Morgunblaðið - 04.10.1961, Page 22
22
MORGUN BL AÐ1Ð
Miðvikudagur 4. okt. 1961
Þdrdlfur var daufur
en ílendist sennilega
Þrír isl. knattspyrnumenn gátu komízt
á samning hjá St. Mirren
Þ R í R ísl. knattspyrnumenn
hafa að undanförnu dvalizt
hjá St. Mirren í Skotlandi
við æfingar og kepptu allir
einn leik með B-liði félags-
ins sl. laugardag. Þetta voru
þeir Kári Árnason frá Akur-
eyri, Ormar Skeggjason íVal
og Þórólfur Beck, KR. Orm-
ar var lengst í Skotlandi eða
17 daga, en hinir tveir komu
viku síðar — að aflokinni
keppni ísl. landsliðsins í Eng
landi. Ormar og Kári komu
heim í fyrrakvöld og við
náðum tali af Ormari í gær
og spurðum hann um dvöl-
ina ytra.
★ Vel tekið
Við höfðum það stórfínt.
Bjuggum á fínu hóteli. Við
mættum á æfingar með 1. liði
félagsins klæddir eins og fínir
menn. Okkur voru fengnir
burstaðir skór og pressaðir bún-
ingar og allt sem við þurftum
með. Svona er dekrað við at-
vinnumennina þar ytra.
Æfingarnar
Æfingarnar sem við stund-
uðum voru þrjá daga í viku,
þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga. Á laugardögum er
leikið en frí er í þrjá daga í
viku.
En þaS vakti einkennilega til-
finningu hjá okkur að þegar
æft var, var æft tvisvar á dag.
Fyrir hádegi var hlaupið og
spilað dálítið. Síðan kom gott
bað og hádegisverður en síð-
an er aftur tekið til við æfing-
ar og þá gerðar alls kyns þrek-
æfingar.
Og þetta fannst mér einkenn-
andi fyrir æfingar þarna, að
þar er minna spilað en hér
er gert. Þrek og aftur þrek
er aðalatriði.
— Voru fleiri „gestir" hjá
Mirren en þið?
— Nei. Við æfðum ásamt
með 13—14 úr 1. liði þeirra.
Það eru allt atvinnumenn sem
ekki gera annað en æfa knatt-
spyrnu. Fleiri úr 1. liði félags-
ins eru atvinnumenn, en stunda
aðra vinnu með og eiga þess
kost að æfa á kvöldin. Þá æfir
líka allt B-liðið.
Á- Kjör atvinnumanna
— Hver er munur á 1. liff-
inu og B-liðinu.
— Hann er miklu meiri
knattspyrnulega séð en mað-
ur gæti að óreyndu haldið.
En allt eru þetta atvinnu-
menn. B-liðsmenn fá 18 pund
á viku. Hinir fá 24 pund á
viku auk „bónusa“. Þeir
fengu t. d. 5 punda „bónus“
fyrir jafnteflið við Glasgow
Rangers. Auk þess fá þeir
aukaþóknun ef aðsókn að
leikum þeirra fer fram úr
vissu marki. Þetta er allt ný
hækað, þessar greiðslur,
sagði Ormar.
— Hvernig komst þú í sam-
band við St. Mirren?
— Þeir munu hafa skrifað
Murdo þjálfara Vals og báðu
um að hann tilnefndi 1—2 menn
til slíkrar farar. St. Mirren
borgaði ferðir og allt uppihald
fyrir okkur. Þetta var sem sagt
kostaboð. Ég átti eftir sumarfrí
og ákvað mig þegar í stað.
— Og gátuð þið veriff leng
ur?
— Þeir vildu hafa okkur
lengur, já. Minnsta kosti 2
—3 vikur og lofa okkur svo
að ákveða hvort við yrðum
áfram hjá félaginu, en þá
hefðum við að sjálfsögðu orð
ið að skrifa undir samning.
— Hvorugur okkar Kára
gat verið lengur að sinni og
ég fer sennilega ekki aftur
þangað, orffinn gamall og hef
góða stöðu. En Kári virtist
fáanlegur og ég held jafnvel
að hann fari út nú fljótlega
aftur.
— Var þá auðvelt að fá dval-
arleyfi?
— Nei, það voru einhver
vandræði. Innflytjendaskrifstof-
an var eitthvað að jagast út af
okkur, og Þórólfur hafði aðeins
dvalarleyfi í tvo mánuði. En
þeir bjuggust við að geta bjarg-
að því þegar þar að kæmi.
★ Þórólfur daufur
— Var þá Þórólfúr ákveð-
inn í að vera áfram.
