Morgunblaðið - 29.01.1949, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.01.1949, Blaðsíða 1
16 siður Sfofnun Evrópu- In lilkynmng meðEimalanda fimmveldabandalagsins | London í gærlcvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. I OPINBERRI tilkynningu, sem birt var í London í kvöld, er skýrt frá því, að meðlimalönd fimmveldabandalagsins (Bret- land, Frakkland, Beneluxlönd) hafi komið sj'er saman um að stofnsetja Evrópuráð. Er þetta einn árangurinn af tveggja daga lundi utanríkisráðherra bandalagslandanna, en honum lauK : dag. Tvær nefndir í tilkynningu fundarins seg- ir, að ráðið muni starfa í tveim ur nefndum, ráðherranefnd sem saman komi á lokuðum fund- um, og ráðgjafanefnd, sem í ráði er að haldi fundi sína fyr- ir opnum dyrum. Utanríkisráðherrarnir ákváðu að bjóða öðrum Evrópubjóðum en þeim, sem að fimmvelda- bandalaginu standa, þátttöku 1 undirbúningi undir stofnun Ev- rópuráðs. ísraelsríki Á fundi ráðherranna náðist einnig samkomulag um það 1 aðalatriðum, að svo væri nu komið, að hægt yrði mjög bráð- lega að veita stjórn Ísraelsrík- is de facto viðurkenningu. Norskir kommúnist- ar fá Ijelegar und- irtektir Loftbrúin fil Berlínar sjö mánaöa Washington í gær. TILKYNNT hefur ver- ið, að s. 1. miðvikudag hafi sjö mánuðir verið liðnir síðan birgðaflutningarnir hófust í flugvjelum til Berlínar. Á þessu tímabili hafa 872,157 tonn af vör- um verið fluttar loftleið- is til þýsku höfuðborgar- innar, en við flutningana hafa 26 manns látið lífið — allir nema einn með- limir landhers, flota eða flughers Bandaríkjanna. Þá sjö mánuði, sem loftbrúin hefur verið i notkun, hafa bandarískar flugvjelar á Berlínarflug- leiðinni samtals flogið 63,168,000 kílómetra og verið á lofti í 245,450 klukkustundir. Oslo í gærkveldi. KOMMÚNISTAR gerðu í dag tilraun til að efna til fjölda- fundar í Oslo, en fundurinn átti að mótmæla því, að Norðmenn gerðust þátttakendur í hinu fyrirhugaða Atlantshafsbanda- lagi. Fundurinn var haldinn á Yong'storgi og um 2,000 menn söfnuðust þar saman. íbúar Oslo eru um 420,000. Unglingspiltur verður tííi SÁ HÖRMULEGI atburðui' skeði norður í Þistilfirði s.l. miðvikudag, að Björn Jó- hannesson frá Flögu varð úti í kafaldsbyl, er hann var aö leita að fje, Blaðinu barst þessi sorg- lega fregn seint í gærkvöldi, og er því ekki kunnugt um nánari tildrög slyssins. * Björn var unglingspiltur aðeins um tvítugt. Hann vai sonur Jóhannesar bónda í Flögu. Kínverskir komm- únistar svara ekki Nanking í gærkveldi. LI TSUNG-JEN, sem nú gegn- ir forsetastörfum i Kína, sendi Mao Tso Tung, leiðtoga kom- múnista, í mörgum útvarpsorð sendingu, og skoraði á hann að fallast á vopnahlje þegar í stað og hefja viðræður við stjórnina eins skjótt og auðið yrði. í kvöld hafði ekkert svar enn borist frá kommúnistum. Ef Tsung-Jen tekst ekki að fá kommúnista til að ganga til samninga, er ekki ólíklegt, að Chiang Kai Shek snúi aftur úr ,,útlegðinni“ og geri tilraun til að berjast áfram í Suður-Kína. — Reuter. Japanskir stríðsfangar TOKYO -— MacArthur hershöfð- ingi, yfirmaður Bandaríkjahers í Japan, hjelt því nýlega fram, að meir en 400,000 japanskir stríðs- fangar væru enn í höndum Rússa. Frá ulanríkisráðlierraíundi Danmsrkur, íslands, Noregs og Svíbjóðar Sgmkomukg 111 viðiæka sam- vinnu ó ollsher jarþingi S.