Morgunblaðið - 18.07.1961, Side 19
Þriðjudagur 18. júlí 1961
MORGUNBLAÐIÐ
19
— Utan úr heimi
Frh. af bls. 10.
hluti rússnesku herskipanna hef-
ir verið búinn eldflaugavopn-
um — og ekki er heldur gott
að vita nema nokkur hinna nýj-
ustu skipa rússneska flotans
gangi nú fyrir kjarnorku. Hins
vegar virðist ljóst, að Rússar
eigi ekki enn kjarnorkuknúna
kafbáta. Vitað er, að þeir eiga
nokkra slíka í smíðum, en varla
neina fullbúna enn sem komið
er.
Á því sviði virðast vestur-
veldin hafa yfirburði, þar sem
eru hinir bandarísku atómkaf-
bátar, búnir Polaris-eldflaugum.
■jfc- Áherzla lögð á sjóherinn
Auk fyrrgreinds, bera flota-
aefingar Rússa vott um það, hve
sovétstjórnin virðist nú leggja
mikla áherzlu á að efla sjóhern-
aðarmátt sinn, en allt fram til
Bíðustu heimsstyrjaldar ogfyrstu
árin að henni lokinni litu Rúss-
ar á flotann sem einn litilvæg-
asta þátt vama sinna. — Á síð-
ustu árum hafa Sovétríkin hins
vegar lagt sífellt ríkari áherzlu
á að byggja upp hernaðarmátt
sinn á höfunum — og hefir þar
verið lagt meginkapp á smíði
kafbáta og beitiskipa. Nú að
undanfömu virðast þó stórir og
hraðsigldir tundurspillar, sem
geta verið lengi í hafi án þess
að taka eldsneyti, hafa fengið
„forgangsrétt" í skipasmíðaáætl-
unum rússneska flotans.
Öflug árásartæki
Vestrænir sérfræðingar, sem
reyna að gera sér grein fyrir
flotastyrk Rússa nú, eru yfir-
leitt þeirrar skoðunar, að sovét-
flotinn hafi fengið æ meiri þýð-
ingu sem árásartæki — og að
meginhlutverk hans, ef til styrj-
aldar kæmi, mundi verða það að
„sníða sundur'* hinar mikilvægu
samgönguleiðir vestrænna ríkja
yfir höfin. — Mjög erfitt er að
glöggva sig á því, hve rússneski
flotinn er orðinn stór, en það
mun varla fjarri lagi, að Rússar
eigi nú um 500 kafbáta. Að vísu
munu þeir vart allir vera full-
búnir til notkunar eins og stend-
ur — en hins vegar mun ekki
þurfa nema skamman fyrirvara
til þess að svo verði. Sömuleiðis
mun verulegur hluti þeirra fyrst
©g fremst ætlaður til varðstöðu
©g hernaðaraðgerða nálægt
ströndunum, en ekki geta hald-
ið í lengri leiðangra út á hin
víðu höf. Sovétríkin eiga ekki
flugvélamóðurskip, eins og Bret
land og Bandaríkin, en floti
þeirra ræður þó yfir miklum
flugvélakosti, sem hefir stöðvar
sínar meðfram ströndum lands-
ins.
Mörg hinna rússnesku beiti-
ekipa eru auk þess búin eld-
flaugum, og sum þeirra munu
geta skotið meðallangdrægum
flugskeytum (flest munu hins
vegar vera skammdræg). Aftur
á móti er talið, að kafbátaflaug-
er Rússar dragi aðeins mjög
skammt enn sem komið er —
a.m.k. standist þær engan sam-
jöfnuð við bandarísku Polaris-
6keytin. — Ýmsar gerðir tund-
urspilla virðast nú vera mikil-
vægustu einingar rússneska flot-
ans — sér í lagi eru hinir
stærstu þeirra, sem eru um 3.000
lestir og hafa um 40 hnúta há-
inarkssiglingahraða, mjög öflug
vopn 1 árásarstríði á hinum stóru
höfum og harðsnúnir „fylgissvein
ar“ hinna stóru beitiskipa af
Sverdlov-flokknum, sem nú telj-
ast burðarás rússneska herskipa
flotans, ásamt kafbátunum. (Sbr.
mynd af Sverdlov-skipi hér í
iblaðinu sl. laugardag.)
