Morgunblaðið - 03.01.1945, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.01.1945, Blaðsíða 1
32. árg-angur. . 1. tbl. — Miðvikudagur 3. janúar 1945. Isafoldarprentsmiðja h.f. SÓKN ÞJÓÐVERJA SUÐURAF SAAR- HJERAÐINU FER HARÐNANDI lllt útlit með samkomu- lag í Grikklandi Enn barist í Aþenu London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. SEINT. í kvöld bárust þær fregnir frá Aþenu, að svo virtist nú, sem víst væri, að bardögum my.ndi halda áfram þar til yfir lyki, ef ekki næðist samkomulag i stjórnmálum í dag eða í síð- asta lagi á morgun. Hershöfðingi sá, sem talið var áð myndað gæti stjórn. hefir setið á fundum með Damaskinos erkibiskup, en ekki er talið að fundir þessir hafi borið árangur. I Aþenu hefir verið barist all mikið í dag, og hafa báðir að- ilar beitt stórskotaliði sínu. Bretar skutu einkum á vegina til borgarinnar, til þess að hindra liðsauka Elasmanna til borgarinnar. Elasmenn hjeldu uppi um skeið slórskotahríð á miðhluta borgarinnar. Virðist nú horfa vænlegar fyrir Brel- um en um skeið, og hafa þeir nú lagt undir sig allan suðaust ur hluta borgarinnar. •— Scobie hershöfðingi hefir neitað að tala við fulllrúa Elasmanna, fyrr en þeir taki skilmálum hans. Ekki hefir neitt frekara heyrst frá Norðaustur-Grikk- landi, þar sem nú er talið, að Elasmenn hafi þvínær að fullu hrakið Edesmenn út í eyjar fyrir ströndinni, en manntjón varð ógurlegt. Þjóðyerjar ráðast að flugvöllum í GÆR, á nýársdag, gerðu Þjóðverjar óvenjumiklar árás- ir á flugstöðvar bandamanna í Hollandi og Belgíu og beittu miklu fleiri orustuflugvjelum og öðrum flugvjelum, en þeir hafa lengi gert. Urðu þeir all- skeinuhættir sumsstaðar, þar sem þeir komu að flugvöllun- rnn rjett um það bil að flugvjel ar bandamanna ætluðu að fara að hefja sig' til flugs. Ljetu Þjóðverjar fallbyssu- og vjel- byssuskothríð dynja á flugvöll unum. En þar sem flugvjelarnar þýsku voru helst til lengi yfir ílugvöllunum, fengu banda- menn tækifæri til þess að senda orustuflugvjelar upp frá öðrum flugvöllum og rjeðust þær á þýsku flugvjelarnar á heimleið. Var fjöldi þeirra skotinn nið- ur. Allar árásir Þjóðverja nema ein voru gerðar á breskar stöðvar. Hifler flylur. nýárshoMap LONDON: —• Hitler rauf hina löngu þögn sína með því að flytja þýsku þjóðinni nýárs- boðskap um miðnætti á gaml- árskvöld. og hóf hann mál sitt á því, að segja, að andstæðing- ar Þjóðverja hefðu verið ákaf- lega bjartsýnir um tíma, um það að iakast mætli að leggja Þjóðverja að velli, spáð og spáð að slríðið myndi enda þá og þá, en eins og allir vissu, væri lít- ið um að slíkir spádómarhefðu rætst. Hitler vjek því næst að hin- um ógurlegu átökum, er þýska þjóðin hefir sýnt í hernaðinum Hann kvað miljónir kcnna hafa streymt í verksmiðjurn.ar, er hann gaf skipunina um alls- herjar hervæðingu, og miljónir karla í herinn. Hefði þar sann- ast nógsamlega hugrekki og bar átluvilji þjóðarinnar og ö.rugg forysta nasistaflokksins. HiLIer kvað þýsku þjóðina búa við ógurlegar fórnir og þjáningar. Enginn vissi betur en hann, sagði hanm hve óg urlega ýmsar borgir Þýska- iands væru leiknar. þar sem þúsundir kvenna og barna hefðu verið myrt á hinn hrylli- legasta hátt af flugmönnum ó- vinanna. Þessar borgir skyldu að ófriðnum loknum bygðar upp miklu fegurri en áður. — Það veit hver einasti Þjóð verji um hvað er verið að btrj- ast, sagði Hitler, en það ei um sjálfa tilveru þjóðarinnar, sem á að eyðileggja, ef hun bíður ósigur og flytja 25—40 miijónir manna burtu í þrældóm. Þess- vegna berst þjóðin fyrir til- veru sinni, fyrir öllu, sem henni er dýrmætt, hinni 2000 ára gömlu menningu sinni. Frægur vísi Ur 13!! FYRIR SKÖMMIJ andaðist í París af hjartasjúkdómi hinn frægi líffræðingur og læknir, dr. Alexis Carrel, 72 ára að aldri. Hann fjekk Nobelsverðlaunin og var einn af föstum starfsmönn- um Rockefellerstofnunarinnar. Bandríkjamenn vinna á hjá Bastogne foringi ferst London í gærkveldi. í morgun fórst Sir Bertram Ramsay flotaforingi, sem stjórn aði sjóher bandamanna í inn- rásinni í Frakkland og síðan. Fórst flotaforinginn í flugslysi. Flugvjel sem hann var í og var að fara til Belgíu, hrapaði