Þ. í npríl Aiómhaugur í Frakklandi. Frakkar hafa komið sjer upp fyrsta „atomhaug“, sem vitað er, að til sje í Evrópu. Liggja ekki fyrir upplýsingar um eð slíkt atomsafn sje neinsstaðar til annarsstaðar en í Ameríku. Haugur þessi er geymdur í Chatillon-virki og sjest hjer á myndinni. Mikil hreinsun byrjuð í æðri skólum Ijekkóslóvakíu Framkvæmdanefndirnar illræmdu önnum kafnar Prag í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuiei. MIKIL hreinsun er nú byrju'ð í háskólum og tækniskólum Tjekkóslóvakíu. Er talið, að að minnsta kosti 5,000 stúdentar vcrði rekhir úr skóla, en framkvæmdanefndir vinna nú að því að rannsaka „hina pólitísku einkanabók“ nemenda. Skýring kommúnista Enda þótt nú hafi verið á- kveðið að gera kenningar Maix að skyldunámsgrein í tjekknesk um skólum, fullyrðiF mennta- málaráðuneytið, að nemenda- hreinsunin sje ekki framkvæmd af pólitískum ástæðum. Nú hafi komið í ljós, að fjöldi stúdenta, sem hlotið hafi dóma fyrir „iandráðastarfsemi“, hafi hala- ið áfram námi eins og ekkert hafi í skorist, og sje hreinsun- inni fyrst og fremst beint gegn þeim. Eftir valdatöku kommúnista Dómsmálai'áðuneytið hefur hins vegar ekki sjeð ástæðu til að vekja athygli á því, að stúd- entarnir, sem nú eru taldir land ráðamenn, voru margir dregnir fyrir rj'ett eftir að einræði kom- múnista komst á í Tjekkosló- vakíu. Bunclið hldur áfram sáffatilraunum ssnum London í gærkveldi. Dr. BUNCHE, sáttasemjari S. Þ., hjelt áfram viðræðum sínum í dag við fulltrúa Egypta og Gyðinga á eyjunni Rodos. Bunche átti viðræður við báð- ar samninganefndirnar. — Reuter. Israelsríki bráð- lega viðurkent Oslo í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbi. frá NTB. — í FRJETTATILKYNNINGU, sem gefin var út í Oslo í dag, að loknum fundi utanríkisráð herra Danmerkur, Tslands, Noregs og Svíþjóðar, er með- al annars skýrt frá því, að ráð herrarnir hafi orðið ásáttir um, að öll fjögur löndin sjeu því hlynt að veita Ísraelsríki de facto viðurkenningu i náinni framtíð. Þá hefur enn- fremur náðst samkomulag um. nána samvinnu þessara Norð- uplanda á allsherjarþingi Sam einuðu Þjóðanna, sem hefst i New York 1. apríl næstkom- andi. Náin samvinna I frjettatilkynningu ráðherra fundarins segir meðal annars: Sem einn liður í hinum venj u legu fundum utanríkisráðherra Norðurlanda, komu utanríkis- ráðherrar Danmerkur, Islands, Noregs og Svíþjóðar sarnan a fund í Oslo í dag, 28. janúar, til þess að ræða þau mál, sem tekin verða til athugunar á seinni hluta þriðja allsherjar- þings Sameinuðu Þjóðanna, sem verður í New York. Utanríkis- ráðherrarnir skiptust á upplys- ingum og skoðunum uin hin ýmsu mál á dagskrá þingsins, og ljóst varð að í öllum veiga- meiri málum var samkomulag fyrir hendi um mikilsverðustu Frh. á bls. 2. HervarnðrráÖsfefn- an í Oslo hefsf í dag Oslo í gærkveldi. HERVARNARRÁÐ- STEFNA Noregs, Svíþjóð j ar og Danmerkur verður : sett í Oslo á morgun (laugardag) kl. 10,30 eftir norskum tíma. Er ráðstefnan í beinu fram- haldi af fundum þessara landa í Kaupmanna- höfn, en meðal þátttak- enda verða sendiherrar þcirra í London, París, Washington og Moskva. Einar Gerhardsen for- sætisráðherra mun setja j ráðstefnuna. — NTB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.