Morgunblaðið - 21.01.1955, Page 16
j Yeðurúflif í dag:
SV kaldi. ÉI. Bjart með köflum.
I
flfTíPíiMíííÍJiÍfo
16. tbl. — Föstudagur 21. janúar 1955
Forresfal
Stærsta flugvélamóðurskipið.
Sjá grein á bls. 7.
A afmæli Davíðs Stefáns-
»sonar - Móðurmálsda<íiir
C
i öllum skólum landsins
Viðhafnar- og skólaútgáfa á Svörtum fjöðrum
Aðgöngumiðarað Gullna hliðinu seldust á svipstundu
IDAG, hinn 21. jan., á sextugsafmæli Davíðs Stef-
ánssonar skálds frá Fagraskógi, hefur fræðslu-
málastjórnin ákveðið, að í öllum skólum landsins skuli
vera hátíðlegur haldinn móðurmálsdagur, sem helg-
aður er verkum hans.
NÝJAR KVÆÐAÚTGÁFUR
í tilefni dagsins verða gefnar
út þrjár bækur eftir skáldið:
Svartar fjaðrir, í vandaðri út-
gáfu, og sama bók í hversdags-
legri útgáfu ætluð æsku- og
skólafólki landsins, sem kostar
aðeins 20 krónur. Ennfremur
koma út í dag ljóðaþýðingar af
kvæðum Davíðs, er gert hefir
Ivar Orgland lektor við Háskóla
íslands. Heitir þessi norska bók:
„Eg sigler i haust“. í bók þessari
eru 42 kvæði eftir skáldið, er
tekin hafa verið viðs vegar úr
öllum sjö ljóðabókum Davíðs. En
framan við þau er ýtarleg ritgerð
u mskáldið eftir þýðandann.
SKÁLDIÐ LES „PROLOGINN"
í kvöld verður „Gullna hliðið“
leikið í Þjóðleikhúsinu, eins og
kunnugt er. Er það í frásögur
færandi, að svo mikil aðsókn
varð að þessari leiksýningu, að
aðgöngumiðar að öllum sætum
leikhússins seldust upp á nokkr-
um mínútum. En þess skal sér-
staklega getið, að að þessu sinni
verður það til hátíðabrigða, að
skáldið sjálft les upp „prologinn"
fyrir leikritinu.
AFMÆLISHÓF
Á morgun, laugardag, verð-
ur afmælishóf fyrir Davíð
Stefánsson skáld, í Sjálfstæð-
ishúsinu, og hefst það kl. 7,30
e.h. — Meðal gesía verður for-
seti íslands og frú, ýmsir af
ráðherrunum og sendiherrar
erlendra ríkja, margt skálda
Eim situr við liið
sama í ráðunevtinu
j
ÆNN situr allt við hið sama um
skipun sóknarprests á Siglufirði.
En Siglfirðingar hafa opinber-
lega lýst vanþóknun sinni á þeim
furðulega drætti, sem orðið hef-
ur á því að kirkjumálaráðherra
.skipi prest í embættið, jafnvel
þó að biskup landsins hafi mælt
með því við ráðherrann, að sá
verði skipaður, er flest atkvæði
hlaut. Kirkjumáiaráðuneytið
upplýsti í gær, að ráðherra hefði
•ekki enn skipað í embættið.
Elliði fékh vír
í skrúfuna
SIGLUFIRÐI, 20. janúar. — Tog-
arinn Elliði kom hér í morgun af
veiðum með 180 tonn af fiski,
sem fór í frystihús og herzlu. —
Skipið tafðist frá veiðum í þess-
um túr vegna þess að vír fór í
skrúfuna og varð að fara til ísa-
fjarðar og fá þar kafara til að
losa hann úr skrúfunni.
