Morgunblaðið - 29.09.1962, Blaðsíða 1
24 síður
oumedienne
varnamálaráðherra
í stjórn Ben Bella
Khemisii verður utanríkisráðherra
Algeirsborg, 28. sept. — NTB —
FORSÆTISRÁÐHERRA
Alsír, Ahmed Ben Bella,
lýsti yfir því á þingi á föstu-
dag, að hann hefði tilnefnt
Houari Boumedienne, ofursta,
varnamálaráðherra í ríkis-
stjóm sinni. Khemisti verð-
ur utanríkisráðherra, Ahmed
Francis f jármálaráðherra, Ah
med Medecher innanríkisráð-
herra, Amar Bentoumi dóms-
málaráðherra og Amar Ouz-
gane landbúnaðarráðherra.
Ben Bella sagði, að hin nýja
ríkisstjórn mundi virða Evian-
samkomulagið milli Alsír og
Frakklands. Kvað hann stjórn-
• Erhard tilnefndur
Kirchenheim, 28. sept. —
(NTB) — bingmenn Kristi-
lega demókrataflokksins frá
Bayern tilnefndu á föstudag
dr. Ludwig Erhard sem sinn
frambjóðanda í stöðu ríkis-
kanzlara, þegar dr. Adenau-
er lætur af því embætti.
Tyrklandsstjórn:
Engin skip
til Kúbu
NEW YORK, 28. sept. (NTB)
— Tyrkneska stjórnin hefur
lagt bann við því, að tyrk-
nesk skip sigli til Kúbu. Tvö
tyrknesk skip, sem nú eru á
leið til kúbanskra hafna,
hlaðin vörum, hafa fengið
fyrirskipun um að afferma
þær annarsstaðar. — Þessar
upplýsingar gaf utanríkisráð-
herra Tyrklands, Feridum
Eerkin, í New York á föstu-
dag.
Stjórnin hefur tekið um-
rædda ákvörðun í samræmi
við tilmæli ríkisstjórnar
Bandaríkjanna. Samkvæmt
þeim upplýsingum, sem fyrir
liggja í New York, er Tyrk-
land ennþá eina landið, auk
Bandaríkjanna, sem sett
hafa Kúbu í algjört viðskipta
bann.
SETNING alsírska þingsins.
Myndin sýnir fulltrúa á hinu
nýkjörna þingi Alsír, er það
kom saman í fyrsta skipti í
Algeirsborg sl. þriðjudag. Al
fundinum var Ferhat Abbas,
fyrrverandi forsætisráðherra
alsírsku útlagastjórnarinnar,
kjörinn forseti. Hann var
einn í framboði og hlaut 155 \
atkvæði — en 36 skiluðu I
auðu. — J
ingu fjögurra ráðherra ann-
arra.
VILL EININGU ARABA
Æðstu menn hersins hafa á-
kveðið að sett skuli á fót lýð-
veldisráð fjögurra manna og
verður Aly Osman í forsæti. Þá
hefur herstjórnin gefið út yfir-
lýsingu um stefnu sína í stjórp-
málum, þar sem m.a. er tekið
fram, að lýðveldið muni hafa
náið samband við Arabaríkdn.
Vilja hinir nýju ráðamenn efla
Arababandalagið og styrkja sam
starf Araba á efnahagssviðinu.
Á vettvangi alþjóðamála, segir
í yfirlýsingunni, að lýðveldið
muni berjast gegn heimsveldis-
stefnunni og erlendri íhlutun.
Landið vill standa vörð um sátt-
mála Sameinuðu ' þjóðanna og
eiga vinsamleg samskipti við
allar þjóðir, sem viðurkenna
sjálfstæði landsins.
Ennfremur er það tekið sér-
staklega fram að Jemen muni
styðja arabíska þjóðernisstefnu
og ríkið skuldbindur sig til að
vinna að einingu Araba með
sameiningu þeirra í eina þjóð
fyrir augum.
Framhald á bls. 28.
Verkfall .við
brezku járn-
brautirnar
LONDON, 28. sept. (NTB) —
Samband brezkra járnbrauta-
starfsmanna áikvað á föetudag
að halda til streitu ákvörðun
sinni um sólarhringsverkfall hinn
3. október. Mun verkfallið ná
til allra meðlima sambandsins,
en þeir eru um 334 þúsund tals-
ins.
Hefur sambandið vísað á bug
málamiðlunartillögu samgöngu-
málanefndar, en sú nefnd hefur
rrueð hönduim stjórn brezku rík-
isjárnbrautanna.
