Morgunblaðið - 07.02.1961, Síða 11
Þriðjudagur 7. febrúar 1961
MORGVNBLAÐIÐ
11
Alyktun mannréttindanefndar
Evrópu um stóreipaskattinn
EINS OG áður hefur verið skýrt
írá, ályktaði Mannréttindanefnd
Evrópu, að hún gæti ekki tekið
til meðferðar mál varðandi stór
'eiffnaskatt þann, sem lagður var
■á 1957. Ályktun nefndarinnar er
ýtarlegri en svo, að unnt sé að
taka hana upp í heild, en nokk-
Urra meginatriða skal getið.
Málsatvik.
MálsatVik eru rakin í álykt-
uninni. Skv. lögum um skatt á
Stóreignir nr. 44/1957 var Guð-
tmundi Guðmundssyni gert að
igreiða skatt þennan, #g var
Ihann m. a. lagður á hlutafjár-
eign hans í Vjði h.f. Dómsmál
var höfðað út af skattálagning-
Unni. Með dómi bæjariþings
Œteykjavíkur var hafnað þeirri
kröfu, að skatturinn yrði með
öllu felldur niður. Hins vegar
Var felld niður skattálagning
vegna hlutabréfaeignar í Víði hf.
'og skattyfirvöldum gert að á-
feveða skattinn að nýju og miða
Ihann við sannvirði hlutabréf-
anna. Áður hafði verið miðað við
Ihreina eign hlutafélagsins, er
Ihenni hafði verið skipt á hlut-
!hafa eftir hlutafjáreign.
í dómi, sem kveðinn var upp
29. nóvember 1958, komst Hæsti
réttur að sömu niðurstöðu og
bæjaiþingið.
Rök kæranda.
Fyrir Mannréttindanefnd
Evrópu var því haldið fram, að
lögin um skatt á stóreignir brytu
i bága við 1. grein viðbótarsamn
ings við Evrópuráðssáttxnálann
um verndun mannréttinda og
mannfrelsis svo og 14. grein sátt-
málans, — þar sem m. a.:
— álagningin hefði verið
stjórnarskrárbrot,
-— álagningin ihefði falið í sér
eignaupptöku,
— þessi tegund skattálagning
ar hefði verið óréttlætan-
leg,
•— álagningin hefði ekki getað
orðið til að koma fjárhags-
kerfi ríkisins á réttan kjöl,
— álagningin hefði falið í sér
mismunum,
— álagningi hefði verið ráð-
stöfun by.ggð á stjórnmála
ástæðum.
Rök þau, sem fram voru færð
Iþessu til stuðnihgs, eru rakin í
lályktun Mannréttindanefndarinn
'ar, og er þar m. a. getið um
álitsgerð frá dr. Gunnlaugi
Þórðarsyni, sem fram var lögð
í málinu. í lokagreinargerð sinni
Bögðu talsmenn Guðmundar Guð
mundssonar m. a.:
— að Hæstiréttur hafi fallizt
á, að skattaðilum hafi ver
ið gert mishátt undir höfði,
— að slík skattálagning sé í
ósamræmi við aiþjóðasamn
inga, sem séu lög á íslandi
og verði ekki ógiltir með
löggjöf eða dómum,
— að stóreignaskattsálagning-
in sé einstök í vestrænum
lýðræðisríkjum og úrslit
málsins hafi þýðingu fyrir
lýðfrelsi á íslandi á sviði
fjármála og atvinnumála
svo og á, hvort heilbrigðir
stjórnarhættir séu virtir.
Niðurstaða nefndarinnar.
Mannréttindanefndin komst að
Iþeirri niðurstöðu, að það hefði
ekki við rök að styðjast, að lög
in um stóreignaskatt fælu í sér
brot á 1. gr. viðbótarsamningsins
við Mannréttindasáttmálann.
Greini er svohljóðandi:
k „Öllum mönnum og persónum
!að lögum ber réttur til þess að
njóta eigna sinna í friði. Skal
‘engan svipta eign sinni, nema hag
tir almennings bjóði og gætt sé
ákvæða í lögum og almennra
meginreglna þjóðaréttar.
Eigi skulu þó ákvæði síðustu
málsgreinar á nokkurn bátt rýra
réttindi ríkis tU þess að full-
nægja þeim lögum, sem það telur
nauðsynleg til þess að eftiriit sé
Langri deiíu lokið
Geysisorkuverið
Nýju Delhi, 12. jan. (Reuter).
HINN 19. sept sl. undirrituðu
þeir Nehrú, forsætisráðherra Ind
lands, og Ayub Khan, forseti
Pakistans, samkomulag milli
landanna um skiptingu vatnsrétt
inda í Indus-fljóti og sex þverám
þess. — Við stutta athöfn, sem
haldin var hér í dag, var því
lýst yfir, að samningur þessi
kæmi nú til framkvæmda.
Með samningnum um skipt-
ingu vatnsréttindanna er endi
bundinn á 12 ára deilu Indlands
og Pakistans, sem mjög spillti
sambúð landanna.
haft með notkun eigna í sam-
ræmi við hag almennings eða til
þess að tryggja greiðslu skatta,
annarra opinberra gjalda og
sekta“.
í rökstuðningi nefndarinnar
fyrir þessari niðurstöðu segir m.
a., að fullvalda ríki sé tvímæla-
laust heimilt að leggja á skatta
eða önnur gjöld til notkunar í al-
menningsíþarfir. Því hafi verið
yfir lýst, að stóreignaskatturinn
hafi verið lagður á til að ná jafn
vægi í peninga- og fjármálum.
Hafi hann því auðsjáanlega varð
að almenning og að áliti ríkis-
stjórnarinnar verið í almennings
þágu.