— ★ —
Grelnarhöfundur Dagens Ny-
heder lýkur grein sinni með þvi
aS slá því föstu, að rússneski
herskipaflotinn muni nú vera
álíka öflugur og flotar allra
annarra ríkja til samans — að
Bandaríkjunum fráskildum. En
bandariski flotinn er enn stærri
en sá rússncskL
iLr uiij^w—©riTfV"ii*,‘i^r——-
Síldarsaltendur tara tram á
ríkisábyrgð til
umframsöltunar
BL.AÐIÐ fregnaði í gær að síldarsaltendur fyrir austan og
norðan hafi farið fram á ríkisábyrgð til áframhaldandi
söltunar. Sneri blaðið sér til Emils Jónssonar, sjávarútvegs-
málaráðherra, og spurðist fyrir um þetta. Sagði ráðherra,
að ríkisstjórninni hefði í gær borizt skeyti frá félagi síld-
arsaltenda á Austfjörðum og á Norðurlandi, þar sem þeir
Ieita eftir því hjá ríkisstjóminni, að hún ábyrgist Ián,
sem þeir kunni að fá hjá bönkum til áframhaldandi sölt-
unar, 60 þúsund tunnur umfram samninga. — Málið var
rætt á fundi ríkisstjómarinnar í dag, sagði sjávarútvegs-
málaráðherra, en engin ákvörðun tekin í því.
-**■
— Héraðsmót
Framh. af bls. 2
Af þessu er sýnt, að ekki þurfa
Austfirðingar að svelta gest og
gangandi né eru þeir að þvl
komnir að deyja ráðalausir. >ví
fer augljóslega fjarri, að þar
gangi þau móðuharðindi, að við
landauðn liggi.
Úrtölurnar em þó ekki alveg
úr sögunni, því að skyndilega
bregður Eysteinn við og fullyrð-
ir: —
„En nú horfir til samdráttar
_(í
■Af því má marka, að hann
viðurkenni, að hingað til hafi
ólikt betur gengið þessi síðustu
2% ár en hin næstu 2% á undan.
Hitt má til sanns vegar færa,
að nú kunni að verða þáttarskil,
ef verðbólgu-áform þeirra félaga
ná að rætast.
Á mótinu á Vopnafirði ræddi
Jónas Pétursson auk efnahags-
málanna einkum um landhelgis-
málið og varnarmálin. Hann
— Súlan
Frh. af bls. 2
síðustu ferðinni gerði storm og
rigningu með þeim afleiðingum,
að þeir urðu að skilja eftir miknn
hluta veiðinnar og flýta för sinni
niður í báta og vaða streymandi
gúanó upp í hné. Árið 1940 var
Eldey friðuð eftir tillögu Magnús
ar Björnssonar. fuglafræðings og
hefur súlnabyggðin aukizt mikið
síðan. Við fyrstu talningu reynd
ist fjöldi hreiðra vera rúmlega
9000, tíu árum síðar 11000 og við
siðustu talningu, sem fram hefur
farið 1959—''61, 15000. Teknar
voru loftmyndir eftir stríðið af
eynni og talið eftir þeim, en
hreiðrin utan á eynni eru talin
úr bátum. Má segja að ekki sé
rúm fyrir fleiri hreiður á eynni
og þess vegna hefur fuglinn leit-
að til annarra staða og fer hreiðr
um fjölgandi i öðrum súlubyggð-
um landsins.
Margar súlubyggðir hafa liðið
undir lok vegna rányrkju, t.d. var
ein slík fram á 18. öld á Stapa
undir Hælavikarbjargi á Strönd
um, en í öðrum byggðum hefur
ungatekja farið fram aðeins einu
sinni á ári, og unginn þá tekinn
nokkuð stálpaður. en súlan verp
ir á nokkuð misjöfnum tíma þann
ig að ungi hefur ekki verið tekin
nema úr u.þ.b. þriðjungi hreiðr-
anna.
Súlan etur eingöngu fisk,
og sagði dr. Finnur fuglafræðing
u , að dagleg fiskneyzla í Eldey
væri álíka mikil og í Reykjavík,
án þess að það hefði nokkur telj
andi áhrif á fiskistofnana.
kvað það hafa rætzt, sem hann
hefði sagt á samkomu Sjálfstæð-
ismanna eystra í fyrrahaust, að
ríkisstjórnin mundi leysa land-
helgismálið með sæmd Og prýði.
Hann kvað engan íslending mega
né geta verið hlutlausan í bar-
áttunni um frelsi og mannrétt-
indi. Þar giltu þessi orð: Sá, sem
ekki er með mér, er á móti mér.
Bjarni Benediktsson ræddi m.a.
um það af hverju núverandi
stjórnarsamstarf hefði tekizt
miklu betur en menn ættu að
venjast um flokkasamstarf hér
á landi. Það væri vegna þess, að
þótt núverandi stjórnarflokkar
væru ósammála um margt, þá
væru þeir sammála um, hvernig
bregðast bæri við þeim helztu
vandamálum, sem nú steðjuðu
að, og leituðust við að leysa þau
án þess að reyna að gera hvor
öðrum alla þá bölvun, sem þeir
gætu í leiðinni. Þetta væri mjög
ólíkt því, sem oft hefði áður
tíðkazt, ekki sízt í V-stjórninni.
