Morgunblaðið - 30.11.1958, Page 17
Sunnudagur 30. nóv. 1958
MORCUTSfíLAÐlÐ
17
Séra Björn Stefánsson
prófastur frá Auðkúlu
Minning
ÉG BÝST við því, að ýmsa fleiri
en mig hafi hér í héraðinu sett
hljóða, er andlátsfregn vinar
míns og starfsbróður séra Björns
Stefánssonar prófasts frá Auð-
kúlu barst okkur til eyrna. Mörg
um var að vísu kunnugt um
heilsubrest hans síðustu misser-
in, en við bjuggumst samt ekki
við því, að svo fljótt yrði hann
burtu kvaddur. Ég sá hann fyrir
fáum vikum, er ég var
staddur í Reykjavík og sízt
kom mér þá til hugar, að ég
yrði aðeins rétt kominn norður,
er lát hans bærist mér. Hann
var þá hress og reifur. Að vísu
hafði hann ekki fótavist, en að
öðru leyti sýndist mér hann
svipaður og þegar ég sá hann á
síðastliðnu vori. En svona hefir
þetta skipazt og það sýnir okkur,
enn einu sinni, hversu skammt
við sjáum fram í tímann, þegar
um líf og dauða er að ræða.
Séra Björn var fæddur að
Bergsstöðum í Svartárdal 13.
marz 1881 og var því ekki nema
77 ára er hann lézt hinn 10. þ.m.
Voru foreldrar hans þau hjónin
séra Stefán M. Jónsson lengi
prestur á Auðkúlu og fyrri kona
hans Þorbjörg Halldórsdóttir frá
Úlfsstöðum í Loðmundarfirði.
Var faðir hans kunnur fyrir glæsi
mennsku sína og skörungsskap
og móðir hans, að dómi allra
kunnugra hið mesta valkvendi.
Ólst séra Björn að öllu leyti
upp í sínum ágætu foreldrahús-
um. Hann gekk í lserða skólann
ungur að aldri og fylgdist þar
með bróður sínum séra Eiríki á
Torfastöðum, sem var nokkrum
árum eldri. Gekk honum námið
ágætlega, enda vel gefinn, sam-
vizkusamur og skyldurækinn.
Lauk hann stúdentsprófi 21 árs
gamall með góðri fyrstu einkunn.
Embættisprófi í guðfræði lauk
hann við prestaskólann í Reykja
vík vorið 1906 einnig með fyrstu
einkunn. Næsta vetur stundaði
hann kennslustörf og svo gerði
hann öðrum þraeði fyrstu prest-
skaparár sín, var t.d. kennari við
Hjarðarholtsskólann veturinn
1911—''12. Haustið 1907 vígðist
hann að Tjörn á Vatnsnesi og
hafði þá fengið veitingu fyrir
prestakallinu. Hélt hann því til
1912, en þá réðst hann sem að-
stoðarprestur til sr. Jens Pálsson-
ar í Görðum á Álftanesi. Var
hann síðan um tíma settur sókn-
arprestur á Sauðárkróki, þar til
hann fékk veitingu fyrir Bergs-
stöðum og fluttist þangað haust-
ið 1914. Þjónaði hann því presta-
kalli unz faðir hans lét áf em-
bætti, en þá fluttist hánn að Auð-
kúlu, tók við prestakallinu og
þjónaði því til 1951, er hann lét
af störfum. Nágrannaprestaköll-
um þjónaði hann jafnframt, þe£
ar svo bar undir, lengst Berg-
staðaprestakalli frá fardögum
1921 til hausts 1925. Prófastur í
Húnavatnsprófastsdæmi var
hann skipaður 1931 og gengdi
því starfi í 9,1 áv.
Þá voru honum falin ýmis
trúnaðarstörf í sveit og héraði,
enda þótt hann væri fremur hlé-
drægur og sæktist ekki eftir
slíku. Hann var um alllangt skeið
prófdómari við Kvennaskólann á
Blönduósi, sat í sýslunefnd um
skeið, hreppsnefnd og skólanefnd
svo að nokkuð sé talið. Hann v-
félagshyggjumaður í eðli sínu og
studdi samvinnuhugsjónina í orði
og verki alla tíð.
