Morgunblaðið - 17.04.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.04.1958, Blaðsíða 6
6 MORCVISBLAÐIÐ 'F'immt’uclagur 17. apríl 1958 NY MISTOK CASTROS UPPREISN- ARFORINGJA r — — y - - \A Ger*aim*nt | MAmNZÁS ' \K rroiops S, rtavsi kv’rw Casho's bsHahan Á'v' J C Toxoca), V IO W), TiME M.piy V. ?>5 . Uppdráttur af Orientehéraði, órólegasta hluia Kúbu. ENN hefur mistekizt úrslitatil- raun uppreisnarmanna á Kúbu, til að velta Batista einræðisherra úr valdasessi. Geta ogvangetaupp reisnarhers Castros hefur enn einu sinni komið í ljós. Hann get ur haldið uppi skæruliðahernaði á Kúbu, en þegar slær í orrustu, þá hefur hinn fúllkomni her og skipulagða lögregla Batista betur. Batista einræðisherra beitti ekki minni harðneskju til að bæla síðustu uppreisnartilraun- ina niður, en tíðkazt hefur í kom múnistaríkjunum í Austur-Ev- rópu. Sá er þó munurinn, að Bat- ista hefur ekki notið stuðnings erlends herliðs. Það er almennt álitið, að meiri hluti eyjarskeggja á Kúbu sé hlynntur uppreisnarher Fidels Castro, enda eru menn orðnir þreyttir á lögreglustjórn og of- beldi Batista. Castro sem hefur búið sér bækistöð inni í frum- En fresturinn rann út og í fyrstu gerðist ekkert alvarlegt. Það var ekki fyrr en þremur dögum síðar, sem uppreisnar- menn hófu allsherjarsókn sína. Hún var þó víðast hvar af van- efnum gerð. Smáhópar uppreisnarmanna á ferð. I höfuðboroginni Havana réð- ust smáhópar uppreisnarmanna að morgni 9. apríl inn í tvær út- varpsstöðvar í útjaðri borgarinn- ar og byruðu að útvarpa áskor- unum til verkalýðsins um að gera allsherjarverkfall. Ekki leið á löngu þar til vopnuð lög- regla réðist að útvarpsstöðvunum og stráfelldi uppreisnarflokk- ana. Sex ungir menn réðust vopnað ir inn í byssuverzlun í hafnar- hverfi Havana og ætluðu að ræna sér byssum og skotfærum. Lög- stéttarop, þar sem rafmangsleiðsl ur og gaspípur voru. Kom upp eldur í sprengdum gasleiðslum, sem logaði í margar klukkustund ir. Heil hverfi borgarinnar urðu rafmagnslaus og gaslaus, en al- menningur var yfirleitt undir þetta búinn og fólk hafði keypt sér kerti, olíulampa og prímusa. Allsherjarverkfall hindrað Batista einræðisherra mun hafa skilið, að honum var mest hætta búin af allsherjarverkfalli. Hann minntist þessa líka, að það var allsherjarverkfallið, sem hafði fellt Jimenez einræðisherra Vene zúela. Því gerði hann sérstakar ráðstafanir til að verja sig þeirri hættu. Hann gaf út tilkynningu um að þátttaka í verkfalli væri glæp- ur. Verkfallsmönnum skyldi taf- arlaust víkja úr starfi og refsa þeim. Þá ákvað hann, að vinnu- veitendur, sem lokuðu fyrirtækj- um sínum og verzlunum yrðu tafarlaust teknir og varpað í fang elsi. Einnig ákvað hann, að verk fallsbrjótar skyldu hafa fulla heimild til að bera á sér vopn og væri þeim heimilt að skjóta vægðarlaust, hvern þann verk- fallsvörð, sem sgtlaði að hindra þá sem verkamenn í liði uppreisnar manna hafi gugnað. Þeir sáu að Batista var ákveðinn í að beita hinni mestu hörku. Faustino Per- ez, einn helzti samstarfsmaður Castros, sem átti að skipuleggja verkfallið, frestaði því í nokkra daga og gat lítið aðhafzt, þegar úrslitastundin kom. f Oriente héraði. Uppreisnarmenn eru sterkast- ir á austurhluta eyjarinnar í svo nefndu Oriente-héraði. Þaðan er Castro ættaður og í háfjöllum og frumskógum þessa landshluta eru bæli útlaganna. í þessu hér- aði hóf Castro einnig sókn sam- tímis skærunum í Havana. Upp reisnarmenn sýndu enn sem fyrr að þeir geta í skyndiáhlaupum sínum úr frumskógunum unn- ið skemmdarverk og segja má að þeir sáu ráðandi í sveit- unum. En nú réðust þeir til at- lögu á aðalvirki stjórnarhersins í borgunum. Stærstu árásina skipu lögðu þeir að virkisbænum Manz anillo. Þar höfðu hersveitir stjórnarinnar