Morgunblaðið - 21.10.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.10.1959, Blaðsíða 23
Miðvik’udagur 21. okt. 1959 MORCVNBLAÐIÐ 23 Hratasýningin fórst fyrir SL. MANUDAGSKVÖLD skyldi' haldin sýning á hrútum fjár- bænda hér í Reykjavík, Kópa- vogi og Seltjarnarnesi. Átti sýn- ingin að vera að Smárahvammi við Fífuhvammsveg og hafði fjáreigendum er taka vildu þátt í sýningunni, verði stefnt þangað klukkan 5. — Á tilsettum tíma voru allmargir fjárbændur komn- ir með sína fallegustu hrúta, alls 50. — En Halldór Pálsson ráðu- nautur skyldi kveða upp um það, hvaða hrútar væru beztir í þess- um hópi. En ráðunauturinn kom ekki á tilsettum tíma. Beðið var allt framundir kl. 6,30 en ráðu- nauturinn hafði ekki enn látið neitt á sér kræla. Tóku þá bænd- ur sýningargripina og héldu heim með þá. Á þessari fjarveru Halldórs fékkst sú skýring, að hann hafi verið önnum kafinn á sams kon- ar hrútasýningu uppi í Kjós, þar sem hvorki meira né minna en 120 hrútar höfðu verið sýndir og hann þurfti að athuga. Var störf- um hans eigi lokið fyrr en kom- ið var langt framyfir sýningar- tímann í Smárahvammi. í gær hafði svo verið ákveðið, að hrútasýning þessi skuli fram fara á laugardaginn kemur í Smárahvammi. Skemmdarverk á Nautilusi NEW ,YORK, 20. október. — Fullvíst þykir, að unn- in hafi verið skemmdarverk á kjarnorkukafbátnum Nautilus, þar sem hann liggur nú í höfninni í Ports- mouth í New Hampshire til viðgerðar og eftirlits. Mik- ill fjöldi rafmagnsleiðsla hefur verið skorinn í sund- ur og hefur bandaríska ríkislögreglan verið kvödd á vettvang. Það var Nauti- lus, sem sigldi fyrstur und- ir ísbreiðuna á Norður- heimskautinu. Skólastjórahjón kvödd RÉTT fyrir jafndægur á hausti í þann mund, sem heiðlóan fór ut- an til vetursetu, fluttu skólastjóra hjónin þau Ólafur Haukur Árna- son og frú Björg Friðriksdóttir búferlum frá Stykkishólmi. í>au settust að á Akranesi. Ólafur tek- ur við skólastjórn gagnfræðaskól- ans þar. Það er ætíð viðburður í litlu þorpi þegar mætir menn flytjast burt. Ég finn það nú þeg- ar, að Stykkishólmur er ekki sam ur og áður. Ég veit að margir horfa með eftirsjá á bak þessum sæmdarhjónum, sem hafa staðið vel í starfi. Skólastjórahjónin fluttust hingað fyrir átta árum. Ólafur var fyrst kennari við Mið- skólann, en skólastjóri við Barna- og Miðskólann hin síðari ár. Þetta hafa verið framfaraár skólans á mörgum sviðum, enda finnst mér andi framfara leiki jafnan um þennan mann. Það þarf einbeittni og framsýni til að móta menntasetur, og því starfi er Ólafur vel vaxinn. Nú hafa þau hjón valið sér stærra verk- efni á stærri stað, og megum við í litlum bæ gjalda smæðar okkar, og er það ekki ný saga. Fjölbýlið hrífur svo margan utan af lands- byggðinni, en þeir á Akranesi mega vel við una. Á heimili skóla stjórahjónanna er gott að koma, svo frábær gestrisni er næstum einstök, þar tekur hin hugþekka húsfréyja á móti gestum með virðuleik og alúð. Mér koma þessar hendingar úr gömlu kvæði í hug. „í þessum ranni þar er gott að vera, frá þeirra arni straumur hlýju legg- Ur á móti þreyttum gesti er bar að garði“ Bindindishreyfingin má sakna þeirra hjóna eins og annar félagsskapur í þágu barna og unglinga bæði í skólanum og ut- an hans. Þar eigum við foreldr- arnir mikið að þakka og verið þess fullviss að góðir drengir muna störf ykkar og meta þau. Ég þakka þér, Ólafur, fyrir börnin mín öll, eitt þeirra og sérhvert. Ég tel að þau hafi öðlast styrkari persónuleika og meiri drengskap undir leiðsögn þinni, en annars hefði