Séra Björn var tvíkvæntur.
Var fyrri kona hans Guðrún
Ólafsdóttir, prófasts í Hjarðar-
holti í Dölum Ólafssonar. Missti
hann hana eftir tæplega 8 ára
sambúð, 25. júní 1918. Eignuðust
þau einn son, Ólaf hagfræðipró-
fessor og alþm. og þrjár dætur,
Ingibjörgu, Þorbjörgu og Ást-<
hildi, sem öll eru á lífi. í annað
sinn kvæntist hann 16. apríl 1930
Valgerði Jóhannsdóttur frá Torfa
stöðum í Svartárdal, hinni ágæt-
ustu konu, sem reyndist manni
sínum frábærlega vel, ekki sízt
í sjúkléika hans siðustu tímana.
Lifir hún mann sinn ásamt tveim
uppkomnum dætrum þeirra Guð-
rúnu og Ólöfu.
Séra Björn Stefánsson var tví-
mælalaust meðal merkustu
presta þessa lands. Hann starf-
aði að vísu lengst af í fámennum
afdalaprestaköllum, þar sem fá-
ar sögur gerast, er frásagna
þykja verðar, en hann starfaði
þar vel og af mikilli trúmennsku.
Hann var fremur hlédrægur að
eðlisfari og lét ekki sérstaklega
mikið á sér bera, en hann var
þeim mun heilli og einlægari í
öllum störfum sínum og fram-
komu. Prestsverk fóru honum
vel úr hendi og hann var með
afbrigðum samvizkusamur og
skyldurækinn «mbættismaður.
Hann var ekki hraðans maður á
nútímavísu og fór sér aldrei óðs-
lega, en hann hugsaði jafnan ráð
sitt þeim mun betur. Sem ræðu-
maður mun hann hafa staðið
framarlega í fylkingu íslenzkra
kennimanna. Undirritaður heyrði
oft til hans bæði prédikanir og
tækifærisræður og voru þær
margar snilldarvel samdar. f
þeim var aldrei innantómt orða-
glamur né mælgi, en þær voru
ætíð þaulhugsaðar og fallegar,
víðsýnar og jafnvel djarfár, er
svo bar undir, enda var hann
frjálslyndur í skoðunum og laus
við alla þröngsýni. Enginn sem
á hann hlýddi gat efazt um, að
orðin komu frá hjartanu og voru
honum fyllsta alvörumál. Ekk-
ert var honúm fjarstæðara né
ógeðfelldara en að hafa tungur
tvær. Ég þykist þess fullviss, að
hann hafi látið eftir sig svo mik-
ið af ágætum ræðum, að fengur
væri að því að fá úrval þeirra
birt á prenti.
En eins og séra Björn var
góður prestur að allra dómi, sem
til þekktu, þá var hann þó fyrst
og fremst góður maður, sem
bjartar og hugljúfar minningar
geymast um í hugum vanda-
manna hans og margra vina. Hann
var ágætur heimilisfaðir, um-
hyggjusamur og elskuríkur og
hann átti því láni að fagna að
eiga indælt heimili, sem varð
honum friðsæll reitur hamingju
og unaðar. Þar var alltaf gott
að koma í heimsókn. Gestrisnin
var mikil, en hjartahlýjan og
vinsemdin, sem þar lá í loftinu
var þó engu minni. Áttu prófasts
hjónin þar bæði óskipt mál. Við
hið þétta, hlýja handtak fundu
allir, að þeir voru innilega vel-
komnir. „Látlaust fas og fals-
laust hjarta“ var einkennið á
séra Birni hvort sem var heima
Matrosföt
Verð frá kr. 420.—
lh®
Austurstræt 12. V
Skrifstofustúlka
óskast frá næstu áramótum. Vélritunar- og mála-
kunnátta nauðsynleg.
Umsóknir með fullnægjandi upplýsingum
sendist Sambandi smásöluverzlana, Laugav. 22.
Ný sending
býzkar blússur
(jt*
lucfCfLnn
Laugaveg 30
eða heiman. Um hann mátti
með sanni segja, að þar var góð-
ur maður, sem bar allstaðar gott
fram úr góðum sjóði hjarta síns.
