Morgunblaðið - 02.04.1954, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.04.1954, Blaðsíða 7
Föstudagur 2. apríl 1954 MORGVNBLAÐIÐ 7 A ÞHÖTI í DESEMBER s.l. átti Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur 15 ára afmæli og þá voru einnig 20 ár liðin frá því að Jón Jóhannes- son „flutti“ badminton-íþróttina til landsins. Það voru einkum tennisiðkend- ur, sem tóku höndum saman við Jón um þátttöku í badminton. Skilyrði til tennisæfinga hafa hér á landi ætíð verið afleit vegna þess hve veðráttan er ó- stöðug og innivellir engir til — Þeir 4 vellir, sem íþróttafélag Reykjavíkur og Knattspyrnufé- lag Reykjavíkur eiga í suðaustur- enda íþróttavallarins á Melunum hér í bænum, hafa heldur aldrei verið góðir, enda þótt á árunum 1929 til 1946 væri vel leikandi á þeim. Hér á þó aðeins að rita um badminton og sleppi ég því frek- ari umtali um tennis-vellina. Þar sem badminton svipar dá- lítið til tennis hugðu tennisiðk- endur æfa það á veturna í íþrótta húsunum, sem flest geta rúmað 1 badminton-völl þótt þau séu alltof lítil fyrir fennisvöll. Fyrstu 5 ár badminton hér á landi var það aðallega æft i ÍR-húsinu við Túngötu, og í íþróttahúsi Mið- bæjarbarnaskólans, en nokkrir barnaskólakennarar voru meðal frumherja badmintoníþróttarinn- ar hér, þ. á. meðal ungfrú Unnur Briem, ungfrú Oddný Sigurjóns- dóttir og Árni Þórðarson, svo einhverjir séu nefndir. 4. desember 1938 var Tennis- og badmintonfélag Reykjavikur stofnað og voru stofnendur 29. Fyrstu stjórn skipuðu Jón Jó- haiinesson formaður og með- stjórnendur Friðrik Sigurbjörns- son, Kjartan Hjaltested, Magnús Andrésson og Oddný Sigurjóns- dóttir, og í varastjórn: Ásta Benjamínsson og Bergþór Þor- valdsson. Þeir sem minnast tennisiðkenda 1938 sjá af ofan- greindu að i þessari fyrstu stjórn voru 5 af beztu tennisiðkendum þessara ára. Teunis- og badmintonfélagið 15 ára Núverandi Reykjavíkurmeistarar í badminton. Þeir eru allir fé- lagar Tennis- og badmintonfélagsins og eru talið frá vinstri: Þor- valdur Ásgeirsson, Bella Wathne, Geir Oddsson, Júlíana Isebarn og Einar Jónsson. Þess má geta að Einar Jónsson varð fyrsti meistari félagsins í einliðaleik og nú 15 árum síðar er hann enn Reykja- vikurmeistari. íþróttahús bæjarins (fyrir sig og sína). Þeir slepptu þeim þó flest- um fljótt aftur. Á fyrsta aðalfundi TBR 12 1. 1940, voru félagarnir orðnir 107 og má geta þess um áhuga félag- anna, að 104 höfðu greitt árgjöld sín. Gjaldkeri var þá Kjartan Hjaltested, sem sat lengi í stjórn félagsins. Þátttaka fyrri hluta árs 1940 í æfingum hjá TBR var allgóð og léku 70 manns á veg- um félagsins. ÍR hélt einnig uppi æfingum í badminton, en þó með allmiklu færri þátttakendum en TBR. Árið 1941 var þátttaka svipuð og árið á undan. Árið 1942 byrjaði að dofna yfir þátttöku og léku um 50 manns á vegum TBR. Árin 1943, 1944 og 1945 voru Formenn Tennis- og badmintonfélagsins frá byrjun. Til vinstri er Friðrik Sigurbjörnsson, annar form. félagsins og í miðið Þorvaldur Ásgeirsson, núverandi form. félagsins. Einn af 29 stofnendum TBR öll nokkuð erfið badminton-iðk- var forseti ÍSÍ, Benedikt G. endum vegna þrengsla í íþrótta- Waage, sem ætíð hefur sýnt húsunum. tennis og badmintoninu sérstaka j Árið 1944 gaf ÍSÍ út leikreglur velvild. Þar var einnig sem gest- j fyrir tennis og badminton, er ur Dani að nafni Ingvald Jörgen- ; Lárus heitinn Pétursson tók sam- sen, sem var allgóður badminton- ' an. kennari og veitt hafði sumum, Árið 1948 fengu badminton- stofnendunum talsverðá tiisögn j iðkendur æfingatíma í íþrótta- í badminton. Því miður íór hann húsinu að Hálogalandi, og við af landi burtu nokkru síðar. j það rýmkaðist nokkuð um Það kom fram á stofnfundi badmintonæíingar