Morgunblaðið - 02.08.1953, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.08.1953, Blaðsíða 12
Vedurúllit í dag: Iíæivsðri SA. Úrkomulaust. Reykjavíbfbréí er á bls. 7. 172. tbl. — Sunnudagur 2. ágúst 1953. Vestur-íslenzk söngkona vekur athygli i Hjónin Leona og Marcns Bmím hafa hus á að koma I IiianiL UNG vestur-íslenzk stúlka, Leona Gordon, hefur að undanförnu vakið athygli í Ameríku serri sópran-söngkona. LEONA er dóttir þeirra hjón- ' —— amna Stefaníu og Andrésar F. Oddstað læknis í San Francisco. Munu margir kannast við þau rnerkishjón, eigi sízt íslenzkir námsmenn, er dvalið hafa í Cali- lorníu, því heimili þeirra hefur jafnan staðið þeim opið. Munu margir minnast þesfeara gestrisnu hjóna sakir vinfestu þeirra og hins hlýja hugar, er þau bera tii íslands. HLJÓMLISTARFERILL Leone er fædd í San Francisco »g hóf þar mjög ung söngnám. Sextán ára gömul hóf hún svo söngnám hjá Mabel Regalman í San Francisco, en hún var á sín- um tíma mjög kunn söngkona vestra. Árið 1951 var Leona ráð- jn að hinni heimskunnu San Francisco óperu og hefur sungið þar mörg hlutverk. Jafnframt hefur þún haldið margar söng- sk.emmtanir og komið fram í sjónvarpi fjölda sinnum. Hafa dómar hljómlistargagn- rýnenda einróma lokið lofsorði urn hæfileika Leonu. LANGAR TIL AÐ KOMA TIL ÍSLANDS Leona er kvænt hinum kunna píanóleikara, Marcus Gordon. Það mun ýkjulaust hægt að full- yrða, að Marcus Gordon sé nú í röð beztu píanóleikara í Amer- iku. Marcus útskrifaðist mjög ungur frá Juliard tónlistarskól- anum í New York. Hefur hann haldið tónleika víðsvegar um heim, m. a. í Þýzkalandi, Eng- landi, Ítalíu og Bandaríkjunum. Nýlega lék hann í hinni þekktu Town Hall í New York og hlaut; Hijög góða dóma. Síðan 1952 hef-l ur: hann verið píanóleikari með Sinfóníuhljómsveitinni í San Francisco og lék nýlega einleiks- hlutverkið í píanókonsert eftir Beethoven. Var það talinn mesti sigur hans á hljómlistarbrautinni. Þau hjónin Leona og Marcus Gordon hafa nýlega látið í ljós Leona Gordon Marcus Gordon þá ósk, að mega koma til íslands og halda þar tónleika. Marcus Gordon hefir haft spurnir af því, að sinfóníuhljómsveitin hér þætti mjög góð og lét orð falla um það, að ánægjulegt vaeri að leika með henni, ef úr ísiandsförinni yrði. Sigurmöguleikar ekki mikiir, en? Lítil síMveiði RAUFARHÖFN, 1. ág. — Sama og engin síldveiði var í dag og s. 1. nótt. Fréttir hafa Inorizt af sild fyrir austan land og er sí’d- arflotinn farinn þanga®. ‘Togar- inn Austfirðingur sá l'ifilar sí'd- artorfur (sildaraugií> á Vestur- svæðinu. Veðrið er gott. ! Lítið hefur borizf inra a:f síld í dag. Þessir bátar komu með bræðslusíld, talið í málum: Meta 283, Mímir 132, Kvaimey 93, Grótta 51, Heiðrún 252, Ágústa 168, Fram 549. SIKSIHin SKI heila ÁBÓTAVANT hefur verið með nafn á auða svæðinu við Miklu- braut og Rauðarárstíg. Sumir hafa kallað það Háteigstún, aðrar Klambratún, enn aðrir Hlíðatún. í sumar stakk ræktunarráðu- nautur upp á því að það ýrði kall að Miklatún. Nafnanefnd bæjar- ins hefur nú tekið málið til með- ferðar og er hún því meðmælt aö svæðið verði skýrt Miklatún. Þannig íekur trjáviðurinn smám saman á sig svip stórvirks atvinnutækis inni á Kirkjusandí. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M, íslenzk fiski £ Yilja selja upp dúftta kassa um allan bæ DÝRAVERNDUNARFÉLAG ís- lands sendi bæjarstjórn nýlega bréf varðandi bætta aðbúð og verndun fuglalífs í Reykjavík. Gerir féiagið tillögu um að heitu vatni sé veitt í tjörnina að vetr- arlagi til þess að halda auðri vök fyrir endur, svo þær þurfi ekki að fara af tjörninni í frostum. Þá stingur félagið upp á því að heimilt verði að reisa dúfnakofa víðsvegar á opinberum stöðum í bænum, svo sem leikvöllum, á Hafnarhúsinu og í Tjarnargarð- inum. LANDSSMIÐJAN er nú að smíða 35 tonna vélbát inni á Kirkju- sandi. Er það eikarbátur byggður samkvæmt teikningu eftir Egil Þorfinnsson skipasmið í Keflavík. Báturinn er byggður fyrir hluta- félagið ísver á Suðureyri í Súgandafirði. Annar bátur sömu teg- undar verður byggður fyrir sama félag næsta sumar. --^SKIP SMÉDAÐ FYRIR 5 ÁRUM | Það munu nú vera liðin urn það bil 5 ár síðan Landssmiðjara hefur smíðað fiskiskip. En þá smíðaði hún fjóra 66 tonna báta. Það eru þeir Kári Sölmundarson, Bv. Ingólfur Arnarson kom frá Reykjavík, Hvanney frá Horna- Grænlandi í morgun. Skúli firði og Vörður og Von frá Greni Magnússon og Hallveig Fróða- .vík. Þessir tveir síðastnefndu dóttir eru í Reykjavík. Jón Þor- hafa verið miklir aflabátar. láksson er á síldveiðum. Þor- Landssmiðjan hafði áður skipa steinn Ingólfsson er í Reykjavík. smíðastöð inni á Gelgjutanga við Pétur Halldórsson fór til Græn- . Elliðaárvog, en sá staður var ekki lands 25. júlí. Jón Baldvinsson hentugur, m. a. vegna þess hve fór til Grænlands 18. júlí. Þor- langt þurfti að flytja starfsmenn- kell Máni fór til Grænlanas 9. júlí. — fc>. 1. viku unnu 200 manns við fiskverkun, pökkun og önnur framleiðslustörf í Fiskverkunar- stöðinni. Gatnagerð á Lokastfg Á FUNDI bæjarráðs nýlega var ákveðið að fela bæjarverkfræð- ingi að hefja að nýju gatna- gerð á Lokastíg og að ljúka hellulögn á gangstéttum við Grundarstíg og Spítalastíg frá Ingólfsstræti að Bergstaðastræti. | DAG verður sennilega hæg suð- Þá var og samþykkt að heimila austan átt hér við Faxaflóa, skýj- Á síðasta Alþingi var samþykkt bæjarverkfræðingi að láta mal- að, en sennilega úrkomulaust, þar , lagabreyting, sem miðar að því bika Skólastræti. til í kvöld að minnsta kosti. jað endurgreiða tolla af efnivöru ina. Nú var hentugasti staður- ^inn álitinn ínn á Kirkjusandi. ÚR AMERÍSKRI EIK | Kjölurinn að þessum nýja bát var lagður í maí og er þess vænzt að takist að ljúka honum í haust. Efniviðurinn er amerísk jeik og kostar teningsfetið 63 kr. i ENDURGREIÐSLA TOLLA | Fiskibátar sem keyptir eru er- lendis eru innfluttir