— Það var nú hálf-dauft í
honum hljóðið þegar við
kvöddum en sama kvöld náði
Jimmy Brown í hann og
hann flutti heim til hans, þar
sem hann verður. Kári yrði
áreiðanlega hjá einhverjum
leikmannanna ef hann fer
utan.
— En verður Þórólfur ekki
að gera samning?
— Eg held hann ætli út í
þetta af alvöru.
— Er ekki um einhverjar
byrjunarupphægir að ræða
Pirie játar
f HINU MIKUA enska sunnu
dagsblaði „The People“ viður
kennir enski hlauparinn Gord
on Pirie að hann hafi hagnast
um 120 þús krónur á að taka
þátt i keppni sem „áhugamað
ur“.
— Ég get viðurkennt þetta
núna eftir að ég er orðinn
yfirlýstur atvinnumaður, að
ég hef lengi fengið greiðslur
fyrir þátttöku í mótum. Ef ég
legg allt saman gæti ég trúað
að upphæðin næmi 1000 pund
um.
Ég get nefnt aðra hlaupara,
tugum saman, sem fengið
hafa greiðslu fyrir að keppa
sem „áhugamenn“ sagði Pirie
sem 22. okt. n.k. hefur feril
Oráðið
ennþá
— saghi Kári
5EINT í gærkvöldi náðum við
Kára Árnason hirrn unga en
efnilega knattspyrnumann
'rá Akureyri og spurðum hann
xvort hann hefði í hyggju að
ferast leikmaður St. Mirren
regna þeirra ummæla sem
(fram koma annars staðar hér
i síðunni.
— Ég hef ekkert ákveðið
snnþá, sagffi Kári. Það er mjög
freistandi að vera þarna, góð
'aðstaða og allt þess háttar.
Það kæmi mjög til greina, að
ég færi aftur og yrði 2—3 vik-
ur. Fyrst eftir slíkan reynslu-'
tíma kemur upp spurningin
um samning. En þetta er allt
óráffið ennþá.
sinn sem yfirlýstur atvinnu-
maður. Hleypur hann þá á
cirkusvelli í San Sebastian á
Spáni. Á hann að hlaupa 100
hringi á meðan aðrir hlaupa
50 hringi.
Yfirlýsing Piries um „áhuga
mennina“ kemur sem reiðar-
slag á brezka frjálsíþróttasam
bandið. En það er ekki laust
við að hlakkj í sænskum blöð
um, en Dan Waern varð fyrst
ur til að viðurkenna að greiðsl
ar hefðu átt sér stað til „á-
hugamanna".
3 gegn 1
Á LAUGARDAGINN var leikur-
inn St. Mirren Raith Rockers í
Skotlandi, en með liði Mirren
léku þeir Þórólfur Beck, Ormar
Skeggjason Og Kári Árnason.
Þetta var B-lið St. Mirren og liðið
tapaði leiknum með 1 marki gegn
ísl. leikmennirnir fengu bezta
dóma liðsmanna og Þórólfur skor
aði eina mark Mirren. íslending-
arnir léku þarna eftir 1—2 vikna
æfingar með St. Miren og þær
æfingar gengu mjög vel fyrir þá
eins og fram kemur í viðtali við
Ormar annars staðar á síðunni.
Giæsileg verðlaun
í sundi á ísalirði
ÝMS FYRIRTÆKI og einstakling
ar á ísafirði, hafa gefið sundhöll
inni fagra verðlaunagripi til að
keppa um í sundi. Þetta eru 10
glæsilegir bikarar og skildir úr
silfurplett. Þeir vinnast til eign
ar, þeim keppendum sem vinna
þrisvar sinnum, þó það sé ekki
samfellt. Auk þess voru gefnir
30 verðlaunapeningar, 1., 2. og 3.
verðlaun, sem vinnast til eignar
strax í fyrsta sinn.
Gefendur eru þessir:
Flugfélag íslands, íshúsfélag
ísafirðinga, Marselíus Bernharðs
son, skipasmíðam. Neisti h.f., Ó1
afur Guðmundsson, forstjóri, Ól-
afsbakarí, Rafveita ísafjarðar,
Smjörlíkisgerð ísafjarðar og slysa
varnarsveitir bæjarins.
1. sundmótið um þessa fögru
gripi verður haldið sunnudaginn
8. október n.k. og er öllum heim
il þátttaka innan ísafjarðarkaup
staðar og Eyrarhrepps.
