Morgunblaðið - 06.04.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.04.1960, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 6. apríl 1960 MORCUNfílAfílÐ 23 Tveir drepnir í S-Atriku JÓHANNESARBORG, 5. apríl — (NTB, Reuter). í dag hafa borizt fréttir víða að um árekstra milli blökku- manna og lögreglu í Suður Afríku. Ríkisstjórnin hefur tiikynnt að Genf Frh. af bls. 1. sátta og taldi hana líklegasta til sigurs ef sett væru í hana tíma- takmörk. En Rafael bætti því hins vegar við að ráðstefnan ætti að viðurkenna með skýrum orðum sérstakan rétt strand- ríkja eins og íslands, sem byggði alla sína afkomu á fiskveiðum. Fulltrúi Albaníu var algerlega sammála Rússum um að land- helgi skuli vera tólf mílur. Benti hann á að Bandaríkin taki sér réttindi á úthafi með byggingu radarstöðva og olíuvinnslustöðva í Texasflóanum 100 mílum frá ströndinni og banni allar sigling- ar þar 4 nánd. Brezka blaðið Daily Telegraph segir í dag að samkomulag sé að nást milli Bandaríkjanna og Kan- ada um málamiðlunartillögu sem miðist við ákveðinn uppsagnar- frest á veiðiréttindum innan 12 mílna. Aðspurðir segja kanadisku fulltrúarnir að þetta sé tóm vit- leysa. — Þ.Th. hún muni ekki hika við að gripa til allra þeirra ráða er gæti orð- ið til þess að hindra áframhald- andi óeirðir. Milli 15 og 20 þúsund blökku- menn hafa snúið aftur til vinnu sinnar, bæði vegna þess hve hart lögreglan hefur gengið fram gegn blökkumönnunum og vegna hungurs. Framkoma lögreglunnar hefur leitt til þess að miklar umræður hafa orðið um málið í þjóðþmg- inu. Harry Lawrence, fyrrver- andi dómsmálaráðherra, sem nú er leiðtogi stjórnarandstæðinga, sagði að lögreglan hefði mis- þyrmt blökkumönnum á götum Höfðaborgar. Hann sagði frá því að afrískur prestur hefði verið barinn með „sjambok“ — gúmmí svipu — og siðan hrakinn á flótta eftir götum borgarinnar, en háskólakennari nokkur barinn í andlitið. Presturinn hafði skýrt Lawrence frá því, að blökku- menn væru nú að yfirgefa kirkj- umar og segðust ekkert vilja hafa saman við kristnina að sælda, þeira hefðu haft sína eigin trú áður en hvíti maðurin kom til Suður Afríku og mundu snúa til hennar aftur. Lawrence ósk- aði eftir upplýsingum um það hvort ætlunin væri að draga blökkumennina fyrir dómstólana eða hvort löreglunni hafi verið veitt heimild til að framkvæma refsingu á staðnum. Erasmus dómsmálaráðherra svaraði því til að samkvæmt yf- 75 ára í dag: Thomas Möller, fyrrv. símstjóri í Stykkishólmi WILLIAM Thomas Möller, sem var póstafgr.m. og símstjóri í Stykkishólmi í nær 50 ár, á 75 ára afmæli í dag. Fyrir fáum ár- um flutti hann ásamt fjölskyldu sinni til Reykjavíkur og er heim- ili þeirra hjóna að Eskihlíð 18. Thomas Möller gegndi margvís legum opinberum störum , Stykk ishclmi í þau nær 50 ár, sem Sérstaklega hefi ég ástæðu til að senda þeim hjónunum þakk- læti frá konu minni og mér fyrir löng og góð kynni — óg þær mörgu ánægjustundir, sem við hofum notið á heimili þeirra undanfarna áratugi. A þessum tímamótum vil ég óska vini mínum Thomasi, svo og konu hans og börnum, blessun ar og farsældar. S. A. irlýsingu um neyðarástand hefði lögreglan leyfi til að refsa þeim sem hefðu hótanir í frammi. Hún hefði fyrirskipanir um að hand- taka þessa menn, og beita til þess valdi ef nauðsynlegt væri. Erasmus bannaði í dag útgáfu tveggja tímarita, „The Torch“ og „New Age“. Einrt blökkumaður var drepinn og tveir aðrir særðir þegar lög- | reglan hóf í kvöld skothríð á fjöl mennan flokk blökkumanna í Lamontville nálægt Durban, þar sem margir blökkumenn urðu fyrir meiðslum á mánudag í átökum við lögregl- una. Fyrr í dag var afrískur lög- reglumaður drepinn og tveir hvítir lögreglumenn og að minnsta kosti fimm blökkumenn særðir í átökum í Nyanga, þegar lögreglulið með brynvarðar bif- reiðir réðist inn í borgina, til að vernda blökkumenn, sem ósk- uðu að snúa aftur til vinnu sinn- ar. Blökkumenn sem neituðu að hlýða fyrirskipunum um að snúa aftur til vinnu, réðust þá með bareflum á lögregluna, sem varð að hefja skothríð til að hrekja þá burtu, sagði lögreglustjóri bæjarins. Sjónarvottur segir hins vegar að götumar hafi verið auðar þegar lögreglan réðist inn í Nanga. Lögreglan hafi ráð- ist inn á heimilin og hrakið fólk- ið út á göturnar. Mótmæli. Víða um heim hafa verið borin fram mótmæli út af atburðunum í Suður