nokkra skriðdreka, sem uppreisnarmenn ætluðu að lokka inn í gildru og vinna bug á. Þeir lögðu jarðsprengjur undir þjóðveginn, þar sem þeir bjugg- ust við að skriðdrekarnir ækju um. flokkinn við Manzanillo úti á sléttlendi. Flugárásir voru hafn- ar á hann og helmingur uppreisn armannanna féll. Hvarvetna úr Oriente-héraði bárust fregnir af skemmdarverk um. Uppreisnarmenn lokuðu þjóðveginum með því að fella svera trjáboli þvert yfir þá. Síð- an kveiktu þeir í langferðabif- reiðum og vöruflutningabílum. Skæruliðahernaðinum verður haldið áfram. Sfefán Magnússon form. Fél. ísl. afvinnuflugmanna AÐALFUNDUR Félags íslenzkra atvinnuflugmanna var haldinn í Golfskálanum 14. apríl sl. Fund- urinn var fjölmennur, og voru rædd ýmis hagsmunamál, auk venjulegra aðalfundarstarfa. 1 stjórn félagsins voru kosnir: Stefán Magnússon formaður og iSigurður Haukdal varaformaður. Meðstjórnendur: Ragnar Kvaran, Bjarni Jensson og Snorri Snorra- son. í varastjórn: Jón R. Stein- dórsson og Bragi Norðdahl. Hinn nýkjörni formaður og fé- lagsmenn, hylltu fráfarandi for- mann, Gunnar Frederiksen, og Gasæð brennur í aðalgötu ilavana eftir sprengjukast uppreisnarmanna. skógavöxnu hálendi í austurhluta' eyjarinnar, er fyrir löngu orð- inn vinsæl þjóðsagnapersóna, sem ungir menn vilja taka sér til fyrirmyndar.Ungu mennirnir eru fullir af ævintýralöngun, flykkj- ast til hans og gerast útlagar í liði hans. Castro sker hvorki hár né skegg. En í síðustu viku var alvara á ferðum. Enn sem fyrr elti óheppn in Castro og fylgismenn hans. Þeir ætluðu að reyna að efna til allsherjarverkfalls og blóðugrar byltingar um allt landið. Árang- urinn varð aðeins sá, að herlið og vopnuð lögregla dreifði uppreisn armönnum og felldi þá miskunn arlaust í hrönnum. Hin mis- heppnaða tilraun hefur það í för með sér, að Castro mun tapa til- trú þjóðarinnar, að minnsta kosti um stundar sakir. En uppreisn- arforinginn er sauðþrár og vafa- laust líður ekki á löngu, þar til hann eflir her sinn að nýju. Hann hefur ákveðið að unna sér ekki hvíldar, hann mun ekki raka skegg sitt fyrr en Kúba er frjáls undan ógnarstjórn Batista. Og svo er hann einbeittur, að ekki er ólíklegt að áður en lýkur muni hann standa yfir höfuð- svörðum Batista. Úrslitakostir. Castro uppreisnarforingi hefur nú dvalizt í frumskógum Kúbu í næstum hálf annað ár. En það var fyrst nokkru eftir fall Jim- enez einræðisherra í Venezúela, sem skriður fór að koma á upp- reisnaraðgerðirnar. Efldist her Castros þá mjög og sendi hann Batista einræðisherra úrslita- kosti. Sagði hann, að ef Batista léti ekki af stjórn fyrir 6. apríl, þá myndi efnt til allsherjarverk falls á allri Kúbu og síðan myndi bylting blossa upp um gervalla eyna. reglan kom skjótt á vattvang og hinir sex ungu menn lágu eftir í blóði sínu. Annar hópur uppreisnarmanna kastaði sprengjum niður í gang í að vinna. Að lokum ákvað ein- ræðisherrann að það skyldi vera refsilaust að skjóta verkfalls menn, hvar sem þeir sæjust. Gegn slíkum hótunum, virðist Það urðu þó ekki skriðdrekar, sem fyrstir fóru um veginn, held ur vörubifreið fullhlaðin her- mönnum. En bifreiðin ók áfram eftir veginum eins og ekkert hefði í skorizt. Jarðsprengjurnar reyndust gamlar og óvirkar. — Stjórnarherinn fann uppreisnar- ÚP sbrifar daglega lífinu Bókauppboðin ¥ TM nokkurt skeið hefur fólk átt * ' þess kost, að kaupa og selja listmuni og dýrar bækur á upp- boðum Sigurðar Benediktssonar. Þessi starfsemi er skemmtilegur þáttur í bæjarlifinu og uppboðin, oft spennandi. Velvakandi leit inn á bókauppboð, sem Sigurður hélt á föstudaginn i litla salnum i Sálfstæðishúsinu, en þar hefur hann haft þessa starfsemi sína að undanförnu. Ýmis merk verk voru þarna til sölu og óspart boð- ið í. Selt var m. a.: 'Safn til sögu íslands I.