Mosfellsblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 14
MpieðUea jól
og {atsælt komunbi átl
V
fm V MARKHOLT 2- MOSFELLSBÆ
V U I 111 VI 10 SÍMI 566 8144 - FAX 566 6241
^GLERTÆKNI ehf
GRÆNAMÝRI 3 • 270 MOSFELLSBÆ • SÍMI 5668888 • FAX 5668889
® BÚNAÐARBANKINN
ÞVERHOLTI 1 - SÍMI 566 7000
F.h. Cunnar Einarsson og Skotla, Guðmundur Guðmundsson og Sokki og Kristján Mikaclsson
Gary.
Fjárhundakeppnf
Hfeðalfellsvaln
Haldin var fjárhundakeppni við
Meðalfellsvatn í Kjósarhreppi þann
23. október 1999 og var þetta 7.
keppnin sem haldin er hér á landi. Það
var Kjósardeild Smalahundafélags
íslands sem hélt þessa keppni, en
Kjósardeildin var stofnuð s.l. haust.
Keppni hófst kl. 14 og Iauk um kl.
17. Það var ansi kalt í veðri en fallegt,
sól og úrkomulaust, um 60 manns
voru mættir til að fylgjast með og alls
tóku 6 hundar þátt í keppninni sem er
svipað og verið hefur sl. ár, þ.e. sömu
hundar og þjálfarar og áður hafa tekið
þátt. Það er umhugsunarvert hvers
vegna ekki koma neinir nýir hundar og
þjálfarar til keppni, kannski er komið
að þeim tímapunkti að bjóða verði upp
á sérkeppni fyrir byrjendur, þ.e. hafa
keppni með svipuðu sniði og keppnin
var haldin hér fyrst. Menn virðast ragir
að mæta með hunda sína á móti þes-
sum hundum, sem eru sumir hverjir
búnir að taka þátt frá fyrstu keppni.
Verkefnið að þessu sinni var það
erfíðasta sem verið hefur, hundurinn
þurfti að sækja kindur í 350 metra fjar-
lægð, koma með þær til þjálfarans í
sem beinustu línu og í gegnum eitt hlið
á leiðinni, þar næst að reka það aftur
fyrir þjálfarann, frá honum í gegnum
hlið, þvert yfir brautina í gegnum
annað hlið og svo inn í rétt. Síðan úr
réttinni inn í afmarkaðan hring sem er
22 metrar í þvermál, þar átti að halda
kindunum rólegum og skipta þeim
síðan í tvennt, og þar með verkefninu
lokið. Tímamörk verkefnisins var 16
mínútur. Tveir hundar luku ekki
verkefninu á tilsettum tíma en annars
urðu úrslit keppninnar sem hér segir:
1. sæti:
Gunnar Einarsson, Daðastöðum
og Skotta frá Daðastöðum,
4 ára - 63 stig.
2. sæti:
Guðmundur Guðmundsson,
Kaðalstöðum og Sokki frá
Björgum, 7 ára - 59 stig.
3. sæti:
Kristján Mikaelsson, Flekkudal,
Kjós og Gary (innfl. frá Skotlandi),
4 ára - 53 stig.
Dómari keppninnar, Mr. David
Brady, kom frá Skotlandi þar sem
hann er bóndi.
Kjósardeildin langar að koma á
framfæri þökkum til þeirra sem sáu sér
fært að styrkja keppnina, en það voru
Glóbus, Vélaver hf., Búnaðarbankinn í
Mosfellsbæ, MR-búðin og Bæjarblikk
í Mosfellsbæ.
Þökkum íbúum Mosfellsbœjar
ánœgjulegt samstarf
á árinu sem er að líða
Vöndum valið, veljum íslenskt
SÍGURPLAST HF
Slórhælluleg hringtorg
Áfram verða óhöpp við nýju hringtorg Vegagerðarinnar á Vesturlandsveg-
inum vegna hinna hvössu kanta á þeim, eins og skýrt var frá í síðasta blaði.
Nýlega stórskemmdist hjólabúnaður bíls í Langatangatorginu og vitað er að
lögreglubíll var hreinlega ónýtur eftir árekstur við torg við Suðurlandsveg við
Rauðavatn, hjólabúnaðurinn og ramminn undir bflnum fór í rúst. Þetta torg er
hannað á sama hátt og torgin hér, með köntum sem vísa út að ofan og skemma
allt sem að þeim kemur.
Ökumönnum er aftur bent á að fá lögregluskýrslu til staðfestingar slíku
óhappi, ef huga skal að bótum frá veghaldara, sem er Vegagerðin, en hins veg-
ar hljóta bæjaryfirvöld að láta þetta mál til sín taka. - Óhöpp við torgin eru
miklu fleiri en Mosfellsblaðið hefur tölu á.
© Hfosfellsblaðlð