Á ísafirði eru allmörg góð sund
mannsefni, m.a. tveir unglinga-
meistarar frá síðasta íslandsmóti
þau Margrét Óskarsdóttir og Jó
hannes Jensson.
þarna, þegar menn gera samn
ing í fyrsta sinn.
— Jú. Ég held að hæst
sé greitt 2000 pund, en mjög
algengt er að svona „byrjend
ur“ fái 500—1000 pund við
undirskrift.
— Leizt þeim vel á Þórólf
forystumönnunum?
— Eg heyrði það á tali
þeirra að þeim fyndist hann
dálítið þungur eins og væri.
En þetta var nú bara kominn
einn leikur og Þórólfi fannst
sjálfum að hann ekki vera í
essinu sínu.
— Var um það rætt að
hann yrði í 1. liðinu í næsta
leik.
Bridge hjá Þrótti
VETRARSTARFSEMI Knatt-
spyrnufélagsins Þróttar í bridge
hefst á fimmtudaginn 5. okt. í
Grófinni 1, kl. 8 e.h. Spilað verður
í vetur á hverjum fimmtudegi.
Undanfarna vetur hefur starf-
semi þessi verið mjög vinsæl, og
er öllum heimil þátttaka.
Hneyk.sU
í Oslo
ÞAÐ var skýrt frá því hér á dög-
unum að norska meistaraliðið
Frederikstad hefði af Noregs
hálfu tekið þátt í keppninni um
Evrópubikarinn í knattspyrnu. f
fyrstu umferð keppninnar ( sem
er útsláttarkeppnij mættu Norð-
menn belgiska liðinu Standard
frá Liege. Belgir unnu báða leik-
ina og halda áfram í keppninni.
En framkoma Belgíumannanna
við Norðmennina vakti furðu
víða um álfuna. Þegar Frederik-
stad kom til Liege kom enginn
staðarmanna til að taka á móti
þeim og greiða götu þeirra. Og
þegar Belgarnír komu til Noregs
hafði norska sambandið pantað
hótelherbergi fyrir þá. En Belg-
unum líkaði það ekki — fussuðu
og sveiuðu og fóru á annað hótel.
í leiknum í Osló lá margoft við
slagsmálum en hápunkturinn
varð er miðvörður belgiska liðs-
ins spýtti framan í annan bak-
varða Norðmanna.
Norska blaðið Morgenposten
lauk frásögn sinni af leiknum
með þessum orðum.
— Þökk fyrir heimsóknina,
j Standard, en komið þið alls ekki
! aftur.
I Það er víða heitt í hamsi.
— Ekki svo ég heyrði. Frek
ar gæti ég trúað aff hann
fengi sérstaka þjálfun fyrst í
stað. En það er víst aff þá
vantar góðan framherja. Leik
ur framherjanna í 1. liðinu
síðast var mjög daufur og
þar skortir félagið menn.
— A. St.
Patterson
ver titil sinn
FLOYD Pattersón heimsmeist-
ari í þungavikt hnefaleika ver
titil sinn fyrir Tom McNeeley
mánudaginn 4. des. n.k. Þetta
verður fyrsti kappleikur um
heimsmeistaratign sem fram fer
í Kanada. Leikurinn fer fram á
stærsta hockey-velli Kanada sem
rúmar 15000 manns.
Verð aðgöngumiða er ekki end
anlega ákveðið en verður líklega
50 dalir að því er sagt var í
íréttinni.
Fríðríb vann
Portisch
f GÆRDAG var tefld síðasta um
ferð á skákmótinu í Bled. Ekki
tókst að ljúka öllum skákunum
og meðal þeirra sem fóru í bið
voru Ská'k Fischers Og I'kovs og
skák Tals Og Njadorfs. Verður
því enn ekkert sagt um hvér
hlýtur sigur á þessu mifcla móti.
Vegna truflana á sendingu
skeytisins náðist ekki úrslit allra
skákana. En ljóst er um úrslit
þessara.
Friðrik vann Portisch.
Geller og Pachmann jafntefli.
Matanovic og Germek, jafnt.
Trifunovic og Darga, jafntefli.
Keres vann Donner.
Endanleg röð skámanna er ekkl
kunn enn, en Friðrik hefur hlot
ið 8% vinning af 19 mögulegum.
Félagslíf
Ármann, körfuknattleiksdeild
Æfingar hefjast í kvöld í íþr.*
húsi Jóns Þorsteinssonar:
Kl. 8.00 kvennafl.
Kl. 8.45 3. fl. karla.
Kl. 9.0 Mfl., 1. og 2. fl. k.
Fjölmennið og mætið stundvís*
lega!
Þjálfarar.