Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 1
Stórfelld sókn uppreisn- armanna í Laos Stjórnín tekur fyrir allan fréttaflutning frá norðurhéruðunum VIENTIANE, Laos, 24. ágúst. — (Reuter). — Herinn í Laos hefur „myrkvað" öll norðausturhéruð landsins, Jtannig að ekki hefur komið ein einasta frétt um ástandið þar síðasta sólarhringinn. — Ekki hafa heldur verið sendar út neinar tilkynningar um hern- aðaraðgerðir eða herstöðu stjórnarherjanna í baráttunni við upp- reisnarlið kommúnista síðan á fimmtudaginn í síðustu viku. Hins vegar er það haft eftir öruggum heimildum í Vientiane, að stjórnarherinn hafi barizt við uppreisnarmenn um 80 km. fyrir norðan höfuðborgina Vientiane. Frú Krisfín Jonsdóttir listmálari látin Kristín Jónsdóttir „Alvarlegt ástand“ Christian Herter, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í utanríkismálanefnd öldungadeild arinnar í dag, að ástandið í Laos væri mjög alvarlegt. Samkvæmt upplýsingum nefndarformanns- ins, Fullbrights, hefur utanríkis- ráðuneytið ekki fengið nægilega góðar og ýtarlegar upplýsingar til að hægt sé að gera sér skýra grein fyrir atburðunum í Laos. 1 London sagði formælandi brezka utanríkisráðuneytisins, að stjórninni hefðu borizt tilkynn- ingar frá Laos, sem bentu til þess, að staða stjórnarherjanna hefði versnað, en þær tilkynn- ingar komu á föstudaginn var, sagði hann. Ótti í Luang Prabang í bænum Luang Prabang, þar sem konungsfjölskyldan á sum- arbústað, hefur gripið um sig ótti vegna orðróms sem gekk um það, að framsveitir kommúnista væru aðeins 30 km. frá bænum, segja embættismenn, sem eru nýkomn- ir þaðan til Vientiane. A. m. k. 10 fjölskyldur hafa flutzt burt með allar eigur sínar, sem hreyf- anlegar voru. Hins vegar telja margir, að kommúnistar standi á bak við þennan orðróm um hernaðarað- gerðir óvinanna í því skyni að skapa ugg meðal bæjarbúa. — A. m. k. eru sveitir kommúnista í nágrenni við bæinn mjög fá- mennar. Sagt er að návist krón- prinsins í Luang Prabang hafi stappað stáli í bæjarbúa. 80 km frá höfuðborginni Það er haft eftir góðum heim- ildum, að herir kommúnista, sem eru um 80 km fyrir norðan höf- uðborgina, kunni að rjúfa allar samgöngur milli norður- og suð- urhluta landsins. Talsmaður hermálaráðuneyt- isins í Laos sagði í dag, að ekki hefðu borizt neinar nýjar frétt- ir frá fjallahéruðunum á landa- mærum Norður-Vietnams, en þar hefur mest verið barizt. Stjórnin í Laos heldur því fram, að upp- reisnin eigi upptök sín í Norður- Vietnam og sé studd af kommún- istastjórninni þar. Ennfremur segir hún, að Peking-stjórnin standi bak við uppreisnina. X-------------------------* Þriðjudagur 25. ágúst. Efni blaðsins m.a.: Bls. 3: Rætt við froskmann í Neskaup- stað. — 6: Frá aðaifundi Skógræktarfélags Islands. — 8: Kvikmyndir. — 10: Ritstjórnargreinar: Bandaríkja för Krúsjeffs. — Ósigur komm- únista. — 11: Fiskmarkaðurinn í Þýzkalandi, eftir Pétur Eggerz. —- 18: íþróttir. *-------------------------* Áreiðanlegar fregnir herma, að herafli stjórnarinnar hafi yfir- gefið stöðvar sínar við Sop Vi- eng, um 80 km fyrir norðaustan Vientiane, og Bacadinh, um 120 km fyrir austan höfuðborgina. Áður en stjórnarherinn