Hafliði mun að öllu forfalla-
lausu fara frá Þýzkalandi á morg
un áleiðis heim með viðkomu í
Færeyjum, þar sem hann mun
taka sjómenn. — Guðjón.
og listamanna og aðrir er
unna Ijóðum og öðrum verk-
um skáldsins. Annars er hóf-
ið að sjálfsögðu opið hverjum
sem er.
Aðalræðurnar flytja Bjarni
Benediktsson menntamálaráð-
herra, Steingrímur Þorsteins-
son prófessor og Þórarinn
Björnsson skólameistari á
Akureyri. Auk þess verða flutt
þar nokkur stutt ávörp.
Kb. Gullfaxi ill ísafj.
lil viðgerðar ,
ÞINGEYRI, 20. jan.: — í dag um
5 leytið skall hér á NV-bylur og
vonskuveður, en í morgun var
hér ágætisveður. Aðeins einn bát-
ur er nú gerður út héðan og hef-
ur hann ekki róið nema tvisvar,
það sem af er þessari vertíð.
Hann hefur verið bilaður. í gær
fór hann seinni róður sinn og
aflaði þá 4 lestir.
Mótorbátrum Gullfaxa, sem
brezki togarinn sigldi á um s.l.
helgi var siglt til ísafjarðar á
sunnudaginn var til viðgerðar.
Var neglt utan á bátinn og fór
hann síðan til ísafjarðar í fylgd
með öðrum máti. Þegar þangað
kom og athugun hafði verið fram
kvæmd á skemmdunum á bátn-
um, kom í ljós að hann var meira
skemmdur en menn ætluðu í
fyrstu. Togaiinn hafði klofið
hann inn undir miðju, en við það
hafði sú hliðin, sem frá sneri
knúsast og liðast þannig að hana :
verður að endurbyggja að mestu
leiti. Viðgerðin á bátnum mun
sennilega taka allt að þrem mán-
uðum. — M. A.
Bóðstefna verkalýðslélaganna
í Rvík og nágrenni telnr rétt að
segja app náverandi samningum
IFYRRAKVÖLD var haldinn fundur að tilhlutan A.S.Í. með full-
trúum verkalýðsfélaganna í Reykjavík og nágrenni, til að ræða
um uppsögn núgildandi samninga við atvinnurekendur.
Á fundinum var samþykkt til-
laga þess efnis að rétt væri að
segja upp samningum og knýja
fram kjarabætur.
Margir tóku til máls á fundin-
um og komu fram ýms sjónarmið
í málinu.
| Ekki er vitað hvaða stefnu mál-
ið tekur nú, en vitað er að mjög
eru skiptar skoðanir hjá félög-
[ unum um uppsagnartímann og
annað er viðkemur þessu máli,
m. a. hvaða leið eigi að fara til
I að fá kjarabætur.
Skip stöðvast vegna verkfalls
Mikil snjókoma síðasfa sóiar-
itring - Holtavörðuhelði ófær
Hæft við að Heiiisheiðin feppisf bráft
UM miðnætti í fyrrinótt tók að snjóa um suðvestanvert landið
og í gærmorgun, er fólk gekk til vinnu sinnar var kominn
rokkur snjór, jafnfallinn eftir nóttina. — í gær gekk á með hvöss-
um éljum og var nokkur skafrenningur hér fyrir utan bæinn, en
vegagerðinni var ekki kunnugt um að vegir væru ófærir orðnir í
gærkvöldi.
SÁTTASEMJARI sat á fundum
með samninganefndum Sambands
matreiðslu- og framreiðsiumanna
og skipafélaganna í alla fyrrinótt
til kl. 6 í gærmorgun, en sam-
komulag náðist ekki. Hófst svo
í gærkvöldi verkfall matreiðslu-
og framreiðslumanna á skipun-
um. Þegar í gær stöðvaðist eitt
skip af þessum orsökum. Var það
Skjaldbreið, er fara átti með vör-
ur og farþega til Vcstur- og Norð-
ur-landsins. I
Þá má og búast við, náist ekki
samningar fljótiega, að kaup-
skipin stöðvist hvert af öðru. —
Reykjafoss liggur nú í höfninni
og Esja átti að koma í morgun,
en fara aftur á laugardag.