—V. á 2.600 kr., Sýslu- mannaævir Boga Benediktssonar allgott eintak á 3.100 kr., og forn- bréfasafnið, 12 fyrstu bindin, á 4.000 kr. Om digtningen pá Island eftir Jón Þorkelsson fór á 950 kr., ferðabók ÞorValdar Thoroddsen á 2.600 kr., „Riimur af Sigurde Snarfara“ eftir Snorra Björnsson á 1.200 kr. og Tímarit Jóns Pét- urssonar á 1.600 kr. Þessi bókauppboð Sigurðar hófust fyrir rúmum 2 árum, haust ið 1955. Hafa þau alls verið 18 síðan. Dýrasta verk, sem selt hef- ur verið, var ljósprentun Munks- gards á íslenzkum handritum, öll 17 bindin, á 20.000 kr. Hæsta boð, í einstaka bók, sem gert hefur verið á uppboðum þessum, er 9.500 kr. Fyrir það verð fór frumútgáfan á þýðingu Einars hún var gefin út í 30 tölusettum eintökum 1902 og seld þá á 100 kr., sem þótti geipifé. Ýmsar bæk ur hafa verið seldar á 3 til 4 þús. kr., en aðrar hins vegar á 10 kr. — eða alls ekki selzt. Bókauppboðin sækja 100 til 150 manns, oftast sömu mennirnir. Margir koma af forvitni og heyr- ast aldrei bjóða í bók, aðrir hafa sig mjög í frammi. Sigurður hef- ur þá sjálfsögðu reglu, að láta bækurnar liggja frammi á upp- boðsstað í 2 daga og geta menn þar skoðað þær. Á uppboðunum lætur hann og reyndar aðrir Við- staddir ýmsar athugasemdir fjúka um kosti og galla bókanna frá sjónarmiði safnara, en aðal- gamanið er að sjálfsögðu spenn- ingurinn í boðunum og eftirvænt ingin, — nýtt boð eða hamars- högg? Sigurður selur einnig málverk og aðra listmuni, auk bókanna, en það er gert á sérstökum upp- boðum. Yfirleitt munu uppboð Benediktssonar á Pétri Gaut, en hans hafa hjálpað mörgum til að koma eigum í peninga, þegar þörf var á, t. d. vegna húsbyggingar eða annarra fjárfrekra aðgerða, og þau hafa gefið mönnum tæki- færi til að eignast listaverk, eða góðar bækur, sem þeir hefðu e. t. v. ekki átt kost á að bjóða í ella. Söngskemmtanir Karlakórs Reykjavíkur KONA nokkur hringdi til Vel- vakanda í fyrradag. Hún kvaðst hafa mikla ánægju af karlakórsöng, og hafa reynt að fá sér miða á einhvern af samsöngv- um Karlakórs Reykjavíkur, sem eru á"hverju kvöldi þessa dagana. Þá var henni sagt, að allir tón- leikarnir væru fyrir styrktarfé- laga, nema þeir, sem haldnir eru á laugardaginn. En þá kvaðst konan vera bundin í vinnu, svo að ógerningur væri fyrir sig að fara. Tillaga hennár er þessi: Nokkrir miðar að þeim tónleik- um, sem ætlaðir eru styrktarfé- lögum, verði seldir almenningi. Velvakandi sneri sér til þeirra, sem hér eiga hlut að máli. Niður- staðan varð þessi: Hér er unnt að ráða bót á. Þeir, sem hafa hug á að fá miða á einhverja af þeim tónleikum kórsins, sem aðallega eru ætlaðir styrktarfélögum, eiga að snúa sér til Kristjóns Krist- jánssonar, Laugavegi 34 B, simi 1-84-61. þökkuðu honum vel unnin störf í þágu félagsins á undanförnum árum, en hann hefur verið for- maður þess sl. 4 ár, en baðst nú eindregið undan endurkosningu. Dagana 11.—18. marz sl. var haldið í Bogota í Colombíu 13. þing alþjóðasambands atvinnu- flugmanna, I.F.A.L.P.A., og sátu það á vegum félagsins, þeir Ragn- ar Kvaran og Bjarni Jensson. — Fluttu þeir á fundinum greinar- gerð frá þinginu, en þar voru samankomnir fulltrúar um 20 þús. starfandi atvinnuflugmanna. Þing þessi fjalla einkum um flug- tæknileg vandamál og öryggis- mál farþegaflugs almennt. — Er ávallt tekið tillit til sam- þykkta þingsamtakanna við setn- ingu alþjóðlegra flugreglugerða. Félagslegf öryggi LÖGÐ hefur verið fram á Al- þingi þingsályktunartillaga frá ríkisstjórninni um að henni skuii heimilt að fullgilda fyrir íslands hönd samþykkt nr. 102 um lág- mark félagslegs öryggis, sem gerð var á þingi Alþjóðavinnu- málastofnunarinnar í Genf 1952.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.