yfirgaf Bacadinh geisaði sex klukku- stunda harður bardagi. Þessi herstöð er mjög mikilvæg, því hún liggur við ferjustaðinn, þar sem Cadinh-fljótið sker þjóðveg- inn til Suður-Laos. Þá herma fregnir, að Pathet Lao-herdeildin, sem skipuð er 600 velþjálfuðum frumskógaher- mönnum kommúnista, hafi far- ið frá hinum veigamiklu her- stöðvum sínum á landamærum KAUPMANNAHÖFN, 24. ágúst. NTB-RB. — Átta menn voru í dag dregnir fyrir rétt í Kaup- mannahöfn í hinu umfangsmikia njósnamáli, sem danska lögregl- an afhjúpaði fyrir nokkru. Rétt- arhöldin fara fram fyrir luktum dyrum, og er búizt við að yfir- heyrzlum ljúki á morgun. Ekki er búizt við að neitt nýtt komi Nýtt gisti- hús í Vatns mýri? Á FUNDI skipulagsnefndar bæjarins síðdegis í gær voru lagðir fram frumdrættir af staðsetningu gistihúss, sem Þorvaldur Guðmundsson veitingamaður fékk á dögun- um fjárfestingarleyfi fyrir, en hann hefur sótt um leyfi bæjaryfirvaldanna til þess að fá að byggja það í Vatnsmýr- inni. Skammt neðan Hringbrautar í tiliöguuppdráttunum er gert ráo fyrir, að gistihús þetta, sem búið verður 120 gistiherbergjum auk salarkynna, rísi í Vatnsmýr- inni, um 100 metra neðan Hring- brautar. Þetta er á þeim slóðum, sem aldamótagarðarnir voru, en þar er nú einnig fyrirhugað að hin nýja umferðarmiðstöð bæj- arins verði reist. Þörf frekari athugana Staðsetning gistihússins var rædd á fundi skipulagsnefndar- innar og kom þar fram, að ýmis Framh. á bls. 2. Norður-Vietnams. Meginhluti herdeildarinnar fór inn í Sam Neua-héraðið, en aðrar sveitir hennar fóru suður á bóginn um Cadinh- og Muone-dalina í átt- ina til landamæra Thailands. Uppreisnarmenn komust langt inn í Thakkek-héraðið í Mið- Laos í gær og voru í aðeins fimm kílómetra fjarlægð við frönsku tin-námurnar í Phonitou, en gerðu samt ekki árás á þær. Sókn spáð í síðustu viku 1 yfirlýsingu stjórnarinnar í Laos í síðustu viku sagði, að bú- ast mætti við víðtækri sókn kommúnista innan tíðar í því skyni að ná á sitt vald Sam Neua og Phongsaly, tveimur héruðum í landinu norðanverðu. Enn- fremur sagði í yfirlýsingunni, að skæruhernaður kommúnista kynni að dreifast um landið allt. Einn helzti leiðtoginn með hernum Kay Some, einn helzti leið- togi uppreisnarmanna, sást nú um helgina í Cadinh-dalnum, þegar sveitir uppreisnarmanna fóru um hann. Pathet Lao-herdeildin yfirgaf her stjórnarinnar í maí sl., eftir að reynt hafði verið að koma á sættum milli hennar og her- stjórnar Laos. fram við réttarhöldin. Allir sak- borningarnir hafa játað afbrot sín að undanskildum þeim manni sem talinn er forsprakkinn, Fritz Chr. Nielsen, en hann hefur neit- að að láta nokkuð uppi. Málið verður sennilega tekið fyrir af lögmannarétti í haust. Lögreglan hefur ekki enn að fullu lokið rannsókn sinni á mál inu. Allir átta sakborningarnir eru sakaðir um að hafa afhent er- lendu ríki mikilvæg hernaðar- leyndarmál og fyrir að smygla sígarettum frá Austur-Þýzka landi til Danmerkur. Sígarett- urnar fengu þeir að launum fyr- ir afhendingu skjalanna, sem þeir framseldu. Lögreglan hefur lagt hald á miklar birgðir af sígarettum og töluvert af skó- fatnaði, þegar hún gerði hús- rannsókn hjá áttmenningunum. • NÝJU