Morgunblaðið - 31.03.1949, Qupperneq 1
Myntl þessi er tekin eftir að lögreglan hafði neyðst til að varpa táragassprengjum vegna
grjóthríðar kommúnista á þinghúsið og mannfjöldann við það. — Ljósm. ÓL K. Magnússon
Aiþingi samþykkir þátttöku íslands
iiiiislar ©| Gflfi
íll Imk á móf
/’■ ■ r
m
mmunisidpmgsfieiMi vaiaa
ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA ríkisstjórnarinnar um þátttöku
Islands í Norður-Atlantshafsbandaiagi var samþykkt á Alþingi
í gær með 37:13 atkvæðum, tveir þingmenn greiddu ekki at-
kvæði.
MEÐ þingsályktuninni greiddu atkvæði 19 Sjálfstæðismenn,
7 Alþýðuflokksmenn og 11 Framsóknarmenn.
Móti þingsályktuninni voru lö kommúnistar, 2 Alþýðuflokks-
mcnn (Gylfi og Hannibal) og 1 Framsóknarmaður (Páll Zop-
honiasson). — Tveir Framsóknarmenn (Hermann Jónasson og
Skúli Guðmundss.) sátu hjó.
BJARNI BENEDIKTSSON, ut-
anríkisráðherra tók sjer í gær-
kveldi með áætlunarferð AOA
frá Keflavík til New York. -
Mun hann fara til Washing-
ton til að undirskrifa Atlants-
hafssáttmálann fyrir íslands
hönd, en utanríkisráðherrar
þátttökuríkja munu skrifa und
ir á mánudaginn kemur.
í för með utanríkisráðherra
var Hans Andersen þjóðrjettar-
fræðingur.
Fundurinn hófst í Sameinuðu
þingi kl. 10 árdegis og stóð til
kl. 2,30 eftir hádegi. Þetta var
síðari umræða málsins. Áheyr-
endapallar voru þjettskipaðir,
ep friður og spekt ríkti þar
allan tímann, þrátt fyrir æsing-
ar þær, sem kommúnistar og
þingmenn þeirra stóðu fyrir,
utan við þinghúsið og inn í
þingsölunum.
Einar sleppir sjer í þriðja sinn
| á þremur dögum.
! í upphafi umræðnanna kvaðst
I forseti, Jón Pálmason, ætla að
bera það undir atkvæði þing-
! manna, hvort ekki ætti að tak-
j marka ræðutíma þannig, að um
i ræðu málsins yrði lokið á þrem
' klukkutímum.
Málið hefði verið itarlega
Framh. á bls. 8.
NEW YORK, 30. mars — Auk
Bevins, utanríkisráðherra Breta
komu þrír aðrir utanríkisráð-
herrar til New York í dag á
leið sinni til Washington, þar
sem þeir munu næstkomandi
mánudag' undirrita Atlantshafs
sanrninginn. Þetta voru utan-
ríkisráðherrar Belgíu, Hollands
og Luxembourg. — Reuter.
Sriótkast kommúnista
ii
Spðilvirkium áreilt
með túragasi
KOMMÚNISTAR framkvæmdu í gær hótanir sínar um of-
beldi gegn AJþingi, ef það samþykkti þátttöku íslands í
Atlantshafsbandalaginu með því að gera árás á Alþingís-
húsið og brjóta flestar rúður sala þess og með tilraunum til
manndrápa og stórfelldra líkamsmeiðinga á friðsömum
horgurum og íöggæslumönnum. Var mcsta mildi að ekki
urðu mörg mannslát og stórfelld meiðsl af grjóthríð er fá-
mennur hópur tryllts kommúnistaskríls hóf á þinghúsið
og hundruð borgara er höfðu skipað sjer þar til varnar.
Særðust nokkrir lögreglumenn og borgarar undan grjót-
hríðinni, einn lögregluþjónn mjög alvarlega.
eldur limlestingi
GrjólSiríð inn í þincplÍRn
Stóð grjóthríðin alla leið inn í þingsalina þar sem Alþingi
sat að störfum. Ekki urðu samt önnur meiðsl á þingmönnum
en þau, að einn þingmaður fjekk smástein á gagnaugað og
hrúflaðist lítillega. Var það Hermann Guðmundsson. Annar
skrifara Alþingis, Skúli Guðmundsson, sem sat í skrifara-
sæti rjett innan við einn glugga þingsalarins fjekk stein-
hnullung á hendina, en sakaði lítt. Dreifðust glerbrotin frá
rúðunum langt inn í fundarsalinn.
Þegar þessu hafði fram farið um hríð, jafnvel
eftir að þingfundi lauk, neyddist lögreglan til
þess að beita kylfum sínum og síðar táragasi til
þess að firra stórfelldum líkamsmeiðslum og
jafnvel morðum á friðsömu fólki og lögreglu-
mönnum. Má fullyrða að það hafi forðað frekari
stórslysum.
Kommúnistar undirbúa
skrílsæðið
Kommúnistar höfðu undir-
búið þessar aðfarir í samræmi
við fyrirheit foringja sinna um
ofbeldi ef Alþingi fylgdi ekki
stefnu Rússa í öryggismálum
íslendinga. Snemma í gærmorg
un boðaði fulltrúaráð verka-
lýðsfjelaganna til útifundar án
þess að hafa fengið til þess
leyfi löglegra yfirvalda. Stóð
verkamannafjelagið Dagsbrún
einnig að þessu fundarboði. —
Skyldi fundurinn verða við
Miðbæjarskólann kl. 1 e. h. •—-
Tilgangur kommúnista með
þessu fundarboði var bersýni-
lega sá að safna þar saman liði
sínu og æsa það til óspekta.
Á tilskildum tíma söfnuðust
nokkur hundruð manns saman
til þessa fundarhalds, sem raun
ar varð lítið úr. Var borin þar
upp mótmælatillaga gegn þátt--
töku íslands í varnarbandalagi
lýðræðisþjóðanna og jafnframt
krafist þjóðaratkvæðagreiðslu
um málið. Að þessum afrekum
unnum skunduðu kommúnist-
ar til Alþingishússins og var
kl. þá rúmlega 1. Ser.du þeir
nefnd manna til Sigurðar
Guðnasonar með tillöguna, sem
las hana upp í þinginu og krafð
ist svars þingflokkanna við
henni!
Merki gefið
Fjekk hann þau svör ein. að
henni hefði áður verið svarað
og myndi verða svarað enn
greinilegar er atkvæðagreiðsl-
an færi fram um sjálft málið
í þinginu. Hljóp Sigurður þá
upp í flokksherbergi kommún
ista en þar voru fyrir þeir
Björn Bjarnason og Stefán Ög-
mundsson. Hlupu þeir við fót
út til kommúnistahópsins og
sögðu áhrif tillögu hans. Tók
þá talkór ungkommúnista að
æpa kröfu um þjóðaratkvæða-
Frh. á bls. 2.