Enginn sáttafundur var haldinn
í gær, en eftir því, sem blaðið
frétti í gær, ber mikið á milli í
deilu þessari.
Rafstöðin á Flateyri sfækkuð
ÝMSAR AÐRAR FRAMKVÆMDIR
OG ENDURBÆTUR GERÐAR ÞAR
Flateyri 20. jan.
MIKIL atvinna er nú á Flateyri og verður svo vafalaust áfram.
Búið er að lagfæra höfnina þar, setja upp nýja rafstöð, þar
geta togararnir nú fengið bæði ís og olíu og endurbætur standa
yfir á frystihúsinu og beinamjölsverksmiðjunni. Má segja að þar
hafi verið gerðar miklar framkvæmdir og umbætur á skömmum
tíma. I
2 BÁTAR GERÐIR ÚT
Héðan eru gerðir út tveir bát-
ar og hafa þeir aflað mjög mis-
jafnlega, þetta 2—7 lestir í róðri.
Veðurfar hefur yfirleitt ekki
hamlað sjósókn þeirra, því hér
hafa verið ágætis veður frá ára-
mótum, en nú virðist illviðri vera
í aðsigi, snjóhríð skollin á og
vonzkuveður. Snjólétt hefur ver-
ið það, sem af er vetrinum og
góð færð á vegum á láglendi. —
T. d. hefur verið fært í kringum
Önundarfjörð í allan vetur að
segja má.
MIKLAR SKIPAKOMUR
Á S.L. ÁRI
Á s.l. ári voru skipakomur
hingað helmingi fleiri en á ár-
inu þar áður. Ástæðan fyrir því
að svo er, er aðallega sú, að höfn-
in er nú komin í gott lag og skip
eiga því hægara með að komast j
að bryggju. Einnig það, að tog-
arar geta nú fengið bæði olíu ogi
ís hér, en frystihúsið er tekið að
framleiða ís fyrir togarana.
MIKIL ATVINNA
Atvinna hefur verið mikil og
ekki horfur á öðru en svo verði
áfram. Hafa togarar iðulega land-
að hér fiski, sem unninn er í
frystihúsinu. í gær landaði Kefl-
víkingur 120 lestum af fiski til
vinnslu hér.
Nýlega er lokið endurbótum og
ýmsum lagfæringum á frystihús-
inu. Enn er þó ekki lokið endur-
bótum á vinnusal þar, en þess
verður þó skammt að bíða úr
þessu. Sömuleiðis hefur beina-,
mjölsverskmiðjan hér verið tek-
in til endurbóta og verður senn
lokið við þær.
NÝ RAFSTÖÐ
Nýlega var tekin hér í notkun
ný rafstöð hjá rafveituni. •—
Er þetta 300 kw. vél, en ekki er
hún enn komin í fullkomið lag
og er unnið að því að svo verði
sem allra bráðast, enda mikil
þörf fyrir aukið rafmagn hér, þar
sem atvinnulífið grundvallast svo
mjög á því. — B. S.
Vegir þungfærir
STYKKISHÓLMI, 20. janúar: —
í gærdag gekk hér á með hryðj-
um annað kastið, en festi þó ekki
snjó á láglendi sem nokkru nem-
ur. Talsvert fennti í fjöll og skóf
þar í skafla. Kerlingarskarð er nú
mjög þungt yfirferðar, en þó fór
áætlunarbíllinn héðan í morgun
áleiðis til Reykjavíkur. Milli
Grundarfjarðar og Stykkishólms
er ófært í dag.
Engir bátar hafa farið á sjó í
dag. í gær var róið og var afli þá
fremur lélegur. Annars hafa gæft
ir verið góðar og afli sæmilegur,
eða frá 4—10 lestir á bát. — Árni.