Járnbrautarstarfsmenn krefjast
þess, að nefndin falli frá áætl-
unum sínum um breytingar á
rekstrinum þ.e. fækkun við-
gerðarverkstæða, en hún hefði
í för með sér nokkra fækkun
starfsfóiks. Áformað hefur ver-
ið að breytingarnar kæmu til
framkvæmda á næstunni.
ina mundu reyna að finna
grundvöll að samvinnu á jafn-
réttisgrundvelli við Frakkland.
Þá lagði forsætisráðherrann
áherzlu á nauðsyn þess, að hefja
hið bráðasta umbætur á sviði
landbúnaðar í Alsír. Og loks
lét hann þess getið, að her lands-
ins mundi brátt verða samein-
aður undir eina sljórn.
Stjdrn undir forsæti Sallal
sezt að völdum í Jemen
Fyrrverandi utanríkisráðherra og
9 leiðtogar aðrir teknir af lífi
Krónprins Al-Hassan á leið til landsins
Aden, 28. sept. — NTB —
ABDULLAH Ale Sallal, of-
ursti, tók á föstudag við emb-
ætti forsætisráðherra Jemen,
og verður hann jafnframt
yfirmaður hersins. Var frá
þessu skýrt í Sanaa-útvarp-
inu, en það er í höndum upp-
reisnarmanna. Sallal var áð-
ur yfirmaður í lífverði hins
látna konungs landsins. Sam-
tímis var skýrt frá útnefn-
Ahmad konungur
— lézt í síðustu viku 71 árs.
Mohammed Al-Badr konungur
— tók við af föður sfnum, en
fórst í rústum konungshallarinn-
ar í byltingunni.
Samningaviðræöur m aðild
Noregs að EBE í jan.-feb.
Versnandi ástand
á landamærum
PEKING, 28. sept. (NTB) —
Kínversk blöð skýrðu frá því á
föstuidag, að ástandið á norð-
austur-landamærum Tíbet og
Indlands væri nú verra en áður.
Sögðu þau að bardagar héldu
ófram á þessum slóðum.
í blaðafregnunum er veitzt all
harkalega að Indverjum. Segir
þar m.a., að 5 kínverskir landa-
mæraverðir hafa fram til þessa
orðið fórnarlömb hinna ind-
versku árásarmanna. Aðgerðir
þeirra séu liður í skipulögðum
árásaraðgerðum meðfram endi-
löngum landamærum' Kína og
Indlands. Þegar stöðugt séu
högigvin skörð í raðir kinverskra
landamæravarða eigi Kínverjar
ekki annars úrkosta en að snúast
til vopnaðrax varnar segir í blöð-
unum.
OSLÓ, 28. sept (NTB) — Einn
af leiðtogunr. Efnahagsbandalags
Evrópu, dr. Jean Rey, sem veitir
forstöðu þeirri deild bandalags-
ins, sem fjallar um samskiptin
við utanaðkomandi aSila, lét
svo um mælt hér í dag, að gert
væri ráð fyrir að samningavið-
ræður um aðild Noregs að Efna-
hagsbandalaginu færu fram um
mánaðamótin janúar/febrúar
næstkomandi — og mundu ekki
taka langan tíma.
Eins og kunnugt er lagði Hal-
vard Lange utanríkisnáðlherra
Norðmanna, greinargerð fyrir
bandalagið hinn 4. júlí sl. Var
þar lýst afstöðu norsku stjórn-
arinnar til þeirra mála er varða
aðilda Noregs að bandalaginu.
í framhaldi af þessu er gert
ráð fyrir að í lok október eða
byrjun nóvember eigi sér saci
viðræður til þess að skýra frek-,
ar nokkur sérstök atriði, m.a.
afstöðuna til fiskimála.
Hinar raunverulegu samninga-
viðræður munu svo væntanlega
hefjast eftir áramótin, og kvað
dr. Rey óþarft að bíða þess að
gengið hefði verið frá aðild
Breta. Ekki kvaðst dr. Rey gera
ráð fyrir að umræðunum um
aðild Breta yrði lokið fyrr en
um páska, enda þótt ýmsir bjart-
sýnismenn gerðu ráð fyrir að
þeim gæti lokið um næstu áraimót
Að því er snertir umisóknimar
frá Svíþjóð, Sviss og Austurrífci,
sagði dr. Rey, að það hefði ver-
ið einn liður í þeim, sem undrun
hefði vakið, þ.e. ósk þeirra um
að tekið yrði upp í samning um
aukaaðild ákvæði, sem heimilaði
úrsögn úr bandalaginu. Augljóst
væri, að stjórnmálaleg sameining
Evrópu væri meginatriði í sam-
bandi við tengsl við bandalagið,
enda væri af þess hálfu litið
svo á, að aukaaðild væri skref
á sviði stjórnmála með þeim af-
leiðingum, sem slíku fylgdi.