DELHI, 24. ágúst. — NTB-Reuter. — Peking- stjórnin hefur sent stjórn Indlands orðsendingu, þar sem varað er við því, að ind- verskir borgarar, t. d. píla- grímar, leggi leið sína yfir landamæri Tíbets, vegna þess að í uppsiglingu séu refsiað- gerðir Kínverja gegn upp- reisnarmönnum í Tíbet. í ræðu, sem Nehru, forsætisráð- herra hélt í neðri deild indverska þingsins í dag, staðfesti hann að indverskir pílagrímar og kaup- menn yrðu effirleiðis i Tíbet á eigin ábyrgð. Hann sagði enn- fremur, að indverska ræðisinanns skrifstofan í Lhasa væri undir FRÚ KRISTÍN Jónsdóttir, list- málari lézt í Landspítalanum um miðjan dag í gær, 71 árs að aldri. Hún var fædd 25. jan. 1888 í Amarnesi við Eyjafjörð, dóttir hjónanna Jóns Antonssonar út vegsbónda og Guðlaugar Sveins- dóttur. Hún var snemma hne'gð til lista og fór til Kaupmanna- hafnar að nema málaralist við Konunglega listaháskólann, þar sem hún var við nám á árunum 1911 til 1916. Hún lauk prófi frá skólanum og voru málverk henn- ar sýnd á Charlottenborgar- sýningu 1916 og nokkur ár bar á eftir. Ennfremur sýndi frú stöðugri gæzlu kínverskra her- manna, sem ættu að koma í veg fyrir að óviðkomandi menn kæm- ust inn til ræðismannsins. Styrkur til flóttamanna. Indverski sendiherrann í Pek- ing hefur afhent kínversku stjórn inni orðsendingu í sambandi við ástandið í Tíbet, en svar hefur ekki borizt ennþá, sagði Nehru. Eftir ræðu forsætisráðherrans, samþykkti neðri deild þingsins að veita flóttamönnum frá Tíbet styrk sem nemur milljón „rup- ees“ (um 5 millj. ísl. krónur). 80.000 drepin Dalai Lama, hinn útlægi þjóð- arleiðtogi og átrúnaðargoð Tí- beta, sagði indverskum frétta- mönnum um helgina, að enn ættu Kristín í Þýzkalandi, Svíþjóð, Noregi og víðar, ýmist ein eða með öðrum, og vöktu málverk hennar mikla athygli, en á hin- um síðari árum hefur hún verið í röð fremstu listamanna lands- ins. Frú Kristín var óvenjusterkur persónuleiki og hafði djúp ánrif á þá, sem henni kynntust. Hún var heil og óskipt í list sinni og helgaði henni, börnum sínum og heimili krafta sína. Hún var gift Valtý Stefánssyni ritstjóra, og áttu þau saman tvær dætur. Frú Kristínar verður nánar minnzt hér í blaðinu síðar. sér stað bardagar milli Kínverja og uppreisnarmanna í Tíbet. Hann sagði, að æ fleira fólk gengi nú í lið með hinum hraustu Khamba-hermönnum, sem eru um 50.000 talsins. Þeir berjast við kínversku kúgarana í héruðunum Chamdo og Gyamdapao-Vinseng. Dalai Lama sagði ennfremur, að hann hefði öruggar heimildir fyrir því, að Kínverjar hefðu drepið a.m.k. 80.000 Tíbeta, þar af 20.000 á Lhasa-svæðinu einu. Panchen Lama í stofufangelsi? Hann sagði að Panchen Lama væri gæddúr sterkri þjóðernis- tilfinningu og sama væri að sagja um föður hans. Hann kvaðst ekki telja ósennilegt, að Kínverjar hefðu pyndað nánustu ættingja Panchens Lama og með því móti fengið hann til að vera í órði kveðnu leiðtogi leppstjórnar Kin- verja í Tíbet. Hann sagði að margt benti til þess að Panchen Framh. á bls. 2. Njtfsnoréttarhöld í Donmörku i Kínverjar boBa nýtt blóðbaö i Tíbet Hafa þegar drepið 80.000 Tibeta Bhutan óttast kínverska innrás

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.