Afríku. Forsætisráðherra Hollands Jan de Quay tilkynnti í þinginu í dag að ríkisstjórnin harmaði atburðina í Suður Afríku og áliti að ástæðunnar fyrir þeim væri að leita í stefnu stjórnarinnar um aðskilnað kyn- þáttanna, „Apartheid". Nýjar blóðsúthellingar geta skapað glundroða, sagði ráðherrann. — Sendiherra Suður Afríku sat á áheyrnarpöllum meðan de Quay talaði. Eftir ræðu ráðherrans voru samþykkt mótmæli gegn kynþáttaofsóknunum. Ríkisstjórnin í Nígeríu sam- þykkti í dag að banna allan inn- flutning á vörum frá Suður Afríku til að mótmæla á þann hátt kynþáttastefnu landsins. Þá ' var einnig ákveðið að segja upp þegar í stað öllum hvítum starfs mönnum ríkisins. Skákmenn Taflfélag Reykjavíkur hyggst halda skákmót í fyrsta og öðrum flokki um p.á,skana. Teflt verður eftir Monrad-kerfi, og hefst mótið á pálmasunnudag. Innritun fer íram í kvöld kl. 8—11 í fundaherberg- inu í Café Höll og í síðasta lagi á skákæfingunni í Breiðfirðingabúð annað kvöld. Þátttökugjald verður 100 kr. U ndirbúnin gsnef nd hann dvaldi þar — og er ekki ofmælt, að hann naut trausts og virðingar bæjarbúa og annarra fyrir sérstaka skyldurækni og mikla húsbóndahollustu í öllum störfum. Það var holt ungum mönnum að dveljast með Thom- asi, því af honum lærðu þeir hátt vísi í framkomu, reglusemi og grandvarleik í samskiptum öll- um. Anægjulegt var að sækja Thomas heim. Heimili hans í Stykkishólmi var rómað fyrir gestrisni, enda var það opið gest- inn og gangandi. Hlutu allir að verða snortnir af þeim hlýhug og gestrisni, sem mætti manni á því heimili. Húsráðendur voru samhentir að veita vinum sínum og öðrum gestum ánægjustundir, sem þeim var svo eðlilegt að miðla því fólki, sem dvaldi á heimili þeirra. Innilegar þakkir öllum, er sýndu vinsemd og samúð við fráfall móður minnar UAUFEYJAR VILHJALMSDÓTTUR Fyrir hönd vandamanna. Guðrún Guðmundsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför • ÞÓRLAUGAR BJARNADÓTTUR Brautarholti, Hornafirði. Gústav Gíslason, börn, tengdabörn og systkini hinnar látnu. Hjartkær móðir mín ELlSABET KRISTJANSDÓTTíR FOSS andaðist að kvöldi 4. þ.m. Hilmar Foss Jarðarför eiginkonu minnar, SIGURVEIGAR KETILSDÓTTUR fer fram fimmtudag. 7. apríl og hefst með bæn frá heim- ili hennar kl. 2,30. Friðrik Gunnlaugsson Eiginkona mín SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR Barónsstíg 27 sem andaðist 30. marz, verður jarðsungin frá Fríkirkj- unni í Reykjavík, fimmtudaginn 7. apríl kl. 2 s.d. — Blóm vinsamlegast afbeðin. Fyrir mína hönd og barna okkar. Heigi Bogason Móðir okkar SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR Bústaðahverfi 2 verður jarðsett frá Fossvogskirkju, föstudaginn 8. apríl kl. 13,30 — Athöfninni verður útvarpað. Sína Asbjarnardóttir Arndal Magnús Asbjömsson, Sigurbjörn Asbjörnsson. Jarðarför TRAUSTA HARALDSSONAR múrara fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag. 7. þ.m. kl. 2. e.h. Útvarpað verður frá jarðarförinni. Fyrir hönd aðstandenda: Margrét Guðnadóttir, Trausti G. Traustason Faðir minn, HAFSTEINN BJÖRNSSON frá Blönduósi sem lézt, 1. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkjú föstudagihn 8. apríl kl. 10,30 árd. Athöfninni í kirkj- unni verður útvarpað. Fyrir hönd vandamanna: Eiður Hafsteinsson Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarð- arför föður okkar BJÖRGÓLFS RUNÓLFSSONAR Eskifirði Hulda Björgóifsdóttir, Bergur Björgólfsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför eiginmanns míns og föður okkar AUÐBJÖRNS EMILSSONAR Eskifirði Margrét Guðmundsdóttir, Ævar og Guðm. Auðbjörnssynir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför bróður okkar EGGERTS GILFER Skáksambandi Islands og Taflfélagi Reykjavíkur vott- ast sérstakt þakklæti fyrir mikinn heiður við minningu hans. Fyrir hönd systkinanna: Þórarinn Guðmundsson Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hluttekningu við fráfcill og jarðarför móður okkar, ÞÓRU PÉTURSDÓTTUR Sérstaklega þökkum við Systrunum og starfsliði á Landakoti fyrir sérstaka umhyggju og hjúkrun. Þóra Stephensen, Pétur Danielsson Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og útför, HAFLIÐA HJARTARSONAR húsasmíðameistara Ingveldur Gunnlaugsdóttir, Guðbjörg Einarsdóttir, Hjörtur Hafiiðason, Anna Guðmundsdóttir, Kristinn Hafiiðason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.