Nína Tryggvðdélfir
sýnir í Brussel
og Khöfn
NÍNA TRYGGVADÓTTIR list-
málari, sem búsett er suður í
Parísarborg, hefur sagt frá því
í bréfi til vina hér í Reykjavík,
að í undirbúningi séu sýningar á
verkum hennar í Brússel og í
Kaupmannahöfn. Sýningin í
Brússel mun vera í þann veginn
að hefjast og verður hún í sama
sýningarsal og ísl. listaverkasýn-
ingin var haldin, Palais de Beaut
-Arts. Sýningin í Kaupmanna-
höfn verður í marzmánuði
-fÁ HELLISHEIÐI
Á Hellisheiði var allmikil úr-
koma í gær og nokkur skafrenn-
ingur, og er hætt við að heiðin
teppist ef veðurhæð vex og skaf-
renningurinn eykst. Voru vega-
gerðarmenn austur á heiðinni jj
gærdag, við að aðstoða bíla, en
dimmt var mjög vegna snjókomu,
Á HOLTAVÖRÐUHEIÐI
Á Holtavörðuheiði var mjög
mikil fannkoma norðan til og
varð hún ófær bílum í fyrra-
kvöld.
í fyrrinótt var mjög mikil snjó
koma og skafhríð norður á Holta-
vörðuheiði. Tveir af vögnum
Norðurleiða sem voru á suður-
leið, komust ekki lengra en upp
á miðja heiði, en þangað sótti
snjóbíll farþegana, 28 að tölu og
flutti niður í Fornahvam, en
þangað kom fólkið um klukkan
3 um nóttina.
í gærborgun um klukkan níu
fóru bílstjórarnir ásamt ýtunni
frá Fornahvammi, upp á heiðina
og tókst að koma bílunum niður,
svo og tveim stórum olíuflutn-
ingabílum og komu bílarnir niður
að Fornahvammi um kl. hálf eitt
í gærkvöldi.
BRATTABREKKA
Brattabrekka vestur í Dölum
mun að heita má ófær, eftir snjó-
komuna síðasta sólarhringinn, en
áætlunarbíll mun þó með aðstoð
ýtu hafa brotist suður yfir í gær-
dag. Hann varð að snúa frá I
fyrrakvöld
Þeir flauta og selurinn kemur
Vísilalan hækkar um
eiil stig
KAUPLAGSNEFND hefur reikn-
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. jan. s.L,
og reyndist hún vera 161 stig,
eða einu hærri en í s.l. mánuði. i
MARGIR er leið eiga eftir
Skúlagötunni á góðviðr-
ismorgnum, hafa veitt því eftir
tekt, að lítill selur heldur sig
stöðugt við landið, beint fyrir
framan Fiskifélagshúsið. Þetta
er veturgamall landselur.Stund
um er hann alveg uppi í landi,
en einnig bregður hann sér út
á víkina. Þá hafa vinir hans
„samband“ við hann með því
að flauta á hann. Kemur sel-
urinn þá strax syndandi að
landi. Ekki er vitað til þess,
að neinn gefi honum fóður.
Er þessi litli selur ótrúlega
spakur, og hafa menn gaman
að honum og leik hans. En
stundum þegar hann er í góðu
skapi, á hann það til að bregða
á leik.
★ Fyrir nokkrum dögum
var hann hvergi sjáanlegur
einn morguninn, en þá var
hið bezta veður. Þegar að var
gáð, kom brátt skýringin. —
Hann hafði fengið heimsókn.
Stór, heljarmikill útselur var
kominn í heimsókn til litla
frænda síns. — Og sá stóri
dvaldist daglangt og fór jafn-
vel inn í sjálfa Reykjavíkur-
höfn. Næsta dag var sá stóri
horfinn, en litli selurinn reisti
sig, er einn vina hans í landi
sendi honum morgunkveðjuna
um leið og hann gekk til vinnu
sinnar.