almennt. Enda TBR að markmið félagsins væri hefur síðan 1946 verið um hægan að koma sér upp húsi til æfinga en stöðugan framgang að ræða svo fljótt sem auðið yrði. Sjálf- . hjá þessari íþróttagrein. — Um sagt væri þetta hús risið fvrir betta leyti mun badininton hafa svona 10—12 árum, ef ekki hefði j hafið göngu sína í Stykkishólmi, komið til ýmissa stórra atburða, en þar hefur Ungmennafélagið eins og t.d. hernámsins 10. mai I Snæfell haft forgöngu um bad- 1949, staðið Reykvikingum fylli- lega á sporði og stundum vel það, í badminton. Á ísafirði, Akureyri og í Hafn- arfirði er badminton æft að stað- aldri og i allmörgum íþróttasöl- um héraðsskóianna viðs vegar um landið, er badminton leikið af nemendum og kennurum. f Reykjavík æfa nú alls um 200 manns badminton og úti um land líklega um 150 manns, svo ennþá á badminton langt í land að ná til fólksins almennt. Veld- ur þar ýmislegt, en mestu erfið- leikar á að fá hentuga tima til .æfinga og einnig hversu dýrir boltarnir og spaðarnir eru. Hvoru tveggja fellur undir hinn þekkta „bátagjaldeyri“ og er þó óliku saman að jofna ástandinu nú og t.d. 1948 og 1949, þegar TBR átti í miklu stappi með að fá inn- flutningsleyfi fyrir badminton- boltum að ekki sé minnzt á badmintonspaða. Að lokum skal rifjað hér upp úrslit í fyrsta Reykjavíkurmeistaramótinu og þeim 5 íslandsmeistaramótum, sem haldin hafa verið. Fyrsta Reykjavíkurmeistara- mót var haldið 23.—27. júní 1941. Þátttakendur voru 19. Fyrstu Reykjavíkurmiestararnir í ein- liðaleik urðu Júlíana ísebarn og Friðrik Sigurbjörnsson, í tvíliða- leik kvenna Júlíana Isebarn og Mímý Finsen, í tvíliðaleik karla Ingólfur Ásmundsson og Kjartan Hjaltested og í tvenndarkeppni Halldóra Guðmundsdóttir og Jón Jóhannesson. íslandsmeistaramót hafa alls verið haldin 5. Hið fyrsta 1949 í Reykjavík. Þátttakendur voru að cins karlar. íslandsmeistari í ein- Jiðaleik varð Einar Jónsson og í tviliðaleik þeir Friðrik . Sigur- björnsson og Guðjón Einarsson. Annað íslandsmeistaramótið var háð í Stykkishólmi um pásk- ana 1950. Þátttakendur voru sam tals 23, frá Reykjavík, Stykkis- hólmi og Akureyri. íslandsmeist- arar urðu: Einliðaleik kvenna: Halla Árnadóttir, Stykkishólmi, einliðaleik karla: Ágúst Bjart- marz, Stykkishólmi, tvíliðaleik kvenna: Jakobína Jósefsdóttir og Unnur Briem, Reykjavík, tvennd arkeppni: Unnur Briem og Georg L. Sveinsson, Reykjavík, tvíliða- leik karla: Jón Jóhannesson og Georg L. Sveinsson, Reykjavík. Þriðja íslandsmeistaramótið var háð í Reykjavík í íþrótta- húsi ÍBR að Hálogalandi 22. 3. til 26. 3. 1951. Þátttakendur voru Ungmennafél. Snæfell, Stykkis- hólmi. Einliðaleik kvenna vann Halldóra Árnadóttir, Stykkis- hólmi, tvíliðaleik kvenna unnu Jakobína Jósefsd.óttir og Unnur Briem, TBR og einliðaleik karla vann Ágúst Bjartmarz, Stykkis- hólmi. Tvíliðaleik karla unnu þeir Ágúst Bjartmarz og Ólafur Guðmundsson, Stykkishólmi — Tvenndarkeppni unnu þau Halla Árnadóttir og Þorgeir Ibsen, Stykkishólmi. Fjórða fslandsmeistaramótið fór fram í Stykkishólmi 12. og 13. apríl 1952. Þátttakendur voru 14, 3 frá TBR og 11 frá Ung- mennafélaginu Snæfell. íslands- meistarar urðu: Einliðaleik kvenna: Ebba Lárusdóttir, Stykk ishólmi, einliðaleik karla: Vagn Ottósson, TBR, tvenndarkeppni unnu Unnur Briem og Vagn Ottósson, TBR. Tvíliðaleik kvenna unnu Halla Árnadóttir og Greta Ziemsen, Stykishólmi, tvíliaðléik karla unnu Vagn Ottósson og Einar Jónsson, TBR. Fimmta fslandsmeistaramótið var haldig í Reykjavík 2. og 3. maí 1953 í íþróttahúsinu að Há- logalandi. Þátttakendur voru 23, 7 frá Ungmennaíélaginu Snæfell Stykkishólmi og 16 frá TBR. Úr- slit: Islandsmeistari í einliðaleik kvenna: Ebba Lárusdóttir, Stykk