til jarðar. Bertram Ramsay var breskur maður. Sir Bertram Rramsay var maður aldraður og hættur her- þjónustu, er styrjöldin byrjaði. Gaf hann sig þó aftur fram til þjónustu og hefir síðan verið talinn með fremstu flotafor- ingjum Breta. Hann átti drjúg- an þátt í því að skipuleggja innrásina í Norður-Afríku og síðan hverja svipaða hernað- arframkvæmd- Flotamálaráð- herra Breta sagði í dag, að flot- inn og málstaður bandamanna hefði beðið mikinn hnekki við fráfall Ramsays . flotaforingja. Reutei. London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. SÓKN Þ.JÓÐVERJA hin nýja, suður af Saargnemines, sem háð er á 110 km. langri víglinu, hjelt áfram í dag, en hún byrjaði í gær. Sókn þessi er ekki nærri eins hörð og fyrri' sóknin í Belgíu og Luxemburg, en Þjóðverjum hefir einnig tekist að sækja þarna fram, þótt þeim mið- aði varla nokkursstaðar meira en 3—4 km. í dag. Á hinu fyrra sóknarsvæði Þjóðverja í Belgíu og Luxemburg, eru háðir miklir bardagar og hafa hersveitir úr þriðja hernum ameríska sótt fram milli Bastogne og St. Hubert í Belgíu. Þá hafa bandamenn náð aftur bænum Roche- fort. Þjóðverjar gerðu hörð gagnáhlaup. Síðustu fregnir frá suður- vígstöðvunum, þar sem Þjóð verjar reyna að sækja inn í Frakkland, herma að þung- inn í sókn Þjóðverja hafi aukist, er á daginn leið. Bandamenn verjast með öfl- ugri stórskotahríð. og eru orustur hvarvetna harðar. Þjóðverjar beita skriðdrek- um þarna í sókninni. Þar sem loft hefir verið heið- skýrt í dag, hafa flugherir bandamanna getað aðstoð- að landherinn. Ofsahörð vörn Þjóðverja í Budapest London í gærkveldi. ORUSTURNAR 1 Budapest eru óhemju harðar, og munu Þjóðverjar ákveðnir í því, að verja hvert einasta hús, hvert einasta herbergi, meðan nokk- ur maður af setuliði borgarinn- ar má vopni valda. Barist er af óskaplegri hörku í Buda, en Rússar munu nú vera búnir að ná á vald sitt meirihluta þess- arar borgar, en í Pest, hinumeg in Dónár, hefir þeim gengið seinna. Rússar verða víða að sprengjá heil hús í loft upp. Ekki geta þeir beitt flugher sínum neitt að ráði, þar sem þykkur reykj- armökkur grúfir yfir allri borg inni. Þjóðverjar hafa fallbyss- ur í Buda, og geta af þeim skot ið á stöðvar Rússa í Pest. I Moskva er nú ungverskur hershöfðingi að semja um frið eða vopnahlje við Rússa og er talið, að hann muni fá aðsetur í Budapest með stjórn þá, sem hann er talinn að munu stofna. Hann^ijelt því fram, að Þjóð- verjar myndu aldrei gefast upp í Budapest og láta sjer í ljettu rúmi liggja, þótt öll höf- uðborg Ungverjalands yrði lögð í rústir. Norður í Slóvakíu hafa Rúss- ar brotist inn í þýðingarmikla borg og er þar barist á götun- um. — Reöter. 97 sluppu. London: — Nýlega sluppu 97 ítalskir stríðsfangar úr bæki- stöðvum í Skotlandi og var gerð óhmeju mikil leit að þeim. Þegar síðast frjettist, höfðu þeir allir náðst aftur, nema ellefu, en ekkert var vit- Framhald á 8. síðu að, hvert þeir hefðu leitað. Smjörskamtur mink- aður. London: — Viðskiftamála- ráðuneytið í Kanada hefir til- kynt, að frá og með 1. jan. n.k. inu lækkaður um rúmlega einn sjötta hluta. Sóttu fram í Bastogne- fleygnum. Hersveitir Pattons í Bas- tognefleygnum hafa enn hrundið áhlaupum Þjóð- verja á leiðina til borgarinn- ar Bastogne og tekist að hrekja hersveitir Rund- steds þar aftur á bak á nokkru svæði. Áttist þar við fótgöngulið, sem nú berst við örðugar aðstæður, þar em jörð er frosin, svo óhægt er um að grafa nokkrar skot grafir. Sumir frjettaritarar halda að Rundstedt sje að endurskipuleggja lið sitt á miðju sóknarsvæðinu í Belg íu, þar hafa Bandaríkja- menn'ekkert samband við óvinina sem stendur og telja sumir að Þjóðverjar hafi hörfað nokkuð til austurs. Hprðar loftárásir. Stórir hópar amerískra sprengjuflugvjela rjeðust á samgöngumiðstöðvar Þjóð- verja að baki vígsvæðunum í dag, en í nótt sem leið gerðu breskar flugvjelar at- lögur að þýskum járnbraut- arstöðvum víðsvegar í Vest- ur-Þýskalandi. Flugskólum lokað. London: Um mitt næsta sum arar mun 18 flugskólum í Suð- jur-Afríku verða lokað, en þarna hefir verið kent hernað- 1 arflugmönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.