tollfrjálst. ÁÐUR hefir verið skýrt frá því, hér í blaðinu, hvaða 17 ís- lepzkir knattspyrnumenn fara utan til þátttöku í landsleikjun- um við Dani og Norðmenn. Liðið á móti Dönum hefur þegar verið valið, og er þannig: Helgi Daní- e.lsson markvörður, Karli Guð- mundsson, hægri bakvörður, Haukur Bjarnason, vistri bak- vörður, Sveinn Teitsson hægri framvörður, Sveinn Helgason miðframvörður, Guðjón Finn- bogason vinstri framvörður, Gunnar Gunnarsson hægri út- herji, Ríkarður Jónsson hægri innherji, Þórðar Þórðarson mið- framherji, Pétur Georgsson vinstri innherji og Reynir Þórð- arson vinstri útherji. Liðið á móti Norðmönnum verður ekki valið fyrr en að lokn- um landsleiknum við Dani. ALLT GETUR SKEÐ . . . Danir hafa óneitanlega meiri eigurmöguleika, sagði Köhler, landsþjálfarinn, er blaðíð átti tal við hann í gær, en ég foer fyllsta traust til okkar manna og óttast ekki, að þeir getí foarizt. Það sýndu þeir í landsleiknum við Austurríki. Danska landsliðið hefir náð góðum árangri í sumar, en allt getur skeð I knattspyrnu. NORÐMENN ERITRAKI — Norðmennirnir verða harð- ari í horn að taka, segír Köhler, þeir hafa tapað fimm landsleikj- um í sumar og það er ósennilegt að þeir neyti ekki allra krafta til þess að rétta nokkuð hlut sinn. — En hvað um æfingu íslenzka liðsins? — Þær hafa gengið vel. Æft hefir verið á grasvelli undan- farið. Síðasta æfingin verður n. k. miðvikudagskvöld. _ til fiskiskipa, sem smíðuð eru , innanlands. Þetta tollgjald hef- ur þó ekki enn verið endur- greitt. Yfirsmiður er Páll Pálsson, sem starfað hefur lengi við Landssmiðj una. Frá setningu Norræna bindindisþingsins s.l. föstudag. Krislin æska og bindindtsmálin. Síðastliðið sumar og vetur fór- ust samtals 88 manns í Alpafjöll- um. Eru þessar upplýsingar fa-á svissneska Alpaklúbbnum. FUNDIR hófust kl. 10 í gærmorg un á norræna bindindisþinginu. — þyrfti við. Til umræðu var samband kristi- legs æskulýðsfélagsskapar við bindindismálin. Frummælandi var séra Friðrik Friðriksson. Lagði 'hann áherzlu á, að vegna manngildishugsjónar kristindómsins, hlytu kristnir menn að láta bindindismál til sín taka í dag, slíkt böl sem drykkju- slcapur væri nú orðinn með æsku- lýðnum. — Fleiri tóku til máls, og voru ræðumenn á einu máli um, að bind indissemiværi þverrandi með æsku lýðnum ag' raunhæfrar íhlutunar væri þörf. NEW YORK, 1. ág. — Um 20 þús. pund af nauðsynlegustu hjúkr- unarvörum eru nú á leiðinni frá Bandaríkjunum til Kóreu. Er hér um að raeða gjöf frá sam- bandi bandarískra lyfjabúðaeig- enda. Er þetta fyrsta sendingin af hjúkrunarvörum til Kóreu eftir styrjaldarlok, en fleiri verða sendar innan skamms, enda er þörfin brýn. Má geta þess, að bráðlega verða send um 400 pund af ýmiss konar lyfjum til Markynollsystranna í Pusan. Hafa þær hjúkrað mörgum sjúklingum undanfarið, og ann- ast þær nú um 800 berklaveiki- sjúklinga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.