orðið. Ég þakka líka það sem ég hef numið bæði í gegnum börn mín, og af persónulegri kynningu við þig og þitt fólk. Ég óska þér og fjölskyldu þinni vel- farnaðar, og vona að börnin þín elskuleg mættu lengi muna Stykkishólm hvar þau stigu s?n fyrstu spor. Þá óska ég ykkur hamingju og bléssunnar í hinu nýja starfi. En ef það skyldi ein- hvern tíma syrta í álinn og ský- hnoðra erfiðleikanna bera við hafsbrún, þá minnist góðra stunda, hverra ég vona að bið hafið stundum notið á starfsár- unum, sem þið áttuð í hrjóstrugu þorpi með Víða fjallahringnum á Snæfellsnesi vestur. Hvar veiði- bjallan vakir hátt í lofti á kyrr- um vordögum og litil börn með eftirvæntingu í svip halda til skólans á hæðinni þegar hausta tekur. Lifið heil. Móðir í Stykkishólmi. Víkon stækkar upp í 36 síður RITST J ÓRNARSKRIFSTOFUR heimilisblaðsins Vikunnar eru nú fluttar í nýtt húsnæði í Skipholti 33, og um leið hefur blaðið ver- ið stækkað upp í 36 síður og verða þar af fjórar og síðar átta litprentaðar í viku hverri. I sama húsi er ný prentsmiðja, „Hilmir h.f.“, sem tók til starfa í ágúst- byrjun, og er Hilmar A. Kristjáns son framkvæmdastjóri hennar og einnig útgáfufyrirtækisins Vikan h.f. Barnaskóliim í Holtum MYKJUNESI, 12. okt. — Barna- skólinn að Laugalandi var sett- ur sl. þriðjudag 6. þ.m. Við skóla setninguna var saman komið fjölmenni, börn, foreldrar þeirra og skólanefnd. Voru margar ræð ur fluttar og var athöfnin öll hin hátíðlegasta. Eru miklar vonir tengdar við þetta glæsilega menntasetur og er það von manna að hægt verði að ljúka byggingarframkvæmdum sem fyrst, en þótt allmikið hafi verið unnið við skólann í sumar er þó allmikið ógert áður en verkinu er lokið. f skólanum verða nærri 60 börn í vetur og starfar hann í tveimur deildum. Kennarar eru hinir sömu og í fyrra. Sæmund- ur Guðmundsson, sem er skóla- stjóri og Guðlaugur Jóhannsson. Ráðskona er nú Laufey Valde- marsdóttir frá Hreiðri og aðstoð- arstúlka Jóna Veiga Benedikts- dóttir, Nefsholti. Formaður skólanefndar er Benedikt Guðjónsson, bóndi í Nefsholti. — M. G. Hámarksþungi í flutningum 13 t. í LÖGBIRTINGI í gær er ítar- leg tilk. frá vegamálastjóra er snertir „mestu breidd og há- marksþunga bíla“. Jafnframt er á korti yfir aðal þjóðvegina hvern þungaflutning má á þeim flytja eftir þeim. Hámarksþungi á einfaldan öxul má ekki vera meiri en 9,5 tonn og ekki yfir 13 tonn á þjóðveg- inum næst Reykjavík. Nær þetta hámark að norðanverðu upp á Akranes, að sunnan suður í Grindavík, til Þorlákshafnar, Eyrarbakka, og sðan austur fyrir Selfoss, að Ytri Rangá og síðan niður í Þykkvabæ. Eru þessir vegir sýndir á kortinu þannig að heildarlína er dregin eftir þess- um vegum. Með brotinni línu, i sem nær frá Akranesi og allt norður til. Húsavíkur ,er ekki leyfilegt að flytja á þessum veg- um meiri þunga en 7 tonn á ein- földum öxli en 9 tonn á tvöföld- um öxli. Hámarksbreidd bíla má ekki vera yfir 2,35—2,50 m. Luluaborg 20. október. — Síð- ustu fjóra dagana hafa um 40 innfæddir fallið í innbyrðis óeirð um svartra í KasaLhéraði í Mið- Kóngó. Síðan eigendaskipti urðu á Vikunni fyrir réttu ári hefur blaðið tekið miklum breytingum, m. a. stækkað úr 16 síðum í 36. Meðal fastra þátta blaðsins má nefna uppeldismálaþátt eftir. dr. Matthías Jónasson, þátt um ísl. efni eftir Ævar Kvaran, þáttinn „1 aldarspegli", sem kemur hálfs mánaðarlega o. fl. Lagt er kapp á að hafa innlent efni í hverju blaði, t. d. er önnur framhalds- sagan eftir innlendan höfund. — Ritstjóri Vikunnar er Gísli Sig- urðsson, og með honum vinna tveir fastir blaðamenn. í viðleitni sinni að vanda frágang allan, hefur blaðið ráðið kunnan norrænufræðing, sem les yfir öll handrit og annast prófarkalestur. Prentsmiðjan Hilmir annast auk Vikunnar smáprent alls kon- ar, auk prentunar nokkurra tíma- rita, þeirra á meðal „Flugmál og tækni“, sem einnig er til húsa í Skipholti 33. Þar er einnig „Blaðadreifing h.f.