sakir
þrengsla verður aðeins hægt
að veita fjelagsmönnum að-
gang.
Barist hjá
Hollandsströndum.
LODON í gærkvöldi: — í nótt
sem leið, varð nokkur við-
ureign milli breskra smáher-
skipa og þýskra, og varð vopn-
aður togari þýskur fyrir þrem
tundurskeytum og sprakk í
loft upp. Bresku skipin sluppu