Hann var því ekki aðeins prestur
í kirkjunum sínum, hann var
líka prestur á heimilinu sínu og
prestur hvar sem hann sást og
kom fram.
í vinahópi var hann glaður og
reifur og hinn skemmtilegasti í
allri umgengni. Hann hafði
græskulausa kímnigáfu til að
bera og opin augu fyrir hinu bros
lega í umhverfinu, en hann vildi
engum gera neitt til miskahvorki
í orði eða verki. Hann var ákaf-
lega vinsæll meðal safnaða sinna
og annarra þeirra, sem þonum
kynntust. Batt hann mörg þau
vináttubönd, sem aldrei rofnuðu
en aðeins styrktust eftir því sem
árin liðu. Hann var sjálfur vin-
fastur og trygggeðja og vildi
aldrei verða fyrri til vinslita.
Get ég naumast hugsað mér, að
nokkur hafi borið til hans óvild-
arhug. Þvert á móti munu nú
margir senda þessum vammlausa
sæmdarmanni og merkisprestl
hlýjar kveðjur og hjartanlegar
þakkir fyrir svo ótal margt frá
liðnum dögum. Og eftirlifandi eig
inkonu hans, börnum og öðrum
ástvinum viljum við vinir hans
senda innilegar samúðarkveðjur
og votta þeim hluttekningu I
söknuði þeirra og sorg. Drottinn
blessi þeirra framtíð.
Ég hafði þekkt séra Bjöm
um hálfan fjórða áratug. Þau
kynni voru allnáin með köflum
og öll á sama veg. Ég tel mér þaö
mikils virði að hafa verið sam-
starfsmaður hans svo lengi, og
notið vináttu hans og áhrifa frá
honum. Minningarnar eru allar
bjartar og hugljúfar, sem frá
þessum samstarfsárum geymast.
Enginn skuggi íellur á þær í
huga mínwm.
Ég þakka þér þ»r allar, kærl
vinur, sam frá okkur ert nú horf-
inn, þakka þér allt samstarfið,
alla vináttu þina og tryggð.
Blessuf sé minning þín.
Steinnesi, 18. nóv. 1958,
Þorst. B. Gíslason.
NÍKOMIÐ
Ú tihurðaskrár
Útihurðalamir
Innihurðaskrár
Innihurðalamir
Skápalæsingar
Skápalamir
Vírlykkjur inargar stærðir
Rangæingafélagið í
Reykjavík
40 ára fullveldis verður minnst í Tjarnarcafé mánudaginn
1. desember 1958 kl. 8,30 e.h.
DAGSKÁ:
1. Ræða: Árni Böðvarsson cand. mag.
2. Söngur: Kariakór félagsins.
3. Spurningaþáttur: Spyrjandi er séra Jón Skagan.
Kunnir menn úr Rangárþingi svara.
4. D a n s.
Aðgöngumiðar seldir í dag kl. 5—6 e.h. í Tjarnarcafé.
S TJÓRN I N.
Síðosti dagur ljósmyndu-
og blómasýningurinnor
í nýja sýningarsal Ásmundar Sveinssonar myndhöggv-
ara, v/Sigtún er í dag.
Á sýningunni eru um 400 úrvals ljósmyndir frá 6 lönd-
um auk Islands.
Sýningin er opin í dag frá kl. 10—23.
Stuttar kvikmyndir sýndar á eftirfarandi tímum:
kl. 16 Heklugosið eftir Ósvald Knudsen
kl. 17,30 Hrognkelsaveiðar eftir Magnús Jóhannsson
kl. 19 Hálendi íslands eftir Magnús Jóhannsson
kl. 21 Laxaklak eftir Magnús Jóhannsson
kl. 23 Fjölskylda þjóðanna (ísl. tal).
Notið þetta síðasta tækifæri til að sjá þessa merku
sýningu.
Sundlaugarvagninn fer á 15 mín fresti að Sigtúni.
FÉLAG AHUGALJÓSMYNDARA.
= Sími 15500
| Ægisgotu 4