“, sem annast afgreiðslu beggja blaðanna. Eru húsakynni þessara fyrirtækja 'jll hin vistlegustu. Hrútasýning í Holtum MYKJUNESI, 13. okt. — f gær var haldin hrútasýning hér í Holtunum. Sýndir voru nálægt hundrað hrútar mismunandi að útliti eins og gengur. Ekki fengu nema rúmlega 20 hrútar fyrstu verðlaun en hinir flestir önnur og þriðju, þannig að fáir dæmd- ustu ónothæfir. Halldór Pálsson, ráðunautur, var aðaldómari. Fé er yfirleitt rýrt og lömbin reynd- ust heldur léleg til frálags víðast hvar, kenna margir hinu hrak- viðrasömu sumri um hversu féð er rýrt. Sláírun verður mjög mikil í haust og lambaásetningur verður fremur lítill, er það hvort tveggja að lambahey er víða af skornum skammti og svo mun víða fullsett á lömb og því ekki ástæða til að fjölga fé meira en orðið er. Slátrun mun ljúka um veturnætur. — M. G. Ágæt veiði Stykkishólmsbáta STYKKISHÓLMI, 20. .okt. — Undanfarna daga hafa verið sæmilegar gæftir í Stykkishólmi og hafa róið héðan 5 trillubátar og fiskað með bezta móti. Hefur komið fyrir að þeir hafi fengið hátt í 3 tonn í einum róðri. Er þetta mjög góður fiskur af haust- fiski til að vera og veiðist tals- vert af ýsu. Af þilfarbátum er einn þegar byrjaður róðra. Fór hann í róður í gækvöldi. Er það mótorbátur- uinn Arnfinnur. — Fréttaritari. LOFTUR h.t. LJ0SMYNDASTOFAN Ingólfsstræti 6. Pantið tima í sm.a 1-47-72. Hjartanlega þakka ég öllum þeim mörgu, sem með heimsóknum, gjöfum og skeytum, glöddu mig á áttræð- isafmæli mínu 10. okt. sl. Guð blessi ykkur öll og launi ykkur samfylgdina á liðnum árum. Vilborg Jónsdóttir, Auðsholti, Biskupstungum. Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar dr. med. Björns Sigurðssonar. Rannsóknarráð ríkisins og Atvinnudeild Háskólans Tilraunastöð Háskólans að Keldum verður Lokuð s dag vegna útfarar Dr. Björns Sigurðssonar Lokað í dag frá kl. 12—4 vegna jarðarfara. Húsgagnaverzlun HJALTA FINNBOGASONAR Lækjargöta 6A Móðir mín, ÞÓRA JÓNSDÓTTIR lézt í Landakotsspítala 19. þ.m. Jón Hafliðason Systir mín, ELlSABET SIGTJRÐARDÓTTIR HAGEN andaðist í sjúkrahúsi í Álasundi í Noregi 14. þ.m. Helga Sigurðardóttir, Vesturgötu 54 Systir mín SIGURBJÖRG BENJAMÍNSDÓTTIR sem andaðist 14. okt., verður jarðsett frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 22. okt. kl. 2 síðdegis. Blóm og kransar afbeðin. Ef einhver vildi minnast hennar óskaði hún, að félagið ,,Sjálfsbjörg“ yrði látið njóta þess. Minningarspjöld fást í verzl. „Roða“ Lauga- veg 74. Athöfninni verður ekki útvarpað. Vegna aðstandenda og vina. Guðmundur Benjamínsson. Maðurinn minn KRISTMANN GlSLASON Móakoti, Stokkseyri, verður jarðsunginn föstudaginn 23. okt. Athöfnin hefst með bæn að heimili hans kl. 13,30. Guðríður Sæmundsdóttir. Eiginmaður minn, JÓHANN J. EYFIRÐINGUR kaupmaður andaðist að heimili okkar Brunngötu 21 fsafirði, þann 19. þ.m. Sigríður Jónsdóttir Eiginmaður minn JÓHANN B. HJÖRLEIFSSON yfirverkstjóri, verður jarðaður frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 22. október kl. 2. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Sveinbjörg Kristinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.