Þar voru stjórnarflokkarnir
aldrei sammála um neitt, er máli
skipti, enda sumum þeirra þau
ósköp meðfædd að geta aldrei
unnið í einlægni með neinum,
heldur ætíð að reyna að gera
samstarfsmönnum sem allra mest
an miska.
Þess má geta, að ræðumönn-
um var prýðilega tekið og mjög
góður rómur gerður að máli
þeirra.
Óperan Rita flutt
Eins og fyrr var að vikið, var
sýnd ópera á báðum mótunum.
Var það óperan Rita eftir Donni-
zetti, flutt af þeim óperusöngv-
urunum Þuríði Pálsdóttur, Guð-
mundi Guðjónssyni og Borgari
Garðarssyni við undirleik Fritz
Weisshappel. Þótti þetta hið bezta
skemmtiatriði. — Að lokum var
svo stiginn dans fram á nótt.
Mótin fóru ágætlega fram og
ríkti mikil ánægja með tilhögun
þeirra.
1 Deila verk-
fræðinga til
sáttasemjara
SAMNINGANEFNDIR
verkfræðinga og vinnu-
veitenda þeirra urðu á-
sáttar um það í gær að
vísa deilu þeirra til sátta-
semjara ríkisins. Ekki er
vitað, hvenær fyrstu sátta
fundir verða með þessum
aðilum.
Hjartans þakkir sendum við Kvennadeild Slysavarna-
félags íslands Reykjavík, stjórn og starfsfólki Slysavarna
félagsins, Kvennadeildinni í Keflavík og öllum öðrum,
sem gerðu för okkar til Suðurlands ógleymanlega með
hlýjum og elskulegum móttökum.
Hópferð Kvennadeildar Slysavarnafélagsins Akureyri.
Hjartans þakkir til allra vina og vandamanna nær og
fjær, sem glöddu mig á 80 ára afmæli mínu 9. júlí sl.
Guð blessi ykkur öll. "
Jóhanna Jónsdóttir,
Ránargötu 25, Akureyri.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem sýndu mér vin-
áttu og hlýhug á sextugsafmæli mínu þann 11. þ.m.
Guð blessi ykkur öll.
Ósk Þórðardóttir frá Uppsölum.
Þakka fjölda skeyta árnaðaróska, blóma og gjafa á 70
ára afmæli mínu 5. júlí.
Heill og hamingja fylgi ykkur öllum.
Jóhannes Laxdal Tungu.
Mínar beztu þakkir til ykkar allra fyrir skeyti, gjafir
og heimsóknir á sextíu ára afmæli mínu 12. júlí sl.
Sigurjón Sigurjónsson, Langholtsvegi 194.
Innilegar þakkir til allra, sem heiðruðu mig með heim-
sóknum, gjöfum, skeytum og hlýjum handtökum á 60 ára
afmælinu 12. júlí sl. — Guð blessi ykkur öll.
Gunnar Jónatansson, Stykkishólmi.
Alúðarfyllstu þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 70 ára af-
mælisdegi mínum þann 1L júlí sl.
Jón Ölafsson, Hringbraut 111.
Móðir okkar
HALLDÓRA GUÐNADÓTTIR
sem andaðist 11. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 19. þ.m. kl. 10 f.h. Athöfninni verð-
ur útvarpað. '
Böm hinnar látnu.
Jarðarför
SIGURBJARGAR ÁRNADÓTTUR
sem andaðist á Elliheimilinu Grund 9. júlí sl. fer fram
miðvikudaginn 19. júlí kL 1,30 e.h. í Fossvogskirkju.
Vandamenn.
Móðir mín
GUÐRHIUR GUÐMUNDSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu Rauðarárstíg 30, laugardaginn
15. júli.
Fyrir mína hönd, systkina minna og annarra
vandamanna.
Þorsteinn Einarsson.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför ömmu minnar
CUÐRÚNAR HALLDÓRSDÓTTUR
frá Langagerði.
Fyrir mina hönd og annarra vandamanna.
Hulda Sigurlásdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför
KETILRÍÐAR EINARSDÓTTUR
frá, Tannstaðaakka.
Aðstandendur.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför
ELlNBORGAR PALSDÓTTUR
frá Unnarholti.
Vandainenn.
Maðurinn minn
JÓN VALDIMAR JÓNSSON
Hamarsgerði, Brekkustíg 15,
andaðist 16. júlí í Landakotsspitala. Jarðarförin aug-
lýst síðar.
Þórdís Ágústa Hannesdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
útför
KRISTJÖNS JÓNSSONAR
húsasmíðameistara.
Jón Magnússon, börnin og aðrir aðstandendur.