ishólmi, íslandsmeistari í tvíliða- leik kvenna: Ebba Lárusdóttir og Ingveldur Sigurðardóttir, Stykk- ishólmi. íslandsmeistari í einliða- leik karla: Vagn Ottósson, TBR. Islandsmeistari i tvenndarkeppni Unnur Briem og Vagn Ottósson, TBR og íslandsmeistarar í tví- liðaleik karla: Einar Jónsson og Vagn Ottósson, TBR. Friðrik Sigurbjörnsson. VPðhorf dagsins BLAÐIÐ átti stutt viðtal við Þor- vald Ásgeirsson, núverandi for- mann Tennis- og badmintonfé- lagsins og bað hann að segja les- endum frá viðgangi og starfi fé- 1940, en Bretarnir tóku þá öll! minton og félagsmenn þess síðan 27, 15 frá TBR, 4 frá ÍR og 8 frá lagsins í dag. — Þorvaldur sagði meðal annars: — Um 200 manns iðka badmin- ton á vegum félagsins nú. Þetta fólk er á öllum aldri og innan vé- banda félagsins er í dag hópur ungs fólks, og er það nýlunda, því áður iðkuðu þessa íþrótta- grein ekki aðrir en fullorðnir menn, sem komnir voru í fasta og" örugga atvinnu. Þetta stafaði af kostnaði við íþróttina — dýrt húsnæði og dýr áhöld, sem skóla- fólk hafði ekki ráð á að greiða. Nú í vetur byrjaði félagið á svonefndum samæfingum í KR- húsinu. Þær voru einu sinni i viku og gátu þangað sótt allir sem vildu fá ókeypis tilsögn og- æfingar. Þangað sótti margt ungt fólk. Félaginu reyndist kleift a?? reka þessar æfingar vegna þess. að það fékk í KR-húsinu aðgang að 4 völlum fyrir 80 kr. um tím- ann, en þess eru dæmi að greitt sé 40 kr. fyrir 1 völl annars stað- ar. Af þessu má sjá hve húsnæðis málin eru félaginu mikill þröskuldur og hversu nauðsyn- legt það er viðgangi félagsins og íþróttinni að fá sitt' eigið hús til umráða, því nauðsynlegt er fyrir íþróttina að fá unga fólkið — off heppilegast væri að menn byrj- uðu að iðka badminton 12-—14- ára gamlir. Þá mun ekki standa á árangrinum iþróttalega séð. — Hvernig gengur með hús- næðismálin? — Segja má að hnífurinn standi í kúnni enn. Við höfum fengið loforð fvrir lóð í Laugar- dal, en enn er ekki búið að stað- setja húsið. Við höfum unnið all- mikið að þessum málum, og frek- ar er ekki hægt að aðhafast fyrr en bæjaryfirvöldin hafa ákveðið staðsetningu lóðarinnar. Annað höfuðvandamál félags- ins eru kennaramálin. Við höfum engan fastráðinn kennara núiia,. en fjórir félaganna, við Magnús Davíðsson, Einar Jónsson og" Vagn Ottósson, höfum veitt þá tilsögn, sem við tímans vegna. höfum getað látið í té. Þá má geta þess að í fyrra kom hingað til lands fyrir atbeina Ben. G. Waage, forseta ÍSÍ, sér- Framhald á bls. 12 LANDSFLOKKAGLÍMAN fer fram í kvöld í íþróttahúsinu að Hálogalandi og hefst kl. 20,30. Armann J. Lárusson Þetta er áttunda glíman í röð- inni, síðan síðan skipulegar glím ur í þyngdarflokkum hófust. Glímt verður í þremur þunga- flokkum og tveimur aldursflokk- um. Alls taka þátt í glímurmi 22- menn frá fimm félögum: Ár- manni, KR, íþróttabandalagi Suð urnesja, Ungmennafélagi Biskups. tungna og loks frá Ungmenna- félagi Reykjavikur, sem sér um mótið. Fyrir Suðurnesjamenn keppir m. a. Sigurður Brynjólfsson, fyrr um skjaldarhafi, sem nú er 42 ára. — í þyngsta flokki keppir Ármann J. Lárusson, skjaldar- hafi, og þar keppa einnig þeir Erlingur Jónsson og Tómas Jóns- son, en þeir eru báðir harðsnúnir glímumenn. í milliflokk verðux Gísli Guðmundsson, sem sigraði í þeim flokki í fyrra, og verður „öldungurinn“ af Suðurnesjum aðal keppinautur hans. í léttasta flokki er liklegur til sigurs ann- arhvor þeirra Ingólfs Guðnason- ar, eða Braga Guðnasonar. í drengjaflokki keppa 5 og þar á meðal Guðmundur Jónsson, núverandi Landsmeistari drengja og Bjarni Sigurðsson frá Ung- mennafélagi Biskupstungna. Ferðir verða frá Ferðaskrif- stofunni og hefjast kl. 8 e.h.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.