Þá segir nefndin, að aimennar
meginreglur þjóðaréttar, sem
vitnað er til í 1. gr. viðibótarsamn
ingsins, eigi við útlendinga ein-
göngu og verði þeim því ekki
beitt hér.
Þar stóðu áður strókar upp úr jörð sem nú er Geysisorkuverið
Jarðgufa beizluð til
raforkuframleiðslu
Með tilliti til þessa telur nefnd
in, að ákvæði laga nr. 44/1957
séu á allan hátt í samræmi við
fyrrnefnda samningsgrein að því
er varðar rétt manna til að njóta
eigna sinna í friði.
Nefndin segir síðan, að hvað
sem öðru líður, sé tekið fram í
2. málsgrein 1. greinar viðbótar
samningsins, að ákvæði 1. máls-
greinar skuli ekki á nokkurn
'hátt rýra réttindi ríkis til að
tryggja greiðslu skatta eðan ann
arra opinberra gjalda. Falli
'stóreignaskatturinu undir þetta
ákvæði. Geti kærandj því ekki
stutt mál sitt með tilvfsun til 1.
greinar viðbótarsamningsins.
Þá segir nefndin, að mál sitt
geti kærandi ekki heldur stutt
með tilv. til 14. málsgreinar Mann
réttindasáttmálans, en hún fjall
ar um jafnræði manna. Kveður
nefndin það almennt, að skatta
löggjöf taki með mismunandi
'hætti eða í misríkum mæli til
fólks eða annarra aðila.
Nefndin komst einnig að
þeirrj niðurstöðu að það hefði
auðsjáanlega ekki við rök að
istyðjast að by.ggja málskotið til
nefndarinnar á því, að lögin um
stóreignaskatt fælu í sér brot á
67. grein stjórnarskrár íslands.
Segir nefndin í þessu sambandi,
‘að hlutverk hennar sé ekki það
að vera yfirdómstóll dómstóla
aðildarríkjanna, þegar þeir hafa
‘fjallað um mál, sem að öllu eru
innan þeirra lögsögu.
Útdráttur úr frétt frá upplýs-
ingadeild Evrópuráðsins 24. jan.
1961.
FYRIR rúmri öld var maður
nokkur á bjarndýraveiðum í
norðurhluta Kaliforníu. Þá
bar svo við, að hann kom
í þröngt gil, þar sem gufu-
strókar stóðu upp úr jörð-
inni. Þessi gufuop eða hverir
sem veiðimaðurinn af mis-
skilningi kallaði geysa, hafa
verið ónotaðir, þar til nú
fyrir skömmu. Gufan, sem
áður streymdi upp í loftið,
hefur nú verið beizluð og
notuð til að framleiða raf-
orku. Það er komið orkuver
í gilið, og gufan er leidd í
rörum úr gilinu í orkuver-
ið, þar sem henni er breytt
í rafmagn. Eigandi þess er
bandaríska fyrirtækið Pacific
og heitir það Geysisorkuver-
ið. —
Þetta er eina orkuverið á meg-
inlandi Ameríku, sem hagnýtir
jarðhita til raforkuframleiðslu,
og fyrsta orkuver þessarar teg-
undar, sem rekið er af einka-
fyrirtæki. Undanfarin ár hafa
bandarískir vísindamenn unnið
mikið að því að leita að nýjum,
ódýrum orkugjöfum og er fram-
kvæmd sú, sem hér um ræðir,
árangur af þeirri leit.
Gufan úr hverunum framleiðir
samtals 12.500 kw af rafmagni.
Orkuverið er lítið og einfalt og
er gangur þess sjálfvirkur. Hér
þarf engan gufuketil til að fram-
leiða gufu, og því þarf aðeins litla
stöðvarbyggingu yfir túrbínurn-
ar. Við hlið stöðvarhússins eru
kæliturnar og skiptistöð. Orkan
er leidd úr gilinu í leiðslum, sem
liggja til undirstöðvar sama fyr-
irtækis i nokkurra kílómetra fjar
lægð. Eins og áður segir er Geys-
isstöðin sjálfvirk. Þar er stýris-
útbúnaður, sem tekur niður ná-
kvæmar upplýsingar um ástand
allra tækja og mæla orkuversins.
Upplýsingarnótr eru síðan sendar
áfram til undirstöðvarinnar í ná-
grenninu, og þar eru notuð fjar-
stýritæki, sem hafa eftirlit með
starfsemi orkuversins og stilla
tækin eða loka fyrir þau, ef
hætta er á ferðum.
★
Starfsemi Geysisstöðvarinnar
gengur sérstaklega vel, og hefur
verið hagnaður af rekstri henn-
ar. Hefur fyrirtækið í huga að
auka framleiðslu orkuversins
með því að gera fleiri borholur
til að fá meiri gufu. Víðar í
Bandaríkjunum eru nú gerðar
athuganir á gufuhverum með það
fyrir augum að beizla gufuna til
orkuframleiðslu. Verkfræðingar
og raforkustjórar víðs vegar úr
Bandaríkjunum og frá öðrum
löndum, þar sem hiti er í jörðu,
hafa tekið sér ferð á hendur til
Bjarnargilsins norður af borginni
San Francisco í Kaliforníu til að
kynna sér byggingu og starf-
rækslu Geysisstöðvarinnar. Það
hefur sesn sagt komið í Ijós, að
það svarar kostnaði að virkja
jarðhitann og getur þetta orðið
til þess að reist verði svipuð orku-
ver víðar, þar sem aðstæður eru
fyrir hendi. Á þetta eflaust eftir
að breyta miklu í þeim hlutum
heims, þar sem orkulindir eru
dýrar.
^Gas and Electric Company.